Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Síða 21

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 16.05.2024, Síða 21
20 Framkvæmdafréttir nr. 730 2. tbl. 32. árg. Framkvæmdafréttir nr. 730 2. tbl. 32. árg. 21 Þingskálavegur er að hluta til malarvegur sem að sögn Héðins var orðinn efnisrýr og erfitt að viðhalda. Slitlag er beggja megin við framkvæmdakaflann og því verið að tengja saman þessa tvo slitlagskafla. „Umferð um veginn er alltaf að aukast þar sem ferðaþjónusta hefur verið að byggjast upp og svo fer sumarhúsabyggðin líka vaxandi,“ segir Héðinn. Sumardagsumferð (meðalumferð á dag fyrir sumarmánuðina) er um 160 bílar en um veginn aka íbúar, sumarbústaðagestir en einnig töluvert af ferðamönnum, bæði á eigin bíl og hópferðabílum. Vetrardagsumferð er hins vegar lítil, aðeins um 70 bílar. Þungaumferð er lítil en hins vegar ekur skólabíll þessa leið. Eins og áður sagði hófust framkvæmdir í mars. Fyrstu vikurnar fóru í undirbúning og mælingar en í apríl hófst efnisvinnsla í námu við Þingskálagryfju. Þá var byrjað að aka með fyllingarefni í veginn til að byggja hann upp. Einnig hafa ræsi verið flutt á rétta staði þar sem þau bíða þess að verða skipt út fyrir eldri ræsi. Vegurinn verður að mestu byggður upp í gömlu veglínunni en stærsta breytingin verður við bæinn Heiði þar sem færa þarf veglínuna á um 300 m kafla um Heiðarlæk. „Í Heiðarlæk er steypt ræsi sem þarf að brjóta niður en í þess stað verður sett nýtt og breiðara ræsi. Einnig verður útbúin stífla fyrir uppistöðulón að ósk landeiganda,“ segir Héðinn og bætir við að þessi breyting á veginum muni auka umferðaröryggi til muna en áður var kröpp beygja á veginum og sjónlengdir takmarkaðar. Nokkrar fornminjar eru á framkvæmdasvæðinu, til dæmis tóft af hesthúsi og önnur heimild um hesthús. Þessir staðir verða girtir af í upphafi framkvæmda í samráði við Minjastofnun. Stefnt er að því að verkinu verði að fullu lokið 15. september á þessu ári. Helstu magntölur eru: → Skeringar 5.500 m3 → Bergskeringar í námu 18.500 m3 → Fyllingar 25.000 m3 → Styrktarlag 0/63 10.400 m3 → Burðarlag 0/22 8.200 m3 → Tvöföld klæðing 47.900 m2 → Frágangur fláa 62.900 m2 Hella Þjóðvegur (1) Rangárvalla- vegur (2 64) Þi ng sk ál a- ve gu r ( 26 8) Bj al la ve gu r (2 72 ) Húsagarðsvegur (2771) Árbæ jarvegur (271) Framkvæmdasvæði Ytri- Rangá Heiðarhraun Snasahraun Heiðarhraun ↓ Kort af framkvæmdasvæðinu.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.