Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 20

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Page 20
20 „Það er hægt að vera fyrirlitlegur á svo margan hátt að það er til að æra mann. En raunveru leg fyrirlitning felst í því að fyrirlíta sársauka annarra.“ – James Baldwin James Baldwin fæddist í Harlem í New York 2. ágúst 1924. Hann var bókhneigður drengur, gefinn fyrir skrif og skáldskap og almenningsbókasöfnin tvö í Harlem voru hans athvarf. Kennarar sáu að drenguri­ nn bjó yfir ríkri athyglisgáfu og næmi, að þar væri mikið efni í skáld og rithöfund, og hvöttu hann áfram. Til Parísar fluttist hann 24 ára, bjó þar næsta áratug og Herbergi Giovanni byggir hann að miklu leyti á reynslu sinni í borginni. Þar varð hann ástfanginn af svissneskum pilti og sú ást gaf honum kjark til að takast á við söguna um David, Hellu og Giovanni. Áratug síðar kallaði mann­ réttindabarátta svartra hann aftur heim til Bandaríkjanna en síðustu ár ævinnar bjó hann lengstum í Suður-Frakklandi og lést þar árið 1987. Með blaðagreinum sínum og rit­ gerðum varð James Baldwin einn beittasti og dáðasti baráttumaður fyrir mannréttindum og mannvirðingu svartra Bandaríkjamanna fyrr og síðar. Hann varð eftirsóttur ræðu­ maður á fjöldafundum og í háskólum og birti fjölmargar ritgerðir í blöðum og tíma­ ritum sem skömmu seinna rötuðu á bækur. Þá sendi hann alls frá sér sex skáldsögur um dagana. Á samfélagsmiðlum gengur arfleifð hans einnig í endurnýjun lífdaga en með gáfum sínum, mælsku og innsæi snertir hann enn hug og hjörtu nýrra kynslóða. Öld er liðin frá fæðingu rithöfundarins James Baldwins og af því tilefni kemur í fyrsta sinn út þýðing á skáldverki eftir hann á íslensku. Herbergi Giovanni kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1956 og segir frá David, Bandaríkjamanni í París. Söguhetjan verður ástfangin af ítalska barþjóninum Giovanni og flytur inn til hans í agnarsmátt leiguher­ bergi í París. Þetta litla og táknræna rými færir þeim ómælt frelsi en þar takast þeir líka á við ómælda skömm og sjálfshatur. Sagan er öðrum þræði ómetanleg heimild um samkynhneigðar ástir á öndverðri 20. öld og er nú talin til merkustu skáldverka heims­ bókmenntanna. Þýðandi sögunnar, Þorvaldur Kristinsson, hefur líkt og Baldwin lagt mannréttindabar­ áttu lið í nær hálfa öld. Í tíu ár var hann for­ maður Samtakanna ‘78, forseti Hinsegin daga í Reykjavík í tólf ár og ritstýrði Tímariti Hinsegin daga á þeim árum. Hann er bók­ menntaritstjóri að ævistarfi en hefur auk annars ritað þrjár ævisögur og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2008 í flokki fræði­ rita fyrir eina þeirra. Við spurðum Þorvald hvenær hann hefði fyrst kynnst ritverkum James Baldwins. „Ég settist í háskóla í Bandaríkjunum haustið 1970 og bæði þar og eftir heimkomuna urðu ýmsir kunningjar til að vekja athygli mína á ritgerðum hans, enda var mannréttinda­ barátta svartra í Bandaríkjunum í voldugri sveiflu á þessum árum. En Herbergi Giovanni las ég fyrst í Kaupmannahöfn, þá þrítugur, rétt eftir að ég horfðist í augu við það hvar ástríðan lá, og það var fyrir hvatningu fyrstu vinanna sem ég eignaðist í hópi danskra homma. Síðar las ég svo eitt og annað eftir Arfleifð James Baldwins – 100 árum fagnað Giovanni’s Room í íslenskri þýðingu Guðrún Úlfarsdóttir Baldwin, tvær af skáldsögum hans sem frægastar eru og margar af eldri ritgerðum hans. Undir lok aldarinnar fann ég skýrt til þess að skáldverk Baldwins nutu ekki sömu athygli og áður. Það var hljótt um hann utan hins akademíska bókmenntaheims síðustu árin sem hann lifði og eftir að hann lést, 1987. Þetta átti síðan eftir að breytast á nýrri öld, ekki síst þegar hreyfingin Black Lives Matter varð að veruleika árið 2013. Þá reis hann upp frá dauðum ef svo má segja, andlegur leiðtogi í baráttu okkar fyrir mannréttindum og mannvirðingu.“ Þetta er átakamikil bók og dramatísk, ekki síst lýsingar skáldsins á skömm. Hvernig leið þér eftir fyrsta lestur, hvernig var að lesa þessa sögu í samfélagi sem var statt á allt öðrum stað og svo við núverandi aðstæður? James Baldwin, 1974
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.