Freyja - 01.12.1906, Page 24

Freyja - 01.12.1906, Page 24
120 IX. 5- 'REYJA þó bóndadóftír væri henni ávalt gó5, en húsfreyjn gramdist aö niöursetningurinn skyldi betur gefinn en dóttir hennar og lét hana gjalda þess. Bína var aö mjólka kýrnar eins og venja var tik Ein kýrin var nng og hefir víst ekki skilið það lögtnál til hlýtar,að hlutskifti hennar í heimi þessum vœri aö éta tööu og framleiöa mjólk, því hún sló til foetinum og setti niöur meiri hluta mjólkurinnar. Hvaö átti aumingja stúlkan að taka til bragös? Hún vissi aö sér yröi kennt um mjólkurmissinn og að unglings- brek kýrinnar yröu ekki tekin til greina. Eini vegurinn var að segja satt og rétt frá öllu saman og biðja fyrirgeíningar og lofast til aö vera gætnari framvegis. Þetta gjöröi hún, en bænirhennar og andvörp voru ekki tekin til greina, húsfreyju svall mjólkurskaöinn, hún rétti Bínu því kinnhest, eins vel úti- iátinn og kraftar hennar leyföu, um leið og hún sagði: ,,Skammastu frá augunum á mér, ótuktin þín. “ Bína átti engan vin sem hún gæti fiúið til þegar einhver vandrœði báru aö höndum, hún varö ein að bera harma sína. Henni var of vel viö bóndadótturina til þess aö segja henni frá harðýögi móöur hennar, sérstaklega þegar þetta var jólanótt- in. Hún þorði ekki að fara inn í baðstofuna fyr en afieiðingar höggsins væru aö mestu horfnar, hún var líka vön viö að sjá vinnukonurnar hælast um þegar henni leið illa. Hún hafði lœrt, þó ung væri, aö tár munaöarleysingjanna eru all oft leik- fang heimsku og illgirni, hún fór því aftur í fjósiö, þar logaöi lítil Ijóstýra. Fyrst grét hún lengi en svo reyndi hún þó að hugga sjálfa sig meö ýmsu móti. Hún sá að kýrnar voru lagst- ar og jórtruðu ánœgjulega. Henni fannst þœr horfa ásig með- aumkunaraugum. Var þaö mögulegt að skepnurnar vœru tilfinninganæmari en fólkið? En birtan var svo dauf og þá minntist hún þess, aö ef hún eyddi of miklu úr kolunni, yrröi húsfreyjan vond, ’hún varð því aö hætta viö hugleiöingarnar um kýrnar en snúa sér að virkileikanum, hún baðaði þá and- litið í hálfvolgu fjósvatninu, bæði til að draga úr þrotanum sem höggið .orsakaði og til að afmá för táranna og gekk svc til baöstofu. Rúmið hennar var fremst í baðstofunni, þar var skuggsýnt, því engum fannst nithirsctningurinn þurfa ljós,

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.