Freyja - 01.12.1906, Page 26
122
FREYJA
IX. 5.
ir víð hana. En þá kom atvikfyrir sembreytti hugsanastefnu
hennar, því rétt í þessu kom bóndadóttirin undur hægt að
rúmi hennar, laut niður að henni og kyssti blíðlega á kinnina
á henni um leið og hún sagði: ,,Égsaknaði þín þegar fólkið
kom til að þakka fyrir lesturinn og því kom ég hingað aðvitja
um þig. —O! þú ert að gráta! hver hefir nú verið vondur
við þig?‘ ‘
,, Allir eru vondir við mig nema þú, “ sagði Bína snökt-
andi, en bœtti svo við í lægri róm: ,,En ég á þaö skilið því
ég er sjálf svo vond. “
,,Hví talarðu svona, þú ert einmitt góð stúlka Guð hefir
gefið þér góðar gáfur, það kemur œtíð skin eftir skúr og allt
fer vel á endanum, “ sagði bóndadóttir, lagaði til í rúminu og
settist svo fyrir framan munaðarleysingjann. Nú varð þögn,
því báðar voru að hugsa um hvað komandi tíðin hyldi ískauti
sínu. En þœr höfðu ekki langan tíma til að hugsa því hús-
freyja kom inn með fasi miklu og sagði dóttur sinni að faðir
hennar vildi finna hana strax. ,, Hann hélt víst að þú sæir
svo sóma þinn, að þú sætir ekki á tali við ótuktar niðursetning
sjálfa jólanóttina, “ bætti hún við í hvössum róm.
Bóndadóttir stóð þegjandi uppog fylgdi móður sinni, en
Bína fór aftur að gráta, því henni sárnaði að vinstúlka hennar
skyldi verða fvrir ónotum sín vegna. Svo lýstu orð húsfreyju
svo mikilli fyrirlitningu að þau þrengdu sér gegnum sálu
hennar og særðu hana voðalega. Hugsanir hennar voru svo
lamaðar að hún var hætt að hugsa, hún gat einuugis grátið.
En s:nám saman sefaðist einnig gráturinn og hún f i>r að lesa
bœnirnar sínar, að því búnu sneri hún sér til veggjar, lagði
aftur augtm og reyndi að sofna, en gat það ekki. Bína bilti
sér á ýmsar hliðar og hagræddi sér sem bezt hún gat, en allt
kom fyrir eitt. Það hlaut að v^a komið undir morgun, allt
var löngu orðið hljótt, það heyrðist ekkisvomikið sein svefn-
!æti í fólkinu og nóttin helga breiddi draumhjúp sinn yfir allt
í baðstofunni. Skyldi ekkert Ijós vera lifandi, hugsaði Bína,
ogsvo opnaði hún augun til að vita hvorí svo vœri. En sú
breyting! Allt umhverfis hana var ljóshaf svo sterkt að hún
mátti ekki 1" móti sjá, bráðlega vandist hún þó við birtuna og