Freyja - 01.01.1910, Blaðsíða 22
FREYjA
15«
‘XII 9
hvers höndum stjórnarfarið eingöngu er, því gegnum stjórn-
mál vinst þetta mál — þegar það vinst.
FRÁ GíMLI: — ,,Sigurvonin“, kvenréttindafélagið á
Gimli vinnur nú vel og kappsamlega að því að safna nöfnum
undir samskonar bænarskrá í kjördœmi sínu til að leggja fyrir
næsta þing Manitoba. Verður það fyrsta bænarskrá af því
tagi sem lögS er fyrir það þing. Og vönum vér að hún fái
góðar viðtökur. ,,Sigurvonin“ hefir sýnt sérstakan dugnað og
framtakssemi í því efni svo ungt sem það félag er, og á þakk-
læti og heillaóskir skilið fyrir það frá öllum veiunnurum þess
máls.
WOMANS COUNSIL í WiNNIPEG.— í Free Press,
7. feb. er greinarstúfur, sem getur þess að ofannefnt félag
hafi á fundi sínum 5.3. m. ákveðið aö vinna að þessu máli,
og var nefnd sett til að fjalla um það og finna þingmenn fylk-
isins og fá þá til að bæta þau lög, sem sérstaklega snerta
konur, viðvíkjandi atkvæðisrétti, landtokurétti o, fl. Svo
virðist sem Freyja sé nú ekki lengur alein á þeirri skoðun að
slík lög hafi verið og séu vilhöll og ranglát.
NEFNDIN.—- Nefnd frá ,,Sigurvon“ Gimli Suffrage
Association var send til að vera á fundi ,,Fyrsta ísl.kv.fr.fél. í
Ameríku' ‘, í Winnipeg, og fá það til að safna nöfnum undir
bœnarskrá í Winnipeg fyrir atkvæðisrétt kvenna. í nefndinni
voru Mrs. J. Christie, Mrs. Knútsson og Miss S. Stefánsson.
En þar eð þingið átti að koma saman 10. s. m , sá Winnip.
félagið litla vegi til að safna slíkri nafnaskrá svo vel voeri, hét
samt að gera sitt bezta. Þcer Gimli konur fluttu vel mál sitt,
enda hefði það verið auðsótt, hefði tími verið lengri, þar sem
markmið beggja félaganna er hið saina: að berjast fyrir jafn-
rétti kvenna