Helgarpósturinn - 06.07.1979, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 6. júlí 1979 _helgarpásturinrL.
NAFN: Guðmundur J. Guðmundsson STARF: Formaður Verkamannasambandsins og starfsmaður Dagsbrúnar HEIMILI: Fremrk
stekk 2 FÆDDUR: 22. janúar 1927 BIFREIÐAEIGN: Hefur afnot af Volvo 1970 ÁHUGAMÁL: Mörg en lítill timi fyrir þau
„Menntamannaklíkan gerir flokkinn leidinlegri”
Er verkalýðshreyfingin rekin
af örfáum einstaklingum ?
„Nei, það er nú rangt. 1 sjálfu
sér er verkalýðshreyfingin
mjög „demokratiskt” upp-
byggð, en það er með hana eins
og aðrar hreyfingar, að ef það
er ekki virk þátttaka þá kemur
náttúrlega ansi mikið starf á
hendur fárra manna. Hins veg-
ar er vald forystumanna verka-
lýðshreyfingarinnar hér miklu
minna en gerist erlendis, þvi
samningsvöld og lögsaga yfir
félögum Alþýðusambandsins er
ekki til staöar. Hvert félag er
sjálfstætt.”
Er forystumönnum verka-
lýðshreyfingarinnar stjórnað af
ákveðnum stjórnmálaflokkum?
„Það er bæði og. Það er sjálf-
sagt svo með suma, og eflaust
er hluti af þeim undir sterkum
áhrifum sinna flokka. Megin-
þorra þeirra myndi ég þó segja
nokkuð sjálfstæðan.”
• Ert þú undir áhrifum frá þin-
um flokki?
„Ég þyki nú rekast verr 1
flokki, eftir þvi sem ég eldist.”
Nú virðist ljóst að meginþorri
forystumanna verkalýðshreyf-
ingarinnar kemur úr sömu
stjórnmálaflokkunum. Hvers
vegna er það svo?
„Ég held að skýringin sé
ákaflega augljós. Það eru tveir
stjórnmálaflokkar, sem eru
með baráttumál verkafólks á
oddinum og þeir eru stofnaðir til
þess að standa vörð um hags-
muni þessa vinnandi fólks.
Þessir flokkar eru Alþýðuflokk-
ur og Alþýöubandalag.”
Hvers vegna hefur þá Sjálf-
stæðisflokkurinn fylgi meðal
verkafólks og um leið þessi itök
innan verkalýðshreyfingarinn-
ar?
„Það eru tvær meginástæður
fyrir þvi. önnur ástæöan er, að
hér eru tveir svona nokkuð jafn-
sterkir verkalýðsflokkar og þeir
leggja 50% af orku sinni hvor
gegn öðrum. Hin ástæöan er sú,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur
horfiö frá þessari ihaldssömu
stefnu, sem t.d. Ihaldsflokkarnir
á Norðurlöndum hafa. Ólafi
Thors tókst að sveigja hann I
frjálslyndisátt, þannig að hann
hætti aö snúast alfarið gegn
sjálfsögðum réttindamálum
verkafólks og ber nú á sér
frjálslyndara yfirbragð heldur
en hægri flokkar á Norðurlönd-
um. Þetta verk Ölafs Thors er
með meiri stjórnmálaafrekum
á islandi.”
Má ef til vill ætla að þú og
ýmsir aörir gamiir verkalýðs-
foringjar séu I raun æviráðnir?
Viö ykkur verði ekki hreyft?
„Ég er t.d. starfsmaöur
Dagsbrúnar og aöeins ráöinn
fyrir hvert kjörtimabil, þannig
að ný stjórn hefur aö loknum
aðalfundi fulla heimild til að
láta mig fara, þvi þá er minn
starfstlmi útrunninn.”
Verkalýður þessa lands hefur sjaldnast verið talinn ofalinn. Barátta verkafóiks fyrir bættum
kjörum hefur ekki verið hávaðalaus. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar hafa yfirleitt haft
munninn fyrir neðan nefiö og hafa veriö óhræddir viö aö nota hann.
Ýmsum finnst á hinn bóginn að völd verkalýðshreyfingarinnar séu allt of mikil. Foringjar
verkafólks noti sér hreyfinguna til framdráttar i pólitisku metorðaklifri. Þá sé aðalvopni verka-
lýðsins — verkfallsréttinum — beitt of oft án umhugsunar.
Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambands tslands hefur stundum verið
talinn guðfaðir núverandi rikisstjórnar. Hann hafi boriö klæði á vopnin þegar vopnaskakið innan
rikisstjórnarinnar hafi gengiðúr hömlu fram. Hann er taiinn valdameirien margan gruni.
Guðmundur Jaki eins og hann er titt nefndur, situr fyrir svörum I Yfirheyrslu Helgarpóstsins.
Hvað ertu búinn að starfa
lengi hjá Dagsbrún?
„Ég er búinn að vera I 25 ár.”
Svo er þá ekki ljóst að þrátt
fyrir heimiid stjórnar til að láta
þig fara, þá virðist vera um eins
konar æviráðningu á þér að
ræöa?
„Ja.”
Myndir þú t.d. taka þvi þegj-
andi og hljóðalaust ef nýkjörin
stjórn Dagsbrúnar myndi segja
þér upp störfum eftir þetta 25
ára starf. Myndir þú hætta
störfum umyrðalaust?
„Það er alveg skilyrt að
starfsmaöur er aöeins ráðinn til
eins kjörtimabils stjórnar i
senn, sem er eitt ár. Nú, þegar
ég hóf störf hjá Dagsbrún var ég
ekki með neitt prógram um ævi-
ráðningu."
Og þú ert ekki með æviráðn-
ingarprógram i huganum i dag?
„Nei. Ég er ekki frá þvi að
Maóisminn hafi dálitið fyrir sér
i þvi, að menn ættu að vinna i
viökomandi störfum eins og
þriðja hvert ár. Það ætti að vera
þaö breið forysta að menn ættu
að skiptast á um að gegna þess-
um störfum.”
Hvað er langt siöan þú hefur
unniö almenna verkamanna-
vinnu?
„Nú, siðan ég kom á Dags-
brún hef ég ekki unniö viö slikt,
nema hvað ég hef jú hjálpaö
kunningjum við húsbyggingar
og svoleiðis nokkuð.”
Má þá ekki ætla að þú sért
oröinn þessi dæmigeröi kcrfis-
þræll. Flibbamaður kominn
langt frá umbjóðendum þinum,
verkafólkinu og þeirri baráttu
sem það heyir?
„Um árabil var ég fyrst og
fremst á vinnustöðum I starfi
minu hjá Dagsbrún. Illu heilli
hef ég færst mikiö inn á skrif-
stofu, en hins vegar er liklegast
ekki lélegri kontóristi til. A hinn
bóginn var ég fyrstu 10 árin
mjög mikið á vinnustööum, eins
og ég nefndi, svo ég gjörþekki
aðstæður og aðbúnað verka-
fólks. Mitt starf er fyrst og
fremst þjónusta og aðstoð við
verkamenn og allan daginn
meira og minna biður röö eftir
manni. Verkafólk, sem þarf á
aðstoð og leiðbeiningum að
halda. Svoleiðis, að ég þekki
þetta út og inn og ætli ég þekki
ekki um það bH helming Dags-
brúnarmanna með nafni.”
Er verkalýðshreyfingin of
valdamikil I þjóðfélaginu?
„Hún er alltof valdalitil.”
Getur verkalýðshreyfingin
haldiö lifi i rikisstjórnum og þá
jafnframt drepið þær?
„Nei, þvi miður.”
Er verkalýðshreyfingin afl-
vaki þessarar stjórnar?
„Já, að vissu leyti. Það er nú
eiginlega fólkið I landinu sem
lyfti þessum tveimur verkalýðs-
flokkum til stærsta kosningasig-
urs sem þeir hafa unnið, þannig
að þá rétt vantar herslumun á
að vera I meirihluta á Alþingi.
Það hefur aldrei gerst áður.
Ég var að vona, að þegar
samstarf þessara flokka kæmist
á innan þessarar rikisstjórnar
með nýjum mönnum, þá tækist
að jafna þann ágreining sem
hefur verið með Alþýðubanda-
lagi og AlþýðuflokfcMIn von var
að yngri menn þessara flokka
bæru gæfu til að sameinast um
viss göfug baráttumál verka-
lýöshreyfingarinnar og sfni
eigin stefnumái . En raunin
hefur ekki orðið sú. Sambúö
þessara flokka hefur litið batn-
að. Ég veit ekki hvort við þurf-
um að ganga I gegnum nýja
kynslóð til að þessir flokkar fari
að taka höndum saman I bar-
áttu fyrir verkafólki þessa
lands"
Finnur þú þetta herskáa and-
rúmsloft innan þins flokks, Al-
þýðubandalagsins?
„Já, já ég finn það. Innan
beggja flokkanna. Nú, um það
hvort verkalýöshreyfingin hafi
lyft þessum flokkum til valda vil
ég bæta þessu viö:Það var útlit
fyrir það að þessir flokkar ætl-
uðu að mynda rikisstjórn án
þátttöku þeirra beggja. Þá
greip Verkamannasambandiö
inn I og skoraði á þessa flokka
að starfa saman i rikisstjórn.
Það hefur eflaust haft mjög
sterk áhrif. En þetta guðfeðra-
tal og valdatal allt saman, sem
viö Karl Steinar eigum aö hafa,
er út i hött. Ég hef ekki orðið var
við þessi helvltis völd. Vilja þeir
þá ekki láta mig fá þau. Það er
andskoti hart að vera kallaður
landshöfðingi og guðfaðir og
ráöa svo sáralitlu. Ég fer bara
aö heimta aö fá aöráöa. Ég verö
að fá aö risa undir nafni.”
Viltu eftir þetta fyrsta ár rik-
isstjórnarinnar halda þessari
stjórn lifandi lengur?
„Fyrsta ár þessarar stjórnar
hefur á ýmsum sviðum valdið
mér vonbrigðum. En ég vil
reyna betur, þvi mig hryllir við
þvi sem við tæki.”
Heldur þú sem sé að verka-
lýður þessa lands sé betur hald-
inn I dag, en gerðist t.d. á dög-
um rikisstjórnar Geirs Hall-
grímssonar?
„Hann er betur haldinn en var
’74 ’75 og ’76 og það er ekki
minnsti vafi á þvi aö ef þessi
rikisstjórn væri ekki, þá væri
hann mun verrhaldinn en hann
er I dag.”
Er verkalýðsleiðtogum lifs-
nauðsyn á tengslum við ákveð-
inn stjórnmálaflokk?
„Ef lifsskoðanir og stefna
stjórnmálaflokka eru i samráði
við baráttu verkafólks, þá er
verkafólki alveg brennandi
nauðsyn á að hafa veruleg itök á
Alþingi og I ríkisstjórn. Og sllk-
um itökum má ná I gegnum
stjórnmálaflokka.”
Nú er mjög gjarnan rætt um
ákveðinn verkalýðsarm og svo
aftur menntamannaarm innan
Alþýðubandalagsins. Er þetta
svo og kemur þetta niður á
verkalýðsstarfi flokksins?
„Þetta hefur nú aldrei verið
rétt skilgreint I fjölmiðlum.
Flokkurinn skiptist ekki hreint i
verkalýðsarm og mennta-
mannaarm. En hins vegar eru
margir svona „bóhemar” og
menntamenn innan Alþýðu-
bandalagsins, sem eru mér
ákaflega hvimleiðir.”
Er þessi menntamannaarmur
sterkur innan flokksins?
„Hann er ekki ráðandi afl I
flokknum, en þeir gera flokkinn
að minu áliti leiðinlegri.”
A menntamannaklikan sina
futltrúa á þingi?
„Nei, ekki er þaö. Akveðnir
þingmenn eru veikir fyrir þess-
um hópi.”
En atvinnurekendavaldið, er
það ekki jafn sterkt og áður?
„Jú, þeir eru sterkir. Þeir
standa vel saman. En ég er ekki
viss um að þeir hafi styrkst.”
En tekst verkalýðshreyfipg-
unni nokkurn tima að ná þvi
takmarki sinu, að hnekkja þessu
veldi forréttindahópa og koma á
launajöfnuði?
„Við stöndum bara frammi
fyrir þvi og á þvi hefur verka-
mannasambandið hamrað, , að
margt verkafólk hefur alls ekki
mannsæmandi laun. Ef til dæm-
is verkafólk með 200 þúsund
króna mánaðarlaun fær ein-
hver réttindi, einhverja réttar-
bót, þá heimta sérfræðingarnir I
prósentuvis þaö sama og plús
eitthvað fyrir sig. Þessi þróun
bætist við baráttuna við at-
vinnurekendavaldið og pen-
ingavaldið. Ég er ansi hræddur
um að þessi sérhyggja og þetta
sérfræðingavald eigi eftir að
verða erfiður þröskuldur i vegi
fyrir launajöfnuði.”
Þröskuldunum fjölgar sem sé.
Fleiri Ijón eru nú i veginum en
áður i átt til launajafnaðar.
„Já, það er breytingin á þjóð-
félaginu sem hefur kallaö á
þetta ástand.”
Ertu byltingarsinni?
„Menn eru farnir að deila um
hvað sé bylting. Ég held að
valdataka með ofbeldi eigi eng-
an grundvöll I þjóðfélaginu. Til
að slikur grundvöllur skapist þá
þarf ákveðiö þjóöfélagslegt
ástand. Atvinnuleysi og skort.
Ég er á móti atvinnuleysi og
skorti. Ætli ég sé þá ekki á móti
byltingu.”
Er islenskt verkafólk stétt-
vist?
„Já, það er nú nokkuö stétt-
víst. En það er ekki nógu brenn-
andi og virkt I baráttunni. Hætta
verkalýðsfélaga er að hluta til
fólgin i þvl að menn fari að
borga félagsgjöld, eins og þeir
séu að borga til gjaldheimtunn-
ar. Og að verkalýðsfélögin séu
stofnun i þeirra huga. En verka-
lýðsfélag á aö vera meira en hús
og simi.”
Hugsar þú hátt i stjórnmál-
um?
„Nei, andskoti hvað ég hef
eitthvaðhugsaö lltið um frama I
stjórnmálum.”
Hefur þér boðist frami á þeim
vettvangi?
„Ekki hefur nú verið mikið
um það, en ég hef ákaflega litið
borið mig eftir honum. Og ég sef
alveg fyrir framaleysi.”
Nú er það skoðun ýmissa and-
stæðinga þinna að þú taiir hátt
og mikið og segir oft meira en
þú getir staðið við. Ertu hróp-
andinn frekar en framkvæmda-
maðurinn?
„Minn vinnudagur er langur
og strangur. Kannski tekur
maður stundum of mikið upp I
sig, er þá kannski full bjart-
sýnn. Ég er ákaflega rólyndur
maður að eðlisfari og skipti
sjaldan skapi. En það er ekki
mitt að dæma um þetta. Ég,
hrópandinn? Nei, ég vil bara
ekki viðurkenna það.”
Berðu þá von i brjósti og býstu
við þvi að auðlegðarhlutföll I
þjóðfélaginu breytist einhvern
tima alþýðunni i hag?
„Já, ég á skilyrðislaust von á
þvi. En það verður harðsnúin
barátta. Vegna þess aö margir
þeir sem segjast elska verka-
lýöinn mest, vilja ekki láta hann
fá krónu nema þeir fái jafn-
framt túkall.”
eftir Guðmund Árna Stefánsson