Helgarpósturinn - 06.07.1979, Page 23
helgarpústurinru Föstudagur 6. júlí 1979
23
Margir hafa oröið til að leiða
hugann að þvi siðustu daga
hvernig staðið verði að þvi af
Islands hálfu að taka við 5 til 6
fjölskyldum frá þvi striðshrjáða
landi, Vietnam. I kjölfar þess að
utanrikismálanefnd Alþingis
mælti með þvi aö við tækjum við
þessu fólki og rikisstjórnin sam-
þykkti að fela Rauða krossi
íslands að annast framkvæmd
málsins, er nú framkvæmdastjóri
Rki, Eggert Ásgeirsson, staddur
erlendis til að huga frekar að
þessu máli.
Af hálfu forsvarsmanna Rauða
krossins hér hefur ekki verið
dregin dul á að hér sé um mjög
kostnaðarsamt og erfitt verkefni
við að fást. Akveðið hefur þó verið
að öll meðferð þessa máls ytra
fari fram i gegnum Alþjóða
Rauða krossinn fremur en Flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóð-
anna. Kemur þar til tvennt — að
starfsmenn alþjóðadeildar Rauða
krossins hafa mikla reynslu i
hjálparstarfi af þessu tagi og eins
hitt að heldur misjafnt orð fer af
Flóttamannahjálpinni meðal
Bátafólkið frá Vietnam — hvað biður þess hér
FLÓTTAFJðLSKYLOURNAR ÞURFA
LANGAN TfMA TIL AÐLðGUNAR
þeirra hjálparstofnana sem þurft
hafa við hana að skipta á liðnum
árum og þykir hún stundum rekin
meira af kappi en forsjá.
Það er þó Flóttamannahjálpin
sem hefur haft frumkvæðið að þvi
að Vesturlönd eru fyrir alvöru
farin aö taka á þvi vandamáli,
sem flðttamannastraumurinn frá
Vietnam er, og aðgerðir eru hafn-
ar til að veita þessu nauðstadda
fólki landvist. Tveir Danir eru i
forsvari fyrir Flóttamannahjálp-
inni. Annar þeirra og yfirmaður
stofnunarinnar er Poul Hartling,
gamalreyndur stjórnmálamaður
og fyrrum forsætisráðherra, hef-
ur mjög beitt sér i þessu máli og
má vel vera að stjórnmála-
reynsla hans hafi kennt honum ao
tækifærið til að ná alþjóðlegri
samstöðu um lausn flóttamanna-
vandamálsins sé einmitt nú þegar
bátafólkið frá Vietnam er mest i
fréttunum, enda þótt engan veg-
inn sé enn séð fyrir endann á
flóttamannastrauminum frá
Vietnam.
Ljóst er að þær fjölskyldur sem
hingað flytjast, munu verða sótt-
ar til Malaysiu, þar sem neyð fl-
óttafólksins er hvað mest, m.a.
vegna afstöðu stjórnvalda þar i
landi, sem tekið hefur þá ákvörð-
un að reka bátsfólkið miskunnar-
laust á haf út aftur. Eins og ræki-
lega hefur verið tiundað eru Viet-
namarnir, sem þarna hafa leitað
skjóls i miklum meirihluta af kin-
verskum ættum, enda þótt þeir
hafi margir hverjir búið jafn
lengi i Vietnam og íslendingar
hér á landi. Þeir hafa þó tiltölu-
lega litið blandast ibúunum, sem
fyrir voru i landinu.
Algengast mun að i hverri þess-
ara fjölskyldna séu 5-6 manns,
þannig að alls verði hópurinn sem
hingað kemur um 30 manns, en á
Rauða kross-mönnum hér heima
er að heyra að þessi hópur verði
aðeins byrjunin, og siðar verði
tekið við fleirum þar til amk. töl-
unni 50 er náð, eins og upphafleg
beiðni Flóttamannahjálparinnar
hljóðaði upp á.
Hér heima hefur þess orðið
1 aldarfjóröung hefur Franz
Josef Strauss verið vonbiðill
æðstu valda i Vestur-Þýskalandi.
Frá því hann vakti fyrst á sér at-
hygli hefur verið ljóst aö hann
stefndi á tindinn að kanslaræm-
bættinu. En flokksbræður hans i
Kristilega flokknum hafa meö
ýmsum ráðum getaö afstýrt þvi
þangað til nú, að Strauss yrði
merkisberi þeirra i almennum
kosningum. 1 þetta skipti var ekk-
ert undanfæri. Strauss hefur gert
tveim flokksforingjum i röð
ómögulegt að starfa á eðlilegan
hátt og i' rauninni eyöilagt póli-
tiskan ferilþeirra. Ljóst var orðið
að hann myndi ekki svífast þess
aðgangaeins frá þeim þriðja yröi
hann undir i viöureigninni við
Ölíkir menn i hörðum slag — Helmut. Schmidt og Franz Josef Strauss
KOSNINGASLAGUR f ÞUNGAVIGT
hann. Þá sá meirihluti flokksins
sitt óvænna og valdi Strauss fyrir
kanslaraefni.
Enginn frýr Strauss vits, en af-
leit mál hafa elt hann eins og
skugginn fráþvíhannvarð ungur
ráðherra i rikisstjórnum
Adenauers. Framaferill hans i
Bajern var með þeim hætti, að
stjórnmálamönnum i öðrum hlut-
um Vestur-Þýskalands hraus
hugur við;öllum sem stóðu í vegi
fyrir Straussvarstjakaðtil hliöar
með samblandi af þjösnaskap og
undirferli.
Bajern hefur frá upphafi skorið
sig úr 1 vesturþýskum stjómmál-
um, sér 1 lagi af þvi Strauss hefur
fengiö þvl ráðið að Kristilegi
flokkurinn i héraðinu starfaöi út
af fyrir sig,kæmi fram sem sjálf-
stæöur aöili gagnvart flokknum 1
öllum hinum héruðunum, mótaði
eigin stefnu og flokkarnir kæmu
hvergifram sem ein heild nema á
rikisþinginu i Bonn.
Alger tök Strauss á Kristilega
flokknum 1 Bajern hafa gert hann
að áhrifamanni i' vesturþýskum
stjórnmálum 1 hartnær þrjá ára-
tugi samfleytt. Þeim á hann að
þakka að hafa sloppið með skelk-
innfrá atvikum sem bundiðhefðu
endi á feril annarra stjórnmála-
manna.
Frægast þeirra er Spiegel-mál-
ið. Þá var Strauss landvarna-
ráðherra og notaði aðstööu sina
til að láta handtaka á Spáni her-
málaritstjóra fréttatimaritsins
Spiegel, Conrad Ahlers að nafni,
gera húsleit i skrifstofum Spiegel
og leggja hald á skjalasafn rit-
stjórnarinnar. Allt var þetta gert
undir yfirskini hernaöaröryggis
og verndunar hernaðarleyndar-
mála en var augsýnilega ekkert
annað en tilraun til að þagga
niöur óþægilega gagnrýni, og i
rauninni frekleg árás á prent-
frelsi og persónufrelsi. Þegar
Strauss varð sannur að sök aö
hafa logiö að þinginu til aö rétt-
læta aðförina að Spiegel varð
hann að láta af ráðherraembætti
og þótti óliklegt að hann næði sér
á strik á ný.
En ekki leið á löngu að Strauss
kom aftur i rlkisstjórn. NU leið aö
lokum ferils Adenauers og þá
sneri Strauss sér i auknum mæli
að þvi aðvegaaftan að þeim sem
áttu að heita samherjar hans i
stað þess að verja öllum kröftum
til að berja á stjórnmálaand-
stæöingum utan þings og innan.
Strauss varð að beita öllum
hæfileikum sinum til aö ná
tangarhaldi á mönnum meö hót-
unum eöa bliðmælum til að ráða
við eftirmálin eftir landvarna-
ráöherraferilinn. Spiegel-málið
dró iangan slóða og þar aö auki
kom upp rökstuddur grunur um
stórfelldar mútugreiðslur til aðila
i Bajern, nátengdum Strauss i
sambandi við vopnakaup. Með
erfiðismunum tókst Strauss að
drepa þvi máli á dreif.
t öllum þessum viðsjám var
það mesti styrkur Strauss að geta
vart að menn eru beggja blands i
afstöðu sinni að taka við þessum
hópi, og er jafnvel talað um i þvi
sambandi að hér með sé verið að
flytja inn til landsins vandamál.
Þess er skemmst að minnast að
biskupinn yfir Islandi gat þess
hér i Helgarpóstinum að hann
drægi i efa að tslendingar væru
menn til að taka við þessum hópi
án þess að kynþáttafordómar
bærðu á sér.
En þótt flóttamennnirnir sem
hingað koma, muni vafalaust
finna strax fyrir þvi hversu frá-
brugðnir og sérstæðir þeir eru i
útliti i þessu litla og óblandaða
samfélagi sem tsland er, þá
munu hér mæta þeim enn háska-
legra vandamál, sem er að sam-
lagast islenskum lifsháttum. Kin-
verjar og þar með kinverska
þjóðarbrotið i Vietnam hafa löng-
um haft orð á sér fyrir að vera
fastheldnir á siðvenjur og hefðir.
Starfsmenn Alþjóða Rauða-
krossins, sem stundað hafa mat-
. vælaflutninga til flóttafólksins, er
nú hefst við á litilli eyju undan
strönd Malaysiu og likt hefur ver-
ið við hreint viti á jörð, kunna
iika frá þvi að segja að hvað sem
tautar og raular sé ekki nokkur
leið að fá flóttafólkið til að iosa
bátana með matvælin um mið-
bik dagsins þótt þeir svelti þar
sáru hungri. A þessum tima dags
er það venja þeirra að fá sér mið-
degisblund frá fornu fari og þvi
breyta þeir ekki þrátt fyrir
breyttar aðstæður. Hversu auð-
velt er fyrir fólk með slikar
venjur að aðlaga sig islenskum
vinnuháttum getur hver sagt sér
sjálfur.
Þeir sem hafa reynslu af þvi i
nágrannalöndunum að taka við
flóttafólki af þessum slóðum
heims, fullyrða að það þurfi
minnst tvö ár fyrir þetta fólk að
aðlagast hinum nýju aðstæðum
og heimkynnum á Vesturlöndum
og varla mun það taka skemmri
tima hér. Rauða kross-menn hér
heima segjast lika gera sér grein
ÖlrQtfDDuglnKo]
yfirsýn
(MpOdSDfXo]
farið með Kristilega flokkinn i
Bajern sem eign sina og persónu-
legt verkfæri. Eftir að gömlu
mennirnir Adenauer og Kiesinger
voru fallnir frá og Kristilegi
flokkurinn lentur i stjórnarand-
stöðu I þinginu í Bonn, þóttist
Strauss eiga mest tilkall til að
taka við flokksforustunni. Þegar
enguaðsiðurvargengiðfram hjá
honum, sneri hann sér rakleitt að
þvi að sjá svo um að keppinaut-
arnir fengju ekki notiö sigursins.
Fyrst var þaö Rainer Barzel
sem varð fyrir barðinu á Strauss,
siðan Helmuth Kohl. Báðum var
gert ómögulegt aö stjórna flokkn-
um að nokkru gagni með sifelldri
áreitni af hálfu Strauss. Þegar
mest þótti viö liggja, gerði hann
sighvaðeftir annaö liklegan til að
kljúfa Kristilega flokkinn um
landiö allt, breyta flokknum i
Bajern i alrikisflokk, sem keppti
við forustu Kristilega flokksins i
öðrum héruðum um kjörfylgið.
Meö þessum aðferöum hefur
Strauss haft þaö fram að ná til-
nefningu sem kanslaraefni kristi-
legra i kosningunum aöári. Hann
er nú orðinn 63 ára,svo verði hann
undir eru ekki likur á aö honum
gefist fleiri tækifæri til að takast á
hendur stjórnarforustu i Vest-
ur-Þýskalandi.
Vestur-Þjóðverjar geta horft
fram á tilþrifamikla kosninga-
baráttu, hver svo sem úrslitin
verða.Helmut Schmidtkanslari er
einnaffáum mönnum áþingisem
stenst Strauss snúning i kappræö-
um. Skoðanakannanir gefa til
kynna aö Schmidt njóti stuðnings
kjósenda langt út fyrir raöir
Sósialdemókrataflokksins, og
einsogstendurerenginnvafiá aö
tilnefning Strauss til kanslara-
efnis af hálfu stjórnarand-
stöðunnar eykur sigurlikur Sch-
midt i kosningunum.
En það er langt þangað til
Vestur-Þjóðverjar ganga aö kjör-
borði og margt getur sketð á þvi
timabili. Afleiðingar orku-
fyrir þvi, að til þess að einhver
von sé til að flóttafólkinu muni
liða vel hér á landi og farnast vel,
sé gifurlegrar skipulagningar
þörf, þar sem fyrirfram verði
hugsað fyrir hverjum þætti.
Forsvarsmenn Rauða krossins
gera ráð f.yrir þvi aö eftir aö fólk-
ið er komið hingað til lands verði
það fyrst i stað að dveljast langan
tima i sérstökum búðum þar sem
það njóti bæði kennslu og fræðslu
um land og landshagi. Þar á eftir
verði að dreifa þeim um landið til
'að fyrirbyggja að þessar fjöl-
skyldur myndi „ghettó” eða sér-
stakt hverfi, þvi að hætt er viö aö
slikt myndi aðeins auka á ein-
angrun lióþsihs og hindra að hann
lagaði sig að aöstæðum og lifs-
háttum i hinum nýju heimkynn-
um.
Þess er aö vænta aö áður en
langt um liður muni fulltrúi
islenska Rauöa krossins fara til
Malaysiu og eiga þar viðræður
við flóttafólkið. Kannað veröur
hverjir hafi hug á þvi að koma
hingaö til lands og er gert ráð
fyrir að þeir sem gefa sig fram
verði siðan teknir afsiðis þar ytra
og fólkinu gerö grein fyrir þvi
hvers konar land það er sem þaö
er aö f lytjast til, hvers konar þjóö
byggir það og aö stefnt sé aö þvi
að f jölskyldurnar samlagist
þjóðinni en myndi ekki sérstaka
heild, svo og að það muni þurfa að
skipta um nafn og þar fram eftir
götunum.
Að loknum þessum undir-
búningi verður fólkið flutt hingað
til lands um Kaupmannahöfn frá
annaðhvort Singapore eða Kuala
Lumpurogveröur þaö gerti sam-
vinnuviö danska Rauða krossinn.
Allt mun þetta taka nokkrar vikur
en undir lok næsta mánaðar má
vænta að fyrstu fjölskyldurnar
frá Vietnam fari að koma til
landsins.
kreppunnar eru alls ekki komnar
i ljós til fulls og þær geta orðið til-
finnanlegri fyrir Vestur-Þjóö-
verja en marga aðra.
Ekki eru nema nokkrir dagar
siðan Schmidt varö aö fara i sjón-
varpið til að taka af skarið i einu
sliku máli, sem er sérstætt fyrir
Vestur-Þýskaland. Forsætis-
ráðherrann átti það erindi i sjón-
varp, að fullvissa landsmenn um
að rikisstjórnin ætlaði sér alls
ekki að setja neinar hömiur á
ökuhraða á hraöbrautum lands-
ins.
Vestur-Þýskaland er eina
landið sem hefur engin ákvæöi i
lögum um hámarkshraða i akstri
á hraðbrautum; þar má hver
þenjasigeins og Benzinn dregur.
Þetta er talin meginástæðan fy rir
hálfu hærri dauðaslysatölu i
vesturþýskri umferð en i nálæg-
um löndum, og hraðakstrinum
fylgir gifurleg eldsneytissóun. En
þegar kom tíl tals enn á ný að
setja takmörk á ökuhraðann
ætlaði allt vitlaust aö verða I
landinu svo Sohmidtsá sér ekki
annað fært en ávarpa þjóðina til
að róa hana.
En þótt ökuhraöinn sé úr sög-
unni i' bili, hljóta önnur vandamál
að skjóta upp kollinum fyrir
kosningar svo Schmidt má hafa
sigallan við. Framboö Strauss til
kanslaraembættis getur oröið
flokki hans skeinuhættara en við
augum blasir. Ljóst er aö kristi-
legir fyrirgera atkvæöum margra
til Frjálslynda flokksins vegna
framboðs Strauss. Svar Strauss
hlýtur að vera, að reyna að bæta
sinum flokki þetta uppmeðþvi að
ski'rskota tíl hægri arms þeirrar
fylkingar, sem i undanförnum
kosningum hefur safnast um
sósíaldemókrata.