Helgarpósturinn - 24.08.1979, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 24.08.1979, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 24. ágúst 1979 —he/garpósturinru Nú eru byggingaframkvæmdir viö frystihúsiö á Patreksfiröi svo langt komnar aö húsiö er risiö af grunni en opinberir sjúöir munu enn purfa aö dæla hundruöum milljóna i þessa framkvæmd áöur en unnt veröur aö hefja starfrækslu frystihússins. Fremst á myndinni, aö baki bátanna, sést nýja frystihúsiö. A Patreksfiröi stendur yfir bygging mikiis frystihúss, sem kaupfélagiö á' staönum, verk- takafyrirtækiö Reginn o.fl. standa aö. Sumir halda þvi fram, aö hér sé á feröinni eitt af meiri háttar fjármálaævintýrum á ts- landi sföustu árin, og ganga sum- ir svo langt aö likja þessari fram- kvæmd og öilu þvi, sem henni fylgir viö nýtt Kröfluævintýri. Aörir telja svo alls ekki vera. Frystihússbyggingin sé þjóö- þrif afyrirtæki og veröi mikil lyfti- stöng fyrir atvinnulif á Patreks- firöi. Um máliö eru sem sé skiptar skoðanir, eins og raunar kom fram i sumar, þegar málið kom til kasta Byggðasjóðs. Stjórn Framkvæmdastofnunar klofnaöi i málinu af tveimur ástæöum aöallega. Annars vegar vegna efasemda um nauðsyn þess yfir- leitt aö reisa frystihúsið á Pat- reksfirööi og hins vegar vegna þess, aö óskað var eftir 40% lán- veitingu úr Byggðasjóði, sem er hámark lánsheimildar sjóðsins og aldrei nýttnema i ítrustu neyö. Frystihúsbyggingin er við- kvæmt pólitiskt mál og það er jafnframtákaflega ljóst dæmi um fjárveitingar til uppbyggingar at- vinnulifs úti á landi, sem draga hala á eftir sér og kunna aö hafa meiraslæmt i för með sér en gott, „eins og til stóð. Gagnrýni á framkvæmdina er I stuttu máli þessi: A Patreksfirði er verið aö reisa geysistórt frystihús, þar sem fyrir eru tvö frystihús, sém gera meira en aö anna þörf. Þar er aflaskortur. Og þar er mannafla- skortur. Þess vegna sé bygging risastórs frystihúss beinlinis út i hött. Opinberir sjóðir eigi ekki að fjármagna framkvæmdir, sem séu út i hött. A þaö hefur verið bent, aö til þess að koma frystihúsinu 1 gagn- iö, sem nú er nánast aðeins skrokkurinn, þurfi fjárhæð ein- hvers staöar á bilinu 500-1000 milljónir króna. Þessa fjárhæð þurfi að sækja i Byggðasjóð, sem þegar hefur verið nefndur, og Fiskveiðasjóö, sem láni 60% á móti 40% Byggöasjóðs. Þegar byggingunni sé lokið og frystihúsið tilbúið til starfa vanti fiskafla. Fyrir frystihús af þess- ari stærö þurfi þrjá 4-500 tonna skuttogara til viðbótar bátaflota Patreksfirðinga. Þeir myndu kosta 1 kringum 6 milljarða. Og aö viöbættu þessu megi svo búast viö, að I kjölfariö fylgi lána- umsóknir til að bæta hafnarað- stöðuna. Þannig geti frystihúsa- framkvæmdin undiö. upp á sig. Ótalið sé svo aukið álag á fiski- stofnana á miðunum, sem að öllu óbreyttu megi ekki við meiri á- s«Mcn. Sá skaði gæti oröið ómæld- ur. Það er þvi ekki óeölilegt, að uppi séu efasemdir um nauðsyn 2000-3000 fermetra nýs frystihúss á staö, þar sem hingað til hefur þurft að flytja vinnuafl til, frá öðrum stöðum á landinu og Astralíu. „Málinu stillt upp pólitiskt” Forsaga þessa máls er I stuttu máli þessi: Arið 1972 er unnið aö hrað- fyrstihúsaáætlun, m.a. I sam- bandi við reglugerðarbreytingu um hoUustuhætti i fiskiönaði. Byggðasjóður kemur inn I málið, þar sem veita átti lán úr honum til þessara hluta. Þetta var jafn- framt Uður i þeirri fyrirætlan vinstri stjórnarinnar að vinna skipulega að fjárfestingarmál- um. Og það, sem var tekið á i þessum málum var hraðfrysti- húsaáætlunin, uppbygging hraö- frystihúsanna. Sérfræðingar voru kaUaðir til. Að sjálfsögöu höföu frystihúsin sina óskaUsta, en sérfræðingar Framkvæmdastofnunar geröu tUlögur slnar fyrst og fremst með hagkvæmni I huga. A P.atreksfirði voru þá starf- andi tvö frystihús, Skjöldur hf. og Hraðfrystihús Patreksfjaröar, litið og heldur léiegt frystihús. Sérfræöingarnir gerðu upphaf- iega tUlögu um þaö, aö ekki væri ástæða tU aö púkka upp á það sið- arnefnda. Afkastageta þessara tveggja húsa samanlögð væri nægjanleg. Meðal annars var á það bent, aö til Bolungarvikur bærist álika mikið magn af bol- fiski og á Patreksfjörö, og á Bol- ungarvik annaði eitt fyrirtæki þvi aUvel. Tillaga sérfræðinganna var aldrei gerð formleg, þvi þaö kom strax I ljós, að geysileg andstaða vargegn þessu. „Málinu var stillt upp pólitiskt,” sagði heimildar- maður Helgarpóstsins. Atti hann viö, að sjálfstæðismenn ættu Skjöld annars vegar og hins veg- ar væru framsóknarmenn með Hraðfrystihús Patreksfjaröar. „Sennilega er nú einhver kaupfé- lagapóUtik i þessu lika, bætti hann við. En tU þess að koma ekki með ó- raunhæfar tillögur, sem enginn tæki mark á, þá geröu embættis- mennirnir tíllögu um, aö Hraö- frystihúsi Patreksfjarðar yrði leyft að byggja Iitiö hús, hófsam- legt I tilkostnaði, t .d. stálgrind- arhús, þar sem mætti koma þokkalega hagkvæmri vinnslu við. Þeir töldu sig ekki vera að gera tUlögu að þvi, sem hag- kvæmast væri, en með þessu væri þó hægt að sætta viðhorfin á skyn- samlegan hátt. Bygging hafin án samþykkis Allt I einu gerist það svo, að hafizt er handa um byggingu á þessu stóra og mikla frystihúsi árið 1973 án þess þó, að Fram- kvæmdasto fnun væri búin að leyfa eitt eöa neitt. Embættis- mennirnir höfðu einvörðungu gert tUlögur, og aö auki um litiö hús. Upphafsframkvæmdir hófust án nokkurrar lánafyrirgreiðslu úr opinberum sjóöum. Fé til fram- kvæmda fékk kaupfélagið frá Sambandi islenzkra samvinnufé- laga. Erlendur Einarsson, for- stjóri Sambandsins staöfesti þetta Isamtali við Helgarpóstinn. „Og þannig gátu þeir fjár- magnaö þetta,,” sagði heimUdar- maður Helgarpóstsins. „Og svo, þegar þetta er komið af staö er pressukerfið sett i gang.” Pressukerfinu lýsti annar heimildarmaöur okkar þannig, að fyrst væri byrjað á þvl aö setja allt á fuUa ferð meö framkvæmd- ir, engin leyfi fengin og svo þegar allt væri komið á staö, væri þetta orðið aö máli, sem þyrfti að bjarga. Upp frá þessu hefur siðan verið sifelldur þrýstingur á um að fá lán til framkvæmdanna úr opin- berum sjóðum. „Menn hafa beitt pólitisku afli og hrossakaupum, t.d. i sambandi við Byggöasjóð. Stefnumörkun stjórnar Fram- kvæmdastofnunar hefur verið máttlaus og þeir litiö á veru sina i stjórninni þannig, aö þeir gætu keypt sér atkvæöi i gegnum Byggðasjóð.” Þvi má skjóta hér inn i, að hugsunin var sú, aö stýra ætti fjárfestingarmálum með Fram- kvæmdasjóði, sem lánar Fisk- veiðasjóði. Lánin til hússins á Patreksfiröi koma úr Fiskveiða- sjóði og Byggöasjóði. Þessir sjóð- ir eiga að spila saman, en það hefur veriö gagnrýnt, aö stjórn- málamennirnir I stjórn Fram- kvæmdastofnunarinnar hafi aldrei mótað af neinu viti stefti- una fyrir Fiskveiðasjóð, sem er ráöiö af embættismönnum. Meðal annars af þessum ástæö- um hafi þetta velzt áfram enda þótt skynsamir menn reyndu að standa gegn þessu, þar sem hér væri veriö að sóa peningum. A þessu ári hefur svo þrýstíng- ur veriö aukinn verulega og reynt að berja i gegn, aö lán fengjust til framkvæmdanna úr Fiskveiða- sjóöi og Byggöasjóði. Neftid, sem starfaði fyrir Fisk- veiðasjóð lagði til að sjóðurinn lánaöi til framkvæmdanna nú I ár 60%. Byggðasjóður féllst á að lána þau 40%, sem vantaöi upp á. Um þetta allt varö mikill slagur, bæði I rikisstjórn og I stjórn Framkvæmdastofnunar. Forsaga lánveitingaheimild- anna er sú, aö leitað er til Fisk- veiðasjóðs og Byggðasjóðs um lán. 1 Byggðasjóði fengu þeir dræmar undirtektir og voru raun- ar spurðir hreint út hvort það væri ekki rétt, að þeir ættu i fyrsta lagi ekkert fjármagn, i öðru lagi hefðu þeir ekkert hrá- efni og I þriðja lagi skorti vinnu- afl. Við svo búið hættu framámenn framkvæmdanna á Patreksfirði að ræöa við forráðamenn sjóð- anna þaðan, sem peningarnir eiga að koma, en sneru sér þess I staö að Steingrimi Hermanns- syni, ráðherra og þingmanni kjördæmisins og Ólafi Jóhannes- syni, forsætisráðherra. Rikisstjórnin tekur sig til Þeir tóku málið upp á rikis- stjórnarfundi, framhjá viökom- andi sjóðum. Forsætisráðherra lagöi fram tillögu i rikisstjórninni þess efiiis, að Fiskveiðasjóður og Byggðasjóður iánuðu fyrirtæk- inu. Fiskveiðasjóöur 60% og Byggöasjóður 40%. Þessi tillaga var samþykkt. 1 framhaldi af þessu átti að fela Kjartani Jóhannssyni, sjávarút- vegsráðherra, að skrifa sjóðun- um tveimur bréf með skipun um þetta, en hann neitaði. Þegar það lá ljóst fyrir tók forsætisráöherra sig sjálfur til og skrifaði sjóðun- um sjálfurbréf, þarsem sagði, að rikisstjórnin væri búin að sam- þykkja, að þessir tveir sjóöir ættu aö lána samtals 100% til frysti- húsframkvæmdanna á Patreks- firöi. Viðræöur fórufram á milli full- trúa beggja sjóðanna og geröar tillögur um hvernig koma mætti viti I þessi mál, sem þó væru þeg- ar komin i óefni. Þær báru ekki árangur. Fiskveiöasjóður, samþykkti lánveitingu upp á 60%, en þó með þeim fyrirvara, aðóskað yrði eft- ir þvi við Byggðasjóö, ef hann teldi þörf á, að fram færi athugun fyrir vestan á þvi hvort ekki væri kleift aö koma skynsamlegri skipan á þessi mál. Fiskveiða- sjóður myndi þannig lúta ákvörð- unum Byggðasjóðs, sem sumir telja raunar harla óeðlilegt, þar sem Fiskveiðasjóöur er aöallána- sjóöurinn, en Byggðasjóður við- bótarlánasjóðurinn. Jafnframt var geröur fyrirvari um, að nið- urstöður þessarar athugunar lægju fyrir 1. september. Sam- þykkt um 60% lán var gerð engu að siöur og þvl virðist fyrir- varinn vera gerður til mála- mynda. Hart deilt i Byggðasjóði 1 Byggöasjóöi var hart deilt um málið, en fór þó á sömu leið. 40% lánveiting úr þeim sjóði var sam- þykkt meö sama fyrirvara og geröur var I Fiskveiðasjóöi. Raunar telja sumir, aö úrslit málsins 1 Byggöasjóði, þar sem fjórir voru meðmæltir en þrir andvígir, hafi ráöizt vegna mis- taka varamanns Geirs Gunnars- sonar. Vitað var, að Geir var á móti fjárveitingunni, en vara- maöur hans mun hafa haldið, að um flokksmál hafi verið aö ræða og greiddi þvl atkvæði eins og Kjartan ólafsson, flokksbróðir hans. Þannig var samþykkt, aö um 100 milljónir króna rynnu til frystihússframkvæmdanna á Patreksfirði á þessu ári. Helgarpósturinn hefur ekki get- að fengið upplýsingar um það hvað nákvæmlega hefur verið gert til að kanna þessi mál, eins og gert er ráð fyrir i fyrirvörun- um meö lánveitingunum úr sjóð- unum tveimur. Þó er okkur kunn- ugt um, aö Sverrir Hermannsson, forstjóri Framkvæmdastofnunar og Karl Bjarnason, starfsmaður stofnunarinnar fóru til Patreks- fjarðar og áttu þar viðraeður við menn. Þetta kom fram I samtali okkar við Sverri fyrr i sumar. Á Patreksfirði er í byggingu, með aðstoð opinberra sjóða, nýtt, stórt frystihús. Sérfræðingar telja byggingu þessa út í hött. Á Patreksfirði sé bæði skortur á hráefni og mannafla fyrir. Með tilkomu nýja hússins geti skapazt neyðarástand t

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.