Helgarpósturinn - 24.08.1979, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 24.08.1979, Blaðsíða 22
22 Föstudagur 24. ágúst 1979 Eiður vor Vér stöndum hver einasti einn um Island hinn skylduga vörö: af hjarta vér leggjum nú hönd á heilaga jörð og sverjum að sameinast bezt þess sál þegar hættan er mest hver einasti einn. Gegn kalsi um framandi kvöð skal kynstofninn sjálfum sér trúr |i landhelgi rísa við loft l^em lifandi múr og heldur en hopa um spönn vér herðum á fórn vorri og önn hver einasti einn. bótt særi oss silfur og gull þótt sæki að oss vá eða grand vér neitum að sættast á svik og selja vort land: á fulltingi frelsisins enn vér festum vort traust eins og menn hver einasti einn. Jóhannes úr Kötlum Þetta er eitt þeirra Ijóða sem er á væntanlegri hljóm plötu Herstöðvaandstæðinga: Eitt verð ég að segja þér Viðtal: Páll Pálsson Myndir: Einar Gunnar ofl „ÞETTA ER LANDID Þin” — spjallað við Sigurð Rúnar Jónsson um nýja hljómplötu herstöðvaandstæðinga HeimavarnaliOiö á hljómleikum i Háskóiabiói. t lok þessa mánaóar er væntanieg á markaöinn hljóm- plata sem Herstöövaandstæö- ingar standa aö og mun heita Eitt verð ég aö segja þér. Þau sem fram koma á þessari plötu kalla sig Heimavarnaliöiö, en það samanstendur af hljóöfæra- ieikurum h ljó msvei tar innar Póker sálugu, hluta Sinfóniu- hljómsveitar fsTands, söng- sveitinni Kjarabót, Pálma Gunnarssyni, Ragnhildi Gísla- dóttur, Bergþóru Árnadóttur, Karli Sighvatssyni ofl. En sá sem stjórnaöi liðinu viö æfingar og upptöku og Utsetti tónlistina, auk þess aö leika sjálfur á aöskiljanleg hljóöfæri, varSiguröur RUnar Jónsson eða Diddi fiðla einsog hann er oftast kallaður. Til aö forvitnast um þessa plötu hélt Helgarpóstur- inn á fund hans nU fyrir skömmu og átti við hann eftir- farandi viötal: 30 ár i NATO — Hvernig varö þessi plata til? „Tilurö hennar er sU, að ég var boðaður á fund Herstööva - andstæöinga, en á þeim fundi var veriö aö skipuleggja Menningardaga þeirra á Kjar- valsstööum ogaörar baráttuaö- geröir i tilefni 30 ára veru Is- lands i NATO. Þar fæddist sú hugmynd, i sambandi við 3a mars, að halda, i stað hefðbund- ins baráttufundar, hljómleika þarsem kæmi fram stór hljóm- sveit poppara og fólks Ur Sin- fónlunni, ásamt söngfólki, og flytti gömul og ný baráttulög. Siðan þegar ég var bUinn aö Ut- setja þetta efni og æfingar komnar I gang, fannst okkur sem aö þessu stóðum það eiga erindi á plötu sem gefin yrði Ut til stuönings baráttunni. Og það varö Ur. Og þaö eru sem sagt Herstöövaandstæöingar sem fjármagna þessa þlötu en Steinar h.f. munu annast dreif- inguhennar, —og þaðer gaman að vita til þess, aö þaö voru fleiri Utgefendur sem sýndu mikinn hug á að fá aö dreifa plötunni eftir aö hafa hlýtt á hana. Hagnaðurinn veröur not- aður til áframhaldandi baráttu og þaö er vilji fyrir þvi aö hUn veröi visir að öflugri Utgáfu- starfsemi, þvi hljómplatan er góöur miöill.” Aronskan og þorska- strið „Ég tel aö fyrir ca 10 árum hefði verið Utilokað að gera þessa hljómplötu, þvi forsenda hennar er sU að aílir sem hlut eiga að máli gefa framlag sitt. En atburöir einsog siöasta þorskastrið og umræðurnar um aronskuna hafa hinsvegar opn- aö augu fjölda fólks fyrir eöli NATO og að herinn er hér aUs ekkiokkar vegna. Þessvegna er svo áberandi miklu stærri hluti fólks nUna andvlgt veru hersins hér, og þaö vill leggja sitt af mörkum til aö hann hverfi héö- an burtu, —enda ekki lengur hægt að hræða ungt fólk meö rUssagrýlunni.” Gamlirsöngvar og nýir — Hvaðan er efni plötunnar fengiö? „Efniö erubæði eldri söngvar sem tengjast baráttunni og nýir sem enn eru ekki kunnir meöal herstöövaandstæöinga, svo og eitt lag samiö sérstaklega fyrir þessa plötu. Alls geymir platan lllög, tvö erlend en hin i'slensk. Ljóðin eru eftir Jóhannes Ur Kötlum, Guðmund Böövarsson og son hans Böövar, Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli, Þorstein Valdimarsson, Kristin Reyr, Kristján Guð- laugsson, Hólmfriöi Jónsdóttur og RUnar Hafdal. Hjónin Þor- valdur Orn Árnason og Auöur Haraldsdóttir hafa einnig veriö duglegaðsemjafyrir okkurefni og eiga bæði lög og ljóö á plöt- unni.” Óánægður með flokk- inn — Diddi, ertu kommi? „Ja, ég hef verið viöloðandi vinstri hreyfinguna frá þvi fyrst ég var iÆskulýðsfylkingunni og jafnvel talinnkommi. Og ég var flokksmaöur Alþýöubandalags- ins þegar ég var I Vestmanna- eyjum og formaður þar I eitt ár. En ég er ekki lengur ánægöur meö flokkinn. Mér þykir hann oröinn borgaralegur og þó sósialismi sé á stefnuskrá hans, viröist hann litið vinna aö lang- tima markmiöum, en eltist þvi meir við dægurflugur. Þegar ég tala um sósialisma á ég ekki við sovéskan, kinverskan eöa al- banskan sósialisma, heldur aö við Islendingar ættum að geta þróaðupp þjóðfélag sem hentar okkar aðstæðum. Sá sólsi'alismi hlyti aö verða grundvallaöur á mannréttindum i hvaöa mynd sem er og þaö er þjóöin sjálf sem verður aö þróa hann.” Jafntefli striðandi afla „Forsenda þess er fullt tjáningarfrelsi og ritfrelsi i landinu og jafnrétti striðandi afla. Þá á ég viöþaö, aö hiö svo- kallaða varnarliö á Miönesheiöi hefur sýnt og sannað eöli sitt, t.d. I siðast þorskastriði einsog ég sagði áðan, og svo sýna skjöl einsog þið birtuö I Helgarpóstin- um á dögunum, aö herinn mun verja hagsmuni borgarastéttar- innar á Islandi ef deilur magn- ast. Þetta er þvi ekki spurning um það hvers konar þjóðfélag þróast hér, heldur spurning um hvort þaö fái að þróast á is- lenskan hátt. Og ef við komum aftur aö aronskunni, máli minu til stuönings, þá voru þaö i sjálfu sér mjög góöar umræöur, þó ég sé eindregiö á móti henni. HUn er rétt aö þvi leyti aö viö gætum vel fengið peninga fyrir aö leyfa hernum að vera, —en einmitt þaö sannar að hann er ekki hér fyrir okkur. Þaö verður erfitt að losna viö herinn, þvi hann hefur mikil áhrif á okkar efnahagslif og þaö meiri en ég held að fólk almennt geri sér grein fyrir. Og við veröum aö semja bæði við RUssa og Banda- rfkjamenn, um aö ef annar hreyfir sig þá geri hinn þaö sama, til að halda jafnvæginu. Þessvegnaer égekki vissum hvort ég er kommdnisti, sósial- isti, frjálslyndur, krati eða hvað þetta heitir nd allt saman, en ég er íslendingur og herinn verður að fara Ur landinu. Og þess vegna er ég ekki að gera þessa plötu fyrir herstöðvaandstæö- inga og samtök þeirra sem slik, heldur að vinna aö minni eigin pólitisku sannfæringu. Okkur, sem fædd erum og bUum I þessu landi, ber skylda til aö skila þvi til barna okkar helst betra en viö tókum viö þvi og vera minnug oröa skáldsins þegar þaö sagöi: „Þetta er landið þitt”.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.