Helgarpósturinn - 24.08.1979, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 24.08.1979, Blaðsíða 4
Föstudagur 24. ágúst 1979 —hQlgarpásturinn- „Það brakar hátt í mörgum” NAFN: Hilmar Helgason STAÐA: Forstjóri FÆDOUR: 14.2.41. HEIMA: Fitjum, Kjalarnesi BÍLL: Sá sem er næstur mér af fyrirtækisbílum FJÖLSKYLDUHAGIR: Eiginkona Katrín Thorarensen og eiga þau þrjá syni ÁHUGAMÁL: Mannlíf SAA, Samtök áhugamanna um áfengisvandamáliö, hafa á tiltölulega skömmum tfma vakiö trúlega meiri athygli á umræddu vandamáii og viðbrögöum viö því, en öli bindindishreyfingin hefur gert i áratugi, og jafnframt viröist Ijóst aö starf samtakanna hefur stuöiaö aö umtalsveröri hugarfarsbreytingu hjá þjöðinni gagnvart þessu gamla hitamáli. En samtökin hafa Ifka orðiö umdeild. Ýmsum hefur þött nóg um hávaðann sem þeir þykjast merkja í baráttuaöferöum þeirra, jafnframt þvl sem baráttumenn fyrir bindindiaf gamla skólanum hafa ekkigetaö fallist á vinnubrögöin. M.a. hafa lækningaferöir drykkjusjúklinga til bandariskia. heilsuhælisins Freeport valdiö jafn miklum deilum og árangurinn hefur vakiö eftirtekt. Nú slðast hefur fyrirhuguö spari- sjóösstofnun á vegum SAA valdiö nokkru fjaörafoki. t miöjum umræöunum stendur Hilmar Helgason, formaöur SAA. Hann er i Yfirheyrslu hjá Heigarpóstinum idag. Af hverju voru Samtök áhugamanna um áfengis- varnamáiiö stofnuö? „SAA var stofnaö vegna þess aö það var hreinlega ekki til nein aðstaöa eöa sjúkrarúm fyrir allan þann fjölda sem þurfti á slikri aöstööu aö halda.” Hér eru fyrir ungtemplara- samtök, stúkur, AA samtök og rlkið rekur áfengisvarnarráö. Var virkilega þörf á enn einum samtökum af þessari tegund? „ Já svo sannarlega hefur það * verið þaö, enda starfar SAA á allt öðrum grundvelli en þessi samtök.” Rúmaðist SAA ekki innan þessara samtaka? „Nei, vegna þess aö leikregl- ur stúkanna eru boð og bönn en AA samtökin byggjast á að sjúkir lækna sjúka. Og þau eiga því ekki samleið með okkur. Það þarf einnig peninga til að reka þessa starfsemi og AA samtökin mega ekki sem slik reka neina peningaþjónustu”. Þurfti hávaöa til aö gera skurk i þessum málum? „Það varð að vekja athygli, og opna augu fólks fyrir þvi hvað áfengisvandamálið er griöarlega mikið”. Hefur ekki veriö gert of mikið úr þessum vanda?Þarf aö blása afleiöingarnar svo út aö venju- legt fólk veröur aö signa sig áður en það fær sér i glas? „Égheld að það sé ekki nógu mikið blásið út. Mln skoðun er sú, án þess að ég fái hana rök- studda, að þaö deyi á hverri viku fimm tii sex manns úr alkóhólisma. Ef fólk mundi deyja úr einhverju öðru — bil- slysum öl dæmis 5-6á viku —er ég hræddur um aö öskrað yrði mun hærra, heldur en við ger- um.” Eru til einhverjar tölur um fjölda áfengissjúklinga? M „Samkvæmt skoðanakönnun- um þá virðast vera 20% neytenda sem eiga viö áfengis- vandamál að striða, þannig að viö verðum að hafa þessa tölu hérna um 20 þúsund manns.” Eru þeir fleiri hér en annars staöar? „Já þeir eru fleiri. Það eru aðeins Pólverjar og Irar sem eiga einhverja samleiö með okkur og það er kannski kominn timi til að athuga nánar blóð- tengsl okkar við Ira.” Finnst þér sjálfsagt aö rikiö borgi feröir drykkjumanna til Freeport? „Já. Allir sem verða fyrir þessu, borga að fullu i sjúkra- tryggingar og alkóhólismi er viðurkenndur sjúkdómurog þar ' af leiðandi hluti af sjúkratrygg- ingakerfinu. Þær hljóta þvl aö ; borga lækninguna.” Hvaö kosta þessar feröir? ' „Þær kosta um 750 þúsund j krónur, enkannskierekki leng- J ur tlmabært aö tala um þessar í ferðir þvl þær eru niöur lagðar. i Við erum komnir með sama I meðferðarkerfi hérna heima á Silungapolli og á Sogni. Og I gegnum það fara fimmtán hundruð manns á ári, en á Free- port'á þremur árum fóru 500 manns.” Er þaö rétt aö mikill meiri- hluti áfengissjúkiinga komi úr efnaöri stéttum? „Það er fráleitt. Nema þvl aðeins að langmestur fjöldi fólks teljist til efnaðri stétta. Alkóhólisminn spyr ekkert um stöðu eða stétt heldur hlýtur hann aö ráðast á allar stéttir jafnt, og hvaða stétt er fjöl- mennust? Er þaö ekki milli- stéttin? Þannig að þar hlýtur alkóhólisminn að vera mestur”. Hafa allir sömu féiagslegu aö- stööu til aö hljóta lækningu? „Já, absalútt”. Hvernig gengur þaö fyrir sig þegar menn leita lækninga? „Þeir eöa aðstendendur þeirra lyfta upp simtóli og hringja I 81615 og panta sér pláss. Venjulega eru 20 til 50 manns á biðlista og biðin getur orðið frá 3 dögum og kannski uppi 10 daga.” i hverju er þessi lækningarað- ferö fólgin? „Það er eiginlega enginn á sömu skoðun um það.Meðferðin á Siiungapolli er fólgin i' þvi að mönnum er hjálpaö til að sjúk- dómsgreina sjáifa sig, þannig að þeir geti sjálfir séð og ákveð- ið hvað þeir geti gert og hverjir séu möguleikar þeirra. A Sogni er þeim siðan kennt i fram- kvæmd hvernig lifa eigi árang- ursrlkara lífi.” Er þetta ekki niöurlægjandi fyrir sjúklinginn? „Það brakar hátt I mörgum.” Hvernig stendur á vexti þess- ara samtaka? „Hann er mjög eðlilegur. Alkóhólismi er i hverri einustu fjölskyldu á íslandi. Viö höfum leitað logandi ljósi að þeirri fjölskyldu sem ekki hefur alkó- hólista, og slik fyrirmyndarfjöl- skylda ætti ekki aö fara huldu höfði, heldurgefa sigfram. Hún hefur ekki ennþá gert það? Hverjir eru I SAA? „Þaö er þjóðin. Það er sam- nefnari úr öllum stéttum þjóð- arinnar. Kannski er þarna, ef maður á að taka eitthvað út, einkum um aö ræöa fólk sem einhver afskipti hefur haft af alkóhólismanum.” Hvaö eru margir i þeim? „Það eru 9 þúsund manns.” Standa fjársterkir aöilar á bak viö SAA? „Nei, en margir miklu sterk- ari aöilar á öðrum sviðum og þá sérstaklega guöfaðir SAÁ, Al- bert Guömundsson. An stuðn- ings hans væru samtökin ekki það sem þau eru I dag.” Þigguröu laun fyrir störf þin hjá SAA? „Nei.” Hver er veltan? „Með öllu gæti ég trúað að hún yrði um 300 milljónir.” Er gróöi á fyrirtækinu? „Nei, þaö varð 37 milljón króna tap á síöasta ári.” Hver borgar brúsann? „Félagsmenn. Félagsgjöldin fara I aö borga tapið.” Hvaö veldur þeirri andúö á SAA sem sumsstaðar verður vart? „Ég þekki ekki nema eina teg- und af andúð og hún kemur frá fólki sem mistekist hefur með- ferð á og þeir sem sjálfir eiga við áfengisvandamál að striöa og fást ekki til aö gera neitt i.” Ýmsum þykir þetta eigin- hagsmunafyrirtæki? „Ég þekki það ekki.” Hvaö er gert fyrir þá sem falla aftur? „Hvað er gert fyrir hjarta- sjúklinga sem fá hjartatilfelli aftur? Þeir eru teknir inn eins ogskot, hlúð að þeim eftir bestu getu og þeir látnir aftur út i þjóðfélagiö.” Er þaö einkenni á fyrrverandi drykkjuhestum (aikóhólistum) aö þeir veröi vinnuhestar („workaholics”)? „Nei, það er ekki einkenn- andi. Hinsvegar veröur allt létt verk og lööurmannlegt miöað við það að halda sér fullum, og einhversstaöar verður orkan að fá útrás og oft kemur það út I vinnu.” Er þörf á þvi aö stofna sér- stakan sparisjóö fyrir alkóhól- ista ? „Þessi sparisjóður er ekki stofnaður sérstaklega fyrir alkóhólista, heldur er gert ráð fyrir þvl að hann þjóni i mjög lithi prósentutali, þeim málefn- um sem að okkur snúa — áfeng- isvandamálum i heild sinni. Þettaerstofnunsem stundar öll almenn bankaviðskipti en eins og fram hefur komið leggjum við mikla áherslu á aö sinna öldruðum og sjúkum' Er stofnun þessa sparisjóös til aö afla peninga fyrir SAA? „1 sjálfu sér er sparisjóðurinn alveg óviðkomandi SAA, siður en svo nokkurt einkafyrirtadci þeirra samtaka heldur aöeins eitt aflið i viðbót tíl.aö vinna gegn áfengisvandamálinu. Viö getum sagt að hann sé ætlaður til aö fjárfesta i betra mann- llfi.” Hvaö áttu viö meö þvi? „Viö getum sagt sem svo að einhverjir afgangspeningar veröi hjá öllum velreknum fyrirtækjum, en við mundum nota þessa afgangapeninga, meðsamþykki ráöherra, ibetra mannlif.” Geröuö þiö ykkur ekki grein fyrir aö rikið hefur sett hömlur á fjölda bankastofnana og aö fjölgun er ekki heimil? „Jú vissulega.” Af hverju réöust þiö þá I þetta? „Vegna þess að viö álitum þá að yrði málefnið sem slíkt sett á vogarskálina mundi það vega þyngra helduren annaö. Við vit- um að þaö liggja fyrir umsóknir um 20 ný bankaútibú, og ein- hverjar þessara umsókna fara I gegn.Þvískyldiþáekki umsókn um svona sparisjóö fara I gegn, þar sem málefnið er svona sterkt?” Komið þiö ekki auga á aörar leiðir? „Vissulega erum við búnir að velta fýrir okkur fjölmörgum leiðum. Hins vegar eru allskon- ar útsölur og happdrætti og all- ar algengustu fjáröflunarleiðir fullnýttar af öllum þeim góð- gerðarfélögum sem um er að ræða.” Olli ekki stofnun SAA sundr- ungu meðal hinna ýmsu hópa sem berjast fyrir sama mál- efni? „Ekkifélögunum sem sllkum, heldur virðist SAA hafa farið I taugarnar á einstökum ein- staklingum innan þessara sam- taka. Okkar vinnubrögð. bað er mjög eölilegt og eiginlega bara náttúrulögmál. Við bjuggumst alltaf við því.” Finnst þér aö templarar og stúkumenn hafi tekið skakkan pói i hæðina? „Ekki skakkan pól. Ef þeir ná þvl að ganga sina Hfsgöngu á enda edrú þá er það gott og vel. Hinsvegar, fyrir minn smekk, eru starfsaðferðir þeirra ekki einni, heldur tveimur kynslóða- tlmabilum á eftir tlmanum.” Aþetta viö um áfengisvarnar- ráð? „Afengisvarnarráð er ekki einusinni hægt að ræöa i þessu sambandi. Ég veit ekki að hverjum verið er að ljúga meö þvi að setja það á stofn, vegna þess að þetta fyrirbæri er svo gjörsamlega f jársvelt að það er tii einskis hæft.” Fær SAA rlkisstyrk? „Já. Við höfum fengiö úr gæsluvistarsjóði samtals 11 milljónir króna.” Hvaö fær áfengisvarnarráö? „Ég held að fjárveiting til þeirra hafi numið um 15 mill- jónum.” Hvaö viltu sjálfur ganga langt I áfengisvarnarmálum? „Ég álít það skyldu þeirra sem selja áfengi að fræða og upplýsa um hættuna sem af þessu kunni að stafa. Hvar sú lina er, það get ég ekki sagt um. Þaðer persónubundið. Ég vil aö góð fræðsla og fyrirbyggjandi störf verði stunduð, fyrir alla unglinga frá tólf til að minnsta kosti átján ára, enda er það samkvæmt landslögum.” Er bann á áfengi réttlætanlegt undir einhverjum kringumstæö- um? „Ekki á meðan okkur er leyft að flytja inn sykur og rækta kar- töflur.” Ertu á móti bjórnum? „Ég er ekki á móti neinu vlni sem slíku.” Þýöir þetta aö þú sért fylgj- andi þvi aö leyfö veröi sala á bjór? „Ef til atkvæðagreiöslu mundi koma, myndi ég sitja hjá. Ef ég yrði neyddur til þess að segja álit mitt mundi ég segja já.” Hygguröu á pólitlskan frama? „Nei, ég kann afskaplega litið til þeirra hluta. bað mundi aldrei eiga við mig að gerast aggressifur I þvi vegna þess að það virðist byggjast á þvl að upphefja sjálfan sig með þvi að traöka helst á hausnum á and- stæðingnum.” Hvers vegna drakkstu sjállúr? „Það var svo gasalega gott að drekka (hlær). Þaö get ég ekki útskýrt. Þetta ersjúkdómur þar sem höfuöið segir nei, enhöndin já. Ég get ekki gert mér grein fyrir i hverju fýknin er fólgin. Ég byrjaði öfugt við alla aöra. Ég byrjaði á mentholspiritus I appelsini 13 ára gamall og end- aði I Vodka.” Hvaö varstu iangt leiddur? „Ég trúi þvl I dag að ég hefði ekki lifað nema I mesta lagi eitt ár I viðbót. Líkaminn var ger- samlega búinn.” Er löngunin ennþá fyrir hendi? „Já, ég er mannlegur”. Hvenær er hún sterkust? „Aóliklegustu tlmum. A þeim stundum og við þau atvik sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir að voru hvati að drykkju. Til dæmis er mikil gleði i mér miklu hættulegri heldur en mótlætið. Ef allt gengur i hag- inn. Ef vel hefur tekist tíl með eitthvert ákveðiö verkefiii þá kemur upp sú löngun að verð- launa sjálfan sig.” Ef ég tæki hérna upp fiösku og hellti I glas fyrir þig, kæmi gamla tilfinningin uppá yfir- borðiö? „Nei.” eftir Guðjón Arngrímsson-

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.