Helgarpósturinn - 24.08.1979, Page 14
14
Föstudagur 24. ágúst 1979 —helgarpásfurínn_
Djúpsteiktur skötuselur
Að þessu sinni leggur Birgir
Jónsson, i Halta hananum til
helgarréttinn. Hann er tekinn af
matseðli hússins, og heitir ein-
faldlega „Djúpsteiktur skötu^
selur.”
1 kiló skötuselur
2 bollar hveiti
1 egg
1 pilsner
salt pipar paprika og sykur eftir
smekk.
Skötuselurinn er hreinsaður
og skorinn i bita einn til tvo |
sentimetra á breidd og tiu senti-
metra á lengd. Hveitinu, egg- ,
inu, pilsnernum, og kryddinu er
blandaö saman og búinn til jafn-
ingur. Fiskbitunum er siðan dif-
ið i jafninginn, og þeii látnir
steikjast i djúpri feiti i fjórar til
fimm minútur, eða þar til þeir |
eru brúnir. Skötuselurinn er
borinn fram með remoulaöi-
sósu, sitrónu og frönskum kar- |
töflum.
Uppskriftin er fyrir fjóra.
Póstur að störfum: kvenmaður aö sjálfsögðu.
KVENFÓLKIÐ HEFIIR TEK-
IB YFIR PÓSTBURBINN
„Kollegar” Helgarpóstsins,
póstarnir I Reykjavik, eru fleiri
en flesta grunar. Alls bera 83 út
póst í Reykjavik, en talsverður
hluti þess fólks er i háifu starfi. -
Talið er að heil störf við póstút-
burð séu 53.
Sumrin eru lar.gminnsti ánna-
timinn i útburði, vegna sumar-
leyfa. Þá eru skólar, margar
opinberar stofnanir, og ekki sist
prentarar i sumarfrlum og þvi
minna bréfefni að bera. Ekki
þarf að leiða getum að þvi
hvenær mest er aö gera: Það er
um jólin.
Starf póstsins hefur tekið
nokkrum breytingum í gegnum
árin, eins og^eðlilegt hlýtur að
teljast.Stærstcr breytingin er
sjálfsagt sú að þetta starf, sem
eitt sinn þótti virðingarstaða
fyrir karlmenni, er nú unnið af
kvenþjóðinni að miklum hluta.
Þær vinna við útburð hluta úr
degi bera út i hverfið sitt.
Langflestir póstar, hvort sem
þeir eru karlkyns eða kven-
kyns^hafa þar að auki einhvers-
konar ökutæki sér til þæginda,
oftast bil.
-GA.
Gatnamálastjórinn Ingi Ú.
„EKKI A HEUARÞRÖM"
Göturnar í gamla bænum standa fyrir sínu
„Stærsta framkvæmdin i sum-
ar hefur tvimælalaust veriö tvö-
földun Elliöavogsins”, sagði Ingi
tL Magnússon, gatnamálastjóri
Reykjavikur, þegar Helgarpóst-
urinn spurðist fyrir um gatna-
gerðarframkvæmdir I ár.
Það hefur varla farið framhjá
neinum, sem ekur um Reykjavik
að staðaldri að nokkur stór um-
ferðarhorn hafa tekið breytingum
uppá siökastið. „Við höfum t.d.
breytt horninu á Suöurlandsbraut
og Reykjavegi, bæði breikkun
Suöurlandsbrautarinnar og með
þvi að setja umferðareyjar á
gatnamótin. Við höfum einnig
komið fyrir eyjum við Safamýr-
ina og viðar. Þá höfum við unnið
talsvert við Bíldshöfðann, og lag-
fært ýmsar slaufur útfrá Miklu-
brautinni og Austurlandsvegin-
um. Þetta hefur verið það viöa-
mesta, auk nýju hverfanna.
„Annars er þannig komið fjár-
málunum að ekki er um annað að
ræða en að halda aö okkur hönd-
um. Það hefur orðið að fækka
Hótel Borg í fararbroddi
Opið í kvöld frá kl. 9 — 3
Diskótek í kvöld, og laugardag
Gömlu dansarnir sunnudagskvöld, Hljóm-
sveit Jóns Sigurössonar ásamt söngkonunni
Matty.
Matur framreiddur frá kl. 18 öll kvöld.
Besta dansstemmingin, borginni
er á BORGINNI
Borðið - Búið - Dansið
á Hótel Borg
verkefnunum talsvert, bara til að
eiga fyrir þeim verkefnum sem
ráðist er i.”
Að sögn Inga er ávallt reynt að
haga framkvæmdum þannig að
þær trufli umferð sem minnst, en
stundum er erfitt að komast hjá
þvi. Þegar unnið er við meirihátt-
ar umferðagötur, er reynt að
koma þeirri vinnu fyrir um helg-
ar, eða á kvöldin, en það er ekki
alltaf sem það er hægt.
Þegar Ingi var spurður hvernig
ástand gömlu gatnanna í bænum
væri, svaraði hann þvl til að það
væri þokkalegt, þótt undirlagið
gæti sumstaðar verið betra. „Það
er margt sem þarf að lagfæra, en
viö erum ekkert á heljarþröm
þeirra vegna”, sagði hann.
— GA
SðLUBÖRN
Á föstudögum
er afgreiðsla
Helgarpóstsins
opin frá kl. 9 f.h.
Söluböm eru
hvött til að koma að
Hverfisgötu 8-10,
(við hliðina á
Gamla biói)