Helgarpósturinn - 21.03.1980, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 21.03.1980, Blaðsíða 5
5 he/garpósturínrL. Föstudag ur 21. mars 1980 ®Ronald Regan fyrrverandi kvikmyndaleikari og rikisstjóri hefur opinberlega beóist afsök- unará brandara, sem hann sagði nýlega, en talin var hætta á að ýmsir heföu getað móðgast. En brandarinn var svona: Hvernig getur maður þekkt Pólverja i hanaslag? Það er hann sem er með öndina. Hvernig geturðu þá þekkt ttalann? Hann veðjar á öndina. Hvernig veistu að Mafían er viðstödd ? öndin vinnur. Hver segir svo að gamlir leikarar geti ekki verið fyndnir? ® Þeir láta ekki að sér hæða Danirnir frændur okkar. I Kaupmannahöfn hafa verið sett i gang karata námskeiö fyrir elli- lifeyrisþega. Já, karatenám- skeið. Og þátttakan er mikil. Tilgangurinn er sá, að þetta gamla fólk geti tekið hraustlega á móti ef á það verði ráðist af glæpamönnum og öðrum banditt- um. •Tveir herramenn lögðu fram tuttugu dollara tryggingagjald fyrir fugli i Heimspáfagaukabúð- inni i Rockville Center i Long Is- land. Þegar þeir komu tveim klukkustundum siðar, kom i ljós, að þeir voru alls ekki herramenn, heldur ótindir skúrkar. Þeir yfir- gáfu staðinn með tvöþúsund doll- ara i reiðufé og átta fugla, að verðmæti þrettán þúsund dollara. Eða svo sögðu eigendur búðar- innar við lögregiuna, sem auðvit- að dregur hana mjög i efa. Lög- regluforingjanum finnst þetta at- hyglisvert mál, en eigendurnir hafa enn ekki verið ákærðir um að hafa staðið á bak við þetta. Þeir eru alveg rasandi yfir þessu og segjast ekki skilja að nokkurn geti grunað þá, þvi fugl- arnir voru ekki tryggöir.... Ög hananú. #Dýravinir i vestur-þýska sam- bandsrikinu Niedersachsen hafa nú, fengið skipun um það, að þeir megi ekki lengur hafa eiturslöng- ur, köngulær og sporðdreka heima hjá sér. Um þetta voru sett lög þann 20. febrúar s.l. Þessi lög ná þó ekki yfir ljón, tigrisdýr og krókódila. Stjórn sambandsrikis- ins hefur sagt, að ástæðan fyrir þessum lögum sé sú, að mikið af eitruðum kvikindum hafi sloppið úr haldi og valdið hræðslu meðal fólksins. TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ Vonorlondi v/Sogoveg — Simor 00560*37710 Bíllinn sem engan svlkur

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.