Helgarpósturinn - 26.09.1980, Blaðsíða 26

Helgarpósturinn - 26.09.1980, Blaðsíða 26
26 "FöstudagOr 26. septerriber 1980 he/garpústurínrL. 99 Ég hef hvorki séð náttúruna nakta né í skautbúningi Rætt við Einar Má Guðmundsson skáld þriggja binda útgáfum af atburðum og fólkinu sem skilur ekki orð... Nýlega hefur Galleri Suðurgata 7 gefið út tvær nýjar Ijóðabækur eftir ungt skáld, Einar Má Guð- mundsson. Þær heita, Sendi- sveinninn er einmanna, og Er nokkur i Kórónafötum hér inni?. Einar Már er um þessar mundir búsettur I Kaupmannahöfn. Auk þess að hafa brotið niöur sund- laug með loftbor, selt jarðaber fyrir glistrupisk hjón og skúrað fyrir danska sjóherinn, hefur hann dundað sér litillega við framhaldsnám i bókmenntum. Aftur á móti segist hann stefna að þvi að koma sér upp venjwiegum færibandavinnudegi,,viö ritstörl.” Það er þó ýmsum annmörkum háð. ,,Samt vonast ég til þess aö þurfa ekki að gerast söngvari I nöldurkór rithöfunda”, bætir Einar Már við. Hann hefur kynnt ljóð sín með upplestri i skóium og viðar og gengur nú um borg og bí með bækur undir hendinni. Ég bankaði uppá hjá Einari Má og spurði hann fyrst að þvi af hverju hann byggi i Kaupmannahöfn. Hver hlóð múrinn? — Éggæti nú alveg eins verið á Blönduósi... Aftur á móti álit ég að maður þurfi að flytjast milli margra staða, en staldra þó viö drjúga stund á hverjum. Ég hef unnið i nokkrum löndum, fiski i Færeyjum, vinberjum i Frakk- landi og grafið skurð milli járn- brautarstööva I Noregi. Ég er i Kaupmannahöfn núna til aö geta farið þaðan seinna. — Hvernig gengur að koma ljóöum þinum á framfæri? — Það gengur bara vel. Ég held að það sé goösögn sem allir trúa, að fólk lesi ekki ljóð. Fólk les ekki ljóð af þvi að þvi er sagt að það lesi ekki ljóö. Þannig hefur verið hlaðinn upp múr milli fólks og Ijóða, málið er bara það að enginn veit hver hlóð hann. Svitnar nú fjallkonan fríð Að vissu leyti er þetta arfur frá modernismanum, sem popp- kúltúrinn hefur aö einhverju leyti brotið niður, en um leið er lfka or- sakirnar að finna i þeim ideológ-, isku ógöngum sem póesian hefur, verið i. T.d. er islensk ljóðagerð uppfull af þjóðrembu og alls kyns fjallkonupornógrafiu, sem vinstri hreyfingin og skáld hennar hafa alltof lengi ónanerað á. Ljóðlist er ekki fyrir fáa út- valda jafnvel þó hún sé það. Allir eru að yrkja, þeir eru sér bara misjafnlega meðvitaðir um það. Það að margir segja að ljóð séu leiðinleg, er lika einfaldlega af þvi að mörg ljóð eru einfaldlega leiðinleg. Mér hefur hins vegar fundist gaman og gott að kómmúnikera við fólk gegnum ljóð. — Af hverju ertu að yrkja ljóö? — Ég nenni ekki að koma með frasa eins og um innri þörf og allt það. Ætli þetta sé ekki bara til- raun til að vera skapandi sjálfur og að ráða sinum vinnutima. Það mætti kannski segja að þetta sé einstaklingsbundin freisisbar- átta. — Hvað ertu að tjá? — Guð minn góöur, ég hef ekki efni á þvi að segja lesendanum frá þvi hvaö hann á að lesa út úr ljóðunum. Ég vil að hann finni það út sjálfur þegar hann les ljóð- in, þvi þá má segja að lesandinn yrki sjálfur. Viö getum sagt aö maður reyni á einhvern hátt að spegla feröalag sinnar kynslóðar, bæði meðvitað og ómeövitað. Ljdöagerð er i ákveðinni hefð, sem nauðsynlegt er aö ná tökum á, til þess annars vegar, aö nota sérþætti hennar oghinsvegar,til þess aðlosa sig úr viöjum hennar. „Fótsporin meðfram ströndinni". Maöur undirstrikar á einhvern hátt sérstööu sinnar kynslóðar. Ég tilheyri fyrstu kynslóð sem elst upp i borginni frá blautu barnsbeiní. Allar þessar náttúru- nostalgiur sem islensk ljóðagerð er uppfull af, eru þvi i minu tilfelli gjörsamlega úti hött. Ég hef hvorki séð náttúruna nakta eða i skautbúningi. Aftur á móti má segja að ljóðagerð i dag lendi i þvi samhengi þar sem hin gömlu mörk lágmenningar og hámenn- ingar eru fyrir bi. Ljóðagerð min og annað það sem ég skrifa er þess vegna alveg jafndópuð af popptónlist sem og ljóðagerð 20. aldar. Fá skáld hafa t.d. höfðað jafnmikið til min og David Bowie og Sigfús Daðason. — Hvernig finnst þér islensk ljóðlist i dag? — Mér finnst islensk ljóðagerð á mjög lágu plani. Það virðist vera til alveg sérstakir ljóða- bókafrasar sem yrkja sig sjálfir. Þ?.ð verður að teljast furðulegt, ao orðfæri islenskrar ljóðlistar hafa litið sem ekkert endurnýjað sig siðan i kalda striðinu, þrátt fyrir allt sem siðan hefur gengið á. Hin svonefnda „atómljóðlist” með öilum sinum „auðu torgum” og „fótsporum meðfram strönd- inni” hefur algjörlega glatað hlutlægri samsvörun sinni við veruleik okkar og tilfinningalif i. dag. Eigi að siður sitja menn fastir i þessum frösum. Ungu skáldin jafnvel þjóö- legri en ömmur þeirra Að minu mati hefur hinum svo- nefndu ungu skáldum i islenskri ljóðalist ekki tekist að fylla i þetta tómarúm. Mörg þeirra eru meira að segja ennþá að reyna að troða sér i frakkann hans Steins Steinarrs, þó svo að frakkinn hafi veriðorðinn of litill á Stein sjálfan undir lokin. Flest þessara ungu skálda virðast hugsa i billegustu klisjum islenskrar vinstri póli- tikur og eru jafnvel þjóðlegri en ömmur þeirra. — Eru ljóð þin kannski uppgjör við æsku þessarar kynslóðar? — Ja, þetta er aðeins tekið fyrir i bókinni, Sendisveinninn er ein- manna. Fjögur fyrstu ljóðin taka á einhvern hátt fyrir identitet okkar kynslóðar. sósialismi i einu herbergi. þriðji heimurinn kemur æpandi úr plakötum veggjanna byltingin betrekkt herbergi í höfðinu en gættu þín ljósin i glugganum eru ekki mors og steriósándið úr hornunum er aðeins áttavillt vitund þin sem liðast einsog setning gegnum þunglynda skáldsögiu það er satt, þú situr enn i stólnum upplituðu gallabuxurnar fara þér alltaf jafnvel enn með hár niðrá herðar sylumpipur sem hanga uppá vegg og rauðu hugsjónirnar fallvaltar ihillunum örlitið þreyttur á frösunum á staðhæfingum sem reynast ávallt réttar i einrúmi á reyksvældu þunglyndu fundunum örlitið þreyttur á sjálfum þér Ljóöformiö skapandi í rokktónlist — Er ljóðformið ekki úrelt list- form? -t- Nei, ég held að dýrustu perlur rokktónlistar afsanni það algjörlega, þvi þar er ljóðformið notað á skapandi hátt. Það sem óneitanlega hefur sett mark á skáld og skáldskap eru frasar 2ins og að ljóð eru svo erfið að enginn skilur þau og svo liggja Ijóðabækurnar bara inná hillu hjá bókaforlaginu og enginn kaupir þær. Menn eru þvi mjög vonlausir um að nokkur maður muni lesa :jóð. En ég álit að skáld geti ekki miðað við þessa stöðu heldur bara skrifað áfram. Nú svo er náttúru- lega ekki úrelt að yrkja ljóð á meðan það er verið að yrkja ljóð. — Til hvaða hóps höfðar þú með .jóðagerð þinni? — Ég veit það ekki. Ég hef enga skoðun á þvi að ljóð séu samin til jinhverra sérstakra hópa. Mér linnst mikill hroki i þvi að segja, pessi bók er fyrir alþýðuna og þessi er fyrir menntamenn. Ljóð- in eru fyrir þá sem ná tilfinninga- legu sambandi við þau. Aftur á móti geri ég ráð fyrir að sumir nái meira sambandi en aðrir. eftir Jóhönnu Þórhalisdóttur myndir: Valdís Óskarsdóttir Miðaldrahjón þau hanga i stofunni eins og samlokur en það er ekkert á milli þeirra nema hamingjan sem skilur þau að Hreingerningarmaður i herbergi 515 brosir heil fjölskylda á skrifborðinu konan börnin og embættismaðurinn sem ég sé aldrei þegar ég fjarlægi einkenni hans úr öskubakkanum Húsbóndi inniskórnir iiggju á gólfinu tærnar bláar af kulda sjónvarpsins

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.