Helgarpósturinn - 17.10.1980, Side 28
__helgarpásturinn.- Föstudag
ur 17. október 1980.
• Það hefur ekki farið framhjá
neinum að Alþýðubandalags-
menn eiga við sinn innanhús-
vanda að etja, þar sem er Garðar
Sigurösson, alþingismaður og sá
hugur sem hann ber til formanns
þingflokksins, ólafs Ragnars
Grimssonar.Til dæmis segir sag-
an að þegar Garðar hafi komið i
kaffistofuna i Alþingi á fyrsta
degi hafi hann sagt stundarhátt,
svo allir fnáttu heyra: ,,Mikill
munur er nú að vera i þessu
Alþýðubandalagi eftir að þaö
gekk i Möðruvallahreyfinguna!...
• Og enn i sama dúr. Það er
nefnilega sagt aö það hlakki mjög
i Garðari Sigurðssyni um þessar
mundir. Hann átti nefnilega sæti i
siöustu þingfararkaupsnefnd
þingsins sem samþykkti 20%
hækkunin á laun þingmanna sem
mest fjaðrafok varö út af i sumar.
Þetta varö til þess að ekki var
kosið i þingfararkaupsnefnd núna
heldur eru i undirbúningi lög um
að kjaradómi veröi komiö á fót til
að ákvaröa laun og kjör þing-
manna. Engu að siöur er aðkall-
andi aðleyst verði til bráðabrigða
greiöslur vegna húsnæðis þing-
manna utan af landi hér i Reykja-
vik og er þvi uppi tillaga um að
sett verði á laggirnar til bráða-
bpigða þingfarakaupsnefnd,
skipuö formönnum þingflokk-
anna og forsetum þingsins þar
sem einsýnt þykir aö þingmenn
muni almennt vera þess litt fýs-
andi að taka sæti 1 nefndinni. Þá
situr ólafur Ragnari súpunni og
Garöar hyggur sennilega gott til
glóöarinnar. Hann er ekki
búinnaðgleyma þvi þegar ólafur
hringdi i hann út á sjó I sumar og
skammaði hann blóðugum
skömmum á bátabylgjunni fyrir
ákvörðun þingfarakaupsnefndar
og lét sem hann vissi ekkert um
máliö, þótt gerö heföi veriö grein
fyrir þvi i þingflokki Allaballa
sem annarra....
• Mönnum hefur gengið dálitið
illa að koma þvi heim og saman
hvers vegna Guðmundur Jaki
Guðmundsson er einn ASt-forust-
unnar svo áfjáður i að sett verði
lög til að leysa yfirstandandi
kjaradeilu. Rætnar tungur halda
þvi fram aö ástæðan fyrir þessu
sé sú að Guðmundur hefur verið
valinn af hálfu Alþýðubandalags-
ins sem fulltrúi isendinefnd þing-
flokkanna á allsherjarþing
Sameinuðu þjóöanna siðar i mán-
uðinum en telji sig eiga dálitið
erfitt með aö fara nema samn-
inga málin séu komin i höfn...
• Og úr þvi minnst er á samn-
ingana, þá er ýmislegt sem bend-
ir til þess að til tiðinda muni
draga i verkfallsmálum á næst-
unni. Alþýöusambandið ihugar nú
meö hvaöa hætti eigi að gripa til
verkfallsaðgerða en hins vegar
getur vel fariö svo að Félag bóka-
gerðarmanna verði á undan og
boði verkfall á næstunni vegna
þess strands sem orðið er i sér-
kröfumálum prentara um at-
vinnuöryggis- og tæknimál. Vist
er aö Vinnuveitendasambandið
muni þegar gripa til verkbanns-
vopnsins og er þá jafnvel talað
um að verkbannið muni þá ekki
aðeins ná til starfsstétta sem
starfa i tengslum við prentiðnað-
inn, svo sem blaðamanna og
verslunarfólks heldur til allra að-
ildarfélaga innan ASl, svo að út-
koman verði allsherjarverkbann.
Þá þykir mönnum einsýnt að
rikisstjórnin komist ekki hjá þvi
að gripa i taumana og Guömund-
ur J kemst þá kannski til New
York eftir allt saman...
• Og nú yfir i f járlagafrumvarp
Ragnars Arnalds Þar kennir
margra grasa eins og vænta má
og sitthvað þykir fróðum mönn-
um mega betur fara eins og geng-
ur. Bent er t.d. á að i frumvarpinu
nú sé gert ráð fyrir 1337 millj.
króna til að standa undir halla-
rekstri Skipaútgerðar rikisins á
tveimur eigin skipum og einu
leiguskipi. Vöruflutningabilstjór-
ar eru auðvitaö æfir yfir þessu og
halda þvi fram að þarna sé rikið
raunverulega að greiða niður
flutninga skipaútgerðarinnar og
taka frá þeim verkefni um leið,
þvi að bæði vöruflutningar á landi
og hin skipafélögin sem fyrir eru,
muni algjörlega geta sinnt hlut-
verki Skipaútgerðarinnar. Er i
þessu sambandi einnig bent á að
tekjur Rikisskips standi ekki einu
sinni undir launakostnaði fyrir-
tækisins. Þá fær Framleiðslu-
eftirlit sjávarafurða nærri
milljarð i sinn hlut i frumvarpinu
enda þótt fyrir liggi skýrsla
nefndar frá þvi i janúar sl. þar
sem sýnt er fram á að þessi stofn-
un þjóni engum tilgangi. Loks
hefur veriö vakin athygli á þvi að
Fjölbrautarskóli Sauðárkróks fær
hvorki meira né minna en 95,8%
hækkun á framlögum i fjárlaga-
frumvarpinu og þykir skólinn
njóta þess að Ragnar Arnalds,
þingmaður Noröurlands vestra,
hefur bæöi verið mennta- og fjár-
málaráðherra á skömmum
tima...
• 1 byrjun þings var þess beðið
með eftirvæntingu hvernig innan-
hússerjur Sjálfstæðisflokksins
kæmu fram i kosningunum innan
þings i nefndir þess, þar sem fyrir
lá krafa rikisstjórnarinnar um
meirihluta i öllum nefndum. Egg-
ert Haukdal réði hins vegar úr-
slitum um það að Gunnar
Thoroddsen og lið hans varð að
bakka svolitiö og samkomulag
náðist. Sagt er að stjórnarand-
stæöingar i Sjálfstæðisflokknum
hafi fyrir kosningarnar verið til-
tölulega rólegir, þarsem þeir hafi
vitað að Eggert kæmi til þings
beint úr héraöi. I þvi sambandi er
nefnilega sagt, aö Eggert hafi tvö
eyru, eins og aðrir menn, nema
hvað annað eyra hans sé Ingólfs-
eyra (Ingólfs Jónssonar héraðs-
höfðingja á Hellu) en hitt sé
Gunnars-eyra (forsætisráðherra)
Ingólfs-eyrað hafi verið virkt
þegar Eggert kom til þings. Það
hafi siðan komið á daginn að
Gunnari hafi ekki með nokkru
móti tekist að ná eyrum Eggerts
þar sem hann hafi enn verið með
Hellu fyrir eyrunum...
• Eggert Haukdal kom einnig
serstaklega viðsögu i kosningu til
fjárveitinganefndar. Stjórnarlið-
ar i Sjálfstæðisflokknum höfðu
ákveðið að hann tæki þar sæti
Friðjóns Þórðarsonardómsmála
ráðherra en auk þess ky
áttu þrir aðrir Sjálfstæðis r*\
menn úr stjórn- I 13^
arandstöðuarminum — L/
Friðrik Jr
• Fyrr i vikunni var haldinn
blaðamannafundur i sjávarút-
vegsráðuneytinu með Stein-
grimi Hermannssynium leiöir til
útbóta við vanda sjávarútvegsins
sem er mikill um þessar mundir,
eins og varla hefur farið framhjá
neinum. 1 lok fundarins var svo
komið aö menn voru farnir að
skeggræða nýjar hugmyndir til
úrbóta. Blaöamaður Þjóðviljans
minnti á gamlar og góðar hug-
myndir um meltuframleiðslu úr
slógi og lifrarbræðslu, sem
sjávarútvegsráðherra tók hraust-
lega undir að væru allrar athygli
verðar. Aðstoðarmaður sjávarút-
vegsráðherra Bogi Þórðarson
virtist ekki hafa verið á sama
máli þvi að þegar blaðamenn
voru að ganga út úr fundarsaln-
um hnippti hann i Þjóðviljamann-
inn og hvislaði að honum : „Bless-
aöur vertu ekki að minnast á
þetta með lifrarbræðsluna og
meltuframleiðsluna — það stefnir
þessu bara i enn meiri hallarekst-
ur...
Þaö er okkar hagur.
viðskipti
&verzlun
Við viljum ekki vera
eftirbátar nágrannaþjóða
okkar hvað nútímaþróun
varðar, hvorki í landbúnaði,
sjávarútvegi, iðnaði né
verslun.
Bætt skipulag og
endurbættur vélakostur hafa
stöðugt aukið framleiðslugetu
þjóðarinnar.
Hlutverk verslunar er að
koma framleiðslu hinna
atvinnuvegannaá
neytendamarkað.
Aðbúnaður verslunarinnar
þarf því að vera í samræmi við
auknaframleiðslugetu og
þarfir neytenda.
Hún gegnir hér stóru
hlutverki í okkar daglega lífi -
hugsaðu um það næst
þegar
þú ferð út í búð
Búum beturaö versluninni.
Á eftlr...