Helgarpósturinn - 27.03.1981, Blaðsíða 15
15
^hialij^rpnczh irínn FÖS]ljda^r 27 mars 1981
Lamborghini Countach, bill af sömu gerö og veröur á bílasýningunni
Auto ’81 sem veröur opnuö um helgina.
Einum af dýrustu bílum heims ekiö frá skipshliö í Reykjavlk. Rolls--
Royce Corniche á nærri þrjár milljónir nýkr. Væntanlega veröur hon-
um aðeins ekið uppi Bildshöfða og þaöan aftur niöur f Sundahöfn. —
Mynd: Jim Smart.
Á Auto '81 er til sölu landsins dýrasti bíll:
Rolls-Royce á tæp-
ar þrjár milljónir
Hver vili kaupa Rolls Royce
Corniche Saloon? Veröiö er
2.827.626 krónur (tvær milljónir
áttahundruö tuttugu og sjö þús-
und sexhundruö tuttugu og sex
krónur). Þaö er andviröi tveggja
glæsilegra einbýlishúsa. BiUinn
er kominn til landsins, og meö
honum fulltrúi verksmiöjunnar,
sem er tilbúinn aö selja bflinn
hv«>rium sem er, hvaö sem llöur
öllum þjóösögum um vandfýsni
þeirra RR-fnanna á kaupendur.
Þótt landinn sé óútreiknanlegur
þegar peningamál eru annars
vegar er varla von til þess, að
billinn verði seldur. Það er heldur
ekki ætlunin. Hann var fenginn að
láni til aö hann geti verið til sýnis
á bilasýningunni Auto ’81, sem
verður opnuð i dag föstudag i
c*r>inöahöllinni, Bildshöfða 20.
Og verður lfklega eitt af þvi sem
helst dregur forvitna áhorfendur
á sýninguna.
En það er fleira, sem til þess er
falliö. Hingað er kominn danskur
bilasali, Lars Bang, sem er
frægur fyrir safn dýrra bila.
Hann kom hingað með tvo úr
safninu, Rolls Royce Silver
Shadow og Lamborghini
Countach LP 112S. Lamborghini
Bangs er 1200 kiló, með tólf
strokka vél, sem er 375 hestöfl og
er 4 1/2 sekúndu úr kyrrstöðu i
hundrað kilómetra hraða. Þá er
enn ekki búið að skipta úr fyrsta
gir! Kveikjurnar eru tvær og
blöndungarnir fjörir. Rollsinn
sem islenskum auðmönnum býðst
nú til kaups er með V8 vél, 6750
sentimetrar. Allt er þetta gott og
blessað, og jafnvel hugsanlegt, að
einhver gæti hugsað sér að kaupa
slikan bil. En allar slikar hug-
myndir falla þó um sjálfa sig,
þegar þess er gætt, að það eru
aðeins fjórir sentimetrar undir
lægsta punkt bilsins! Jafnvel
hryggirnir i malbikinu eru of
háir.
En að sjálfsögðu verður fleira
til sýnis á Auto ’81, og liklega flest
gagnlegra og raunhæfara fyrir
allar aðstæður hér á landi. öll
bifreiðaumboð landsins taka þátt
i sýningunni og sýna það nýjasta
sem þau hafa á boðstólum. Að
sögn Hafsteins Haukssonar fram-
kvæmdastjóra sýningarinnar er
talsvert um hluti sem eru algjör-
lega nýir af nálinni og pantaðir til
landsins sérstaklega til að unnt
væri að kynna þá i fyrsta sinn hér
á landi á Auto ’81. Þar er ekki
bara um að ræða bila, heldur lika
verkfæri, varahluti og fleira i
tengslum við bila.
Og tilgangurinn með sýning-
unni: „Aðsýna fólki á einum stað
söluvöru þá sem sambandsaöilar
Bilgreinasambandsins hafa á
boöstólum og fá fólk til að hugsa
um hina miklu þýðingu
bilsins i nútima
þjóðfélagi”,
segir Haf-
steinn.
MAÐURINN BAKVIÐ NAFNIÐ
Gunnar Helgi Hálfdánarson
Verötrygging á afborgunum
af fasteignum á aö lækka út-
borganir þegar fram liöa
stundir, og jafnframt tryggja
seljendum, aö þeir fái raun-
verulega í hendur umsamiö
söluverð. Þessi athyglisveröa
nýbreytni i fasteignaviöskiptum
skaut upp koltinum fyrir
skömmu, og á bak viö hana
stendur Fjárfestingafélag Is-
lands.
Maðurinn á bak við Fjárfest-
ingafélagið er aftur Gunnar
Helgi Hálfdánarson, þritugur
Reykvikingur, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins og jafnframt
aðstoðarframkvæmdastjóri
Hagvangs hf, sem sér um
rekstur þess.
,,Ég er af malbikinu, fæddur
og uppalinn í Austurbænum i
Reykjavi'k”, sagði Gunnar,
þegar Helgarpósturinn sló á
þráðinn til hans.
Og nánar um manninn bakvið
na&iið: Gunnar lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskólanum
1972, viðskiptafræðiprófi frá
Háskólanum 1976, og var ráðinn
að Hagvangi og Fjárfestinga-
félagi Islands sama ár. Hann er
kvæntur Gunnhildi Lýðsdóttur
viðskiptafræðingi, og þau eiga
tvo syni.
„Lokaritgerðin min frá Há-
skólanum er um verðbréf og
fjármagnsmarkaðsfræöi, og I
tengslum við það var ég ráöinn
tíl Hagvangs, þar sem ég fékk
verkefni við það i hálfu starfi að
koma af stað verðbréfamarkaði
fyrir Fjárfestingafélagiö. Ég
hef unnið við það siðan, og i
sivaxandi mæli á öörum sviöum
fjármála i tengslum við Fjár-
festingafélagið og jafnframtvið
almenna fyrirtækjaráðgjöf á veg-
um Hagvangs”, sagði Gunnar.
Út úr gagnkvæmu samstarfi
Hagvangs hf, og Fjárfestingar-
félagsins hefur siðan sprottið nýtt
svið út af þvi siðarnefnda, Fast-
Gunnar Helgi Hálfdánarson
eignamarkaðurinn. Þetta nýja
dótturfélag Fjárfestingafélagsins
erárangurinn af þeirri reynslu og
þekkingu, sem hefur fengist i
gegnum hin fyrirtækin tvö á sviði
fjármála og ráðgjafar i þeim efn-
um.
„Markmið félagsins er að efla
atvinnureksturinn og örva til
þátttöku i honum með þvi að fjár-
festa i atvinnufyrirtækjum og
veita þannig fjárhagslega fyrir-
greiðslu og beita sér fyrir nýjung-
um i atvinnumálum. Til þess að
ná þessu markmiði sinu hefur fé-
lagið m.a. unnið að þvi að efla
verðbréfaviðskipti, en öflug við-
skipti af þvi tagi er forsenda þess,
að fjárfestingar i atvinnufyrir-
tækjum verði arðbær.
Jarðvegurinn hefur verið
undirbúinn með þvi að kenna
mönnum á spariskirteini rikisins
og veðskuldabréf, og næsta stig
er að efla viðskipti með hlutabréf.
Verðbréfaviðskipti eru þegar
vaxandi og ég tel, aö á næstu tiu
árum muni spretta upp traustur
hlutabréfamarkaður og jafn-
framt komast á meira jafnvægi á
fjármagnsmarkaðnum, m.a.
vegna heimilda til verö-
tryggingar fjárskuldbindingar”,
sagði Gunnar Helgi Hálfdánar-
son. ” ÞG.
Endalaus
Rimini - ein af allra vinsælustu baðströndum Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólarhringinn.
Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir og næturklúbbar skipta þúsundum og alls staðar er
krökkt af kátu fólki.
Leiksýningar og hljómleikar listamanna úr öllum heimshornum eru daglegir viðburðir
farandsirkusar koma ístuttarheimsóknirog víða troða upp
ólíklegustu skemmtikraftar - jafnvel þegar
þeirra er síst von!
Einstaklega ódýrir
og góðir veitinga-
staðir ásamt fyrsta
flokks íbúðum og
hótelum fullkomna
velheppnað sumar-
leyfi á Rimini.
Reyndir fararstjórar
benda fúslega á alla
þá fjöibreyttu mögu-
leika sem gefast til
stuttra ferða meðfram
ströndinni.
Róm - 2ja daga eða vikuferðir
Feneyjar - „Hin sökkvandi borg"
Flórens - listaverkaborgin fræga
San Marinó - „frímerkja-dvergríkið"
ofl. ofl.
allan sóla
• Go-cars kappakstursbrautir
• Rennibrautasundlaugar
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
* Tívolí • Sædýrasöfn • Hjólaskautavellir • Mini-golf
• Skemmtigarðar • Leikvellir • Tennisvellir • Hestaleigur
aeradria Adriatic Riviera of Emilia - Romagna (Italy )
PIMINIAIPPORT *
líf og fjör