Helgarpósturinn - 27.03.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 27.03.1981, Blaðsíða 24
helgarpásturinn Föstudag ur 27. mars 1981 Bók er Ibest vina í bókadeild Pennans að Hallarmúla 2 er stórkostlegt úrval af íslenskum og erlendum bókum Ef þú þarft að gleðja VIN ÞINN líttu þá við i Bókadeild Pennans ... bækur HALLARMÚLA 2 • Menn eru þegar teknir að velta vöngum yfir ýmsum embættum, sem vitað er að losna muni á næstunni. Eitt þessara embætta er staða forstjóra Land- helgisgæslunnar en Pétur Sig- urðsson sem veitt hefur henni for- stöðuum árabil, hefur nú náð ald- urshámarkinu. Ýmsir hafa verið nefndir sem hugsanlegir arftakar Péturs en eftir þvi sem við heyr- um er þó i alvöru einkum talað um þrjá menn — þá Guðjón Ar- mann Eyjólfsson, skólastjóra Stýrimannaskólans i Eyjum, Hannes Hafstein, framkvæmda- stjóra Slysavarnafélagsins og ÞröstSigtryggsson.skipherra hjá Landhelgisgæslunni, en allir þessir menn eiga það sameigin- legt að hafa að baki nám i sjóliðs- foringjaskólum úti likt og Pétur Sigurðsson... • Ársreikningar Arnarflugs munu nú liggja fyrir. Þar kemur m.a. fram að hallarekstur félags- ins af innanlandsflugi á siðasta ■ári nam um 80 milljónum gamalla króna. Eitthvert tap mun einnig hafa orðið af milli- landafluginu eftir þvi sem heim- ildir okkar herma.... ® Útvarpsráðsmenn liggja nú yfir rekstraráætlunum útvarps- ins og brjóta heilann um hvar helst eigi að beita hnifnum til að skera niður eða vatna út dagskrá þess um þau 14% sem nauðsyn- legt er talið. A útvarpsráðs- fundum mun almennt vera mikil tregða á þvi að fara út i þennan niöurskurð og telja sumir hverjir vonlaust að unnt sé að ná þessum 2.65 millj. nýkr. niðurskurði á þeim 8 mánuðum sem til stefnu eru miðað við 1. mai n.k. án þess að raska dagskránni verulega. Niðurskurðurinn hljóti að koma langmest niður á hinu talaða orði og bitna þar af leiðandi harðast á ýmsum vönduðustu og vinsælustu þáttum útvarpsins. 1 þessu sambandi munu hafa verið lagðir fram útreikningar um kostnað á hverja minútu flutnings á mis- munandi efni og þar komið fram að hver minúta efnis frá Sinfóniu- hljómsveit islands kosti um 700 nýkrónur, hver minúta frétta 84 kr. oghverminúta leikrita um 350 kr. Þessar upplýsingar munu hafa leitt til þess að i útvarpsráði hefur komið fram tillaga um að sagt verði upp samningnum milli Rikisútvarpsins og Sinfóniu- hljómsveitarinnar til endur- skoöunar. Ekki mun þó ætlun flutningsmanna að leggja Sinfóniuhljómsveitina niður held- ur munu þeir telja eðlilegra vegna f járhagserfiðleika út- varpsins verði það losað undan þeirri kvöð sem reksturinn hljómsveitarinnar er útvarpinu um þessar mundir og riki og borg taki á sig aukna byrði af kostnaði við starfsrækslu hljómsveitar- innar. Hefur komið fram, að losn- aði Rikisútvarpið við að standa straum af Sinfóniuhljómsveitinni, þá þyrfti ekki að koma til niður- skurður hjá stofnuninni.... • Frjálst framtak mun nú vera að svipast um eftir ritstjóra að Sjávarfréttum og/eða Iþrótta- blaðinu eftir að Kjartan Stefánsson ákvað að hætta sem ritstjóri á Sjávarfréttum og snúa aftur á Visi sem aðstoðarfrétta- stjóri. Nú heyrum við einkum rætt um Agúst Inga Jónsson, blaðamann á Morgunblaðinu, sem liklegan eftirmann Kjartans, og hann henti báðum blöðunum jafnvel — þvi að hann var lengi iþróttaf réttam aður Morg- unblaðsins áður en hann snéri sér að innlendum fréttum með sjávarútveg sem sérsvið.... ® Og Visismönnum mun bætast frekari liðsauki um næstu mánaðamót eftir þvi sem við heyrum. Er það Herbert ólafsson sem verið hefur viðloðandi blaða- mennsku i nærfellt tvo áratugi, m.a. blaðamaður á Visi fyrir um 15árum, stofnandi Hús og hýbýla, ritstjóri Islendings og nú siðast Kópavogstiðinda... • Ljóst þykir nú að nýtt skipu- lag Grjótaþorpsins muni ekki ná fram að ganga. Oddvitar borgar- stjórnarmeirihlutans munu ekki treysta sér til að leggja fram tillögur um hið nýja skipulag i borgarstjórn, þar sem þeim þyki einsýnt að það muni ekki ná þar fram að ganga — sem sagt að ekki munu allir meirihluta- fulltrúarnir vera tilbúnir að styðja það.... • Einhver skjálfti mun vera að hefjast meðal Alþýðuflokks- manna i Reykjavik og er það tengt prófkjörsmálum flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar næsta ár. Bragi Jósepsson hefur nú boðið sig fram gegn Guðmundi Haraldssyni.núverandi formanni Alþýðuflokksfélags Reykjavikur, en stjórnarkosning á að fara þar fram innan skamms. For- mennskan i þvi félagi veitir aftur áhrif i fulltrúaráði flokksins i Reykjavik, þar sem ákvarðanir um framboð og prófkjör eru teknar.... • Það er viða sparað i rikis- geiranum. Nú siðast heyrðum við að það hefði verið settur lás á löggurnar i Reykjavik, þ.e. lás á simana á lögreglustöðvunum. Eitthvað mun þá i ráðuneytinu hafa grunaö lögreglumennina okkar um, að hafa notað simana á vinnustað ótæpilega með privat- hringingum út á iand. Og nú er það þannig, að varðstjórarnir ganga með lykil upp á vasann og ef hinir almennu lögreglumenn þurfa að slá á linuna út á iands- byggðina, þá þurfa þeir að biðja um lykilinn góða. Ekki munu allir lögreglumenn jafnánægðir með þessa framtakssemi dómsmála- ráðuneytisins.... • Stofnun sparisjóðsins Ataks, sem SÁA-menn vilja koma á fót hefur nú tekið nýja stefnu. Ekki fengu þeir tilskilin leyfi fyrir stofnun sparisjóðsins og þvi var leitað annarra leiða. Stóð til, aö Atakyrði að veruleika, en i skipu- lagstengslum við Sparisjóð Reykjavikur. Þetta breyttist þó, þegar Albert Guömundsson.einn aðalforkólfi Átaksmanna, var kjörinn i bankaráð Útvegs- bankans. Segir sagan, að nú bendi allt til þess að Atak verði i framtiðinni ein deild Útvegs- bankans .... • Viðamikil kvennaráðstefna er nú fyrir dyrum hjá fangahjálp- inni Vernd. Hafa Verndarmenn, með Hilmar Helgason i broddi fylkingar ákveöið að safna saman allflestum málsmetandi konum landsins þann 25. april og skal þar ræða málefni fanga. Þar munu m.a. mæta til leiks, Vigdis Finnbogadóttir, kvenþingmenn, kvenborgarar — og bæjar- fulltrúar á landinu, kvenfélags- konur og fleiri konur. Ekki er gjörla vitað um hlut karlpenings- ins i þessu ráðstefnuhaldi, en hann verður vafaiaust hverf- andi... • Nokkur kurr er i ýmsum klerkum vegna hinnar sérstöku stöðu, séra Bernharös Guömundssonar fréttafulltrúa Þjóðkirkjunnar. Ekki aðeins er Bernharður talsmaður Þjóðkirkj- unnar og hægri hönd biskups, heldur er hann og þjónandi prest- ur hjá Frikirkjunni i Hafnarfirði. Frikirkjan er eins og kunnugt er sjálfstæð kirkjueining með sinn eiginn fjárhag og ekki i beinum skipulagstengslum við þjóðkirkj- una. Þykir ýmsum prestum það ekki sæma fréttafulltrúa þjóð- kirkjunnar að starfa einnig innan Frikirkjunnar, ,,þvi enginn þjónn getur þjónað tveimur herrum...” eins og segir (Lúk. 16.13) i hinni helgu bók...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.