Helgarpósturinn - 27.03.1981, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 27.03.1981, Blaðsíða 22
22 Helstu verk J. J. Cale: Naturally — 1971 Föstudagur 27. mars 1981 he/narpÓsturÍnn_ Okie — 1974 heildarinnar, innan ákveðins svæðis, sem skilyrðir megintón- listareinkenni fylkisins, þá er auðskilið hvernig frægð Tulsa, Oklahoma (þarsem flugvirkj- arnir okkar nema), er tengd hæ- verskunni, og hvers vegna J.J. Cale hefur verið leiðandi afl i að móta hinn tilfinninganæma. næstum letilega, en þó sveiflu- rika, hljóm sem einkennir borg- ina. Clapton að hafa það með á plöt- unni. Það náði siðan inná Top 10 bandariska vinsældarlistans. Uppfrá þvi voru dyrnar, sem höfðu verið lokaðar fyrir hinum rúmlega þrituga John Cale, opnar fyrir J.J. Cale „upprennandi lagasmið og söngvara”. 1 millitiðinni hafði Cale leitt hljómsveitina Valentines, og gert mislukkaða tilraun til að komast inná markaðinn i' Nashville, Texti: Páll Pálsson \*nnm „Sérhver borg á sinn eiginn tónlistarstil,” segir J.J. Caie. Mikið rétt, Filadeifla ól af sér hina óteljandi mörgu doo-wop söngflokka sem gerðu garöinn frægan á fimmta áratugnum, San Francisco fóstraði psychedelic- tónlistina, sýru-rokkhljómsveitir Haight-Ashburyhverfisins ss. Jefferson Airplane, Grateful Dead, Quicksilver Messenger Service ofl.: Macon f Georgíufylki var vagga suðurrikjarokksins, hljómsveita cinsog Allman Brothers, Marshall Tucker Band og Lynyrd Skynyrd, og Motown hljómplötufyrirtækið (Stevie Wonder, Diana Ross ofl.) hefur um áratuga skeið haft höfuð- stöðvar sinar i Detroit-borg. Og ef það er persónuleiki Hægur i tíðinni J.J. Cale, sem var að senda frá sérsjöttu sólóplötu sina (Shades) á dögunum, og er nú á 43ja aldursári, hefur alltaf verið hægur i tiðinni, feiminn og ófram- færinn. ösamvinnuþýðni hans við fjöimiðla hefur fyrir löngu sveipað hann þjóðsagnablæ, og ljósmyndir af honum eru safn- gripir. Astæðan: hatar ljós- myndatökur vegna feimni sinnar, og „flest blöð vilja bara vita hvaða stjörnumerki maður er i og hver uppáhaldsmaturinn sé” og honum finnst hann hafa litið að segja iþeim efnum. —Samt hefur hann verið tónlistarmaður i rúma þrjá áratugi, þaraf tuttugu ár sem atvinnumaður, eða eins og hann kallar það: leikið á börum. Hljómleikaferðir Hljómleikaferðirnar um Okla- homafylki hófust snemma i siðari hálfleik fimmta áratugsins og stóðu talsvert frammá þann sjötta. Cale lék þá mestmegnis kántritónlist og rokk opinberlega, enlá þess á milli heima hjá sér og lærði blús og djass af hljóm- plötum. Árið 1964 hélt hann til Los Angeles og hafði samband við . gamla félaga fráTulsa, þeirra á meðal pianóleikarann Leon Russel og bassaleikarann Carl Radle. Cale lék með þeim á nokkrum klúbbumiL.A. (þaðvar1 auglýsingast jóri klúbbsins Whiskey A Go-Go sem stakk uppá þvi að hann breytti fornafni sinu úr John i J.J.) og starfaði sem upptökumaður i Skye Hill stúdiói Russells. Eftir stuttan tima með Delaney höfuðborg kántritónlistarinnar. Hinn einstæði gitarstill J.J. Cale hefur haft mótandi áhrif á gitarleik Eric Clapton og ekki sist Mark Knopfler i hljómsveitinni Dire Straits. Hefur hann þvi oft verið réttilegajiefndur faðir blús- rokksins, sem á enskunni kallast „laid back”. Hinsvegar er ekki hægtað segja að gitarleikurinn sé of áberandi á plötum hans. Hvers vegna? „Ég sé um að hljóðblanda flestar plötur minar sjálfur, og dreg þá gitarinn til baka. Ég er þekktur fyrir að vera söngvari og lagasmiður, það er mitt lifibrauð, þarsem mér tækist aftur aldrei að lifa af þvi að spUa á gitar. Jú, ég lit á mig sem gitarleikara, en þú getur leikið á gitar alla ævi og dáið úr hungri. Ég spilaði á gitar i 10 ár og átti aldrei krónu, svo ég ákvað að læra eitthvað nýtt. En þar sem mérfannst óhugsandi að yfirgefatónlistina,gerðist ég þetta fyrirbæri söngvari/ lagasmiður. Eins og ég segi, ég er þekktur sem söngvari og lagasmiður, og ég býst við að það sé það sem ég er.” Afslappelsi i Tulsa En skyldu allir i Tulsa vera eins afslappaðir og tónlistin gefur til kynna? ,,Já, tónlistin er afslöppuð, já. Ég býst við að ég hafi átt ein- hvern þátt i' þvi og að Leon hafi átt einhvern þátt i þvi lika, og Jamie Oldaker og Carl Radle, — allireru svona meira eða minna, þetta fólk er ekki að básúna út til- finningar sinar. Það getur vel verið að það geri það undir áhrif- um áfengis eða einhvers annars, en dagsdaglega gerir það það ekki. Sérhver borg á sin einkenni, t.d. San Francisco, þar eru allir psychedelic. Macon, Georgia*, Detroit: sérhver borg á sinn eig- inn tónlistarstil.” — sagt frá J.J. Cale og Bonnie sneri Cale aftur til Tulsa og hóf að vinna við prufu- upptökur heima hjá sér. 1 nokkur ár lapti hanndauðann úr skel sem aðstoðarhljóðfæraleikari og ákvað loks að spreyta sig á eigin lagasmiðum og söng, — sem átti, þegar fram liðu stundir, eftir að breyta ferli hans á fleiri hátt en einn. Og hvernig skyldi honum finnast að vera „guðfaðir” Eric Clapton og Mark Knopfler? „Sjáðu tíl, mér likaði við Eric Clapton strax þegar hann var i Cream. Ég hafði gaman af þvi, vegna þess að ég spilaði ekki þannig sjálfur. Siðan þegar hann fer að spila með strákunum frá Tulsa — Jamie Oldaker, Dick Helstu verk J. J. Cale: Troubadour — 1976 5 — 1979 Clapton kemur til sögunnar Svo var það árið 1969 að Eric Clapton leysir upp súpergrupp- una Blind Faith til þess að ganga til liðs við Delaney og Bonnie, sem hafði verið upphitunarband hjá B.F., og réðist ári seinna i að gera sina fyrstu sólóplötu. Eftir að hafa heyrt lag J.J. Cale, „After Midnight”, á segulbands- spólu hjá Carl Radle, ákvað Simms og Carl Radle — sem spila alltaf tónlist sem er andstæða „show-off ” stílsins, býst ég við að hann mótist af áhrifum þeirra. Sjálfsagt tek ég ekki eins vel eftir samlikingunni og aðrir, — en það skiptir mig engu máli. Þessi náungi kom mér á framfæri. Ég var bara að spila á gitar á ein- hverjum bar, þegar ég heyri allti- einu „After Midnight” i út varpinu. Ég sagði: „Þetta er lagið mitt. Vikið úr vegi”. Og fór út og keypti nýjan Chevrolet.” Shades — 1981.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.