Helgarpósturinn - 29.05.1981, Side 4
NAFN: Jóhann Heiðar Jóhannsson STARF: Læknir og forstöðumaöur Læknaþjónustunnar s/f
FÆDDUR: 8. júli 1945 HEIMILI: Ásbúð 16, Garðabæ HEIMILISHAGIR: Eiginkona, Elin Þórdis
Björnsdóttir meinatæknir og eiga þau þrjú börn BIFREIÐ: Ford Fairmont '78
ÁHUGAMÁL: Heilsubótarskokk og lestur
Fátt hefur vakift mciri athygli undanfarih, en kjarabarátta lækna á rikisspitulunum. Læknarnir eru
ekki meö vcrkfallsréttog hafa þvígripiötil þeirra ráöa aðsegja störfum sinum lausum. Reiknaö er meö
þvi, aö 60% lækna ríkisspítalanra veröi hættir störfum, nii um þessa helgi.
Þessi kjarabarát ta er ólík öörum um margt annað en þetta. Samkvæmt læknalögum veröa læknar aö
sinna nevðarþjónustu og i þvi skyni haf þeir sett i gang Læknaþjónustuna s/f og hyggjast sinna útkölí-
um á spftölunum og fá greitt fyrir samkvæmt nýgeröum töxtum Læknaþjónusttinnar. Þessir taxtar eru i
flestra augum svimandi háir.
Rikisvaldiö hefur hvergi hnikaö i þessari harövitugu skák og ekki viljaö heyra á launahækkanir
minnst. Kröfur lækna eru enn ekki fram komnar, en þeir vilja umtalsverðar launahækkanir. Þaö eitt er
Ijóst.
Jóhann Heiöar Jóhannsson hjá Læknaþjónustunni e<; i Yfirheyrslu.
Standa læknar afskaplega illa
fjárhagslega:
„Nei, ekki segi ég það, en laun
spitalalækna margra hverra eru
á hinn bóginn mjög lág miðað við
ýmsar aðrar stéttir”.
Lág miðað við hvaöa „aðrar
stéttir”?
„Þá er ég að miða viö háskóla-
menntaðar stéttir. Það þarf þó
ekki endilega. Ég get t.a.m. vel
miðað grunnlaun aðstoðarlækna
við byrjunalaun blaðamanna i
dag. Laun aöstoöarlækna eru rétt
aðeins hærri, enda þótt þeir hafi
sex, sjö ára háskólanám að baki,
en i blaðamennskunni ekki krafist
háskólaprófs”.
Hver eru meöallaun lækna,
þegar meö er talin aukavinnan,
bakvaktirnar og aukasposlurnar?
„Það hef ég ekki hugmynd
um”.
En er ekki staðreyndin sú, aö
grunnlaun lækna, segja nákvæm-
lega ékki neitt um raunveruleg
laun þeirra?
„Jú, grunnlaunin segja mikið.
Það er aö visu rétt að mikil vinna
getur gefið tekjur i aðra hönd
fyrir lækna eins og aðra, en þegar
ástandið er þannig, að ritarastarf
hjá góðu fyrirtæki úti i bæ gefur
betri tekjur en grunnlaun að-
stoöarlækna, þá eru hlutföllin i
ólagi”.
Hve stórt hlutfall lækna hér á
landi eru á byrjunarlaunum að-
stoðarlækna, sem þér verður tið-
rætt um?
„Ég gæti imyndað mér að fjöld-
inn væri i kringum 60—70. Flestir
læknar eru aðstoðarlæknar i 2—5
ár og ef þeir ætla að auka við
menntun sina, þá tekur sérnám
fimm ár eftir þaö.
Allt sérnám fer fram erlendis
og þá eru menn á lágum launum.
Yfirleitt koma læknar heim úr
sérnámi meö skuldir á bakinu.
Læknar eru að öllu jöfnu ekki
orönir sérfræöingar fyrr en þetta
34—36 ára”.
Þú segiriækna vinna mikið. Nú
er sagt, aö tekjur þeirra liggi
m.a. mikiö i bakvöktum svo-
kölluöum, þar sem þeir geta sofiö
heima hjá sér á ágætum launum.
Einnig séu sumar aukavaktirnar
þannig, aö læknar geti hvílst i
friöi, þótt oft komi toppar. Þetta
séu þvi á stundum auðteknir pen-
ingar og ekki sambærilegt vinnu-
álag og hjá ýmsum öörum sem
vinna mikla yfirvinnu. Hvað viltu
segja um svona staðhæfingar?
„Þetta er af og frá. Það er rétt,
að flestir sjúkrahúslæknar eins og
margar aðrar stéttir eru á gæslu-
vaktakaupi, þar sem timakaup er
þriðjungur af dagvinnulaunum—
Þá þurfa þeir aö vera til staðar
við slmann og mega búast viö út-
kalli hvenær sem er. Yfirvinnu-
kaupið fyrir vinnu sem fer fram á
spitalanum er 50% hærra en dag-
vinnan og læknar vinna fyrir
kaupinu sinu, menn þurfa ekki aö
efast um það. Iönaöarmenn t.d.
sem skiluöu jafnmikilli yfirvinnu
og læknar, myndu bera langtum
meira úr býtum peningalega”.
Þú ert sem sé að segja, að þið
læknar séuð jafnilla ef ekki verr
launaðir, en hinn almenni verka-
maður?
„Ja, það voru birtar fróðlegar
tölur um meðallaun verkamanna
i einhverju dagblaði fyrir nokkr-
um vikum um leið og verið var að
birta launatölur sjúkrahúslækna.
Þar kom fram að meðallaun
verkamanna væru i kringum
milljón gamlar krónur á mánuði.
Grunnlaun aðstoðarlækna eru 750
þúsund gamlar krónur”.
Þið hafið sem sé lægri laun en
verkamenn að þinu áliti?
„Almennt eru læknar betur
settir en læknar eru ekki allir há-
launamenn, eins og fólk virðist
almennt halda. Það eru auðvitað
til læknar, sem hafa há laun, en
það eru læknar meö einkapraxis
og eigin atvinnurekstur og
skammta sjálfum sér laun, eins
og hver annar atvinnurekandi
gerir”.
Þú segir lækna almennt vera i
lægri launakanti. Þaö verður þó
ekki séð að læknar — flestir
hverjir — þurfi að halda i við sig,
hvað neysluna og lifstil varðar?
„Það getur verið rétt, að
læknar hafi haft það ágætt hér
áður fyrr, t.d. eins og eftir samn-
ingana ’67, en þetta er liðin tið.
Læknar i dag, lifa ekki betur né
hærra en aðrir þjóðfélags-
þegnar”.
Hvað réttlætir það, að þið hafið
það betra en aðrir þjóðfélags-
þegnar?
„Læknar hafa lagt á sig langt
og erfitt nám og eiga að bera
meira úr býtum á þeim forsend-
um. Það er raunverulega fors-
enda fyrir framförum i hvaða
grein sem er aö þeir beri meira úr
býtum sem leggja meira á sig”.
Nú hefur kjaradómur fyrir
fáum mánuðum ákveðið laun
ykkar sjúkrahúslækna og er það
igildi kjarasamninga. Hvaö rekur
ykkur út i þessa baráttu núna og
fyrir hverju berjist þiö eiginlega?
Þaö fær enginn að heyra kröfur
ykkar?
„Viö vorum mjög óánægöir
liieö niðurstööur kjaradóms og
kröfur okkar fyrir kjaradómi
voru mun hærri, en niðurstaða
dómsins var. Við bjuggumst við
betri niðurstööum úr kjaradómi,
en kom á daginn. Við fengum 6%
launahækkun, en á svipuöum
tima fengu flugmenn t.d. 12%.
Kröfur læknafélagsins hafa ekki
veriö birtar opinberlega, þar sem
engar samningaviðræður hafa
farið fram og rikisvaldið ekki
svarað okkar málflutningi”.
Hve mikla launahækkun telur
þú sjálfur eðlilega?
„Mér þætti 50% hækkun á
grunnlaunum okkar vera eðli-
leg”.
Þú biður ekki um litið. Viitu að
þessi hækkun launa gangi yfir lin-
una hjá launþegum, eða aðeins að
þið læknar verðið teknir út úr og
hifðir svona hressilega upp?
„Ég er ekki fylgjandi þeirri
launajöfnunarstefnu, aö halda
þeim efstu niðri”.
Hvaöa „efstu" ertu aö tala um?
Attu þá við eftir allt saman, að þið
séuð hátekjustétt?
„Við læknar höfum greinilega
verið taldir hátekjumenn i gegn-
um árin og ef til vill finnst fólki
það ekkert óeðlilegt. Það hefur
hins vegar veriö farið illa með
okkar kröfur á siöasta áratug,
sem hefur þýtt að við höfum dreg-
ist mjög aftur úr launalega”.
Hvað með baráttuaðferðir
ykkar i þessari launadeilu. Þeim
hefur verið líkt við fjárkúgun á
hendur rikinu og almenningi i
landinu, þar sem sjúklingarnir
væru i hlutverki gisla.
„Það virðist nauðsynlegt i allri
pólitik, að gripa til slagorða,
þegar rök þrýtur. Það hafa
margir andstæðingar okkar gert
upp á siðkastið. Við höfum engan
verkfallsrétt og þvi er okkar ein-
asta andsvar gagnvart órétt-
mætri launapólitík, að segja upp
störfum. Þaö hafa og flestir gert.
Læknaþjónustan s.f. var siðan
stofnuð, sem trygging fyrir þvi,
að þjónusta yrði til reiöu, meðan
þetta ástand varir. Ýmsir læknar,
sem hafa hætt störfum, hafa haft
á orði að flytjast til útlanda og fá
betur launuð störf þar, en starf-
ræksla Læknaþjónustunnar hefur
haldið þeim heima, a.m.k. fyrst
um sinn”.
Er þetta ein hótunin og kúgunin
til hjá læknum, að þeir fiýi land
með sina sérþekkingu, ef launin
verði ekki verulega hækkuð við
þá?
„Þetta er engin kúgun, heldur
staöreynd. Ef menn fá ekki
greidd sanngjörn laun fyrir vinnu
sina, þá fara þeir annað”.
En skulda læknar þjóöfélaginu
ekki neitt? Er ekki eölile.^t aö is-
lenskt þjóðfélag fái að njóta
krafta þeirra I vissan árafjölda —
eins konar þegnskylda á lækna,
meðan þeir greiða islensku þjóð-
inni aðstöðugjaldið meðan þeir
voru i námi?
„Læknar eru ekki i neinni skuld
við þjóðfélagið, fremur en aðrar
stéttir. Það eru meira að segja
settar svona kvaðir á lækna.
Kandidatar þurfa að vinna á
sjúkrahúsi i eitt ár og i allt að 6
mánuði i héraði áður en þeir fá
lækningaleyfi. Ég veit ekki til
þess að neinni stétt hafi veriö
meinað að fara utan til starfa, ef
einstaklingar æskja þess”.
Ef við imynduðurn okkur, að
hér væri ekkert almannatrygg-
ingakerfi, og sjúklingar þyrftu
sjálfir að greiöa fyrir alla lækna-
þjónustu. Gætir þú þá samvisku
þinnar vegna rukkaö t.d. hafnar-
verkamann um 420 krónur fyrir
einnar klukkustundar þjónustu.
Gætir þú þannig — samkvæmt
taxta Læknaþjónustunnar —
hreinsað af honum tveggja daga
starfslaun hans á einum klukku-
tima.
„Það myndi ég ekki geta gert”.
En þú getur heimtaö þetta af
rikinu?
„Þetta er einfaldlega útreikn-
aður taxti, sem er ekkert frá-
brugðinn öðrum töxtum sem not-
aðir eru. Ég get hæglega bent á
taxta, sem eru hærri en Lækna^
þjónustunnar”. 1
Gerðu það.
„T.d. tannlæknar hér i borg-
inni”.
Eru þeirra ógnarháu taxtar
ykkar viömiðun? Eru þeir nú
þannig, að til fyrirmyndar sé?
„Það er jú talað um að taxtar
þeirra séu háir. Ég þekki þá ekki
til hlitar en það má ekki gleyma
þvi að vérið er að selja þekkingu
og hæfni sem aflað hefur verið
með löngu og dýru námi”.
Ég vil enn og aftur spyrja þig
hverjar launakröfur lækna eru i
þessari deilu og fá skýr svör viö
þvi hvers vegna þær liggja ekki
frammi.
„Við lögðum fram kröfur okkar
gagnvart kjaradómi á sinum
tima i vetur og rikið — okkar við-
semjandi — veit um þær. Það er
til litils að vera veifa þeim núna
framan i rikið, sem hefur ekki
einu sinni viljað tala við okkur.
Það hafa verið haldnir þrir
óformlegir fundir meb deiluaöil-
um, siðan þetta byrjaði allt og
þeir hafa allir hafist á þvi, að
rikisvaldið lýsir þvi yfir að ekki
verði samið við okkur”.
En hvers vegna ekki birta al-
þjóð kröfurnar?
„Það er tilgangslaust að birta
þær að svo komnu máli”.
Ég fer fram á það sem skatt-
greiðandi og þar meö einn launa-
greiðandi ykkar lækna, að fá að
sjá ykkar kröfur, þannig að ég og
aðrir skattgreiðendur geti tekið
efnislega afstöðu til þeirra.
„Þú ert ekki löglega kjörinn
fulltrúi skattgreiðenda til þess og
ég er ekki rétti aðilinn meðal
lækna til að greina frá þessum
launakröfum”.
Hvers vegna þessi viðkvæmni
og feluleikur með kröfurnar?
„Ætli menn hafi ekki talið
taktiskt að setja þær fyrst fram
við viðsemjendur okkar og kanna
vilja þeirra. Það hefur aldrei
tiðkast i samningaviðræðum að
veifa kröfunum áður en talað er
við viðsemjendur”.
Hvað endist þið lengi i þessu
þrefi?
„Eins lengi og við þolum eða
þar til viðunandi lausn fæst”.
Er þetta verktakafyrirtæki —
Læknaþjónustan s/f, hluti af bylt-
ingu lækna á heilbrigðisþjónustu i
landinu? Viljið þið komast undan
hatti ríkisins?
„Fjölmiðlar hafa verið að viðra
slikar hugmyndir, en ég held að
það þyrfti langan undirbúning, ef
breyta ætti grundvelli heil-
brigðisþjónustunnar þannig. Hitt
er annað mál, að margs konar
launakerfi eru i gangi hjá læknum
i dag. Spitalalæknar fá sin föstu
laun, á meðan aðrir, sem stunda
einkapraxis, fá greitt fyrir ein-
stök verk. Vel mætti koma visi að
sliku fyrirkomulagi i gang á
spitölunum. Það var m.a. sam-
þykkt bókun i siðustu kjarasamn-
ingum, að kanna þá hlið mála”.
Þið spitalalæknar viljiö sem
sagt komast i gullpott einka-
praxisins?
„Það er fullmikiö að tala um
gullpott i þvi sambandi.
Tekjur lækna i einkapraxis eru
mjög mismunandi og fara eftir
þeim verkum sem læknar fást
við.
Má ekki meta til kjara, þá að-
stöðu sem rikið hefur borgað
undir ykkur á spitölunum og
• ýmsir sérfræðingar njóta jafn-
framt i sinum einkapraxis?
„Ég kannast ekki við slika að-
stöðu, sem nýtt sé á þennan hátt”.
Að lokum. Ef ég félli nú skyndi-
lega i yfirlið hérna fyrir framan
þig, mundir þú þá biöa eftir þvi að
verkbeiðni kæmi frá yfirlækni,
áður en þú kiktir á mig —
óvæntan sjúkling?
„Nei, ég myndi strax hlynna að
þér. 1 fyrsta lagi ertu ekki sjúkl-
ingur hér á spitalanum og i öðru
lagi sinnum við neyðartilfellum
skilyrðislaust.
eftir Guömund Árna Stefánsson
Læknar eru ekki
í neinni skuld við
þjóðfélagið
Föstudagur 29. maí, 1981
—heJgarpósturinn_