Helgarpósturinn - 29.05.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 29.05.1981, Blaðsíða 24
Föstudagur 29. maí, 1981 Sölu og þjónustumaður Þjálfaður viðgerðarmaður yfirfer allt gangverk og Bílaborgar h.f. tekur við bíl öryggisbúnað og lagfærir það sem þörf er á. til sölumeðferðar. Bíllinn afhentur kaupanda I 1. flokks ástandi og með 6 mánaða ábyrgð. Notaðir Mazda bílar með 6 mánaða ábyrgð. Þeir sem kaupa notaðan Mazda bíl hjá okkur geta verið fullvissir um að bíllinn sé yfirfarinn, nýstilltur og í fullkomnu lagi og að ef leyndir. gallar kæmu í Ijós myndi Bílaborg h.f. lagfæra þá að kostnaðarlausu. Firrið yður óþarfa áhættu í kaupum á notuðum bíl... Kaupið notaðan Mazda með 6 mánaða ábyrgð. BÍLABORG HF. Smiöshöföa 23, /sími 812 99. • bað vakti mikla athygli ihug- ulla manna, þegar fréttir bárust af því að þeir Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra, og Magnús Magniisson, alþingismaður og formaður stjórnar Brunabótafé- lags Islands, hefðu orðið ásáttir um að óska eftir þvi við Ásgeir ólafsson, fráfarandi forstjóra Brunabótar, að hann drægi um- sókn sína til baka og sæti áfram. Manna á milii hefur Svavar gefið þá skýringu á þessu úrræði að slikt einvalalið, þar á meðal nokkrir þingmenn, hafi sótt um stöðuna að hann hafi hreinlega ekki treyst sér til að fara i mann- greinarálit. Þessi ákvörðun er þó undarleg að þvi leyti, að hingað til hafa kratar ,,átt” Brunabót og lagt mikið upp úr þvi að halda stofnuninni, svo að einhver hefði haldið að þarna væri komið tilval- ið tækifæri fyrir Svavar að hrifsa til Alþyðubandalagsins eitt af höfuðvigjum kratanna... • Meðal Flugleiðamanna geng- ur sá orðrómur, að tscargó sé i hinum mestu erfiðleikum um þessar mundir. Flugvélar félags- ins hafi staðið meira og minna óhreyfðar á Reykjavikurflugvelli nú um langt skeið, þar sem ekki hafi tekist að afla þeim flutninga- verkefna og alls óvist sé hvort fé- lagið muni yfirhöfuð hafa bol- magn til að hefja farþegaflug sitt til Amsterdam, eins og það hefur leyfi fyrir. Fróðlegt verður þó að fylgjast með hvort Flugleiðir muni halda Hollandsferöum sin- um til streitu ef Iscargó heltist úr lestinni... • Þessi heyrðist i sölum þings- ins I lok þings: Stefán Valgeirsson alþingismaður var staddur á nefndarfundi og hringdi fram til simastúlkunnar til aö biðja hana að ná i yfirdyralækni. Stúlkan hringdi inn á fundinn skömmu siðar til að láta vita að hún næði hvergi i yfirdyralækni. En aðeins skömmu siðar hringdi hún aftur inn á fundinn og spurði: ,,En, Stefán, nægir þér ekki að tala við heimilislækninn?....” • örn og örlygur gaf út fyrir skömmu ljösmynda plakat eftir Gunnar V. Andrésson ljósmynd- ara Visis með býsna skemmti- legri mynd af graðfola og meri sem gaddavirsgirðing aðskilur. Útgáfan ætlaði siðan i kjölfarið að láta geta útkomu plakatsins i þætti sjónvarpsins A döfinni en við heyrum að plakatið hafi ekki fengið þar inni vegna þess að sjálft stolt graðfolans hafi verið einum of áberandi á myndinni... • Blindingsleikur heitir nýtt kvikmyndaverkefni sem nýlega fékk styrk úr kvikmyndasjóði og bárus Ýmir óskarsson er skrif- aður fyrir. Við héldum þvi rang- ' lega fram í frétt á dögunum að þarna væri komið kvikmynda- handrit eftir Kjartan Ragnars- son, sem Lárus Ýmir mun einnig leikstýra. Blindingsleikur verður gerð eftir samnefndri sögu Guð- mundar Danielssonar og við heyrum að fjármálamaðurinn á bak við fyrirtækið sé Sverrir Kristinsson, fasteignasali, fram- kvæmdastjóri Hins islenska bók- menntafélags og kostnaðarmaður viðhafnarútgáfunnar á Skarðs- bók. Kannski að þar sé annar Ragnar I Smára i uppsiglingu... • Aðalfundur Blaðamannafé- lagsins verður haldinn um helg- ina og i fyrsta sinn i liðlega 80 ára sögu félagsins stefnir i að fleiri en einn veröi í framboði til formanns félagsins. Vitað er að ómar Valdimarsson, fréttastjóri Dag- blaðsins, mun gefa kost á sér i formannskjörið og einnig Jó- hanna Kristjónsdóttir á Morgun- blaðinu og formaður Félags ein- stæðra foreldra um árabil. Allur kosningaundirbúningur er þó mun friðsamlegri innan Blaða- mannafélagsins en t.d. i Skák- sambandi tslands, sem einnig heldur aðalfund um sömu helgi... • Mikil óánægja er sögö vera i röðum Iþróttafréttamanna á öll- um blöðum nema Visi um þessar mundir. Beinist óánægja íþrótta- fréttamanna að Ellert B. Schram, ritstjóra Visis og formanni KSÍ og liggur hann undir gagnrýni fyrir að láta blað sit ja fyrir um fréttir úr knattspyrnuheiminum. Sam- tök íþróttafréttam anna munu þegar hafa haldið einn fund um blaðið, þar sem mættir voru full- trúar allra blaða nema Visis og þar komið til athugunar að öll blöðin settu fréttabann á KSl nema formaðurinn gæfi trygg- ingu fyrir þvi að hann hætti allri mismunun... • Hinn mikli uppgangur i popp- lifi landsmanna hefur varla farið framhjá neinum. Nú mun Fálkinn hafa i bígerð aö koma út plötu i Englandi, sem á verður efni frá fjórum af duglegustu hljómsveit- unum, Taugadeildinni, Purrk Pilnikk, Þey og Utangarðsmönn- um. Er vafalaust ætlunin að koma drengjunum á framfæri i poppheiminum breska. Reyndar hafa Þeyruppi enn frekari áform, þvi þeir fara utan i haust, og munu jafnvel leika með Killing Jokeá hljómleikaferð. Hvort sem af því verður eða ekki þá fara Þeyr i' stúdió i júli og taka upp nýja stóra hljómplötu.... • Við sögðum frá þvi i siðasta Helgarpósti aö hljómplötuútgáfa á Islandi stæöi i óvenjulegum blóma um þessar mundir og nefndum dæmi um plötur sem eru i farvatninu. Nú getum við bætt einni við sem vafalaust mun vekja hvað mesta athygli. Það er plata með Böövari Guömunds- syni skáldi og trúbador... • Ný þjónusta hélt innreið sina i vélar Flugleiða núna i vikunni, sem viðförlir farþegar þekkja úr vélum margra erlendra flug- félaga. Þetta er nokkurs konar einkadiskótek fyrir hvern far- þega. Geta farþegar valið milli um átta tegunda tónlistar gegnum heyrnartól. En vel að merkja: Þetta gildir aðeins um farþega meö DC-8 yfir Atlants- hafið... • Lesendur Helgarpóstsins kannast vafalaust við Sigurð Steinarsson, dreifingarstjóra blaðsins. Hann hefur fr> upphafi brugðið sér i margra kvikinda liki þegar við höfum þurft á að halda, við uppákomur og myndatökur af ýmsu tagi. Það hlaut að koma að þvi að Sigurður hlyti verðskuld- aðan frama fyrir vikið. Hann verður meðal þátttakenda i blönduðum skemmtiþætti i umsjá Ólafs Ragnarssonar, útgefanda og Tage Ammendrups sem væntanlega verður á dagskrá sjónvarpsins siðasta út- sendingardag fyrir sumarfri. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum verða þetta atriði með „falinni myndavél”... • Risnukostnaðarmál og þá einkanlega Landsbankans hafa vakið mikla athygli vegna fyrir- spurnar Jóhönnu Sigurðardóttur á Alþingi um þetta efni. Mun bankaráð Landsbankans hafa verið sérstaklega kvatt saman til fundar i gær til að ræða þessa háu risnu... • Fréttaannálar i bókarformi fara að verða býsna stór þáttur i islenskri bókaútgáfu. Þjóðsaga hefur um árabil gefið út sinar ár- bækur og á siðustu vertið hóf örn og örlygur útgáfu fréttaannáls. Nú heyrir Helgarpósturinn að væntanlegur sé nýr flokkur fréttaannála. Heitir hann Islenskur annáll og er gefinn út af samnefndu fyrirtæki tveggja ungra manna, Ingva Th. Agnars- sonarog Vilhjálms Eyþórssonar. Þetta munu vera veglegar bækur, um 400 blaðsiður i stóru broti og með um 500 myndum. Sá fyrsti, — fyrir árið 1979 — mun væntan- legur á markaðinn seinni part sumars, og jafnframt er á leiðinni hjá Islenskum annál sérstök bók meö fþróttaannál. Fréttaannál- arnir verða settir upp i dagblaðs- formi, ekki ósvipað öldunum... • Nokkur blóðtaka mun verða hjá Dagblaðinu i haust. Eins og áður hefur hér komið fram, þá hættir menningarritstjóri blaðs- ins, Aðalsteinn Ingólfsson og hyggur á doktorspróf i grein sinni, listfræði. Ekki er vitaö hver tekur við af honum. Þá hættir þar ungur og friskur fréttahaukur Atli Rúnar Halldórsson og hann ætlar að stunda nám við norska blaöamannaskólann. Annar reyndur blaðamaður Gunnlaugur A. Jónsson sem er guðfræöingur að mennt, mun hann halda til Svi- þjóðar og taka doktorspróf i þeirri grein. Við þetta „braind- rain” Dagblaðsins bætist svo að tveir af yngri starfsmönnunum, GisliSvan Einarsson blaðamaður og Sigurður Þorri, ljósmyndari eru einnig á förum. En menn koma i manna stað og nýir kraft- ar á DB á næstunni verða Eirikur St. Eiriksson, fyrrum fréttastjóri á Timanum, Sveinn Agnarsson, Franzisca Gunnarsdóttir og Lilja K. Möller... • Háskólastúdentar eru sagðir hafa veitt þvi athygli undanfarið að i kringum valdayfirtöku lista Umbótasinna og Vöku i stúdenta- ráði hefur orðið nokkurt stress. Þannig séu nú fundir stúdenta- ráðs orðnir lokaðir, búið sé að skipta um læsingu á skrifstofu ráðsins og sérstakt leyfi þurfi til að fá að nota gögn skrifstof- unnar.... • Ahugahópur um myndlist, sem sett hefur upp sýningarað- stöðu i Rauða húsinu á Akureyri lætur ekki deigan siga i menn- ingarmálum, og hefur nú ákveðið að hefja útgáfustarfsemi. Ráð- gerðar eru fjórar bækur á ári, þýddar bókmenntir og innlendar, ljóð og litteratúr.... • Og meira frá Akureyri: Þrátt fyrir sameiginlega verðlagningu er alltaf nokkur samkeppni milli tryggingafélaganna. A Akureyri flutti Ólafur Stefánsson umboðs- maður Almennra trygging'a umboð sitt i húsnæði sem Flug- leiðir höfðu haft við Ráðhústorg, i hjarta bæjarins. Staðsetningin er sögð hafa góö áhrif á viðskiptin, og nú undirbýr Sigmundur Björnsson, forstööumaður Sam- vinnutrygginga á Akureyri flutn- ing á sinu umboði úr þröngu her- bergi á annarri hæð skrifstofu- húss KEA niður á jarðhæð við Skipagötu, sem gæti oröið eftir- sótt verslunargata þegar lokið verður framkvæmd hins nýja miðbæjarskipulags. Þar viö hlið- ina hefur reyndar Gunnar • Haraldsson bilsali nýlega fest kaup á húsnæði Péturs og Valdi- mars, vöruflutningastöðvar- innar, og ætlar ásamt konu sinni að setja þar upp vefnaðar- og gjafavöruverslun....

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.