Helgarpósturinn - 29.05.1981, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 29.05.1981, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 29. maí, 1981 helgarpósturínn Lvöur Björnssun. sagnfraeöingur, leiðsögumaður okkar um göturnar fjórar Reykvískar götusögur eftir Þorgrím Gestsson ..Reykjavik hefst i bráöræöi og endar i ráöleysi” var stundum sagt á seinnihluta siöustu aldar. Eiginlega heföu „bráö- ræöi” og „ráöleysi” átt aö skrif- ast meö stórum upphafsstööum, því þaö voru nöfn á býlum i Reykjavik á þessum tima, annaö stóö á Skólavöröuholtinu, austast i þáverandi byggö, hitt vestast i 'Vesturbænum, þar sem nú eru uppi ráöageröir um aö reisa nýtt ibúðah verfi — á Bráöræöisholti. Vera má aö Bráöræöi hafi veriö reist i einhverju bráöræöi um miöja sföustu öld. Þar mun hins- vegar hafa veriö búiö lengi ágætu býli, og þaöan var einn af fyrstu þingmönnum Reykvikinga. ,Magnús i Bráöræöi. Um Ráöleysi er hinsvegar litiö vitaö. Svo er raunar um ótalmörg bæjarnöfn og örnefni, sem nú eru innan marka Reykjavikurborgar. Við uppbyggingu Reykjavikur nútimans hafa mörg siik Jieiti glatast meö öllu. Kennileiti hafa veriö þurrkuð út, svo þaö er ekki einu sinni hægt aö þekkja af staö- háttarlýsingum hvar ýmsir staðir myndir: Valdis Óskarsdóttir o.fl. i iH'iiH si « K eru, sem getiö er um á gömium bókum. Onnur nöfn hafa þó varöveist. Það eru helst þau sem hafa fest við hús eða staði og síöan orðiö aö götunöfnum. Þó eru sögurnar bak við sum götunöfnin gleymd, eöa eru að minnstakosti á fárra vit- oröi. Aðrar sögur lifa enn meðal gamalla Reykvikinga sem muna aftur til fyrstu áratuga aldar- innar, eða grúskara og fræöi- manna. Nöfn eins og Barónsstígur, Frakkastigur, Fischersund, Laugavegur, Hverfisgata, Bankastræti og Austurstræti eru okkur töm, sem eigum heima i Reykjavik, og fáir eiga i miklum vandræðum með aö rata þangaö. En hvernig eru þessi nöfn til kom- in? Hverjar eru sögurnar bakviö götuheitin? Helgarpósturinn leitaöi til Lýös Björnssonar sagnfræðings og kennara og bað hann að rifja upp þessar gömlu sögur, sem allir Reykvikingar ættu að þekkja. Við bætum hér með úr hugsanlegri vanþekkingu borgarbúa i þessum efnum. Baróninn sem vildi verða kúabóndi Barón sá, sem Barónsstlgur heitir eftir var Frakki og hét Boilleau. Hann skaut upp koll- inum hér áriö 1898, en enginn veit með vissu hvaðan hann kom né hvers vegna. Þó er vitað, að hann spilaði ágætlega á fiðlu. Baróninn tók sig til og reisti fjós fyrir neðan Hverfisgötu, talsvert innarlega á þess tíma mæli- kvarða. Hugmyndin var að hefja stórfelldan búskap og sjá Reyk- vikingum fyrir mjólk. Fljótlega var farið aö kalla fjósið „baróns- fjós”, og seinna, þegar gata tók að myndast þarna hlaut hún nafnið Barónsstigur i munni fólks. En búskapurinn gekk ekki sem best hjá baróninum. Hann tók sig fljótlega upp og flutti að Hvitár- völlum i Borgarfirði þar sem hann hélt búskapnum áfram, og Horft niður Barónsstiginn I dag. A innfelldu myndinni sjást Hvltár- vellir sem siöar uröu heimkynni barónsins bjartsýna, sem gatan er kennd við. fór jafnframt að ferja fólk yfir Hvitá á mótorbát. Lánið virðist ekki hafa leikið við hann, þvi hann tapaði fljótlega öllum eign- um sinum og flutti úr landi. Sögur herma að hann hafi látist stuttu seinna sumirsegja fyrir sjálfs sin hendi, og jafnvel að sá voveiflegi atburður hafi átt sér stað I járn- brautarvagni i London. En hvað sem um það má segja skildi hann þó alltént eftir sig götunafn i Reykjavik, og geri aðrir betur. Spítalinn við Frakkastíg Skammt frá Barónsstig er Frakkastigur, svo sem flestir vita. En það vita liklega færri, að hann dregur nafn sitt af spitala, sem Frakkar reistu um siðustu aldamót, eins og þeir gerðu raunar viðar á landinu á siðustu áratugum aldarinnar, aðallega á Austfjörðum. bessir spitalar Frakkanna virðast hafa verið ágætlega vel byggð hús þvi að minnstakosti einn þeirra stendur enn við Fáskrúðsfjörð og hefur meira aö segja verið fluttur lang- an veg. Og það sem meira er: spitalinn i Reykjavik stendur lika enn, hann er nú gamli gagnfræða- skólinn við Lindargötu. Þessu gamla húsi fylgir að sjálfsögðu draugasaga. Eins og aðrar draugasögur er hún ótima- sett, en hefur liklega gerst meðan Frakkarnir ráku enn spitalann. Sagan segir að sjómaður nokkur hafi verið á gangi um bæ- inn seinnihluta dags. Þá gaf sig skyndilega að honum ung stúlka og benti honum að fylgja sér. Hann gerði það, og komu þau að lokum aö stóru húsi. Stúlkan nam staðar við stórar dyr á húsinu og benti sjómanninum að koma með sér inn, hvað hann gerði. Þar var kolsvarta myrkur, en sjómaður- inn þóttist vita, að hann væri i stórum sal, og hann fann, að á miðju gólfinu var upphækkun. En stúlkan virtist eins og gufuð upp, og hann fann hana ekki aftur, hvernig sem hann leitaði i myrkr- inu. Hann var uppgefinn setti frá sérsjópokann og lagðist fyrir á upphækkuninni. En þá er skyndi- lega ráðist á hann utan úr myrkr- inu. Sjómanninum tókst með herkjubrögðum að slita sig laus- an og hljóp siðan sem fætur tog- uðu niður á lögreglustöð þar sem hann sagði farir sinar ekki sléttar. Lögreglan bað hann að visa sér á húsið, og þegar þangað kom reyndist það vera franski spital- inn. Dyrnar sem sjómaðurinn hafði farið inn um voru læstar, en lögregluþjónum tókst að opna þær með þjófalykli. Þegar inn var komið kveiktu þeir ljós, og sáu þá, að þeir voru staddir i likhúsi spitalans. Og á miðju gólfinu stóð opin likkista og sjópoki sjó- mannsins hjá — en I kistunni lá kvenmannslik. Frakkastigur heitir eftir franska spitalanum sem siöar varö Lindargötuskóli og er nú Tónmenntaskóli Reykjavikur og sést á hinni myndinni.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.