Helgarpósturinn - 29.05.1981, Qupperneq 19
19
jJielgarjDÓsturinrL
Föstudagur 29. tnaí, 1981
Ho/mes greiöir úr þokunni
Austurbæ jarbió: Vændis-
kvennamorðinginn (Murder By
Decree) Bresk-bandarisk. Ar-
gerð 1980. Handrit: John Hopk-
ins. Leikstjóri: Bob Clark. Aðal-
hlutverk: Christopher Plumm-
slátraði vændiskonum. Og sá
sem afhjúpar þetta gasalega
samsæri, sem nær allt upp á
toppinn i ensku hirðinni, er eng-
inn annar en Sherlock Holmes,
sá dásamlegi einkaspæiari úr
sögum Sir Arthur Conan Doyle.
Kvikmýndir
eftir Arna Þórarinsson
er, James Mason, David
Hemmings, Donald Sutherland,
Genevieve Bujold.
Ég býst við að jafnvel Úlfari
bormóðssyni hefði ekki dottið i
hug það hroðalega samsæri sem
Frimúrarareglan i Bretlandi er
látin standa fyrir i myndinni
Murder By Decree. bar verður
Frimúrarareglan nánast að
Kviðristu-Kobba, (Jack the
Ripper), morðingjanum sem
rölti um i Whitechapelhverfinu i
London kringum aldamótin og
Christopher Plummer býr til
mannlega en ekki mjög djúpa
mynd af einkaspæjaranum
Sherlock Holmes i Murder By
Decree.
Eftir að Sir Arthur kvaddi
þennan heim vildu aðdáendur
vitaskuld ekki sætta sig við að
hann tæki sögupersónuna Sher-
lock Holmes með sér i gröfina.
Ótal rithöfundar, bæði góðir og
slæmir, hafa tekið Holmes og
Watson lækni upp á sina arma
og ort um þá nýjar lofgjörðir.
Flestar þessara sagna, og með-
fylgjandi kvikmynda, hafa ver-
ið trúar anda Sir Arthurs, þótt
sumir höfunda hafi lagt aðrar
linur og áherslur en hann hefði
gert. bannig er The Seven Per-
cent Solution eftir Nicholas
Meyer (kvikmynduð 1976) um-
fram alltsálfræðileg athugun á
persónunni Sherlock Holmes,
sem óneitanlega er sérkenni-
legri ráögáta en þær sem hann
sjálfur leysti af alkunnri snilld.
John Hopkins sem skrifar
handritið að Murder By Decree
fer aftur á móti býsna hefð-
bundnar leiðir að þeim fóst-
bræðrum Holmes og Watson en
leggur sig þess i stað i fram-
króka við að framleiða lang-
sótta samsæriskenningu. Að
visu hefur Sherlock Holmes einu
sinni áður verið teflt fram gegn
Jack the Ripper. bað var i kvik-
myndinni A Study in Terror
gerð af James Hill árið 1965. Sú
mynd var að mörgu leyti betur
heppnuð en Murder By Decree,
reisti á öllu raunhæfari skýr-
Myndlistarmenn þinga
bing og ráðstefnur af öllu tagi
öðlast nú vaxandi vinsældir.
Myndlistarmenn vilja ekki vera
eftirbátar annarra listamanna-
hópa I þeim efnum, óg um aðra
helgi hafa þeir ákveðið að halda
þing á Hótel Sögu, undir yfir-
skriftinni ,,Staða myndlistar”.
Ætlunin er að gera úttekt á
myndlistarmálum og stöðu
myndlistarmanna
Framsöguerindi verða þrjú.
Fyrst mun borsteinn Jónsson.
safnstjóri Listasafns Alþýðu tala
um listmiðlun, markað, söfn og
hlutverk hins opinbera. Siðan
talar Gylfi Gíslason um starf
listamannsins og að lokum talar
Ragnar Aöalsteinsson um höf-
Bil
milli bíla
þarf að vera rúmt.N
— Þú ekur marga
metra á sekúndu.
||U^FERÐAR
undarrétt. Að erindunum loknum
verða umræður i hópum, en
þingiö stendur i tvo daga.
Forsetinn, Vigdís Finnboga-
dóttir, og Ingvar Gislason,
menntamálaráðherra flytja
ávörp. beir sem áhuga hafa á
þátttöku geta látið skrá sig hjá
formönnum hinna fimm mynd-
listarfélaga i landinu.
— GA
leikfelag
Reykjavikur
Barn í garðinum
9. sýning föstudag kl. 20.30
brún kort gilda
Næst slðasta sinn á þessu
leikári.
Ofvitinn
laúgardag kl. 20.30
Skornir skammtar
sunnudag kl. 20.30
þriðjudag kl. 20.30
Rommi
miðvikudag kl. 20.30
Miðasala I Iðnó kl. 14—20.30.
Sími 16620.
S 1-89-36
Oscars-verðlauna-
myndin
Krarher vs. Kramer
Islenskur texti.
Heimsfræg ný amerisk verð-
launakvikmynd sem hlaut
fimm Óskarsverðlaun 1980.
Besta mynd ársins.
Besti leikari Dustin Hoffman
Besta aukahlutverk Meryl
Streep.
Besta kvikmyndahandrit.
Besta leikstjórn.
Aönlhlutverk: Dustin Hoff-
man, Meryl Streep, Justin
Henry, Jane Alexander.
Sýnd'kl. 5,7, 9.
Slðustu sýningar.
Við skulum kála stelp-
unni
Bráðskemmtileg bandarisk
biómynd með Jack Nicholson.
Sýnd kl. 11.
ingu á vændiskvennamorðunum
og rann greiðlegar i gegn en
þessi viðamikla en brokkgenga
kvikmynd Kanadamannsins
Bob Clarks.
Margir kaflar i Murder By
Decree eru prýðilega af hendi
leystir, einkum hvað varðar
sköpun andrúmslofts með leik-
mynd og tónlist. Myndataka er
hins vegar of brellukennd á
stundum og klippingar óvenju
slappar. Valinn maður er i
hverju hlutverki, svo ekki er þar
að finna skýringuna á þvi að
heildarútkoman er slælegri en
búast mætti við. Trúlega liggur
sú skýring i sjálfu handritinu, —
of þungri áherslu þess á æsileg-
an málatilbúnað, of litilli
áherslu á persónusköpun og
samtöl.
Hins vegar segi ég fyrir mig:
Ég er oröinn svo hundleiður á
bilveltum og slagsmálum og
vélknúðum blóðsúthellingum
sem helsta skemmtiefni
spennumynda að ég þakka af
heilum hug fyrir þetta tiltölu-
lega siðfágaða ferðalag með
Holmes og Watson um þoku-
sveipuð stræti Lundúna á tim-
um Viktoriu drottningar, — tim-
um sem bældu niður mannlegar
kenndir með yfirborðsfágun og
siðgæði en framkölluðu þann
óhugnanlega geðklofa sem birt-
ist i morðum Jack the Rippers
og speglast i bókmenntaverkum
eins og Dr. Jekyll og Mr. Hyde.
Samkvæmt siðustu fréttum er-
um við ekki mjög langt frá þess-
um tima, þrátt fyrir allt.
S 1-15-44
Vitnið
|Splunkuný (mars ’81) dular-
Ifull og æsispennandi mynd frá
20th Century Fox, gerð af leik-
stjóranum Peter Yates.
Aðalhlutverk : Sigourney
Weaver (Ur Alien) William
Hurt (úr Altered States) á-
samt Christopher Plummer og
James Woods.
Hitchcock still.
Rex Reed, N.Y. Daily News.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ifÞJÓOLEIKHÚSIB
Gustur
6. sýning föstudag kl. 20
7. sýning sunnudag kl.
20
Sölumaður
deyr
laugardag kl. 20
brjár sýningar eftir.
La Boheme
þriðjudag kl. 20.
Miðasala 13.15-20. Slmi
1-1200.
1-13-84
Vænidi skvenna
morðinginn
★ ★★ ★ ★ B.T.
MORDPÁ
BEREGNING
nanDCJiBY occmef
CHRISTOmEiI
PLUMMLfi
JAMLSMiSOD
DOtULD
UJTHIJIUIIO
Hörkuspennandi og vel leikin,
ný ensk-bandarisk stórmynd i
litum, þar sem „Sherlock
Holmes” á I höggi við „Jack
the Ripper”.
Aðalhlutverk: Christopher
Plummer, James Mason og
Donald Sutherland.
tslenskur texti.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
19 000
----saiur
kröppum leik
-salur
Fílamaðurinn
ELEPHAMT
MAN
Hin frábæra hugljúfa mynd,
10. sýningarvika.
Sýnd kl. 3.10, 6.10 og 9.10.
Hörkuspennandi og vel leikin
ný bandarisk stórmynd.
Leikstjóri Robert Ellis Miller.
Leikarar James Coburn —
Omar Sharif.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.10.
salur
P.
IDI AMIN
salur
PUNKTUR
PUNKTUR
KOMMA
STRIK
Punktun punktur,
komma strik
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og
11.05.
Spennandi og áhrifarik ný lit-
mynd gerð f Kenya, um hinn
blóðuga valdaferil svarta ein-
ræðisherrans.
Leikstjóri: Sharad Patel
íslenskur texti —
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3-5-7-9 og 11.
S 2-21-40
Konan sem hvarf
tLUOIIUXJlU lYWLl SHLPHtHU
AhGflALANbBURY HEHBLRl LOM
Skemmtileg og spennandi
mynd, sem gerist i upphafi
heimsstyrjaldarinnar siðari.
Leikstjóri: Anthony Pagc.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Mánudagsmyndin:
Alvarlegur leikur
(Den alvorlige leg)
Norsk-sænsk Urvalsmynd um
ástir og framhjáhald.
...örugglega þess virði að sjá
þessa mynd og hugsa um.”
B.T.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slmsvari slmi 32075.
Táningur i Einkatimum
Svefnherbergið er skemmtileg
skólastofa.. þegar stjarnan úr
Emmanuelle myndunum er
kennarinn.
Ný bráðskemmtileg hæfilega
djörf bandarisk gamanmynd,
mynd fyrir fólk á öllum aldri,
þvi hver man ekki fyrstu
„reynsluna”.
Aðalhlutverk: Sylvia Kristel,
Howard Hesseman og Eric
Brown. tsl. Texti.
Sýnd kl. 5—7 og 9
Bönnuð innan 12 ára.
Eyjan
Ný mjög spennandi bandarisk
mynd, gerð eftir sögu Peters
Banchleys, þess sama og
samdi „JAWS” og „THE
DEEP”, mynd þessi er einn
spenningur frá upphafi til
enda. Myndin er tekin i
Cinemascope og Dolby Stereo.
Islenskur texti.
Aðalhlutverk: Michael Caine
og David Warner.
Sýnd kl. 11.
Bönnuð innan 16. ára.