Helgarpósturinn - 04.09.1981, Qupperneq 14
14
Föstudagur 4. september 1981 ht=>l[]arpnirinn
Hannes Hólmsteinn er snyrtilegur ungur maöur, hár og grannur. Hann er foringi
frjálshyggjumanna á Isiandi og hefur skrifaö, þýtt og komiö á framfæri miklu
magniaf fróöleik um þau efni. Hann er sagnfræöingur og virkar afar öruggur meö
sig, minnir i framgöngu og málfiutningi á Milton Friedman. Félag frjálshyggju-
manna hefur skrifstofu á annarri hæö i gamla Kók-húsinu á móti Sundlaug Vestur-
bæjar. Þar hefur Hannes aöstööu til aö skrifa og lesa. Uppá vegg hanga tvær
portrettmyndir, önnur af Jóni Þorlákssyni, fyrsta formanni Sjálfstæöisflokksins og
hin af Friedrich Hayek, tekin þegar hann kom hingaö I fyrra. Þarna svifur andi
frjálshyggjunnár yfir vötnum. Hannes ÍHólmsteinn er persónugervingur hennar.
„Eg clasl aidrei um mitt lílsviöhorr
— Hver er Hannes Hólmsteinn
Gissurarson?
„Ef ég ættiaö skilgreina sjálfan mig, þá
mundi ég gera þaö á tvennan hátt. Ég er
herskár, hófsemdarmaöur „militant
moderate”, heitir þaö á ensku, og hins
vegar frjálslyndur ihaldsmaöur. Hvort
tveggja getur haft í för með sér rugling.
Menn sem eru herskáir eru aö öllu jöfnu
öfgamenn. Menn draga þá ályktun af
sjálfri baráttugleöinni aö þaö sem veriö
er aö berjastfyrir sé einhver öfgaskoöun.
En þvi fer stundum fjarri. Ég tel að þær
skoöanir sem ég hef á stjórnmálum og
mannlifinu séu tiltölulega hófsamlegar
skoöanir. Ég hef aldrei séö neinn gagn-
rýna minar skoðanir og sýna frammá
meö neinum rökum að þær séu einhverjar
öfgaskoöanir. Hitt er annað mál að vegna
þess að ég er herskár — læt a ð mér kveða,
þá draga menn þessa ályktun.
Um seinni skilgreininguna er það aö
segja að ég held að það fari mjög vel
saman aö vera frjálslyndur og ihalds-
maöur, þó margir telji þaö andstæöur,
vegna þess að þaö sem ég vil halda i er hið
fengna frelsi, sem tókst aö tryggja eftir
200 ára frelsisbaráttu á Vesturlöndum:'
— Hvaöan hefuröu þessa baráttugleði?
,,Ég get nefnt þrjár bækur, sem mest
áhrif hafa haft á mig. Þaö er Gulag-eyja-
klasinn eftir Alexander Solshenitsjin. Ég
las hana og ég hét þvi að ég berðist fyrir
þeim skoðunum og þeim málum, sem áf-
stýrðu þvi' aö Gulageyjaklasinn yröi aö
heimsriki. I ööru lagi er þaö bókin „The
Open Society and its Enemies” eftir Carl
Potter, sem er ein skarplegasta gagnrýni
sósialismans, sem um getur á 20 öldinni.
Sú bók hafði mikil áhrif á mig, og breytti
miklu um minar stjórnmálaskoöanir. 1
þriöja lagi er þaö .bókin „Leiöin til
ánauðar” eftirFriedrichHayek. Ég trúi á
mátt hugmyndanna”.
Morgunblaöiö
— Hvaöa skoöanir haföiröu áður en þú
last þessar bækur?
„Ég hef ailtaf veriö mjög pólitiskur.
Þaö er i minni ætt. Aö visu eru stjórn-
málaskoöanir minnar fjölskyldu ekki
beinlinis þær sömu og minar. Ég var
Framsóknarmaöur eins og móöir min á
bilinu milli átta og tiu ára. Siðan gerist
eitt. A minu heimili voru keypt tvö blöö,
Þjóðviljinn og Timinn. Og menn geta nú
dæmtum þaö hvort þetta hafi veriö mjög
mikið frjálshyggjuheimili. Svo fannst
móður minni aö ég þyrftiaö fara aö vinna
fyrirmér á sumrin, við aö bera útblöö. Og
hún útvegaði mér, mér til sárrar
óánægju, vinnu viö aö bera út Morgun-
blaðið. Ég fór aö lesa Morgunblaöið, og
það kom iljós aö ég var bara miklu meira
sammdla Morgunblaöinu en þeim tveim
blööum sem keypt voru heima. Og þaö
þráttfyriraö ég hafi lært aö lesa af Kidda
kalda sem var framhaldsmyndasaga I
Timanum.
Siöan hef ég verið Sjálfstæðismaður, og
fór að prédika eftir Morgunblaöinu um
11—12 ára aldur. En minar stjórnmálá-
skoöanir skerptust ekki og skyröust ekki
fyrr en ég las þessi rit sem ég var aö
nefna”.
— Hvemig bam varstu?
, ,Ég var bókaormur. Ég var einn af
þeim sem las alveg gegndarlaust og ég
lék mér ekki mjög mikiö með öörum
krökkum. Ég held aðeinhverjir i hverfinu
hafi kallaö mig ofvita. Ég var ekki mikiö I
félagslifi. Ég dttaöi mig I raun ekki á þvi
fyrren i seinni bekkjunum f m enntaskóla
að maöur er m anns gaman og þá fór ég aö
bæta einu áhugamáli minu viö megin
áhugamáliö, hugmyndir, og það er fólk.
Mér finnst óskaplega gaman aö umgang-
ast fólk og lifa skemmtilegu samkvæmis-
lífi og njóta lífsnautnanna. Ég er sam-
mála Jónasi Hallgrimssyni sem kvaö:
Hvaö er langlifi?Lifsnautninifrjóya/Alefl-
ing andans/ og athöJn: 'þorf. Ég held aö
þetta sé einskonar uppskrift aö þvi
hvernig eigi að lifa lifinu”. Hitter rétt aö
hóf er best i öllu”.
Dúxar ölrumlegír
— Tókstu góö próf?
,,Já, reyndar. Ég var einn af þeim sem
fékk ágætiseinkunn á stúdentsprófi 1972.
Slðan hef ég komist að þvi aö þó þaö sé
útaf fyrir sig ágætt aö fá góðar einkunnir
þá sé það hæpinn mælikvarði á gott skóla-
nám. Mér hefur fundist aö dúxar séu
heldur ófrumlegir i hugsun. Þaö er fólk
sem hefur I sér hæfileika til að soga á
skömmum ti'ma inn I sig fróöleik, en ekki
alltaf hæfileika til aö gera úr þvi öguö
fræöi. Viö Islendingar erum alltof hrifnir
af fræðaþulum, sem kunna óteljandi stað-
reyndir, en viö kunnum of li'tiö aö meta þá
sem skilja hlutina. Viö vitum of mikiö en
skiljum of li't»”.
— Varstu kominná fullti stjórnmálum i
menntaskólanum?
„Ég tók nú ekki mikinn þátt i félagslif-
inu. En ég skrifaði ádeilugreinar á
kommúnista i skólablaöiö.
Ég held að ég hafi fyrst orbið til þess aö
gera kunnur maöur þegar ég fór aö vera
með útvarpsþættina „Oröabelg” 1976. 1
Háskólanum haföi ég starfað meö Vöku
og kynntist þar mjög góöu fólki”.
scrvisKa
— Ég man eftir þér fyrir þann tima. Það
var talaö um þig sem fenómen meöal
yngra fólks. Hannes Hólmsteinn — þessi
brjálaöi frjálshyggjumaöur.
„Já, þá komum viö aö þvi sem ég gat
um þegar ég varaö skilgreina sjálfan mig
áöan. Vegna þess aö ég er herskár og hef
fas og framkomu baráttumannsins, þá
eru mjög margir sem villast á því og þeim
skoðunum sem ég hef.
Sfðan er þaö annað mál að við förum
ekki allir alfaraleiö. Ef ég held áfram að
vitna i skáldskap máli minu til stuðnings
mundi ég segja: „Þú sem undan ævi-
straumi/ flýtur sofandi að feigðarósi/
lastaðu ei laxinn sem leitar móti /'straumi
sterklega og stiklar fossa. Ég er kannski
ekki að llkja mér við laxinn, enda væri
það ósmekklegt. Ég er bara að benda á að
sumir fara gegn fjöldanum, sumir taka til
máls og mæla fyrir skoðunum sem ekki
njóta almannahylli þá stundina.
— Gerirðu i þvi aö vera ööruvisi?
,,Nei. En gættu aö þvi að i minni ætt er
töluverö sérviska. Björn Pálsson á
Löngumýri, afabróöir minn, er sérvitur
maður og haföi mjög gaman af þvi að
taka þannig til oröa aö kynlegt þætti. Mér
finnst það ekkert aöalatriði aö skera sig
útúr. Ég held aö þaö komi þá frekar af
sjdlfu sér”.
Sósíalisminn
— Hver er staöa þessara höröu frjáls-
hyggjumanna innan Sjálfstæöisflokksin?
,,Ég held aö þaö sé enginn hugmynda -
legur ágreiningur með yngri mönnunum I
flokknum. Yngra fólkiö i Sjálfstæöis-
flokknum er mjög sammála um aö við sé-
um komin of langtá braut rikisafskipta og
að skattarnir okkar skili ekki þeim
árangri sem við bjuggumst við.
Ég held aö Sjálfstæðislfokkurinn hafi
verið stofnaöur sem flokkur frjálslyndra
ihaldsmanna gegn sósialistum, og að
frjálshyggjan hafi veriö sú upprunalega
hugmynd sem sameinaöiflokkinn. En vit-
anlega hefur flokkurinn tekið breytingum
meö tímanum. Sósialisminn hefur verið
sú hugsjón sem verið hefur hvaö almenn-
ust á 20. öldinni. Krafan hefur ekki verið
um einstaklingsfrelsi eins og á 19. öldinni,
heldur um félagslegt öryggi. Og Sjálf-
stæðisflokkurinn sem fjöldaflokkur, sem
keppir á markaði stjórnmálanna við aðra
flokka um atkvæöi, —hann hlýtur aö laga
sig að þessum aðstæöum. Nú er hinsvegar
komiö aö veöraskilum í stjórnmálunum.
Nú hljóta flokkarnir aö fara að keppast
um hver getur heitiö mestum skattalækk-
unum, mestu neysluvali og þá auövitaö
leitar Sjálfstæöisflokkurinn i sitt forna
far. Þaö kostar aö sjálfsögðu átök viö þá
valdastétt sem hefur hreiöraö um sig i
krafti skömmtunarvalds og aðgangs aö
almannafé.”
— Þú talar um veðraskipti. Af hverju?
,,Ég held að allstaðar á Vesturlöndum
sé aö veröa mjög mikil viðhorfsbreyting.
Og þaö er ekki spurning um fylgisaukn-
ingu borgaralegra flokka. Það er spurn-
ing um viðhorfsbreytingu allra flokka.
Engum dettur lengur I hug að hægt sé að
'leysa allan vanda mannlifsins með þvi að
reka áætlunarbúskap að sovéskri fyrir-
mynd. Sú hugmynd er dauð i hugum
vesturlandamanna. Hún er ekki lengur
pólitiskur kostur. Það dettur heldur eng-
um lengur i hug að mæla með auknum
rikisafskiptum. Ég held að það sé rangt
að kalla þetta hægri bylgju, þetta er um-
fram allt viðhorfsbreyting allra flokka.”
Mennlamaður
— Hver er þin staða innan Sjálfstæöis-
flokksins. Séröu þig sem formannasefni
flokksins i framtiðinni?
„Ég held að ég skipti i sjálfu sér litlu
máli i sambandi við stjórnmdlastefnu og
dægurmál flokksins. Ég er fyrst og fremst
einstaklingur meö tilteknar skoðanir, til-
tölulega skýrar og afmarkaðar aö ég
hygg, og ég held að margir séu sammála
mér um þær innan Sjálfstæðisflokksins.
Ég hef ekki hugsað mér að vera i fram-
boöi innan Sjálfstæðisflokksins, eöa leita
eftir pólitiskum frama innan hans. Ég
styö hann bara sem menntamaður, ef svo
má að oröi komast, og tel aö hann sé sá
flokkursem komist næst minum hugsjón-
um, og ekki sist sá flokkurinn sem berst
fyrir því skipulagi atvinnulifsins sem er
skilyröi fyrirþvi að viö höldum okkar val-
frelsi.”
—Ykkur hefur ekki dottiö i hug i alvöru
að stofna sérstakan flokk?
„Menn hafa rætt um það við okkur. Ég
veit að margir sem telja alla flokkana
véra orðna of tækifærissinnaða hafa
áhuga á þvi að hér veröi stofnaður nýr
flokkur. En ég er sammála Vilmundi
Gylfasyni i þvi aö menn eiga aö vinna
frekar innan flokka en utan þeirra. Mér
finnst viö fá þaö góöa áheyrn innan Sjálf-
stæðisflokksins að við þurfum ekkert að
óttast. Ég telannars að frjálshyggja eigi
ekki aö vera nein séreign Sjálfstæöis-
. flokksins. Hún á að vera sameign allra
triggja borgaraflokkanna. Mér finnst að
á þessu sé aö verða umtalsverður skiln-
ingur bæði innan Framsóknarflokksins og
Alþýöuflokksins, einkum á meöal yngri
manna.”
Banúingjar aldarandans
— ÞU segist ekki hafa beinan pólitískan
metnað. Hvert stefniröu?
, ,Ég er þeirrar skoöunar aö ef menn
ætla raunverulega að breyta stefnu
stjórnmálanna, þá veröi þeir fyrst aö
breyta stefnu hugmyndanna. Vegna þess
að stjórnmálaflokkar eru bandingjar ald-
arandans. Þeir veröa alltaf að laga sig aö
þeim viðhorfum sem eru algengust á
hverjum tima. Stjórnmdlaflokkarnir geta
aldrei fariö fram úr fjöldanum. Þeir
geta aldrei baristfyrir nýjum og frumleg-
um hugmyndum. Þaö þurfa aörir aö gera
á undan, og þeir þurfa að breyta hinum
almennu hugmyndum bæöi mennta-
manna og almennings. Svo breyta stjórn-
málamennirnir sinni stefnu. Það sem ég
tel að eigi aö vera hlutverk okkar sem
berjumst fyrir breytingum, er aö berjast
fyrir þvi aö þessi viöhorf verði sem al-
mennust i þjóöfélaginu. Berjast hug-
myndabaráttu, fremur en stjórnmála-
baráttu.”
— Hvaöa aöferöum hyggstu beita?
,,Viö þurfum aö miðla hugmyndum, og
vinna hugmyndum fylgi. Frjálslyndir lýö-
ræðissinnar á Islandi hafa vanrækt aö
marka sér hugmyndalega stöðu. Þeir
hafa látiö sósialista eina um þetta aö kalla
má. Þaö hefur oröiö til sú skoöun, sem er
alröng.aðsósialisminn sé fastmótaö hug-
myndakerfi, sem menn geti sótt allan
fróöleik um stjórnmál i. Hinsvegar sé
ekki til neinn annar kostur. Það sem viö
erum að gera er aö sækja rök fyrir hinu
frjálsa skipulagi bæði i sögu okkar og
reynslu og I hin bestu rit útlendra fræöi-
manna. Þetta er okkar hlutverk.
Ekki aö skapa hugmyndir. Ég held aö
viö séum ekki færir um þaö i svona litlu
þjóöfélagi. Hér er ekki nægileg sam-
keppni hugmynda. Hér er ekki nægilegt
aðhald til að það sé hægt. Við erum sölu-
menn notaðra hugmynda.
Skeikuii
— Nú ert þú ungur maður sem færst
hefur mikiö i fang, — aö breyta hug-
myndaheimi þjóðarinnar. Efastu aldrei
um aö þú hafipúöur Iþetta, eða að þú haf-
ir rétt fyrir þér?
,,Þaö er nú kjarni frjdlshyggjunnar að
enginn maöur hafi rétt fyrir sér i einu og
öllu. Þegár Steinn Steinarr hvarf frá
kommúnismanum eftir ferð sina til Ráö- ,
stjórnarrikjanna 1956 þá orti hann kvæöi
þar sem hann likti sjálfum sér viö Don
Quixote og i þvi kvæöi er visuorö sem seg-
ir allt sem þarf aö segja: Meö hálfum
sannleika berst ég gegn algerri lygi.
Frjálshyggjumennirnir gera sér grein
fyrir þvi að sannleikur þeirra er hálfur.
En þeir nota þaö örlitla brot sannleikans
sem þeir hafa til þess að berjast gegn
hinni algjöru lygi. Viö eigum aö efast, en
viö eigum ekki að efast um þaö sem er
skilyröi fyrir öllum framförum — frelsiö.
Hinsvegar held ég að hver einasti maö-
ur sé skeikull, bæöi ég og aðrir. Ég er
stundum aö velta þvi fyrir mér hvaö sé aö
finna aö helstu höfuöspámönnum frjáls-
hyggjunnar nú ádögum, einsog Friedrich
Hayek og Milton Friedman og me'r viðrist i
að þá megi gagnrýna fyrir ýmislegt.
Hayekt.d.finnstmérstundum altekinn af
einni hugmynd. Sú hugmynd er um þaö að
einstaklingarnir ráöi hver um sig yfir
ófullkominni þekkingu og eina tækið sem
samhæfi þessa þekkingu þeirra sé mark-
aöskerfið. Hann leggur þessvegna skil- '
yröislausa áherslu á markaðskerfið.
Þessi hugmynd hans er mjög snjöll og I ;
meginatriðum rétt, en ég held að lifiö sé
annað og meira en ein hugmynd. Karl
Marx fékk mjög snjalla hugmynd á 19.
öldinni. Hún var sú að mennirnir færu
mjög mikiö eftir efnalegum aðstæöum j
sinum. Þetta er náttúrlega laukrétt. En
þaö er ekki hægt að taka þessa hugmynd
og gera úr henni allt mannlifið. Svona get
ég svarað þessu. En þaö kemst enginn efi I ■
i minn hug aö i grundvallaratriðum er (
þjóð skipulag vesturlanda miklu betra
en þjóöskipulag austantjaldslandanna, og 1
lika hitt, sem er aöalatriði, aö við höfum 1
skilyrði til aö breyta þessu þjóöfélagi, j'
vegna málfrelsis. Þess vegna berst ég i
/yrir þvi alveg efalaust.”
LjOta sielpan
— Hvaö veröur þér ágengt aö þinu eigin
mati?
„Ég held aö nú geri allir sér grein fyrir i-
þviaö frjálshyggjan er tækur kostur. Þaö j
er aö segja, að til er stjórnmálahugmynd 1
sem heitir frjálshyggja. Þeir sem tiafa
fært bestu rökin fyrir henni hérlendis eru
mcnn eins og Jónas Haralz og Ólafur
Björnsson, prófessor”.
Er ekki erfitt að kyngja tjáningarfrels- 1
inu, þegar þaö gefur kommúnistumtæki-
færi til áróöurs? |
„Aöalatriöiö I tjáningarfrelsi er aö hver j
einasti einstaklingur hafi tækifæri til aö 1
láta sinar skoðanir i ljós. Siöan er þaö allt
annaö mál aö einhver markaöur sé fyrir
þessar skoðanir. Það getur hver sem er
gefiö út blaö á Islandi. En þaö eru hins-
vegar ekki allir sem geta selt þau, og það
á að láta markaðinn skera úr um þaö.
Þetta er svipað og ljóta stelpan sem ekki
gengur út. Hún getur engum kennt um
þetta. Gæöum jaröarinnar er bara mis-
skipt. Þetta er ein af hryllilegum stað-
reyndum lifsins. Sama er aö segja um 1
einhvern dularfullan sértrúarsöfnuð sem
hittist i reykfylltum kjallara á Laugar-
veginum og tautar i barminn ókvæðisorö
um náungann. Þessi söfnuður getur ekki i
ætlast til þess aö aörir hafi áhuga á þess- |
um hugrenningum, en hann á að hafa
frelsitil að reyna fyrirsérá markaönum.
Ég er á móti einokun. En veistu af