Helgarpósturinn - 04.09.1981, Síða 17

Helgarpósturinn - 04.09.1981, Síða 17
17 Jielgarpústurinn „Maður fletti i gegnum blöðin” segir Brynjólfur Jónsson vélsetjari ,,Nei, ekki er þaö nú mikiö. Maöur er búinn aö fá nóg af lestri, satt aö segja”, sagöi Brynjólfur Jónsson, vélsetjari hjá tsafoldar- prentsmiöju, þegar hann var spuröur hvort hann læsi mikiö utan sins vinnutima. Brynjólfur sagöi, aö þetta ætti við um þá tima, þegar blýsetning var meiri en hiín er i dag, Þá hafi hann ekki nennt, eftir átta tima lestur á dag i vinnunni, aö taka sér bók i hönd þegar heim kom. „Maður fletti i gegnum blööin og þaö voru helst smásögur, eöa eitthvað svoleiöis, sem maöur las”, sagðihann. Núna væri þetta hins vegar breytt, og hann læsi meira en áöur. Mest gaman sagð- ist hann núna hafa af þjóðsögum og ferðasögum. — Er þá kannski hægt aö fá of- næmi fyrir þessu öllu? „Ég segi þaö nú ekki. Ég hef aldrei veriö i neinum vandræðum aö lesa i vinnunni. Maöur hefur fullt gagn af þvi, sem maður les þar ef maöur hefur á annaö borð áhuga á þvi. Þaö er nú eitt og annaö, sem maöur hefur lesiö, þó maöur hafi verið mataöurá þvi”. — Hefurðu gaman af þessari setningu? „Já, ég hef alltaf haft gaman af henni. Maður hefur kynnst mörg- um ágætum mönnum i gegnum þetta, bæði rithöfundum, skáld- um og blaðamönnuir”. Aðspuröur um skemmtilegasta verkið, sem hann heföi sett, sagö- ist Brynjólfur geta nefnt ritsafn Matthiasar Jochumssonar, ljóð hans, þýöingar og leikrit, en hann vann að þvi i kringum og eftir 1960. Ekki vildi Bryjólfur nefna neinn sérstakan innlendan uppá- haldshöfund sinn, en af erlendum höfundum sagðisthann hafa mjög gaman af Balzac. Hann heföi lesið allar bækur hans, sem heföu komið út á islensku og einnig nokkuö á dönsku. Astæðuna fyrir þvi, að hann fór út í prentnám, sagöi Brynjólfur vera þá, aö hann væri eiginlega Flug 999 3 pósturinn hafði samband við Einar i vikunni, hélt hann sig enn viö sömu upplýsingar. „Þetta voru ekki vopnaflutningar”, sagöi hann. „Jagúarmótorar eru ekki vopn og ekki loftpressudekk heldur. Þaö var fyllilega löglegur varningur sem viö flugum meö”. Einar var spuröur hvort Cargolux heföi athugaö þessi mál nánar eftir aö þessar fréttir bárust fyrir hálfum mánuöi, en hann neitaöi þvi. Siguröur Helgason, forstjóri Flugleiða, sem eiga 25% af Cargolux, var spuröur sömu spurningar og hann svaraði henni á sömu leið. Flugleiöir hafa ekki farið frammá nánari rannsókn á málinu. „Frá sjónarmiöi flytj- anda var um fullkomlega eöli- legan flutning aö ræöa”, sagði Siguröur „enda væri þaö aö æra óstööugan ef flutningsaöili ætti aö ganga úr skugga um endanlega notkun á öllumvarningi sem hann flytur. Samkvæmt almennum reglum eru hergögn ekki flutt nema meö sérstökum leyfum viökomandi landa og um slikt var ekki aö ræöa i þessu tilviki. Þetta voru mótorar. og hjólbaröar og vara- hlutir. Þaö er ekki i verkahring flutningsaöilans aö komast aö þvi hvort þessi varningur er notaöur til hernaöar. Þær vörutegundir sem ekki er hægt að nota i hernaöi eru reyndar vandfundnar”, sagöi Sigurður. — En nú hefur veriö bent á aö Scorpion-vélar er aöeins hægt að nota i skriödreka og ekkert annaö. Gefur þaö ekki tilefni til athugana? „Ef flytjandi er beöinn aö flytja ákveöna vöru og fær öll leyfi og þær upplýsingar sem þarf til aö flytja vöruna eftir venjulegum löglegum leiöum, þá fer hann ekki aö gera þaö”, sagði Siguröur Helgason. Föstudagur 4. september 1981 Brynjólfur setur upp á gamla mátann: Maöur hefur fullt gagn af þvi, sem maöur les i vinnunni, ef áhuginn er fyrir hendi. alinn upp i prentsmiðju. Faöir hans var prentari og rak prent- smiðju. Þaö hafi þvi ekki verið undarlegt, að hann færi út i þetta nám. Brynjólfur lauk námi 1932 og sagöist hann hafa strax aö loknu námi fariö út i vélsetninguna, en hjálsafoldarprentsmiöjueru þeir aöeins tveir, sem enn setja upp á gamla mátann. En hvaö finnst honum þá um nýju tæknina? „Ég hef ekki kynnt mér þetta, sattaö segja, þvi maöur er orðinn það gamall, aö maöur hefur ekki áhuga fyrir þvi, en þetta er nú sjálfsagt það, sem koma skal. Ég held nú ennþá fram, að gamla að- ferðin sé betri i allri venjulegri bókaprentun. Það er betri prent- un með blýinu, á lesmáli að minnsta kosti, og yfirleitt á svart- hvitum myndum. Offsetið gengur vel i litaprentuninni, en þaö er eins og það sé eitthvað slappara allt saman”, sagði Brynjólfur Jónsson vélsetjari. KENNY ROGERS með nýja plötu HK li&Zs Nú er komin út ný hljómplata með bandariska kántrýsöngvaranum Kenny Rogers. Sjaldan hefur kappan- um tekist jafn vel upp og nú, og á þessari plötu kemur vel i Ijós af hverju Kenny er jafnan kallaður konungur kántrýsöngvaranna. Fæst i öllum hljómplötuverslunum KENNY ROGERS - SHARE YOUR LOVE FALKINN Suðurlandsbraut 8 — simi 84670 Laugavegi 24 — simi 18670 Austurveri — simi 33360 HÚSGAGNA SVNING UM HELGINA TM HÚSGÖGN TRAUST OG FALLEG Siðumúla 4, 30, Simi 31900- 86822 Greiðslukjör i samráði við kaupandann

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.