Helgarpósturinn - 18.12.1981, Page 8

Helgarpósturinn - 18.12.1981, Page 8
32 Föstudagur 18. desember 1981 Við mælum með Jie/garpásturinn. Gagnrýnendur Helgarpóstsins;Gunnlaugur Astgeirsson, Heimir Páls- son, Siguröur Svavarsson, Jón Viöar Jónsson, Halldór Björn Runólfs- son, Vernharöur Linnet, Páll Pálsson og Gunnlaugur Sigfússon hjálpa lesendum blaösins viö val gjafa af bóka- og hljómplötumarkaöi jól- anna. Þaö er rétt aö taka þaö fram aö þó aö jólabókafldöiö sé tekiö aö fjara þegar þessi listi er geröur, þá eru ennþá aö koma bækur á markaöinn sem gagn- rýnendum hefur ekki gefist tóm til aö gaumgæfa. Þaö er því hætt viö aö einhverjar bækur sem vera heföu átt á listanum hafi orðið lítundan. —G.Ast. íslenskar ská/dsögur t sama klefa eftir Jakobinu Sigurðardóttur. Útg. Mdl og Menning. ,,Það er gottað leggja frá sér bók eins og 1 sama klefa þvi hún skilur eftir tilfinningu um vandaða vinnu og umfram allt heiðarlegt verk... Ef það er ekki „Marktækt. Hugverk” þá veitég ekki hvernig þau eiga að líta út” (—HP/Hp 4.12.’8l.) Ofsögum sagt, smásögur eftir Þórarin Eldjárn. Útg. Iðunn. „Meginefni sagnanna er ... að lýsa fólki i' fremur óvenjulegum aðstæðum. Er það gert af öfl- ugri frásagnargleði og óvenju- legri kimni.” (—G.Ast./Hp. 30.11. ’81). Möskvar morgundagsinseftir Sigurð A. Magnússon. Útg. Mál og menning. Aframhald Undir kalstjörnu. Jakob eldist, sagan verður flóknari og fleiri koma við sögu. Þegar best lætur ,,þá nálgast Mó'skvar morgundags- inseinmitt listrænustu kaflana i Undir kalstjörnu” (-HP/Hp 30.1X’81) í borginni okkar smásögur eftir Véstein Lúðviksson. Útg. M&m. „Hérerekki um að ræða félagsmálapakka sem leystur hefur verið upp i húmorslausa vandamálasúpu, heldur nær- andi og hollt sagnakonfekt sem ég naut þess að smjatta á” SS/Hp. 11.12.’81). Skilaboö til Söndrueftir Jökul Jakobsson. útg. Skuggsjá. „Ég hafði svo gaman af að lesa hana að ég stóð sjálfan mig oft að þvf að hægja á lestrinum, lesa að- eins nokkra kaf la i einu, bara til þess að treina mér bókina og halda lengur í þessa skemmtan. „JVJ/Hp. 11.12 .’81) Þetta eru asnar Guöjón eftir Einar Kárason. Útg. M&m. „Lýsing Einars á lifi ungs fólks sem staidur á vegamótum og fer hvert i sina áttina er að mínu áliti vel gerð. ... hressileg.sém lýsir á Hfandi hátt einum parti af þeirri veröld sem ungt fólk nútimans lifir i. (G.Ást. /Hp. 27.11. ’81.) Einbjörn Hanssoneftir Jónas Jónasson. Útg. Vaka. ,,Þessi saga fjallar um einmanaleik- ann... og er fyrst og fremst skemmtileg aflestrar, notaleg og einlæg.” (G.Ast./ Hp. 11.12. ’81) Haustiöer rautteftir Kristján Jóhann Jónsson. útg. M&m. Um þessa bók er ágreiningur meðal gagnrýnenda. ,,Hvað sem öllum natúralistiskum stefnuskrám liðurer vistað list- in krefst bæði úrvals og ákveö- innar ýkingar— og að höfundur sem ekki er tilbúinn til að beygja sig fyrirþeim lögmálum erdæmdur tilaðsökkva niöur i vonlausa flatneskju” (JVJ/Hp. 6.11. ’81) „Annars finnst mér.. að bókin sé þrælgóð og athyglis- verð nýjung.” (G.Ást. /Hp. 11.12 .’81.) Ljóðabækur Farvegir eftir Stefán Hörð Grimsson. útg. Iöunn. „Ljóð- heimur hans er ævintýra- veröld.. sem er einmitt sprottin upp úr raunveruleika okkar, þvi góður skáldskapur er einmitt hvorttveggja i senn upphafning ogkristöllun tilverunnar. Það er einmitt það sem Stefáni Herði tekst svo undursamlega með orðin aö vopni.. .hefur að geyma meiri skáldskap en flestar bæk- ur” (G.Ást./Hp. 4.11.’81.) Fljógandi inyrkur eftir Kristján frá Djúpalæk. Útg. Hdgafell. Geðþekk og vand- virknislega unnin ljóö um fall- valtleika tilverunnar. Heim- speki Kristjáns er svartsýn án þess að vera bölsýn. Regnbogastígur eftir Jón úr Vör. Útg. Menningarsjóður. Frumsamin ljóð og þýðingar. Tónninn i ljóðum Jóns breytist ekki i þessari bók og myndrænn einfaldleiki hans er samur við sig. Falleg viöbót við það sem hann hefur áður gerten markar engin timamót. Ljóö eftir Vilborgu Dag- bjartsdóttur. Útg. M&m.Falleg heildarútgáfa af ljóðum þessa athyglisverða skálds. bókmenntir Don Kikóti eftir Cervantes i þýðingu Guöbergs Bergssonar. Útg. AB. Loksins er þetta meistaraverk heimsbókmennt- anna komiö út i frábærri þýð- ingu. Þetta erfyrsti hluti verks- inssem trúlega verður 6-8 bindi. Haltu kjafti og vcrtu sæteftir Vitu Andersen i þýðingu Kristjáns Jóh. Jónssonar. útg. Lystræninginn. Smásögur. Afhjúpandi og ágengar sögur um konur i nútimasamfélagi. Kvennagulliö 1 grútarbræðsl- unni eftir William Heinesen i þýðingu Þorgeirs Þorgeirsson- ar. útg. M&m. Smásögur. Heinesem heldur áfram á sinn ævintýralega hátt að lýsa undraveröldinni i gömlu Þórs- höfn. Meistarinn og Margarita eftir Mikhail Búlgakof I þýðingu IngibjargarHaraldsdóttur. útg. M&m. Mögnuð og ærslafull ádeilusaga frá Rússlandi. And- skotinn og árar hans heimsækja Moskvu og setja allt á annan endann. Miöbærinn eftir Deu Trier- Mörch i þýðingu Ólafar Eldjárn. Útg. Iðunn. Eftir sama höfund og Kastaniugöngin og Vetrar- börn. Segir frá lifi fjölskrúðugs fólks i gömlu Kaupmannahöfn. Praxis eftir Fay Weldon i .þýð.^ ingu Dagnýjar Kristjánsdóttur. Útg. Iðunn. Sagan sem lesin var i útvarpið i sumar og sem mest • var rifist um. Ageng og óvægin saga um veröld kvenna. Þó blæöi hjartasár eftir Marlyn French i þýðingu Álfheiðar Kjartansd. Útg. Ið- unn. Eftir höfund Kvenna- klósettsins. Mjög óvenjuleg ástarsaga sem e.tvv. mætti kalla sálfræðilega ástarsögu, þvi stór hluti bókarinnar eru hugrenningar aðalpersónunnar. Sautján sögureftir I.B. Singer i þýðingu Hjartar Pálssonar. Útg. Setberg. Þriðja bók Nóbelsverðlaunaskáldsins sem kemur útá islensku. Óvenjulegt framtak. P Anna og Kristján eftir Ake Leijonhuvud, Útg.Iðunn. Skáld- saga um nútimafólk. óvenjuleg krufning á hjónabandinu. Þessi listi þýddra skáldsagna er orðinn óvenju langur en það vill óvart svo tilað á þessu ári er gefið út óvenjulega mikið af góðum þýddum sögum. Við lát- um reyfara og ástarsögur liggja á miUi hluta og visum beint til sjónvarpsauglýsinganna með þáer. Ýmis/egt Lifsjátning, æviminningar Guðmundu Eliasdóttur skráðar af Ingólfi Margeirssyni. Útg. Ið- unn. „Þetta er bók sem maður leggur frá sér með kekki i' hálsi og einkennilega glýju fyriraug- unum. ... bók sem á skilið að eignast marga lesendur.. svo full af mannúð og lifsskilningi sem hún er. „HP/Hp. 11.12.81.) Skrifaö i skýinendurminning- ar Jóhannesar Snorrasonar. Útg. AB. Lifandi frásagnargleði og athyglisverðar sögur frá ár- dögum flugsins á tslandi. Flökkulif. Æskuminningar Hannesar Sigfússonar. Útg. Ið- unn. Einn af frumherjum modernismans i islenskri ljóðagerð segir frá mótunarár- um sinum. ólafur Thors, ævisaga eftír Matthias Johannessen. Útg. AB. Mjög ftarleg saga eins litrikasta stjórnmálamanns þessarar ald- ar á Islandi. Stjórnmálasaga miðbiks aldarinnar séð með augum formanns Sjálfstæðis- flokksins i áratugi. GUNNAR Thoroddscn eftir Ólaf Ragnarsson. Samtalsbók. Útg. Vaka. Vinsælasti stjórn- málamaðurinn i dag leysir frá skjóðunni um helstu stjórn- málaviðburði og átökin i Sjálf- stæðisflokknum. Mánasilfur III. Gils Guðmundsson heldur áfram að velja kafla úr endurminningum Islendinga allt frá Jóni India- fara til Jóns Thors Haraldsson- ar. Stóra bomban eftir Jón Helgason. útg. örn og örlygur. Segir frá einu undarlegasta „happening” i islenskri stjóm- málasögu. Yfirlæknirinn á Kleppi lýsir Jónas frá Hriflu geöveikan, þá dómsmálaráö- herra. Atök íhalds og Fram- sóknar i' upphafi kreppunnar. Togaraöldin eftir Gils Guðmundsson. Útg. ó&ö. Upp- haf sögu togaraútgerðar. Riku- lega myndskreytt sagnfræðirit um örlagarikustu breytingu at- vinnuhátta hér á landi í traust- um búningi Gils Guðmundsson- ar. Merkisdagar á mannsævinni eftir Áma Bjömsson. Útg. Saga. Árni Bj örnsson segir á sinn sér- stæða og skemmtilega hátt frá gömlum venjum, siðareglum og sögnum sem tengd eru getn- aði, fæðingu, fermingu, brúð- kaupum, dauða og greftrun. Viliingar i strlöi og friöieftir Magnús Magnússon. Útg. O&ö. Aðgengilegt sagnfræðirit unnið samhliða hinum heimsfrægu sjónvarpsþáttum Magnúsar. Rikulega myndskreytt i litum. Viö hey garöshorniö eftir Halldór Laxness. Útg. Helga- fell. Ritgeröir. Traust viðbót i Laxness safnið. Ritgeröir I eftir Sverri Kristjánsson. útg. M&m. Upp- haf á ritsafni Sverris en hann var eins og kunnugt er meistari ritgeröarformsins. tslensk listútg. Hildur. Vönd- uð og yfirgripsmikil bók um 16 islenska myndlistarmenn. Kjarval — málari lands og vætta, útg. AB og Iceland Review. Aðalsteinn Ingólfsson og Matthias Jóhannessen fjalla um m eistarann i máli og mynd- um. Heimur Islendingasagna eftir I.B. Steblin-Kamenskij i þýð- ingu Helga Haraldssonar. Ný- stárleg bók um tslendingasög- ur. Skyldulesning allra móður- málskennara og annarra sem unna sögunum fornu. 220 gómsætír sjávarréttir eft- ir Kristfnu Gestsdóttur og Sig- urð Þorkelsson. Útg. ö&ö. Ný islensk matreiðslubók um fisk. Aðgengileg, fjölbreytt og riku- lega myndskreyttbók. Sælkera- bókin I ár. Barna- og ung/inga- bækur íslenskar. Astarsaga úr fjöllunum eftir Guðrúnu Heigadóttur með myndum eftir Brian Pilkington. Útg. Iðunn. Gullfallegt ævintýri um Flumbru tröllskessu og strákana hennar með frábærum myndum. Búkolla ævintýri með mynd- um eftir Hring Jöhannesson. Útg. M&m.Myndlistarverk með fáguðu handbragði Hrings. Eins og i' sögu eftir Sigrúnu Eldjárn. Útg. Iðunn. Sprell- fjörug og hugmyndarik mynda- saga um sömu persónur og Allt i plati. Gegnum Holt og hæöir eftír Herdisj Egilsdóttur. útg. ö&ö. Ævintýri um óþæga stelpu tröll og álfa. Lambadrengur eftir Pál H. Jónsson. Útg. Iðunn. Enn ein perla eftir höfund Berjabits og Agnaragnar. Fjallar á óvenju- legan hátt um hjarðlíf frum- stæðrar þjóöar. íslendinga i upphafi aldarinnar og dreng sem elst upp i þvi samfélagi. Himnarfki fauk ekki um koll eftir Armann Kr. Einarsson. Útg. Iðunn. Um 11 ára strák i Reykjavfk sem á I brösum með foreldra sina. Polli er ekkert blávatn eftir Andrés Indriðason. Útg. M&m. Um tiu ára strák sem á foreldra sem skilja um sinn a.m.k. Kátt er i Krummavik eftir Magneu frá Kleifum. Útg. Ið- unn. Sjálfstætt framhald af Krakkarnir i Krummavik. Stór- skemmtileg og viðburðarik saga umliflegan systkinahóp og frænda þeirra. Að lokum skal hér nefnd endurútgáfa á öllum sögum Hendriks Ottóssonar um Gvend Jóns og strákana i Vesturbæn- um sem Skuggsjá gefur út. Útgáfan virðist hinsvegar ekki miðuð við hæfi barna, allar sög- urnarfjórar ieinu bindi, 314 sið- ur með smáu letri, en sögumar standa fyrir sinu. Erlendar. Fyrir yngstu lesenduma er gefið út töluvert af þokkalegum bókum og ekki mjög mikil ástæða til að taka einstakar bækur útúr. Þó langar mig að nefna nokkrar. Erþá fyrst að telja tvær bæk- ur með ævintVrum H.C. Ander- sen, Svinahirðirinn og Hans klaufi með myndum eftir Ulf Löfgren. Einnig norsk ævintýri úr safni Asbjörnsen og Moe, Pönnukakan með myndum eftír Svend Otto S. Bækurnar um Einar Askel eftir Gunnillu Bergström eru þrælgóðar. Bók- in Fólk eftir Peter Spier sem fjallar á skemmtilegan hátt um mannkynið, mismunandi að- stæðurog útlit. Jólin hans Vöggs litla a- klassiskt ævintýri með mjög fallegum myndum eftir Harald Wiberg. A þessu ári er gefið út óvenju- lega mikið af góðum bókum fyrir krakka sem eru oröin vel læs, sérstaklega þau sem eru nýkominn á unglingaaldurinn. Max og Morits eftir Wilhelm Busch i þýðingu Kristjáns Eldjárns. Klassisk prakkara- saga um forfeður Knold og Tott. Otto nashyrningur eftir Ole Lund Kirkegaard, höfund Alberts, GUmmitarsans o.fl. Besta bók höfundar til þessa á islensku. Sprellfjörug og fyndin ærslasaga. Neyöarkall Lúlla eftir E.W. Hildik. Mjög vel gerö og spenn- andi saga um Lúlla mjólkur- póst. Fyrir ca. 10-12 ára. Madditt og Beta eftir Astrid Lindgren. Framhaid af Madditt. Lfndgren svikur aldrei. Ronja ræningjadóttir eftir Astrid Lindgren. Glænýtt snilldarverk i flokki með Bróðir minn ljónshjarta og Elsku Mio minn. Ékki fyrir þá yngstu. Dulsmálsbréfið eftir Jan Terlouw, höfund Striðsvetrar, i fööurleit og Fárviðris. Unglingasaga af bestu gerð. Dauöi á Jónsmessunótt eftir K.M. Peyton, höfund bókanna um Patrik,en þessi bók ersjálf- stætt framhald af Sýndu að þú sért hetja, um Jónatan Meredith. Spennandi saga með margbrotnum persónum og engum einföldum lausnum.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.