Helgarpósturinn - 18.12.1981, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 18.12.1981, Blaðsíða 9
33 —he/garpÓCrtl trjnn Föstudagur 18. desember 1981 Einn i striöi eftir Evert Hartmann. Gerist i Hollandi í seinni heimststyrjöldinni. Raunsæ, spennandi og upplýs- andi saga. Klás, Lena, Nína og.. eftir Hans Hansen. Þriöja bókin um Klásog Lenu og vini þeirra, hin- ar eru Sjáöu sæta naflann minn og Vertu góöur viö mig. Raunsæ saga um venjulega og raun- verulega unglinga og lýsir á hispurslausan hátt tilfinningum unglinga. Handan við harðbrautina eftir Inger Brattström. 16 ára strák- ur veröur fyrir óvæntri reynslu. Enginn kemur aö sækja litaöa stelpu á barnaheimilið þar sem hann leysirafog hann situr uppi með hana. Kynnist nýrri veröld þeirra verst settu i háhýsa- hverfi i' Svíþjóö. begar mér var falið að gera úttekt á nokkrum „bestu klassisku hljómplötunum”, sem borist hefðu mér i hendur, fann ég strax hvar vandinn lá. Til að hjálpa lesendum um val, þurfti ég að vera viss um að viðkom- andi hljómplata fengist i versl- unum. Vandinn er nefnilega sá, að verslanir flytja inn örfá ein- tök af hverjum erlendum titli, en titlarnir hafa sennilega aldrei verið fleiri en nú. Það þykir mikið, ef 10-1.5 eintök fást af einni og sömu klassisku plöt- unni. Stundum berast ekki nema tvö til þrjú eintök. Þeir sem velja „bestu jóla- bækurnar”, eiga ekki við þenn- an vanda að striða.þvi'titlar eru miklu færri og gefnir Ut í hundr- uðum eða þúsundum eintaka. Að visu er ég betur settur gagn- vart islenskum hljómplötum. Um þærgildir hið sama og bæk- urnar. Ég hef þvi burgðið á það ráð, að velja nokkrar hljómplötur frá helstu erlendu útgafufyrir- tækjum, til að gefa „sýnishorn” af verkum og flytjendum, sem ég mæli með, eða mér þykja best. Tvær ólíkar, en góðar. Frá fyrirtækinu „Decca”, hef ég valið „ Konsert fyrir hljóm- sveif'eftir Béla Bartók, i flutn- ingi sir Georg Solti. Ég valdi þessa plötu vegna þess, að verk- ið er eitt hið hugljúfasta, sem eftir tónskáldið liggur (en Bartók hefði orðið 100 ára á þessu ári, hefði honum enst ald- ur). Þá spillir ekki, að Solti skuli halda um tónsprotann, en hann erungverskur eins og tónskáld- iðog i röð heimsins bestu stjórn- enda. Valið var erfitt, þvi flest verk eftir Bartók eru gulls igildi og sem stjórnandi er Solti stór- tækur (má benda á Symfóniur Mahlers i þvi sambandi). Hin platan frá Decca, er „Vorsónatan” op. 24. og Fiðlusónata op. 23, eftir L. v. Bccthoven.Hér fara þeir Itzhak Perlman og Vladimir Ashkenazy ákostum. Þessi verk eru í hópi 10 fiðlusónata Beethovens og eigi fólk næga peninga, mæli ég með heildarútgáfunni, leikinni af ofangreindum listamönnum. Að öðrum kosti er hægt að fá tvær og tvær sónötur saman og eruþærallar góðar. Reyndar er óhætt að mæla með flestu sem þessirtveir listamenn hafa látiö fara frá sér, að Beethoven <®leymdum.(dreifing: Fálkinn) Heillandi útgáfur Plötufyrirtækið „Philips” er með sérlega heillandi útgáfur. Eftir langa mæðu tókst mér að velja tvær plötur. „Late Piano Works” eftir Liszt, í flutningi Alfreds Brendel. Fyrst og fremst er Brendel einhver ,,gáf- aðasti” pianóleikari sem uppi er. Það hafði hann rækilega sýnt, með túlkun sinni á pianó- sónötum Schuberts og heildar- útgáfu á Sónötum Beethovens. Ég var þvi fyrirfram fallinn fyrir plötunni, þegar ég sá hana. Það sakar ekki að geta þess, að Brendel skrifar langan formála og rekur ástæðumar fyrir vali verkanna og kemur þar fram næm þekking hans á tónskáld- inu. Sem aödáandi Liszt, finnst mér plata þessi stórkostleg. En um leið geri ég mér grein fyrir þvi, að mörg þessara seinni verka Liszt, höfða til þrengri hóps en fyrri verk tónskáldsins. Þvi mundi ég fremur velja Mozart, Beethoven eða Shubert, með þessum frábæra túlkara, ef ég hefði aldrei heyrt „siðari verk Liszts” áður. Philips gefur Ut, hreint unaðs- lega seriu,sem kallast „Lifandi Barok”. Hérmá segja að allt sé gott. Fyrir valinu varð „Konsertar op. 9"eftir Tomaso Albinoni. Flytjendur eru „I Musici” ásamt hinum snjalla óbó-leikara, Heinz Holliger. Plötuna valdi ég vegna þess, aö ég er alltaf veikur fyrir i'talskri barok-tónlist og Albinoni kenndi nú eitt sinn Bach að skrifa generalbassa. En flestar plötur i þessari seriu, heilluðu mig. (Dreifing: Fálkinn) Frábærir túlkendur Eftir á að hyggja, valdi ég hljómplötur frá EMI(HMV), einkum vegna frábærra túlkenda. bar setti ég „Árstiðirnar 4” eftir Antonio Vivaldi, i túlkun Yehudi Menuhin og Camerata Lysy (digital), i efsta sæti. Þessi plata er hreint stórbrotin. Auðvitað á þetta einnig við um verkið sjálft. Arstiðirnar eru væntanlega þekktasta verk Vivaldis og jafn- framt þekktast allra italskra barok-verka. Ég er ekki f vafa um, að þessi plata nái Ut fyrir raðir unnenda klassiskrar tón- listar, þvi yndislegra verk verð- ur vart fundið. Snilldarlegt spil Menuhins og Camerata Lysy, gerir plötu þessa fyrsta flokks sem jólatónlist. Þá er önnur plata frá EMI, þar sem túlkendur geta varttal- ist af verri sortinni. Það er „Tripelkonsert” Beethovens með Filharmoniu-hljómsveit- inni i Berlin, undir stjórn Hcrberts von Karajan. Einleikarar eru þrir rússneskir „risar”, David Oistrach (fiðla), Mstislav Rostropovich (selló) og Svjatoslav Richter (pianó). Hæfari þrenning verður vart fundin. Þó stendur verkið ávallt fyrir sinu, hvort sem það er Karajan og rússneska þrenn- ingin sem túlkar. (Dreifing: Fálkinn) Risaverk Frá „Deutsche Grammophon”, skellti ég mér á tvö risaverk. Anriars vegar „9. Symfóníu” Beethoven, með Karl Böhmog Filharmóniu- hljómsveit Vlnarborgar og Rikisóperukórnum i Vín. Ég valdi plötuna, vegna þess að hún er siðasta þrekvirki Böhms, sem var kannski „klassiskast- ur” allra stjórnenda, en einnig vegna söngvaranna, Jessye Norman, Birgitte Fassbaender, Placido Domingo og Walter Berry. Þá er þetta digital-plata. En viti menn, þegar ég bregð henni á fóninn og hlusta, get ég með engu móti sagt, að hún sé betri en fyrri útgáfur Deutsche Grammophon, þ.e. Karajan-Ut- gáfan og nýleg snilldartúlkun Leonards Bernstein meö sömu hljómsveit og Böhm stjórnar hér. Böhm er eflaust klassiskari en hinir tveir, en á móti kemur sérstaða verksins og and- klassiskur blær. Hefði ég átt að velja 6. symfóniuna með Böhm ogBernstein, heföi ég valiöhinn fyrrnefnda. En ég get ekki gert upp á milli þessara stjórnenda i 9. symfóniunni. Þar fer Bern- slein á kostum. Þaö er því verk- ið sjálft, en ekki túlkunin, sem hefur yfirhöndina. „ Alpa-s y m fónia n” eftir Richard Strauss.var hitt stóra- stykkið, sem ég valdi frá Deutsche Grammophon. Ég valdi þaö vegna þess að það er siðasta tóna-ljóðiö sem Strauss samdi og einmitt það, sem ég þekkti sist. Enhvilikt dúndur, ef fólk er á eitt borö hrifið af Strauss er þessi plata hreinasta snilld i túlkun Karajansog Filharmóniu-hljómsveit Berlin- ar. Þó er þetta verk valið með þeim fyrirvara, aö tóna-ljóð Strauss eru stórfengleg hvert fyrir sig og ef ég þekkti ekki verk eins og „Also sprach Zarathustra” eða „Ein Heldenleben” mun betur en „Alpa-symfóniuna”, hefði ég ekki veriö eins fljótur aö velja. bessi plata er digital. (Dreifing: Fálkinn) íslenskar plötur Hér er valið ekki nærri eins erfitt. Titlar eru sárafáir, en upplögin stór. Þaö er þvi' litill vandi aö leiðbeina i' þessum efn- um. Ég hef áður minnst á „Endur- minningar úr óperum” meö Guðrúnu A. Slmonar og Þuriöi Pálsdóttur. Ég er alltaf aö sjá það betur og betur, hve stór- kostleg þessi plata er. En mikið hefði verið skemmtilegra að gefa henni verðuga tveggja- platna kápu i stað þess að troða tveimur plötum i umslag fyrir eina. Það er eins og að troða tveimur bókum i eina kápu. Þá er platan „Bach i Skál- holti”mjög hugljúfog á ég erfitt með að gera upp á milli þessara tveggja platna, enda eru þær ólikar.Þær Manuela Wieslerog Helga Ingólfsdóttir gera Bach, ógleymanleg skil. Að endingu vil ég minnast á jólaplötu frá „Karlakórnum Fóstbræðrum”, en platan heitir „Með helgum hljóm” og er það kórinn sjálfur sem gefur plöt- una út. A henni eru jólasálm- arnir, sem viö þekkjum svo vel, sungnir við islensk og erlend lög. Þvi miður vannst mér ekki timi til að gera þessari plötu verðug skil, sem henni ber. En ég er ekki i vafa um, að þetta verðieinaf jólaplötum ársins og reyndar ætti svona plata að vera til á hverju islensku heimili. Popp Lesandi góður Það verður sífellt erfiðara að skilgreina popptónlist og flokka I stefnur. Þróunin er svo ör að poppspekúlantar hafa ekki undan við að endurmeta hugtök sin og flokkanir. Hér á eftir ætlum viö þó að reyna aö draga fram þær stefnur sem við teljum helstar i dag og nokkrar af þeim nýju plöt- um sem eru markverðir fulltrúar þeirra. Og þarsem þetta eru jóla- gjafaleiðbeiningar höfum við hinn almenna hljómplötumarkað fyrst og fremst I huga — auðvitað eru til fleiri stefnur og þær ekki ómerkilegar, þótt þær verði ekki nefndar hér. gs/pp Ný-rómantík Þetta þykir okkur skásta heildar- hugtakið yfir tölvurokk, kulda- rokk, tiskubylgju, „futurisma”, blossa-krakka... Heaven 17 — Penthouse & Pave- ment, verð kr. 189 Human League — Dare, verð kr. 169 Orchestral Manoeuvres in the Dark — Architecture & Morality, verö kr. 169 Simple Minds — Sons & Fascination, verð kr. 169 Ultravox — Rage In Eden, verð kr. 169 Rockabilly Þessi stefna varð til snemma á upphafsdögum rokksins þegar þvi var blandaö saman viö þá teg- und ameriskrar sveitatónlistar sem kallast Hillbilly. Flytjendur taka bæði fyrir lög sem samin voru á þeim tima og búa til ný i sama dúr... Matchbos— Flying Colours, verð kr. 169 Shakin’Stevens— Shaki, verð kr. 179 Stray Cats—Gonna Ball, verð kr. 189 Þungarokk Varö til i kringum 1970 meö hljómsveitir einsog Led Zeppelin og Deep Purple i broddi fylkingar og hefur siöan verið i hávegum höfö meðal yngri aðdáenda rokksins enda kraftmesta af- brigði þess... AC/DC— For Those About Rock, verð kr. 189 Gillan—Double Trouble, verö kr. 189 Loverboy — Get Lucky, verð kr. 169 Michael Schenker Group — M.S.G. verð kr. 179 SaxonDenim & Leather, verð kr. 189 Gamlir jaxlar Hér setjum viö þær hljómsveitir sem hvað lengst hafa staðið i fremstu viglinu rokksins og gera alltaf betur en að standa bara fyr- ir sfnu... Kinks — Give the People What They Want, verð kr. 199 Pink Floyd — Collection of Greas Dance Songs. verö kr. 189 Rolling Stones — Tattoo You, verð kr. 169 islenskar plötur Mikiö hefur komiö út af islensk- um plötum nú fyrir jólin, svo sem hefur veriö undanfarin ár. Hins vegar er útkoman nú fjölbreyttari og gæðin meiri en oftast áður, þannig að það ætti aö finnast eitt- hvaö viö flestra hæfi. Björgvin Gislason — Glettur kr. 169 Gubmundur Arnason— Mannspil kr. 169 Grýlurnar kr. 79 Graham Smith — Með töfraboga kr. 169 Gunnar Þórbarson — Himinn og Jörö kr. 169 Jóhann Helgason — Tass kr. 169 Mezzoforte — Þvilikt og annað eins kr. 169 Purkur Pillnikk — Ekki enn kr. 169 Utangarbsmenn — 1 upphafi skyldi endinn skoða kr. 169 Start— ...en hún snýst nú samt kr. 169 Þeyr — Mjötviður Mær Nýbylgjurokk Við setjum undir hatt þessa út- jaskaöa orðs allar góðar rokk- plötur sem við komum ekki annars staöar fyrir. Þarna er aö finna allt frá léttasta poppi til framsækinnar rokktónlistar. Adam and the Ants — Prince Charming kr. 179 Blondie— Best of ... kr. 169 Elvis Costello— Almost Blue 189 Joy Division — Still kr. 199 (tvær plötur. Marianne Faithful — Dangerous Acuaitances kr. 165. New Order — Movement kr. 199 Police — Ghost In The Machine kr. 169 Tenpole Tudor — Let The Four Winds Blow kr. 169 Thompson Twins — A Product of... kr. 169 Tom Tom Club kr. 165 Jólaplötur Sumstaðar þykir þaö nauðsyn- legur hluti af jólahaldinu að leika jólalög af plötum. Fyrir þessi jól virðist frambobio vera t meira lagi, þar sem alls konar karlakór- ar og kirkjukórar gefa nú út plöt- ur. Neðangreindar plötur eru i flokki þeirra léttari. Hurðaskellir og Stúfur— Við jóla- tréö kr. 169 Haukur Morthens — Jólaboð kr. 169 Ómar Ragnarsson — Skemmti- legustu lög Gáttaþefs kr. 169 Einnig er um mikið úrval af er- lendum og eldri Islenskum jólaplötum að ræða. Reggae/SKA Léttar og þægilegar eru þau orð sem best lýsa neðangreindum plötum. Black Uhuru er einhver vandaðasta reggae hljómsveit sem starfandi er I dag. Madness þekkja vlst flestir orðiö en UB 40 og Bad Manners standa þeim ekki langt að baki. Bad Manners— Gosh It’s kr. 169 Black Uhuru — Red kr. 165 Madness — 7 kr. 169 UB 40 — Present Arms kr. 169 Barnaplötur Og ekki má gleyma yngstu hlust- endunum. Orvaliö af barnaplöt- um er kannski ekki mikið en þó er það nokkuð fjölbreytt. Bessi Bjarnason syngur og segir sögur kr. 169 Björgvin Halldórsson ofl. — Eins og þú ert kr. 169 Söngævintýrib Eldfærin kr. 169 Katla Maria — Litli mexikaninn kr. 169 Mini Pops kr. 189 Jazz Ekkert er jassgeggjaranum kærara en að fá nýja djassplötu um jólin og þá fátt nærtækara en nýja islenska djassplatan önnur djassbreiöskifa sem gefin er út með islenskum djassi. JAZZ- VAKA (Jazzvakning 002), en þar blása Viðar Alfreösson og Rúnar Georgsson, Guðmundur Ingólfs- son er á pianó, nafni hans Stein- grimsson á trommur og svo er það rúsinan i pylsuendanum, bandariski bassaleikarinn Bob Magnusson. Ef geggjarinn er búinn að ná sér i plötuna sem ekki er óliklegt er um margt aö velja. Þeir sem vilja söng og sveiflu fá Ellington söngbókina með meistarasöng- konunni Söru Vaughan (Pablo 2312 116). Þeir sem vilja halda sig innan módernsveiflunnar en kanna samt nýja stigu fá nýju Arthur Blythe skifuna: Blythe Spirith (CBS 85194), þeir sem vilja stiga skrefi framar en sleppa ekki hendi af heföinni al- gjörlega velja sér oktettplötu David Murray: Ming (Black Saint 0045) Þeir sem eru á kafi i rafmagninu fá auövitað nýju plötu meistara Miles Davis sem lesendur down beat völdu plötu ársins: The Man With The Horn (CBS 84708) Þeir sem eru dálitið poppaðir en vilja samt rafmagns- sveiflu fúlsa ekki við nýju Pastorius plötunni með Toot Thileman: World of Mouth (WB 56 897) og svo má alltaf fá klassisk verk einsog Roy Eldridge blásturinn á Montreux 1977 þarsem Peterson Niels-Henning og Bobby Durham leika með honum (Pablo 2308 203) eða Ben Webster i góðum félags- skap á Coleman Hawking, Roy Eldridge o.fl. á B.W. Associates (Verna 2304 221) Aö lokum Mihetna skifuna sem undirritaður hefði kosið sem djassskifu ársins hefði einhver spurthann: Thin Can Alley (ECM 1-1189) með Special Edition trommumeistarans Jack DeJohnette þarsem Chico Free- • man er á tenorinn, John Purchel á barrýtóninn og Peter Warren á bassa. —VL

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.