Helgarpósturinn - 18.12.1981, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 18.12.1981, Qupperneq 14
38 Samkeppni um hönnun jólafrímerkis Frímerkjaútgáfunefnd á vegum Póst- og síma- málastofnunarinnar efnir til hugmyndasamkeppni um „Jólafrímerki 1982“ í samvinnu við F.Í.T., Félag íslenskra auglýsingateiknara. Gert er ráð fyrir tveimur verðgildum með samstæðu þema og er frjálst að skila tillögum að öðru eða báðum. 1 2 3 4 5 6 7 Stærð merkisins skal vera 26x36 mm. * Teikningum skal skilað í minnst fjórfaldri og mest sexfaldri stærð á karton að stærð A4. Teikningarnar skulu gefa sem gleggsta mynd af útliti merkisins. Merkin verða prentuð í allt að 6 lita djúpþrykki („sólprent”). Athygli skal vakin á því að sé negatívt eða hvítt letur látið ganga í gegnum marga liti, skapar það erfiðleika í prentun. Verðgildi merkisins verður þriggja stafa tala. Áletrun: ÍSLAND, Jól 1982. Ritari og trúnaðarmaður keppninnar er * Rafn Júlíusson hjá Pósti og síma við Austur- völl í Reykjavík (póstfang: Pósthólf 270, 121 Reykjavík) (sími 26000) og veitir hann nánari upplýsingar ef óskað er. Tillögum skal skilað fyrir 15. febrúar 1982 til * trúnaðarmanns keppninnar eða í ábyrgðar- póst áður en frestur er útrunninn og gildir þá póststimpill dagsins. Tillögur skulu merktar kjörorði og nafn höfundar og heimilisfang fylgja með í lok- uðu, ógagnsæju umslagi merktu kjörorði eins og tillögur. Dómnefnd stefnir að því að ljúka störfum * fyrir 15. mars 1982 og mun birta niðurstöður sínar fyrir 1. apríl 1982. Efnt verður til sýn- ingar á þeim tillögum sem uppíylla skilyrði keppninnar. Veitt verða þrenn verðlaun að upphæð * kr. 47.500- sem skiptast þannig: 1. verðlaun kr. 25.000 2. verðlaun kr. 15.000 3. verðlaun kr. 7.500 Verðlaunin eru ekki hluti af þóknun teikn- ara fyrir útgefið merki og verða laun að öðru leyti greidd í samræmi við laun fyrir önnur frímerki. Útgáfunefnd áskilur sér rétt til útgáfu á verð- * launuðum tillögum og/eða að kaupa aðrar tillögur til útgáfu en þær sem hljóta verð- laun. Dómnefnd skipa: * Frá Frímerkjaútgáfunefnd: Hálfdan Helgason Jón Skúlason Frá F.Í.T.: Hilmar Sigurðsson Pröstur Magnússon Oddamaður: Jóhannes Jóhannesson Póst- og símamálastofnunin 8. desember 1981 Föstudagur 18. desember 1981-tlslQSrfDOStUnnrL. ís) Líkaböng hringir ' greiöa þegar fé væri fengiö. Svo var send ávisun til Búnaðarbankans á ávisana- reikning skólans. Ég skrifaði ávisanir og sendi til manna og fyrirtækja, og fyrsta daginn hafði ég skrifað út um 20 ávfsan- ir. Næsta dag hringir Þórhallur Tryggva- son, bankastjóri til min rétt í þann mund sem ég var að búa mig til norðurferðar, og sagði mér aö landbúnaöarráðherra hefði hringt i bankann og stöðvaö greiðslur úr reikningi skólans, og bað Þórhall um leið, ef næði til min, að boða mig á sinn fund. Enn brá mér. Ingólfur Jónsson var þykkjuþungur er ég kom á hans fund. Hann kraföi mig um skuldalistann, sem ég hafði greitt eftir. Þar gerði hann athugasemdir sinar, skrifaði plúsa og minusa við skuldareig- endur Hólastaðar með þeim sjálfblekungi sinum myndarlegum, semég siðar kynnt- ist betur og frá hefur verið sagt. Ég gekk út og aftur niður i Búnaðar- banka og ræddi við Þórhall Tryggvason. Við vorum báðir orðlausir af undrun. Ég skrifaði nýjar ávisanir niðurlægður og auömýktur, og einstöku menn höfðu þeg- ar komiö meö ávisanir til bankans, en haföi verið vi'sað frá. Þannig var skóla- stjórinn á Hólum i Hjaltadal gerður ó- merkur með ógildar útgefnar ávisanir. Þetta var afskaplegt áfall fyrir mig, og ég hugsaöi mikið um að segja strax af mér skólastjórninni, skrifa um málið i dagblöð ásamt B.P.-sögunni af Hreini söngvara. Frændur og vinir réðu mér frá þessu. Ég hugsaði mikið um, hver til- gangur hafi veriö með þessu. Mér var orðið ijóst, að það var kominn urgur i gamla flokksfélaga mina, og ég var ekki lengur vel séður. Alls konar sögur og ó- hróður var farinn að berast um mig. Hvorki ráðherrann eða aðrirfyrri félagar minir höfðu áhuga á að kynna sér Hóla- mál, heldur kynntu menn sér stöðu slúðurmála, en sú staöa fór siversnandi fyrir minn hag og mannorð. Þetta kom m.a. fram i þvi, að norðlenzkur þingmaður hafði tekið þvi vel að sitja i nefnd um Hóla, mér til aðstoðar og styrktar. Þegar komið var fram i nóv- ember, hringdi hann i mig og taldi betra fyrirmig að fá iþessa nefnd annan mann i sinn stað. En mest undraðist ég smá- munasemi Ingólfs ráðherra, að fara að skipta sér af þvi, i hvaöa röð ég greiddi mönnum skuldir, án þess að spyrja mig um hvaðég kynni að hafa lofað einstökum aðilum um greiðslur eöa annað um ástæð- urminar.Ég vissi, að Ingólfur hafðiverið ötull kaupfélagsstjóri á Hellu og afskipta- samur um hagi manna og viðskipti ,,með nefið ofan i hvers manns koppi” eins og sagt er, en mér fannst fim mikil, að hann skyldi beita sömu aðferðum við embættis- mennrikisins.þótthannskipaðiþá i störf. Hvað um það, mér var orðið fyllilega ljóst, að ég haföi fengið harðan mótbyr strax þegar komið var fram yfir áramót- in. Vegna óvissunnar um skólahaldið braut ég heilann um ýmsar hugmyndir og sendi mönnum, sem ég þekkti og taldi vera stuðningsmenn og vini hins norðlenzka skóla, og ég lagði mig mjög fram i hinni stjórnskipuðu bændaskólanefnd við að fitja upp á nýmælum og starfsemi, sem hefja mætti skólann til meiri vegs, s.s. að taka upp kennslu i fiskeldi og loðdýra- rækt. öllu var vel tekið, en engum lá neitt á nema mér einum, enda logaði eldurinn heitast á minu skinni. Datsun “ umboðið Vonaríandi viö Sogaveg • Simi 33560 SJÁLFVIRKAR HURÐIR Gluggasmiöjan hefur nú tekið við söluumboði á sjálfvirkum hurðarútbúnaði frá fyrirtækinu besam Opnunarútbúnaðinn má nota á flestar gerðir úti- og inni- hurða t.d. tré og álhurðir. Hægt er að nota mismunandi gerð stjórntækja s.s. radar- geisla, hnappa o.fl. t nútima þjóðfélagi er sjálfvirkur hurðarútbúnaður sjálf- sagður. besam opnunarútbúnaðurinn opnar hurðirnar á réttum tíma og heldur þeim opnum eins lengi og nauðsynlegt er, og lokar þeim aftur á réttu augnabliki. GLUGGASMIÐJAN VEITIR TÆKNILEGA AÐSTOÐ OG SÉR UM VIÐHALDSÞJÓN- USTU Gluggasmiðjan Gissur Símonarson Síöumúla 20 Reykjavík Sími 38220

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.