Helgarpósturinn - 29.01.1982, Qupperneq 3
halrjarpnczfl irinn FBstudagur 29. janúar 1982
ALBERT GUÐMUNDSSON
UMBOÐSMENN
OKKAR VITA ALLT UM
STÆKKUNARTILBOÐIÐ
SEM GILDIR ALLT ÁRIÐ’82
SPURÐUÞÁBARA!
HflNS PETERSEN HF
TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTA KODAK
3
„Bestu ár ævi minnar voru tvi-
mælalaust árin sem ég var at-
vinnuknattspyrnumaöur erlend-
is”, sagöi Albert Guömundsson i
viðtali við Helgarpóstinn, ,,ég
sinnti reyndar ekki einvörðungu
knattspyrnunni á þeim tima. Ég
var lika i viðskiptum þá og i öðr-
um iþróttagreinum”.
Albert kom heim til tslands árið
1956 og hóf þegar mikil afskipti af
félagsmálum auk þess að gerast
umsvifamikill á sviði verslunar.
,,Ég lék fyrst svolitið með Val
og landsliðinu, en siðan tók ég við
knattspyrnumálunum i Hafnar-
firði. Knattspyrnan þar hafði ver-
ið i mikilli lægð, en mér tókst að
byggja þar upp starf, sem hefur
veriö nokkuð blómlegt siðan. Ég
var þrjú ár með Hafnfirðingun-
um”.
Fjölmennur
stuðningsmannahópur
Albert er einn þeirra manna,
sem jafnan verða að vera i sviðs-
ljósi — eða lenda þar fyrir ein-
hverjar sakir — dugnað, frekju,
vinnusemi. Einhvern tima var
eftir honum haft um sjálfan sig,
að á meðan hann var liðsmaður i
frægum knattspyrnuliðum, þá
hafi hann aldrei verið fyrirliði, en
alltaf stjarna liðsins. An efa er
það rétt. Og hvort sem Albert hef-
ur meövitað byggt upp vinsældir
sinarog áhrif eða ekki, þá er vist,
að störf hans i félagasamtökum
hafa myndað óvenjuöflugan
stuðningsmannahóp, sem fáir eða
engir aðrir islenskir stjórnmála-
menn geta skirskotað til. Albert
kvaðst sjálfur enda reikna með að
störf hans á vettvangi íþróttanna
hefðu hjálpað sér mikið.
„Það var mikið skrifað um mig
i blöðin á meðan ég var i knatt-
spyrnunni úti. Þau skrif hafa
sjálfsagt hjálpað. Nú, ég hef
starfað hér sem sendisveinn,
verkamaður, unnið innan iþrótta-
hreyfingarinnar, verið i viðskipt-
um, þannig að það er stór hópur
manna sem er i snertingu við
mig. Ég á marga vini og kunn-
ingja á mörgum sviðum þjóðlifs-
ins.”
Albert fæddist ekki með silfur-
skeið i munninum. Hann ólst upp
hjá efnalítilli konu og hans skóla-
ganga hófst eiginlega ekki fyrr en
hann var kominn út til Skotlands,
en þar gekk hann á verslunar-
skóla. Frá þeim tima hefur póli-
tiskur vilji hans sjálfsagt verið
ráðinn, þó svo hann hafi ekki
dreymt um pólitiskan frama. Við
spurðum hann hvernig á þvi hafi
staðið að hann fór i framboð til
borgarstjórnarkosninga.
„Það voru vinir minir sem
lögðu að mér, þeir Sigfús i Heklu
ogSilli (Sigurliði Þorkelsson). Ég
hafði reyndar verið i og starfað i
Sjálfstæðisflokknum. Jóhann
Hafstein var framboði minu lika
samþykkur, þegar ég bar það
undir hann, þ.e. þegar ég fór i
prófkjör vegna Alþingiskosninga.
Það var 1970 — menn báðu mig
um að takast á við þetta”.
mynd: Jim Smart
ÞREKMIKILLOG
VINNUSAMUR
Það verður vist ekki annað sagt
en að hæfileikar og dugnaður
knattspyrnumannsins hafi nýst
vel, þvi að eftir að þingferill Al-
berts hófst, hafa verkefni hans
verið legio. Hann stundar enn
kaupsýslu, situr bæði i borgar-
stjórn og á Alþingi, sinnir sam-
göngumálum, bankamálum og
félagsmálum og maður skyldi
ætla að hagsmunir gætu nú rekist
á — eða að stundaskrá hvers dags
gangi ekki alltaf upp.
„Nei”, sagði Albert, „það rekst
ekkert á. Ég hef langan vinnudag.
Þarf litinn svefn, sef ekki nema
þrjá til fjóra tima, bý sjálfsagt að
iþróttaþjálfuninni frá þvi i gamla
daga. Og ég er þannig gerður, að
ég þarf að hafa mikið að gera.
Það eru helgarnar og fridagarnir
sem eru einna erfiðastir fyrir
mig”.
Það er sjálfsagt ekki vanþörf á
að hafa líkamsburði, ef á að sinna
öllum þeim félagsstörfum sem
Albert tekur að sér — glaður, að
þvi er virðist. Hann er ekki bara i
nefndum og ráðum fyrir flokk
sinn og kjósendur, þvi hann starf-
ar einnig i öðrum félögum, svo
sem Frimúrarahreyfingunni, var
einn af stofnendum Lions-hreyf-
ingarinnar á tslandi á sinum
r
to
co
tima.tekurþáttistarfi SAA, situr
i stjórn Verslunarráðs og var
reyndar áður varaformaður þess.
Vik af fundií
Hafnarstjórn ef
Hafskip ber á góma
Við spurðum Albert hvort hann
ætti ekki stööugt yfir höfði sér að
vera sakaður um að misnota að-
stöðu sina, t.d. sem stjórnarfor-
maður Hafskipa, sitja i Hafnar-
stjórn og vera jafnframt formaö-
ur bankaráðs Útvegsbankans, en
það er einmitt við Otvegsbankann
sem Hafskip skipta.
„Nei, ég hef aldrei verið sakaö-
ur um að misnota mina aðstöðu.
Það gildir enda sú regla, að komi
einhver slik mál I Hafnarstjórn
þar sem ég kem við sögu (Haf-
skip), þá vik ég af fundi. En það
er aðeins regla, sett til öryggis,
slik mál hafa ekki komið upp”.
Albert var aöeins litill hluthafi i
Hafskip h.f. og hafði aldrei komið
þar nálægt neinu fyrr en hann var
beinlinis þrábeðinn að taka að sér
stjórnarformennsku, þegar fyrir-
tækið stóð höllum fæti. Almælt er
innan fyrirtækisins, að hann hafi
með krafti sinum drifið fyrirtækið
upp með samvinnu sinni við for-
stjórana. Sama saga gildir hvað
Útvegsbankann snertir, þvi aö
þar var hann engum málum
kunnugur i byrjun. Bankinn stóð
þá mjög illa, var nánast á hausn-
um og áhrifamenn tengdir bank-
anum vildu krækja i „krafta-
verkamanninn” Albert, þvi þeir
töldu að hann gæti með frekju
sinni, harðfylgi og pólitiskri að-
stöðu komið málum bankans i
skaplegra horf. Það kom enda i
ljós, að Albert gat sett rikis-
stjórninni tiltekin skilyrði áður en
hann tók við bankaráðsfor-
mennskunni, þ.e. að rikið létti
undir með bankanum.
Veran i borgarstjórn gerði Al-
bert auðvelt fyrir að komast i
Hafnarstjórn, en liklegt verður að
telja að hann hafi haft áhuga á
hafnarmálum vegna tengslanna
við Tollvörugeymsluna. Albert er
einn stofnenda Tollvörugeymsl-
unnar og nú stjórnarformaöur
þar, en Tollvörugeymslan er I
eigu um 500 innflytjenda, einka-
fyrirtæki, sem þó starfar i náinni
samvinnu viö Tollgæslu rikisins.
Umboösmaður fyrir
frönsk vín —
starfar innan SAA
Albert segir sjálfur, aö hann
eigi vini og kunningja viða i þjóð-
lifinu. Það vakti þó athygli, þegar
i ljós kom að þessi málsvari at-
vinnurekendavalsins i landinu
var góður vinur Guðmundar J.
Guðmundssonar, þingmanns Al-
þýðubandalagsins og varafor-
manns Dagsbrúnar. Likast til
hafa þeir félagarnir „fellt hugi
saman” á löngum fundum i Hafn-
arstjórn, en þar á G.J.G. einmitt
sæti fyrir sinn flokk. Og svo hafa
þeir sameinast á þriðja vettvang-
inum, þ.e. innan Samtaka áhuga-
manna um áfengisvandamáliö.
Og enn virðist Albert kominn i
hring — mennhenda gaman að og
segja að þessi vininnflytjandi sé
að gefa fyrir sálu sinni með þvi að
starfa að áfengisvarnarmálum.
„Það flytur enginn umboðs-
maður inn áfengi hér á landi”,
sagði Albert, er við bárum þessi
mál undir hann, „það er ATVR
sem flytur inn. Þau vinumboð
sem ég hef — og sonur minn sér
um — þau hef ég fengiö vegna
vináttutengsla við fólk i Frakk-
landi. Vin er landbúnaðarafurð og
umboðsmaður fyrir frönsk vin
hefur svipað starf og t.d. sá sem
flytur islenskar landbúnaðarvör-
ur inn i önnur lönd. Starf vinum-
boðsaðilans er ekki frábrugðið
öðrum umboðsstörfum að öðru
leyti en þvi, að sá sem hefur vin-
umboð flytur ekki inn — hann
gætir aðeins hagsmuna hins er-
lenda fyrirtækis hér á landi. Ég
sjálfur gæti ekki náð einni flösku
af lagernum hjá
ATVR. Eiginlega g>
"N
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
skattframtala 1982 er
Síðasti skiladagur fyrir einstaklinga með
sjálfstæðan atvinnureksturer lö.mars.
L
Ríkisskattstjóri