Helgarpósturinn - 26.02.1982, Blaðsíða 6
6
Föstudagur 26. febrúar 1982
helgarpásturinn-
Liðin eru átta ár frá því viðburðaríka tímabili í ævi dollaraprins-
essunnar Patty Hearst er henni var rænt og hún gerðist sjálf banka-
ræningi. Nýlega kom út bók í Bandaríkjunum þar sem Patty lýsir
nitján mánaða langri dvöl sinni meðal //ræningja'7.
Það vakir greinilega fyrir Patty Hearst að sýna fram á sakleysi sitt
með þessari bók. Þar sem margt vill gleymast á sjö árum skulu við-
burðir rif jaðir upp i grófum dráttum
Hinn 4. febrúar 1974 var
Patriciu, 19 ára dóttur blaða-
kóngsins Randolphs A. Hearst,
rænt úr íbúð sem hún bjó í ásamt
unnusta sínum. Ræningjarnir
voru átta, sjö hvítir piltar af mið-
stétt og svertinginn Donald De-
Freeze, fyrrverandi fangi, en
hann var f yrirliði þessara þokka-
pilta. Donald þessi kallaði sig
Cinque Mtume yfirmarskálk.
Áriðáður hafði þessi bófajlokkur
1 myrt Marcus Foster, skólaum-
I sjónarmann i Oakland.
Ræningjarnir geymdu Patty í
I skáp í tæpa tvo mánuði. Kröfur
I sínar lásu þeir inn á segulband en
I þær voru einkum f óignar í því að
fátæklingum í Kaliforniu yrði
& gefið að éta. Þegar Patty hafði
1 verið haldið fanginni' í 57 daga
I kom yfirlýsing frá henni þess
1 efnis að hún væri gengin til liðs
við ræningjana.
Viku síðarvoru teknar myndir
af henni, vopnaðri vélbyssu, þar
sem hún aðstoðaði f élaga sína við
bankarán í San Francisco.
Mánuði síðar hjálpaði hún
tveimur félaganna, Emily og Bill
Immmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Harris, sem höf ðu verið staðin að
verki við búðarhnupl, að flýja
með þvf að skjóta af vélbyssu
sinni.
Daginn eftir felldi lögreglan
hina félagana sex í húsi nokkru
þar sem klíkan duldist.
Næstu sextán mánuði voru
Patty og Harrishjónin stöðugt á
flótta. Margir hjálpuðu þeim á
undanhaldinu. En 18. september
1975 náðust þau loks öll þrjú.
Patricia var fundin sek um
bankarán. Er hún hafði setið í
fangelsi í tæp tvö ár lét Carter
forseti milda dóminn yfir henni.
Nú er Patty gift fyrrum lífverði
sínum og þau búa i Kaliforníu
ásamt ungu barni sínu.
Bók Patty Hearst, ,,Sérhvert
leyndarmál" (Every Secret
Thing), greinir f rá ýmsu því sem
gerðist þessa nítján mánuði. Hún
ber félögum sínum, lífs og
liðnum, misjafnlega vel söguna.
DeFreeze var vínhneigður mont-
hani. Harris-hjónin voru ráðrík
og þrasgjörn eða eins og
Patty segir: ,,Of beldishneigð,
grimmlynd, mislynd og ódug-
leg".
Þarna segir líka frá mörgum
sprengiárásum, sem Patty tók
þátt í, auk tveggja bankarána. í
öðru þeirra var kona myrt. Patty
segirað Emily Harris hafi skotið
hana. Patty bauðst til að vitna í
því máli ef það mætti verða til að
milda dóm hennar en til þess kom
ekki. Harris-hjónin, sem sitja enn
inni, haf a ekki verið ákærð vegna
þessa bankaráns.
Patty Hearst heldur því fram
að hún hafi gengið til liðs við
ræningjana og tekið þátt í banka-
ráninu til þess eins að bjarga lífi
sínu þar eð hún óttaðist alríkis-
lögregluna enn mej.r en félaga
sína. Meðan á flótta hennar stóð
með Harris-hjónunum var hún
þess fullviss að ekki þýddi að
gefa sig fram við lögregluna:
hún yrði bara skotin.
Patty verður víða tvísaga í
bók sinni. Á einum stað segir hún
að hún hafi trúað þeirri full-
yrðingu félaganna að betra væri
að deyja en nást. Fáeinum blað-
síðum aftar segir hún að það haf i
verið lífslöngunin ein sem réð
gerðum hennar. Á einum stað
kveðst hún hafa sagt skilið við
fortíð sína og félagarnir séu allt
sem máli skipti. Á öðrum stað
lýsir hún ótta sínum við að bók,
sem félagarnir hefðu í smíðum,
kæmi henni og f jölskyldu hennar
í bobba. Patty lýsir andúð sinni á
ofbeldi en annars staðar segir
hún frá því með nokkru stærilæti
að hún hafi verið sú eina í
hópnum sem nokkru sinni skaut
af vélbyssu.
Eftir handtökuna komu Patty,
verjendur hennar og sál-
fræðingar sér saman um að
halda fast við þá staðhæfingu að
hún hefði verið heilaþvegin í
þeirri von að þetta mildaði dóm-
inn yfir henni og þessu heldur
hún enn fram.
Ætlun Patty með bókinni er
sennilega sú að fólk sýni henni
skilning og fyrirgef i henni. Erfitt
hlýtur að sýna henni skilning þvi
hún virðist ekkert skilja sjálf.
Enn erfiðara hlýtur mörgum að
verða að fyrirgefa henni. í upp-
hafi var henni rænt en hún
gerðist byssubófi af fúsum vilja
og olli f jölda fólks mikium sárs-
auka, m.a. fjölskyldu sinni, og
hún átti sinn þátt í dauða að
minnsta kosti einnar manneskju.
Ýmsa glæpi er að nokkru leyti
unnt að afsaka, svo sem lélegt
uppeldi, erfiða lífsbaráttu og
ótta. Ef Patty Hearst er lýst
óábyrg gerða sinna má alveg eins I
sleppa flestöllum sakamönnum I
lausum og loka fangelsum.
Mörgum finnst víst sem Patty
haf i þjáðst nóg og eigi að lifa líf i
sínu i kyrrþey. En með bók sinni
hefur hún beint athyglinni að sér
að nýju og bent óvart á að
mörgum spurningum er enn'
ósvarað. En það var víst ekki
ætlun hennar.