Helgarpósturinn - 26.02.1982, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 26.02.1982, Blaðsíða 13
helgarpósturinn Föstudag ur 26. febrúar 1982 MAÐURINN A BAK VIÐ NAFNIÐ: Eiríkur Jónsson, höfundur innar „Rætur ísiandsklukkunnarM ÉG GERI MÉR ÞETTA TIL GAMANS Eirlkur Jónsson kennari, sá er hvað lengst og grennst hefur kannað tslandsklukku Halldórs Laxness og hefur nií gefið lít bók- ina „Rætur tslandsklukkunnar’,’ er,,maðurinn á bak við nafnið” að þessu sinni. Við hittum Eirik að máii og báðum hann segja okkur af sjálfum sér. „Ég fæddist i Dölum vestur, að Kvennabrekku, sama bæ og Arni Magnússon. Árni fæddist þar driö 1663, en ég 1920. Við erum meira að segja báðir prestssynir þaðan. Ég er annars ekki alinn upp þar nema að Btlu leyti. Frá sjö ára aldri ólstég upp iHrútafirðinum. Ég hafði frá byrjun mestan áhuga á stærðfræði, sem ég álít að sé ein grein fagurfræði og al- gjörlega húmanistisk grein.Það er hægt að leysa dæmi fallega. Margir halda, að þeir sem hafi gaman af stærðfræði, hafi ekki gaman af neinu öðru, en það er mikill misskilningur. Kannski eru þannig menn til, þeir sem aðeins hafa áhuga á einum hlut, en þeir eru ekki frekar i stærðfræði en öðrum greinum. Ég varðstúdent 1942 og var siðán við verkfræðinám og fór síðan að kenna. Á þessum árum, stríðsárunum, var ekki eins auð- velt að komast i framhaldsnám og nú er. Ég kenndi átta ár við Menntaskólann á Laugavatni og frá 1959 við Kennarasköla íslands”. Þessar rannsóknir sem þú hefur gert á rótum Islandsklukk- unnar — flokkast þær ekkifremur undir sagnfræði en bókmennta- fræði. ,,Það má kannski segja það hvað varðar Islandsklukkuna. En skáldverk tekur oft mið af sagn- fræðinni. Og það vill nú svo til, að ég hef alltaf haft gaman af sagn- fræði. Skáldverk hefurþað aftur á móti fram yfir sagnfræðina, að það er heimur, sérstakur heimur, sem sagnfræðin getur ekki PENNALIPRIR SKAGAMENN Á Akranesi er starfandi penna- vinaklúbbur sem hefur tekið að sér það hlutverk aö aðstoða fólk við að finna sér pennavini bæði hér innanlands og utan. Nafn klúbbsins er „Pennavina- pósturinn” og var hann stofnaður þ. 10. nóvember 1981 og er þvl alveg nýrafnálinni en pennavina- klúbbar eru ekki óþekkt fyrir- bæri, þeir finnast I flestum löndum heims og gegna þeir allir sama hlutverkinu; að útvega pennavini vlða um heim fyrir landa sina og útlendinga. „Pennavinapósturinn” hefur verið kynntur vlða um heiminn og hefur fjöldi fyrirspurna borist undanfarnar vikur frá fólki á öllum aldri úr öllum stéttum af báðum kynjum viða að úr heim- inum með margvisleg áhugamái, sem langar að skrifast á viö Islendinga og eru Danir þar fjöl- mennastir. Ollum Islendingum er þetta að kostnaðarlausu að ööru leyti en þvi, aö sé óskað eftir pennavinum hér innanlands þarf fólk að senda frimerkt aukaumslag með bréfinu. Aldurstakmörk eru engin hér innanlands, en fyrir er- lenda pennavini er lágmarks- aldur 12 ár. Stefnt er að þvi að öll sambönd gangi sem fljótast fyrir sig, og verða öll bréf sem „Pennavina- pósturinn” sendir frá sér til út- landa send i flugpósti. Ekki verða gefnar upplýsingar um hvern ein- stakan meðlim þar sem það er trúnaðarmál. Hafi fólk áhuga á að eignast pennavini óskar „Pennavinapósturinn” eftir að fram komi aldur, helstu áhuga- mál o.fl.,óski fólk þess að taka eitthvað fram, og að sjálfsögðu nafn og heimilisfang, sem senda má svo til: Pennavinapósturinn, Box 88, 300 Akranes. Visa Penna- vinapóstsins er: „Ekki má það sýnast / siður má það týnast / bögglast ei né brjótast / berist það sem fljótast”. skapað. Kannski má segja það um sagnfræðina, að hún sé sam- spil milli ímyndunarafls og rök- fræði. Þetta meö hinn sérstaka heim skáldverks — að minu mati á það einkar vel við verk Halldórs Lax- ness. Mér finnst eiginlega auka- atriði að hugsa um mörg verka hans sem bækur, þau eru miklu frekar sérstakur sjálfstæöur heimur. Þegar ég las Islandsklukkuna, svo dæmi sé tekiö, þá las ég bókina nokkrum sinnum, þangað til ég var viss á öllum efnis- atriðum.Siðan las ég bókina með tiliiti til hverrar persónu fyrir sig og athugaöi viöbrögð þeirra hver við annarri. Slðan las ég bókina enn og þá fyrst fannst mér hún góð. Ég lft annars ekki á mig sem fræðimann. Ég geri mér þetta til gamans.” —GG HVERER------- ■CRUf FfíACTA IFESTINOIK DAfi? Verötryggö spariskírteini ríkissjóðs eru tvímæla- laust ein arðbærasta og öruggasta fjárfestingin, sem völ er á í dag. Athygli er vakin á eftirfarandi atriðum: Vextir eru nú 3,5% á ári og jafnir allan lánstím- ann. Skírteini í 1. flokki 1982 verða innleysanleg að þremur árum liðnum, þ.e. frá 1. mars 1985. Á bindi- tíma hefur jafnan verið hægt að selja spariskírteini með skömmum fyrirvara á hinum almenna markaði. Fjárfesting í spariskírteinum er mun fyrirhafnar- og áhyggjuminni en fjárfesting í fasteign og skilar auk þess öruggum arði. Skv. gildandi lögum um tekjuskatt og eignarskatt kemur ekki í neinu tilviki til skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjur af spariskírteinum hjá mönnum utan atvinnurekstrar. Full verðtrygging. Háir vextir og umfram allt örugg fjárfesting. Kynnið ykkur bætt kjör á verðtryggðum spariskírteinum ríkissjóðs og gerið saman- burð við aðra ávöxtunarmöguleika, Útboðslýsingar liggja frammi hjá sölu- aðilum, sem eru bankar, sparisjóðir og nokkrir verðbréfasalar. SEÐLABANKI ÍSLANDS Gisi BBjörrasonl

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.