Helgarpósturinn - 26.02.1982, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 26.02.1982, Blaðsíða 25
healgarpn^fl irinn Föstudagur 26. febrúar 1982 Sellóiðleynirá Svanhildur óskarsdóttir hefur lært á selló I 6 ár. Stuðarinn króaði hana af og dembdi á hana nokkrum laufléttum spurningum. Að temja sér sjálfsaga — Hvað er mikilvægast i sellónáminu? „Maöur þarf aö temja sér ákveöinn sjálfsaga, láta sér þykja gaman aö spilamennsk- unni. Ég held aö fólk ætti ekki aö vera aö læra á hljóöfæri ef þvi leiöist aö spila og æfa sig.” — En geta æfingar ekki verið hundleiðinlegar? „Ja, ef maöur uppsker ekkert af þessum æfingum þá er til litils barist.” 1/2 tima markviss æfing betri en tveggja tima slugs — Veröur maöur aö æfa sig mikiö? „Ég held þaö sé nii einstak- lingsbundið. Þaö fer sjálfsagt eftir þvi hve markvisst þú æfir þig. Hálftima markviss æfing getur veriö betri en tveggja tíma slugs viö hljóðfærið.” — Hvers þarf sérstaklega aö gæta viö æfingar? „Að vera kritiskur á sjálfan sig og að hlusta eftir göllunum held ég að sé grundvallar- atriðið.” Umsjón: Jóhanna Þórhallsdóttir ----------og María Gisladóttir— r Annað hvort eða.... — Er selló notaö eingöngu I klassiskri tónlist? „Nei, nei,selló er notaö bæöi I spunagrúppum og rokkhljóm- sveitum. Þaö er hægt aö gera hvaö sem maður vill meö hljóö- færiö þvi þaö býöur upp á marga möguleika. Þaö hefur oft veriö sagt aö þaö standi manns- röddinni næst.” — Og hvaö er svo framundan hjá þér? „Þaö er um tvennt aö ræöa. Annað hvort held ég áfram og geri hljóöfæraleik aö atvinnu minni eöa þá fer aö starfa viö eitthvaö annaö og spila þá fyrir sjálfa mig i fritimum”, sagði Svanhildur aö lokum og viö þökkum kærlega fyrir spjalliö. Svanhildur óskarsdóttir meö sellóiö ÓSTUR OG SÍMt Enn um diskó og pönk Ileill og sæll Stuöari góöur. Mig hryilti viö þegar ég las um tvær diskófrikur sem skrif- uöu aö svonefndir pönkarar væru ruddalegir og væru aö hræöa saklaust fólk úti á götu. Þaö er örugglega 100% iygi. Þessir Hermann og Jónas eru kannski ágætustu piitar en gera alltof mikiö af þvi aö hugsa sem svo: Guö, hvaö ég er æöislega fallegur eöa, fötin eru alveg frá- bærlega kjúttuö. En þegar er nú veriö aö birta myndir af svona skepnum (afsakiö orötakiö). Hundar geta ábyggilega ekki hlegiö eöa þaö held ég, ég hef átt hund sem hló allavega aldrei. Munurinn á diskói og rokki (pönki) er sá aö maöur þarf aö kosta sig í dansskóla til aö læra almennilega dansa en rokk er bara hopp og skopp (afar frjáls- legt). P.S. Ég hef ekkert á móti diskói en þaö er afar indælt aö geta hoppaö og skoppaö eins og maöur vill. Kær kveöja til Jóhönnu og Mariu, veriöiö svo indælar aö birta þetta bréf, bæ, bæ, Bryn- dis. Halló Bryndis! Takk fyrir bréfiö. Vonandi ert þú búin aö jafna þig af hryll- ingnum... Þaö er best aö benda á að föstudaginn 5. febrúar birti Stuöarinn yfirlýsingu frá Jónasi, þar sem hann svarar bréfum sem eru i svipuöum dúr og þitt. Þar skorar hann lika á pönkara aö koma i viötal — Þú veist kannski um einhvern? Utanáskriftin er: Stuðarinn c/o Helgarpósturinn Siðumula 11 105 Reykjavik Simi: 81866 I Til Clash aðdáenda Eitthvaö misfórst vfst I siöasta pósti Stuöarans svarinu til Svövu um hljóm- sveitina Clash. Viö biöjumst afsökunar á þessari vitleysu og birtum hér leiöréttingu. Terry Crimes trommuleikari spilaöi bara meö á fyrstu plötu Clash en á siöustu fjórum plötum hefur Topper Headon slegiö trommurnar. Já, Clash hefur gefiö út fimm plötur i allt, en ekki fjórar. I upptalningunni féll út platan Black Market. Topper þessi trommuleikari var sá sem spilaði með Nýju sin- fóníuhljómsveitinni i einhverju Tsjækovslq) verki. S.l. ár var Clash á^hljómleikaferðalagi um Bandaríkin og viðar. Nýlega kom út and-kjarnorkuplata þar sem margar hljómsveitir spiluðu inn á, gegn kjarnorku,og meðal annars Clash. Og svo var það þetta um kántrýið. Félagar Clash hafa ekki spilað kántrý- lög sjálfir en hins vegar hafa margar kántrýhljómsveitir tekiö lög Clash og útsett þau i kántrýstil. Viö vonum aö upplýsingarnar komi nú réttar og biðjum svo bara að heilsa. OLL TÆKIN A EINU BRETTI Þú færð hjá okkur öll heimilistækin frá Elektro Helios á einu bretti í glæsilegum litum. Líttu við og rabbaðu við okkur um heimilistækin. Við getum örugglega gefið góð ráð. KÆLIR/FRYSTIR ELDAVÉLAR með kjötmæli, rafdrifnum grillmótor eða blástursofni UPPÞVOTTAVÉLAR Ræddu við okkur um greiðsluskilmála. EF EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTADASTRÆTI 10A - SlMI 16995- Nuhefiirþú efni á aó kaupa rétta stólinn í rétta stólnum situr þú rétt og í réttri hæð við borðið. Þannig þreytist þú síöur. PE 82 er þægilegur stóll framleiddur hérlendis í tveimur útfærslum, fyrir byrjendur (skólafólkið) og þá sem lengra eru komnir í lífinu. PE 82 stóllinn er bólstraður, á hjólum og með gaspumpu. Einnig fáanlegur með örmum og veltusæti. I Og verðið er aðein^ kr. 950/-. — Já, það aettu allir að hafa efni á að eignast slíkan stól. Hver hefur annars efni á að eyðileggja heilsu sína vísvit- andi með rartgri setu? HALLARMÚLA 2 - SÍMI 83211

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.