Helgarpósturinn - 26.02.1982, Side 9

Helgarpósturinn - 26.02.1982, Side 9
9 htaltjarpnerh irinn Föstudagur 26. febrúar 1982 ÚR HEIMI VtSINDANNA Timarit Hins islenska náttúru- fræðifélags „Náttúrufræðingur- inn” varö 50 ára um siðustu ára- mót. Margir lesenda Helgar- póstsins eru sjálfsagf kunnugir Náttúrufræðifélaginu og Náttúrufræðingnum. Hins vegar erekki Ur vegiað nota tækifærið á slikum timamótum menningar- rits að reka áróður fyrir þvi, að fleiri gerist félagar, til fróðleiks og heilsubótar. Félagar eru jafn- framt áskrifendur að timaritinu. En fátt segir af einum. Enn hefurekkertsafnhús verið byggt. 1 grein sinni veltir Sigurður Pétursson þvi fyrir sér, hvort náttúrufræðifélagiö hafi sleppt of fljótt hendinni af safninu. I skýrslu um húsbyggingarmálið frá 1946 segir svo: „Ollum undir- búningi i málinu er nú lokið og uppdrættir hafa verið sam- þykktir”. Háskóli Islands fékk meira að segja happdrættisleyfi sitt framlengt gegn loforði um að smiöshöggiö á skipulagningu náttUrugripasafns árið 1947 og hefur þvi sinnt öörum verkefnum sinum siðan, almenningsfræðslu og eflingu náttúrufræða ilandinu. Ariö 1952 var Náttúrufræðingur- inn gerður aö félagsriti Hins islenska náttúrufræðifélags, en timaritið var þá oröið 20 ára, stofnað 1931 af brautryðj- endunum Guðmundi G. Bárðar- Náttúrufræðingurinn — alþýðlegt fræðirit 50 ára Hið islenska náttúrufræöifélag er kom ið nokkuð til ára sinna og verður 100 ára siðar á þessum áratug. Þegar það var stofnað, var Hið fslenska þjóðvinafélag 15 ára og hafði það félag gefið út timaritið Andvara allt frá stofnun, og almanak. Náttúr- fræðifélagið lét sér nægja að gefa út ársskýrslu, enda var aðaltil- gangur félagsins þá að koma upp náttúrugripasafni á Islandi. Timaritið Náttúrufræðingurinn kom ekki til sögunnar fyrr en löngu siöar og var það raunar gefið út óháð Náttúrufræðifélag- inu fyrstu áratugina. Safnað til safns — án árangurs? Frá þessu og öðru úr sögu Náttúrufræðifélagsins segir dr. Sigurður Pétursson gerla- fræðingur i nýjasta hefti Náttúrufræðingsins. Hann greinir þar einnig frá þvi, að fyrsti for- maður félagsins hafi verið Benedikt Gröndal, en um alda- mótin varð Helgi Pjeturss jarð- fræðingur formaður. Fimm árum siðar tók Bjarni Sæmundsson við og gegndi hann starfinu i hvorki meira né minna en 35 ár. Félagið gaf annaðhvert ár út skýrslu um framgang áhugamáls félagsins, sem var vöxtur og viðgangur náttúrugripasafns eins og áður sagði. Arið 1946þótti ti'mabært að láta til skarar skriöa. Var þá safnið afhent rikinu og fylgdi all- vænlegur byggingasjóður. byggja yfir safnið. En allt var stöðvað. Sigurður: „Náttúru- gripasafnið, þetta óskabarn Hins islenska náttúrufræöifélags, er nær horfið sjónum, faliö i trölla- höndum svo áratugum skiptir”. —Rikið tók við barninu og kyrkti. Nýtisku visindasafn? Hvernig væri nú aö endurvekja hugmynd frumkvöðlanna og allra þeirra ötulu náttúru- fræðinga sem siöar fylgdu og unnu aö stofnun safnsins? Nú mætti hafa ihuga alhliða visinda- safneins og komin eru og veriðer aö reisa viða erlendis, ungum og gömlum til mikillar ánægju og fróðleiks. Þar hafa menn notfært sér nýjustu kennslutækni af miklu hugvititilaöfræða fólk um visindin og þaö sem menn vita best og gleggst um náttúruna. Til dæmis um slikt safn gæti ég nefnt Ontario Science Centre I Toronto i Kanada, sem borgarbúar og ferðamenn flykkjast að i striöum straumum. Vasaútgáfa af sliku safni i Reykjavik yrði lyftistöng kennurum i öllum greinum náttúruvisinda og vinsæll við- komustaður fjölskyldum i vand- ræðum á sunnudögum — jafnvel betri en vörusýning i Laugardals- höll. N áttúrufræðingurinn: alþýðlegt fræðirit Náttúrufræðifélagið lét i grandaleysi rikinu eftir að reka syni jaröfræðingi og Ama Frið- rikssyni fiskifræðingi. I grein Sigurðar Péturssonar er listi yfir ritstjóra Náttúru- fræðingsins og formenn félagsins frá upphafi til þessa dags. Einnig er sagt frá efni ritsins i stórum dráttum. Leyfi ég mér að birta hér tvær málsgreinar, sem gefa til kynna ritstjórn eða stefnu við útgáfu Náttúrufræðingsins: „Litil hætta mun á þvf, að greinar af þessu tagi (þ.e.a.s. greinarnar i Náttúru- fræðingnum) liggi fyrir ofan skilning áhugamanna um náttúrufræði, eins og lesenda Náttúrufræðingsins. Mjög sér- fræðilegar greinar, einkum á sviði eðlisfræði og efnafræði, gætu þó gert það og ættu þá að birtast annars staðar, t.d. i Acta naturalia Islandica. Byrjunarat- riði i náttúrufræöum ættu aftur á móti að vera nægilega kynnt i skólum, útvarpi og sjónvarpi. Er útlit fyrir, að Náttúrufræðingur- inn hafi þegar fundið þarna æskilegan meðalveg. Það skal tekiðfram, að yfirlitsgreinar um einstaka þætti náttúrufræöinnar og heimspekilegar hugleiðingar hafa alltaf verið vinsælar hjá les- endum Náttúrufræðingsins og verða það vafalaust áfram. Heimspekilegar vangaveltur eru islenskri alþýðu mjög að skapi. Um efni Náttúrufræðingsins er óhættaðsegja, aðengin ein grein náttúrufræöinnar hafi oröið þar yfirgnæfandi, og enginn ritstjór- anna hefur sýnt þá tilhneigingu Umsjón: Þór Jakobsson Al.ÞÝOLKGT FKÆHSLURIT I NÁTTÚKl’FR^ÐI. ÚT6EFKXDUH: r.UDM. c. rArdarson og Arni fkiouiksson. Hrykjavik 1931. KFNI: Grýla <m«8 myiul) rllir G. tí. B. — Hrliam rllir (i EU(Mla i aifrtani Hrkla 1111 (4 inyndir) rflir G. KiatalirrBar (nir8 2 myndnm) rflir A. F. TilkyanÍBf: I timarili þrssu vrrCa liiiiar »n>á«rrinar. vi8 al- þý8u h«fl, um ýms rfui i dyrafnrSi, graaafnr8i. jar8frar8i, landa- fr»8i, rBliafrieBi. rfnafrtrBi, sljörnufra8i o« öSruni arrtnuin nállnmfraSinnar. Fái ritiS sirmilrgar viStókur, rr svn til artl- nal, a8 At komi af þvi ininsl 12 arkir á árl, c8a srm svarar I örk á mánufli, n* koslar hvcr örk 50 mira. f hvrrri örk vrr8a fleirl t8a fierri niyndir, rfninu lil skýringnr. Þrlr, snn grrasl vilja faslir kauprndur «8 timaritinu, grla srnt panlnnir ainar III ól- grfrndunna c8a lil úlsölnmannn, cr vcr slBar iminnm lilkynnn hvrrlr rru. Bcykjavlk. 5. frbrúur 1931. Bos Ten«<>r myndavrlin rr snUBuB af 7.E1SS IKON og þrss vrgna full Irygglng fyrir a8 hún rr sú brsln l sinnl ri>8. Box Trngor hrflr 3 lintur, Inrr fjariiegBarliniur (I- mrlrr o« 4-mrtcr). Þrlla cn« kosl- Ir, sein tngin itnnur kassa-mynda- vél hefir. — Box Tcagor * X » em. kotlar aS tlna kr. M.M. Sportvöruhái Reykjivikgr Bankastrati II. (Box 384). 2é/y? VAon Fyrsta tölublað fyrsta árgangs Náttúrufræðingsins sem kom út í Reykjavik 1931. iaa« 0028-0550 Sama blaö fimmtiu og einu ári siðar. að sveigja efnisvalið inn á sina sérgrein. Þrjár höfuðgreinar; grasafræði, dýrafræði og jarð- fræði, hafa að sjálfsögðu orðið meginefni ritsins, en þar fyrir utan hafa birst greinar um hin fjölbreytilegustu efni á sviði raunvisinda, enda fjöldi höfunda oröinn nálægt hálfu þriðja hundraði.” Undanfarin 5 ár hefur Kjartan Thors jarðfræðingur verið rit- stjo’ri, en Helgi Torfason jarð- fræðingur tók nýlega við. A þaö skai bent, aö tfmaritið er fallega úr garði gert. Auk grein- anna koma þar ýmis fróðleiks- korn, ennfremur skýrsla félags- ins um fræðslufundi, feröir á vegum félagsins og öðru hverju birtist félagatal. Þeir sem hafa gaman af mannaveiöum geta t.d. forvitnast um það i siöasta hefti, hverjirhinir 1800félagsmenn eru. Flestir eru búsettir á Islandi, en margir á við og dreif um heims- byggöina frá Tokyo til Moskvu. Sjálfur hef ég verið félagi og áskrifandi siöan 1958 og lengst af á flakki stað úr staö i útlandinu. Tilkynningum minum um breytt heimilisfang, sem hafa aö jafnaði komiö til ritsins annað hvert ár allan þennan tima, hefur verið tekiö með þolinmæði og við- bragðsflýti — þökk sé Stefáni Stefánssyni bóksala, sem hefur gegnt starfi afgreiðslumanns Náttúrufræðingsins af mikilli kostgæfni i þrjá áratugi. Félagið Læt ég nú staðar numiö meö hvatningu til lesenda að ihuga inngöngu i Náttúrufræðifélagið. Formaður félagsins er Kristján Sæmundsson jaröfræöingur og hefur hann ásam t ritstjóm sinni á boðstólum hin girnilegustu ferða- lög á sumrin með fróöum mönnum i fararbroddi, en á vet- uma erind um aðskiljanlegar náttúrur landsins ofan jarðar og neðan. A mánudaginn var, á fundi i félaginu, var t.d. sagtfrá pústum og stunum Heklu undanfarin tvö ár og var frásögnin krydduð lit- rikum skyggnum af gosunum. Hekla gamla og Sigurður Þórar- insson jarðfræöingur lögðust á eitt að sjá um húsfylli, en tveir jarðfræðingar, yngri en þessi tvö, þeir Kari Grönvold og Kristján Sæmundsson, bættu um betur og sögðu nánar frá rannsóknum á gosunum. Bfllinn Þegar ég bjó i New York voru bandariskir vinir mínir iðnir við að minna mig á, að New York væri ekki Amerika. Ég svaraði þeim alltaf á sama hátt „Hvað er New York annað en Amerika?” „Hún hefúr allt til að bera, sem i aug- um útlendinga er dæmigert fyrir Bandarikin: Háhýsi, iðandi mannlif og verslun, stórkostleg söfn, leikhús, konserthallir og blómstr- andi jazz. Hér eru lika blökkuhverfi, kinahverfi, itölsk hverfi og hverfi Puerto Rikana. Eiturlyfja- neysla er hér á háu stigi, glæpir, eymd og fátækt svo ekki sé minnst á hið óhóf- lega ríkidæmi. Hvað eru Bandarikin annað en þetta?” mér var spurn. egar ég hafði farið með þessa þulu og reynt að vera eins sannfærandi og ég gat, brostu vinir minir brosi þess sem betur veit og svöruöu: „Bíddu þangað til þú kemur i suðvestriö, þar muntu sjá við hvaö við eigum.” Ég beit á vör og svaraði dræmt:, ,Hér i New York er að visu fátt um kúreka og indiána en samt...’' „Biddu” endur- tóku þeir og gáfu Iitið út á þetta svar mitt. Þegar ég svo loksins kom tilTucson, Arizona, sem er ihjarta „villta vestursins’’ uppgötvaði ég að i hugum vina minna voru hvorki indiánar né kúrekar tákn Bandarikjanna, heldur Billinn. Þó ótrúlegt megi virðast, þá er að mörgu leyti betra að vera billaus en að eiga bil á Manhattan. Það kostar upp undir hundrað dali á mánuði að leigja stæði, þar sem mað- ur getur talið bilinn örugg- an. Og nærri ómögulegt er að finna almenn bilastæði á eyjunni og hefur margur orðið fyrir þvi óláni að þurfa aö greiða hundruð dala lausnargjald fýrir bil- inn sinn eftir að löggan hafði dregið hann á brott og sett i fangelsi fyrir aö vera lagt ólöglega. Til að forðast þess kon- ar útgjöld og óþægindi kýs meiri hluti New York- búa að notfæra séralmenn- ar samgöngursem eru með mestum ágætum i borginni (þó kannski ekki eins þrifa- legar og vistlegar og á væri kosið). Neðanjarðarlestir, strætisvagnar og tiltölu- lega ódýrir leigubilar eru þar á hverju strái. Nú,svo er skipulag borgarinnar einfalt og bæði gott að ganga og auðvelt að rata um New York. En New York er New York og fáir staðir henni likir. Það uppgötvaði ég fyrst almennilega þegar til Tucson kom. New York er Evrópuborg, byggð af evr- ópskum innflytjendum fyr- ir daga bilabyltingarinnar og úthverfalifsins. Borgir i suðvestrinu urðu hins veg- ar til eftir að „Ameriku- draumurinn” hafði heltek- ið þjóðarsálina: Kjarna- fjölskyldan i einbýlishúsinu með bilinn,eöa öllu heldur bilana,! bilskúrnum. Borgir suðvesturrikj- anna eru ekkiborgiri sama skilningi og Evrópubúar leggja i það orð. Þær eru ein heljar úthverfi — án miðbæja. I þeirra staö koma griðarstórar verslun- armiðstöðvar, umkringdar ain stærri bilastæðum. — Og þangaö kemst enginn nema fuglinn fljúgandi,og bilaeigendur auðvitað. Hann er ófrjáls sá mað- ur, sem ekki á bil hér um slóðir. Minnst tvo klukku- tima og þrjá strætisvagna tekur það hann aö kpmast úr einum bæjarhluta i ann- an. Og Guð hjálpi honum ef hann vogar sér út úr húsi eftir klukkan sex á laugar- dags- og sunnudagskvöld- um. Ef hann á ekki fyrir leigubil, getur hann gjört svo vel að ganga og látið sér vegabrúnina nægja. I riki.bilsins eru gangstéttir jafn sjaldséðar og hvitir hrafnar. Borgir sem þessar fá mann til að efast stórlega um ágæti sköpunarverks- ins. Af hverju setti Skapar- inn ekki undir okkur hjól I stað fóta? Já þvilíkur mun- ur ef svo væri! Þá þyrfti enginnaðbföa tlmum sam- an eftir strætó meðan hálf- tómirkaggarkeyra hjá. Þá þyrfti enginn að óttast bil- slys eða eyða stórfé i við- gerðir, tryggingar og bens- ín. Og þar væri hinn vest- ræni heimur ekki i' vösum arabiskra oliufursta. Ef allir værumeð hjól undir sér væri fyrst hægt að tala um frelsi og jafnrétti i reynd. á gætum við t.d. öll fengiö okkur hamborgara með bilabragði, hjá Mac- Donald,sem matreiddur er út um bilalúguna. Þá sætu bilaeigendur ekki einir aö sopanum, sem seldur er i „bfla’-vínbúðinni. Við gæt- um lika öll látið hreinsa fötinokkari „bila’-hreins- uninni, fengið okkur verkjatöflu i ,,bila”-apó- tekinu, framkallað fjöl- skylduljósmyndirnar i „bila’’. - framköllunarturn- inum, lagt inn og tekiö út aurana okkar i bilabankan- um og sent bréf til vina og ættingja i ,,bila”-póstkass- anum. Og siöast en ekki sist gætum við séð góðan vestra i ,,bila”~bióinu, fengið blessun Drottins I „bila’i-kirkjunni og að lok- um látið jarða okkur i bila- kirkjugaröinum. Að öllu gamni slepptu þá er þvi' ekki þannig farið. Við höfum fætur og borgir, sem byggðar eru i kringum bflinn. Margur maður hér um slóðir á sér fáar óskir heitari en að losna úr viöj- um hans. A undanförnum árum hefur notkun reið- hjóla aukist til muna, eink- um meðal yngri kynslóðar- innar. Viða hefur verið komið upp hjólabrautum meðfram umferðargötum eða um fáfarnar hliðargöt- ur. Sjást þar tiðum hjól- reiðakappar með vigalega hjáhna og bakpoka á leið i skóla eða til vinnu. ó hjól séu bæði hentug og holl farartæki takmark- ast notkun þeirra viö ung- menni, barnlausar fjöl- skyldur, stuttar vegalengd- ir og dagsbirtu. Götulýs- ingareru svoslæmaraö fá- ir hætta sér út á hjóli á kvöldin. Vegna lélegra al- menningssamgangna og sihækkandi bensinverðs kýs fólk i æ rikari mæli að búa nálægt vinnustað sin- um. Það er spá manna að þróunin i bandariskum borgum veröi sú að miö- stéttin, sem nú fyllir út- hverfin, muni smátt og smátt leggja undir sig innri hverfi stórborganna, sem nú eru fátækrahverfi. Hinir efnaminni muni flæmast út i úthverfin og einbýlishús verði hólfuð niður I smá- ibúðir. Og það komi i þeirra hlut að bera byrðar si auk- ins bila- og bensinkostn- aðar.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.