Helgarpósturinn - 26.02.1982, Page 15
Iielgarpásturinn Föstudagur 26.
febrúar 1982
15
Um þetta eru þau hjartanlega
sammála, hjónin, og bæta þvi við
að skip þeirra hafi alls ekki alltaf
siglt með aflann, það hafi alla tið
verið upp og ofan. Þau hafa ekki
siður landað hér heima og selt
aflann ýmis til Bæjarútgeröar-
innar i Hafnarfirði eða fiskverk-
unum i Reykjavik.
Keyptu Ými fyrir hagnað-
inn
Hvaö sem þvi liður gekk iSt-
geröin vel, og fyrir hagnaðinn af
Ráninni keyptu þau skuttogarann
Ými I nóvember 1978. Guðrún
segir hvernig það gerðist.
— Við ætluöum aldrei að kaupa
Ými. Um haustið fórum við til
Aberdeen i þeim tilgangi aö
kaupa systurskip Ránarinnar og
ætluðum að nota bæði skipin til að
toga sömu vörpuna.
En þegar til kom leist okkur
alls ekki á skipiö og vorum búin
aö afskrifa kaupin. Siöan geröist
það, að eftir aö hafa verið i búða-
ferð hitti ég þá Agúst og Þorstein
fyrir utan hóteliö, og þeir til-
kynntu mér, að þeir væru búnir
að kaupa skip. Fyrst I stað tók ég
ekkert mark á þeim, allra sist
þegar þeir bættu þvi við, aö þetta
væri skuttogari. Ég áleit að við
hefðum engin efni á þvi.
En þeim var full alvara og
höfðu komist að samkomulagi um
kaup á þessum litla skuttogara,
sem við eigum enn, og heitir Ým-
ir. Hann hét upphaflega Ben Lui.
Stálskip ráku siöan þessa tvo
skuttogara til vorsins 1980, þegar
gamla Ránin var siöan loksins
seld.
— Okkur fannst timi til kominn
að endurnýja. Ránin var oröin
siðasti siöutogarinn og svolitið
farin að dala. Auk þess var orðiö
erfitt að manna hana, á þessum
árum sáu menn ekkert nema
skuttogara. En Ránin er enn I
fullri notkun. Viö seldum hana Is-
stöðinni i Garöi, og hún er nú not-
uð til aö sigla með afla úr öðrum
skipum, segir Guðrún Lárusdótt-
ir.
En um tima vorið 1980 áttu þau
þrjá togara. Þeim haföi boðist
enskur skuttogari af stærri gerö-
inni , 740 rúmlestir, á sanngjörnu
verði. Það var CS Forester, sem
kom nokkuö við sögu i siðasta
þorskastriöi, og þau slógu til. Þar
meö var nýja Ránin komin til
sögunnar.
Þessi skipakaup urðu nokkuö
eftirminnileg, og það má jafnvel
segja, að þau hafi oröiö pólitisk.
Þegar Ýmir var keyptur var enn i
gangi frilisti, sem þýddi að kaup-
andinn varð að fullnægja • þeim
skilyrðum viöskiptaráðuneytisins
aö greiða helming kaupverðsins
út og afganginn innan árs til að fá
leyfi fyrir kaupunum.
— Það voru flestir ráöherrar
samþykkir kaupunum, nema
Kjartan Jóhannsson, sem þá var
sjávarútvegsráðherra, þveröfugt
við það sem nú er látið I veðri
vaka, segir Agúst, þegar hann
rifjar þá sögu upp.
Seinna var greiðslufresturinn
styttur i þrjá mánuöi, en þar eð
Ýmir var aö fullu greiddur þegar
nýja Ránin var keypt og ekki leit-
að eftir fyrirgreiöslu opinberra
sjóða.var ekki hægt að koma I veg
fyrir þau kaup.
— Liklega hefðum viö ekki
fengið aö kaupa þann togara
hefðu ekki allir pappírar verið
tandurhreinir hjá okkur, bætir
hann viö.
Bar sig ekki
— Við sáum fljótt, aö við höfð-
um tekið of mikið upp i okkur. Út-
gerö nýju Ránarinnar var óhag-
kvæm, jafnvel þótt viö fækkuöum
mannskapnum úr 24 i 19.
Að vera með uppgjör fyrir
þrjár skipshafnir, það var lika
einum of mikið, en ljómandi gott
að gera bara út eitt skip, segir út-
gerðarstjórinn.
En hvernig er þetta hægt?
Hvernig geta hjón suöur i Hafnar-
firði rekið togaraútgerö fyrir eig-
in reikning, þegar aliir aðrir út-
gerðarmenn landsins eru á
hausnum og stynja undan skulda-
byröinni?
— Mergurinn er sá, aö þetta er
skipulagt allt frá upphafi, og við
gerum ráð fyrir hlutunum, segir
eiginmaðurinn og skipatækni-
fræöingurinn.
— Við hefðum getaö þrjóskast
við meö nýju Ránina og hleypt
okkur i skuldir. En hvaða rétt
höfum viö til þess aö reka útgerö
með tapi og láta skattborgara
borga brúsann?
— Samt sem áður mundi skipiö
hlaða á sig skuldunum ef viö ynn-
um ekki hörðum höndum. Við
eyöum heldur ekki tekjunum I
lúxusbila eöa ferðumst til út-
landa. Agúst fær liklega um þaö
bil sendilslaun hérna og ég fæ min
laun mörgum árum eftirá. Það er
alltaf eitthvað sem þarf aö kaupa
til útgerðarinnar áður en maður
borgar sjálfum sér. 1 rauninni lif-
um við á kennaralaunum Agústs,
bætir Guðrún við.
Skýringin er lika fólgin i litilli
yfirbyggingu á fyrirtækinu. Guð-
rún sér um allt skrifstofuhald og
Þorsteinn sér um allt viðhald á
togaranum ásamt Agústi bróöur
sinum og fleirum úr fjölskyld-
unni. Enda sjást þeir varla heima
hjá sér meöan Ýmir er i landi.
Agúst fer um borð eftir kennslu i
Vélskólanum og gerir klárt fyrir
næsta túr. — Þetta er mikil vinna,
og ég er ekki viss um að allir
mundu kæra sig um aö leggja
þetta á sig, segir Guörún.
Engar skuldir
Arangurinn er líka mikill.
Hreint veöbókarvottorö, ekki ein
einasta veðskuld. Einstætt i is-
ienskri útgerð. Enda eru þeir
margir útgerðarmennirnir sem
hafa spurt hvernig þau fara aö
þessu, og lögfræöingarnir sem
hafa beðið um aö fá að sjá þetta
merkilega veðbókarvottorö.
En hvers vegna lögðu þau út i
þetta, og hvað hefur haldiö þeim I
þessu öll þessi ár?
— Við bara álpuöumst út i þetta
með Ránina. Fyrst töluöum viö
um aö gera þennan togara upp og
selja hann. Siðan ákváöum viö að
reyna aö gera hann út, sjá hvort
það væri hægt, og þetta æxlaöist
einhvernveginn svona, er skýring
Guðrúnar á ævintýrinu.
— Okkur finnst skemmtiiegt aö
stunda svona vinnu, vera i sam-
bandi við sjómenn. Viö kynnumst
mörgum og þetta er lifandi og
skemmtilegt starf — og spenn-
andi. Það er alltaf spennandi að
vita hvað mikill fiskur kemur og
hvernig selst.
Ekki verri skýring en hver önn-
ur! En hvernig gengur svo út-
gerðin núna, þegar sjávarútveg-
urinn er sagöur á hausnum sem
aldrei fyrr?
— Við erum ekki búin að gera
upp siöasta ár, svo við vitum þaö
ekki alveg. En þaö er ljóst, aö
þetta hefur aldrei verið verra en i
fyrra, miklar veiöitakmarkanir
og kostnaður hefur hækkað gifur-
lega, auk þess höfum við verið
óheppin bæöi meö veiði og sölu.
En þetta er að glæðast aftur núna.
Bjartsýnisorö. En miöað við
það sem á undan er gengið er ekki
ástæða til annars en taka þau góö
og gild.
Fiölbætt biónusta
fyrir big og bitt fólk
Safnlán
Þú safnar — við lánum. Það er málið.
Launalán
Reglubundin viðskipti — bókað lán.
Aferðtrvgffi innlán
Varanleg vörn gegn verðbólgu.
Fjármálaleg
Fyrirhyggja er forsenda fjárhagslegs öryggis.
Líttu inn og fáðu nánari upplýsingar og bœklinga
um pað sem Verzlunarbankinn býður uppá.
Við höfum reynsluna.
ifæzuui'iaíiíiíii-im)