Helgarpósturinn - 02.04.1982, Side 16
16
Föstudagur 2. apríl 1982 Jie/garpásfurinn
Eyjaskinna heitir rit Sögu-
félags Vestmannaeyja, sem
kom út nýlega. Meðal efnis i
ritinu er grein eftir Margréti
Hermannsdóttur fornleifa-
fræðing, þar sem hún gerir
grein fyrir fornleifarannsókn-
um i Herjólfsdal, sem hún hefur
haft yfirumsjón með. Helgar-
pósturinn hitti Margréti að
máli og var hún fyrst spurð að
þvi, hvenær þessar rannsóknir
hennar hófust.
„Rannsóknirnar byrjuðu sumarið 1971.
Þeir, sem áttu frumkvæðið að þeim.voru
Stefán Arnason.lögregluþjónn og félagi i
Rótarýklúbb Vestmannaeyja, og fieiri
innan þess félagsskapar. Þeir voru búnir að
biða eftir þvi i nokkur ár, að byrjað yrði að
grafa upp i Herjólfsdal, en ekki voru allir
sammála um elstu byggð á eyjunni. 1 dag
er tómt mál að tala um það, þvi hraunið er
komið yfir austurhluta eyjunnar, sem var
frjósamasti hluti hennar. Sumir héldu
fram, aö elsta byggðin væri á austurhluta
eyjunnar, en aðrir, eins og Stefán, að hún
væri inni i Herjólfsdal. Og auðvitað átti
maöur aö koma þarna til að grafa upp land-
námsmanninn Herjólf.
Það var unnið sumrin 1971 og 72, en svo
kom gosiö og það var ekkert hægt að gera
aftur fyrr en 1977. Þaö var allt á kafi I vikri
og dalurinn var mjög viðkvæmur. Það
mátti engu raska vegna gróðursins.”
— Hvernig standa þessar rannsóknir i
dag?
Rætt við Margréti Hermannsdóttur
fornleifafræðing um rannsóknir
hennar í Vestmannaeyjum, og fleira
„Hér hefur verid stunduö eins
konar höfðingjafornleifafræði
„Þær eru komnar það langt núna, að úti-
vinnunni er lokið. Það er verið að vinna úr
hlutum, sem jarðfræðingar hafa með aö
gera, i sambandi við timasetninguna, en
mikiö af úrvinnslunni er eftir. Það er hægt
að leika sér endalaust að þvi efni, sem
maöur hefur i höndunum. Þaö, sem ég hef
mestanáhuga áaðgera.erað vinna þetta á
annan hátt en venjulega er gert hérna.
Eftir að hafa fengið niöurstöður frá jarö-
fræðingum.m.a. um gróðurfar og hugsan-
lega um hvort fólk hafi ræktað eitthvað,
langar mig t.d. til að vita hve margir hafi
hugsanlega búið á eyjunni, þvi mig grunar,
að þaðhafi verið fleiri bæir en þessi eini, og
hvernig afkoman hafi verið, á hverju fólkið
hafi lifað.”
Eldri en Ingólfur
— Að hvaða niðurstöðum hafiö þið kom-
ist, miöað viö, að úrvinnslu er enn ekki lok-
iö?
„Það, sem búið er að grafa upp, er byggð
norrænna manna, sem er frá a.m.k. fyrri
hluta 9. aldar, einhvern tima á bilinu 800 til
850, og fram á 10. öldina. Það virðist sem
byggðin leggist af seint á 10. öld vegna upp-
blásturs.
Við vitum nokkurn veginn á hverju fókið
hefur lifað. Þetta hafa verið búfjárbændur,
en einnig hafa þeir nýtt sér mikið fuglinn og
fiskinn, og sennilega hafa þeir ræktað korn.
Það hafa verið góðar aðstæöur til þess.
Þá hefur hugsanlega verið eldri byggð á
Heimaey, en þaði á eftir að vinna frekar úr
þvi.”
— Hvað vitið þið um þá byggð?
„Þetta timatal miðast við ösku frá tveim
gosum, landnámsgjóskuna og ösku úr gosi i
Eidgjá árið 936, eða þar um bil. Aðrar
náttúrufræðirannsóknir, frjógreining,
benda til þess, að löngu áður en þessi land-
námsaska fellur, verði einhver gróðurfars-
breyting á eyjunni. Ennþá er ekki hægt að
finna aðrar skýringar en þær, að það sé
vegna sauöfjár. Þaðgetur varla hafa komið
af sjálfsdáðum; það hlýtur að hafa komið
með einhverju fólki. Þetta þurfa ekki endi-
lega að hafa verið norrænir menn.”
Enginn heilagur sannleikur
— Þessar rannsóknir ykkar benda til
þess, að i Vestmannaeyjum hafi verið
byggð norrænna manna fyrir 874, sem er
hið opinbera ártal landnáms Isiands, en er
loku fyrir það skotið, aö það hafi verið aðrir
uppi á landi?
„Nei, nei, alls ekki. Þorleifur Einarsson
gerði frjógreiningu fyrir 17-18 árum i
Grimsnesi, minnir mig, og þar sér hann
leifar af byggð undir landnámsgjóskunni. t
rauninni væri hægt að gera margt
skemmtilegt með fornleifafræðinni i sam-
vinnu við jarðfræðina, sem hefur verið
mjög litið gert hérna.”
— Hverju breytir þessi niðurstaða ykkar
um viðtekna skoðun á landnámi tslands?
Er þetta einhver bylting i þvi sambandi?
„Ef við komumst að þvi, að þaö sé miklu
eldri byggð á eyjunni, yrði að fylgja þvi
eftir á fasta landinu. En ef við miðum bara
viö norrænu byggðina, þá er þetta enginn
stórkostlegur timamismunur. Samt sem
áður segir það manni, aö þessar heimildir,
sem viö eigum, eru enginn heilagur sann-
leikúr. Fornleifafræðin er ekki grein, sem
hefur það markmið að sanna aö islenskar
fornbókmenntir séu réttar. Hún vinnur eftir
sinum eigin leiðum. Ef niöurstöðurnar
passa við sögulegar heimildir, þá það. Og
það er ágætt ef slikt gerist. Mér finnst and-
inn hafa verið sá hér, i sambandi viö forn-
leifarannsóknir og uppgrefti, aö allt sé
fyrirfram ákveðiö. Þú veist, að þú ert að
fara á sögufrægan stað, og það er talið, að
hann sé svo og svo gamall út frá Land-
námu, eða einhverri annarri heimild, og
siðan eru allar niðurstöður sveigðar að
þessum tima. 1 Vestmannaeyjauppgreftr-
inum sér maður ýmislegt, sem sýnir
manni, að alls konar timasetningar á öðr-
um uppgröftum eru vafasamar.”
Að toga og teygja
— Að þessir menn hafi þá ekki áhuga á
þvi að vinna strangvisindalega eftir sinni
fræðigrein?
„Menn lita, og hafa litið á fornleifafræði
sem sagnfræðilega grein, sem ég tel, að hún
sé ekki. Niðurstöður fornleifafræðinnar
koma alltaf til með aö varpa ljósi á söguna,
en hún er enginn angi af sagnfræði. Hún er
sjálfstæð grein, sem nýtir sér æ meir svo-
kallaöar raunvisindaaðferðir, og mér finnst
Vestmannaeyjarannsóknirnar sýna, að
fornleifafræðin gerir það. Ef ég hefði verið
fyrirfram ákveðin að trúa öllu, sem i
Landnámu stæði.hefði ég ósköp vel getaö
aðlagaðniðurstöðurnar að þessum heimild-
um, eins og staðan var 1972. Það er alveg
sama i hvaða visindagrein það er,- þú getur
alltaf með góðum vilja komist að einhverri
ákveðinni niöurstöðu. 1 sambandi við Vest-
mannaeyjar, þá hafði maður engar fyrir-
fram ákveðnar hugmyndir um hvort þetta
væri bær Herjólfs eða eldri eða yngri bær.
Maður vissi ekki hvað maður var að fara út
i. Og i rauninni á maður ekki að hugsa
þannig, þegar maður vinnursin verk. Það á
að ganga að verkinu og reyna að vinna það
sem best. Það vantar á, að Þjóðminjasafnið
og menntamálaráðuneytið og valdhafar al-
mennt ýti undir það, að fornleifafræðin fái
að þróast sem sjálfstæð grein á Islandi. Við
erum eina þjóðin á Norðurlöndunum, sem
stundar i rauninni engar skipulegar forn-
leifarannsóknir.
eftir
Guðlaug Bergmundsson
Þetta er yfirlitsmynd af uppgreftrinum, eins og hann leit út I septernber siðastliðnum.
Ljósm. Sigurgeir Jónasson.
Það sem þyrfti að gera, væri að skrá
minjar i landinu og vinna að þessu kerfis-
bundið. Ekki bara hlaupa eftir einhverjum
sögufrægum stöðum, heldur hafa meiri
vidd i þessum rannsóknum og athuga
hvernig fólk almennt bjó. Það voru ekki all-
ir höfðingjar og bjuggu á Stöng eða Berg-
þórshvoli. Það voru ýmsir aðrir staðir, sem
segjamannisistminna um afkomu fólksins
og söguna. Irauninni er það einhvers konar
höfðingjafornleifafræöi, sem hefur verið
stunduð hér.”
Ahugaleysi á
Þjóðminjasafni
— Hefur Þjóðminjasafnið eitthvað komið
inn i þessar rannsóknir i Vestmannaeyj-
um?
„1 upphafi höfðu þessir menn úti i Eyjum
samband við Þjóðminjasafnið, þvi það þarf
leyfi þjóðminjavarðar til að hefja fornleifa-
rannsóknir. Það má segja, að boðin hafi
farið i gegnum þjóðminjavörð, en þar með
upp talið. Hann sinnti þvi ekkert frekar og
sýndi þessum rannsóknum engan sérstak-
an áhuga.”
— Af hverju heldurðu, að þjóðminja-
vörður hafi ekki haft meiri áhuga á þessu?
„Þetta er ekki eini uppgröfturinn, sem
hann hefur haft litinn áhuga á. Þeir eru
fleiri, eins og uppgröfturinn á gamla þing-
staðnum i Kópavogi. Þar er það Kópavogs-
bær, sem kostar rannsóknirnar, alveg eins
og að i Eyjum var það Vestmannaeyjabær
að mestu leyti.”
— Að lokum, hvert verður framhaldið á
þessum Vestmannaeyjarannsóknum?
„Það fer náttúrlega eftir peningum, eins
og allt annað. Ég ætla út til Noröurland-
anna og vinna i samvinnu við deildir þar,
sem eru að f jalla um samskonar rannsókn-
ir, um afkomuna almennt og hvernig fólki
tekst til, þegar það kemur á nýjan stað,
hvernig það bjargar sér i nýju umhverfi.
Þetta fjallar i raun um fyrstu byggð eða
landnám og á Norðurlöndunum eru að fara
af stað rannsóknirá þessumhlutum.Þó svo
þeir séu á allt öðrum tima, alveg aftur i
steinöld, er sömu aðferðum beitt. Það væri
hægt að spinna endalaust i kringum þetta,
bara út frá Vestmannaeyjaefninu. Ef það
stenst, sem maður heldur um aldurinn á
þessum bæjarleifum, og eins aldurinn á
eldri byggðinni, þyrfti að fylgja þessu eftir
oghalda rannsóknum áfrarh uppi á landi.”
— Hefurðu góða von um að fá peninga?
„Er ekki um að gera að vera bjartsýnn?”
mynd: Jim Smart