Helgarpósturinn - 08.04.1982, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 08.04.1982, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 8. aprM 1982 hollJPtrpn^tl ihnD Þeyr, Jaz, straumar og hulin öfl: Bráðdrepandi brandari Það er alveg á mörkunum að liðsmenn hljómsveitarinnar ÞEYR viti hvað snýr upp og niður þessa dagana. Það eru raunar liðnar liðlega fimm vikur siðan þeir voru með allt sitt á hreinu, eins og sagt er, þvi þá kom til landsins frá Englandi 22 ára gamall ensk/indverskur hljóðfæraleikari, Jaz Coleman. Fram að þeim tima var Jaz liðsmaður bresku nýbylgjusveitarinnar THE KILLING JOKE, sem notið hefur talsverðrar hylli I heimalandi sinu og fleiri Evrópulöndum. Hann segist hafa i hyggju að setjast hér að. Hann á von á öðrum félaga sinum úr Kill- ing Joke, Geordie nokkrum, hingaðá næstunni og þeir tveir, ásamt tveimur félögum úr Þey, hyggjast stofna nýja hljómsveit á grunni manndrápsbrandarans. Aðrir menn i Þey kunna ekki allir að meta þetta framtak Colemans. Þeim þykir hann átókratiskur, hann vilji ráða öllu eins og nýlenduherra. Er nú alveg óljóst hvað verður ofan á innan hljómsveitarinnar: verður haldið áfram eins og áður, springur hljómsveitin út af hingaðkomu Englendingsins — eða fer hann heim á næstu dögum eða vikum og tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið? Sjálfur segist Jaz Coleman aldrei ætla aftur til Englands. Þar vilji hann ekki vera. A kafi í dulspeki? Hijómsveitin ÞEYR hefur veriö hátt skrifuð I Islenska músikbransanum nánast allt frá þvi að sveitin fór fyrst að koma fram fyrir hálfu öðru ári. Þeir voru I flokki ný- bylgjusveitanna og skáru sig fljótt úr fyrir hugmyndaauögi og fagmannlega spila- mennsku. Þeir hafa til þessa sent frá sér fjórar plötur, stórar og litlar, og ef til vill var það táknrænt nafnið á fyrstu plötunni: Þagað í hel — þvi galli kom fram i pressuðu upp- lagi og mestallt var innkallaö. Þeyr varð þvi „neöanjaröarhljómsveit” mjög fljótlega. Hljómsveitin rekur sitt eigiö plötufyrirtæki, Eskvimó, með öðrum, fjölskyldubönd eru nokkur i sveitinni og kringum hana. Hljómsveitin byrjaði sem órafmagnaður hópur, sem ætlaði að gera eina plötu fyrir SG-hljómplötur. Platan tók hátt I ár i vinnslu og hafði á þeim tima breytt Þey I rafmagnaða rokkhljómsveit. Siöan hefur músík þeirra tekið nokkrum breytingum, sem tóku mjög ákveðna stefnu með plötunni MJÖTVIÐUR MÆR er út kom fyrir siðustu jól —og var m.a. valin plata ársins ’81 af plötuskribentum þessa blaös. Það orð hefur farið af hljómsveitinni hér að liðsmenn hennar séu „allir á kafi I dul- speki” og fornum fræðum. t textum þeirra má lesa um trú á hulin öfl, krafta náttúr- unnar og jafnvel mystik. Þeir félagar halda sig nokk I þröngum hópi og það hefur aldrei verið vel liðið i islenska músikbransanum. (Þaö er kannski Þeyr, sem geymir utan- garðsmennina i islenskri rokkmúsik.) Og það er Hklega i gegnum hugmyndafræði og utangarðsmennsku. að góður kunningsskapur tókst með þeim og Jaz Coleman og félaga hans Geordie þegar þeir birtust á Islandi einn góðan veðurdag i fyrravor til að leita að orkuuppsprettum i Islenskri náttúru — t.d. I Snæfellsjökli. Svartigaldur? Með Hilmar örn Hilmarsson, textahöfund og einn af stofnendum Eskvimó, I broddi fylkingar hafa Þeysararnir kynnt sér fræði dulfræðingsins breska, Alistair Crowley, sem sumir kenna við svartagaldur. Það hefur Jaz Coleman lika gert og einkum til- einkaö sér einn hluta kenninga hans: Do What Thou Wilt. Með örlitlum útúrsnúningi má láta þetta hljóða svo: Do As You Like — og innanbúðarmenn i Þey telja þá einmitt vera útkomuna hjá Jaz Coleman. Það sé býsna útþynnt túlkun á orðum gamla mannsins. Engu að siður er þaö fyrst og fremst á þessu sviöi, sem tengsl tókust með liðsmönnum Killing Joke og Þeys. Þeir fóru saman að Snæfellsjökli I fyrrasumar, þvi Jaz kom aftur þegar liða tók á sumarið, og músikin fór að renna I svipuðum farvegi hjá hljómlistarmönnunum.t vetur hefur Jaz verið önnum kafinn i Bretlandi, nýjar plötur að koma út með Killing Joke og hljómleikaferð um Evrópu i undirbúningi. Svo var það eitt kvöld i febrúar þegar Killing Joke spilaði á klúbbi i Englandi að Jaz Coleman átti nokkur orðaskipti við áheyrendur. Samkvæmt breskum músikblöðum hrópaði Jaz „Þið hatið mig, þið hatið mig, þið eruð á eftir mér”. Svo sást hann ekki meir. Enginn virtist vita hvar hann væri og mikið var spekúlerað I þvl hvar hann væri niðurkominn. Fréttin barst svo frá tslandi — eins og raunar var sagt frá i slðasta Helgarpósti. Ytra höfðu menn nokkrar áhyggjur af heilsu- fari Colemans og þá ekki siöur þvl, að hann hafði skuldbundiö sig til ýmissa hluta: hljómplötugerðar, hljómleikaferðalags og fleira. En nú er hann hérlendis, hyggst ýmislegt fyrir og ætlar aldrei aftur heim til Eng- Iands. Spennandi verður að sjá hvað verður úr samstarfinu við liösmenn Þeys — og vist er, aö þar á bæ biöa ýmsir óþreyjufullir eftir þvisem verða vill. Pendúllinn fór að sveiflast yfir íslandi — segir Jaz Coleman, sem ætlar aldrei aftur til Bretlands, því hér hafi hann fundið svarið... Eftir drykklanga stund birtist ungur maður i dyrunum, svarthærður og dökkur yfirlitum, svartklæddur frá hvirfli til ilja. Hann hélt á flösku af Southern Comfort með um fjtírðungi i. Hann leit inn i stofuna þar sem aðrir sátu og siðan inn i hliðar- herbergi. Þar sat stúlkan, sem hingaö var komin frá Englandi á eftir Jaz Colemant lágvaxin, svarthærð, indversk 1 útliti eins og raunar hann lika. Þau ræddu saman um stund og á meðan spilaði Guðni Rúnar Agnarsson, stjóri i Eskvimó, bróðir eins af Þeysimönnum og góöur félagi allra, nýja upptöku með Jaz Cole- man og fjórum hljóðfæraleikur- um úr Þey. Hann söng, þeir spil- uðu, hávær gitar, effektar i rödd og hljóðfærum, hrátt og allt að þvl frumstætt. Hér á ég heima Svo kom hann aftur fram, ræddi við Guðna RUnar um að hann hefði ákveðið að hitta fram- kvæmdastjóra Sinfóni'uhljtím- sveitar íslands þá siðar um dag- inn,sneri sér loks að gestinum og heilsaði. Hann settist, fékk sér sopa af Southern Comfort og sagði: Jæja, eigum við aö tala? — Þú talar, við hlustum. Hvað er það eiginlega sem dregur þig til Islands i þriðja sinn? „Mér lfður vel hér. Hér verð ég fyrir tónlistarlegum innblæstri, innra meömérfinnstmérégeiga heima hérna. En mér likar lika við landið, gæöi þess og afl — ég hef áhuga á fornum trúarbrögð- um. Hér er lika merkur maður, sem mig langar að hitta, Einar Pálsson. Þaö væri gaman að ræða viö hann um ákveðna staði hér, sem búa yfir miklu afli. Ég dreg enga dul á, að ég vissi hér af stööum, sem búa yfir ákveðnum krafti, eins og til dæmis Snæfells- jökull.Þingvellir og fleiri. Þannig að það er fleira en músik sem dregur mig hingað. Músik er allt- af um ótta mannsins við náttúru- öflin. í þessum ótta er mikið afl, sem þarf að beisla og beita i tón- list.” — En i Englandi gekk allt vel hjá þér, ekki satt? „Marvelous.” Hann brosti breitt. „Ég hafði allt.” Svo hvarf brosið: „Nema það sem ég vildi. Ég vissi að ég átti að fara hingað og hér fann ég það sem ég leitaði aö. Það voru forlög.” — Hvers konar hljómsveit er Killing Joke? „TheKilling Jokeer ekki hljóm- sveit. Hún er áfangi, tæki til að beita svo að maður geti haft al- gjör og endanleg áhrif á örlög manns. The Killing Joke verður til áfram, þaöer að koma hingað annar félagi minn úr KJ og viö munum eignast nafnið eftir lög- legum leiöum, sem á ekki að veröa erfitt, þvi ég er nú einn af stofnendum KJ.” Hugarástand — Hver er saga þin i músik — hvemig tónlistarþjálfun hefurðu hlotið? „Það var fyrst I kiassik. Ég var að læra á fiðlu. KirkjumUsik var ég lika mikið i. Svo þegar ég var 15 eða 16 ára breyttist allt. Ég kynntist ýmsum efnum, dópi, og skipti mjög um skoðun. 1 klasslk- inni er ekkert frelsi fyrir einstakl- inginn. Frelsi hans er takmarkað — til dæmis af þvi, að það er eftir Ómar Valdimarsson

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.