Helgarpósturinn - 08.04.1982, Blaðsíða 7
7
hctlrjarpncrh irinn Fimmtudagur 8. apríl 1982
Tveir áhugamálarar i Arnessýslu hafa spreytt sig á þvi að mála
Gisla einbúa á Uppsölum, sem Ómar Ragnarsson gerði landsfræg-
an I sjónvarpsþætti slnum Stiklum um siðustu jól. Þetta er útkoma
annars þeirra.
landinu — a.m.k. sé miðað við fólksfjölda.
Kannski má rekja þennan mikla áhuga
þeirra á myndlist til þess, að uppi á annarri
hæð hússins eru uppi hangandi hvorki
meira né minna en 73 málverk eftir
þjóðkunna listamenn, máluð á timabilinu
frá aldamótum til.1978.
Upphaf þess máls var, að árið 1963 gáfu
Bjarnveig Bjarnadóttir forstöðumaður Ás-
grimssafns i Reykjavik og synir hennar
Árnessýslu 41 málverk eftir nokkra af
þekktustu málurum okkar. Siðan hafa þau
mæðginin haldið áfram að gefa listasafni
þeirra Árnesinga málverk en megin uppi-
staðan i þessari höfðinglegu gjöf eru úrval
mynda eftir Ásgrím Jónsson, sem sjálfur
var Arnesingur, eins og raunar Bjarnveig
og synir hennar.
Útskurður frá Chicago
Minningu annars látins listamanns er
haldið uppi i næsta sal, þó ekki hafi hann
veriðeins þekktur og Asgrimur, að minnsta
kosti ekki hér á landi.
Sá hét Halldór Einarsson og var mynd-
skeri, raunar sveitungi Ásgrims, fæddist i
Brandshúsum i Gaulverjabæjarhreppi árið
1893. En hann var lengst af búsettur i
Chicago þar sem hann stundaði iðn sina. En
hann sneri aftur til íslands árið 1965 og lést
að Hrafnistu 1977. Þá gaf hann Árnessýslu
fjölbreytt safn tréskurðar- og marmara-
mynda, sem hann geröi i fristundum sin-
um. Og enda þótt við tökum þannig til orða,
að þetta safn haldi uppi minningu Halldórs
gaf hann gripina i þvi skyni að minnast for-
eldra sinna, enda skipa marmaramyndir af
þeim heiðurssess á safninu. Þetta skýrir
hann liklega best sjálfur með þessari
stöku.:
Aðal verk min eru gleymd
anda og sjónum manna.
Pabba og mömmu minning geymd
meðal hjáverkanna.
Svo rika áherslu lagði hann á það hlut-
verk safnsins að halda uppi minningu for-
eldra sinna, að engin mynd af honum mátti
vera þar, og heldur ekki naínið hans. nema
það nafn sem hann gekk undir i Chicago,
Dóry.
Það þarf ekki lengi að skoða þetta safn
Dóry af tréskurðar- og marmaramyndum
til að sjá, að hugur hans hefur hneigst að
dulrænum fyrirbærum. Það sýna meðal
annars þau merki sem hann lét koma fyrir
á gólfi salarins og tákna liísbraut Brands-
húsahjónanna, íoreldra hans.
Merki þessi eru úr ýmsum áttum, sjálf
svarta brautin milli þeirra er kinversk
hugsunog heitir ,,FARÐU 1 HRINGF’og er
tákn hamingju og varanleika aö sögn hans
sjálfs. Merkin eru svo ýmist úr kinverskri
heimspeki, egypskri eða norrænni, og
tákna ýmsa þá eiginleika sem þau hjón
voru búin.
öllu jarðneskari eru litil likneski af þeim
Alþingismönnum sem sátu á þingi lýð-
veldisárið 1944 og sitja þar allir með tölu
undir gleri og bera talsverðan svip af fyrir-
myndunum að sögn kunnugra.
Óf úr eiginhári
Byggðasafnið er elst þessara safna, og
þangað hafa lika sennilega flestir komið, en
það eru orðin 18 ár siðan þaö var opnað.
Eins og vera ber er þar margt gamalla
muna sem tengjast sögu Árnessýslu, sá
elsti meira en átta alda gamall. Það er ljár,
sem fannst undir þeirri ösku sem kom úr
Heklu árið 1104 og lagði Þjórsárdal i eyði.
Talsvert yngri er ílik, sem var ofin
snemma á þessari öld en er merkileg fyrir
þá sök, að Ólöf nokkur Sveinsdóttir eigin-
kona Árna Þórarinssonar sýslumanns óf
hana úr sinu eigin hári. Þau bjuggu um
tima i Herdisarvik og hárprúð hefur hún
mátt vera konan sú!
Þá er eítir að geta þess safns, sem yngst
er, og tengist raunar ekki beint Arnesing-
um. Það er dýrasaln það sem Kristján
Jósefsson kom upp og var um hrið i Breið-
firðingabúð i Reykjavik. Nú hafa þeir
Árnesingar fest kaup á þessum uppstopp-
uðu dýrum og komið þeim l'yrir i listavel-
gerðri eftirlikingu af hinu rétta umhverfi
þeirra. Og i hállrökkrinu þarna i salnum,
þar sem bara Ijóskösturum er beint að
blessuðum skepnunum liggur viö að manni
bregði i brún, svo lilandi viröast þær vera.
En menn geta verið alveg fullvissir um, að
þær eru alveg sleindauðar, og hafa sjálf-
sagt sumar hverjar týnt lifinu i Slátur-
félagi Suðurlands, rétt handan við Olfusár-
brúna.
En hringíerð okkar um menningarstofn-
un Árnesinga er lokið, i bili að minnsta
kosti, og við þökkum Pétri Sigurðssyni leið-
sögnina. En við mælum eindregið með þvi
við þig, lesandi góður, aö næst þegar þú átt
leið um Selfoss beygir þú út af aðalgötunni
til hægri, við Búnaðarbankann,og litir inn
til hans. Það er fyllilega þess virði.
Bókmenntir 17
komu út rúmlega 20 frumsamd-
ar bækur. Meginþorri islensku
bókanna hefur verið fyrir mið-
aldurshópinn og er þar um að
ræða svipaðan fjölda nú og áð-
ur. Aukningin er aðallega I bók-
um fyrir yngsta aldurshópinn og
er þá oft um að ræða bækur sem
eru rikulega myndskreyttar.
Má I þessu sambandi nefna frá
siðasta ári bók Sigrúnar Eld-
járn Eins og i sögu og bók Guð-
rúnar Helgadóttur Astarsaga úr
fjöllunum, sem er ein allra fal-
legasta bókin frá i fyrra, Ef eitt-
hvað er hægt að álykta út frá
þessu er það fyrst og fremst það
að islenskir höfundar hafa ekki
gefist upp fyrir fjölþjóðaprent-
inu, heldur hefur samkeppnin
þarna haft jákvæð áhrif. Fyrir
nokkrum árum var það viðburð-
ur ef út kom frumsamin bók fyr-
ir yngsta aldursflokkinn.
Það er þvi alls ekki eins svart
útlit um islenskar barnabækur
og oft áður og ef eitthvað er
þá má sjá jákvæð teikn á lofti.
En það er ekki nóg að nefna
tölur og álykta einvörðungu út
frá þeim. Það verður einnig að
taka gæðin með i reikninginn.
Eg ætla ekki að fara að filó-
sófera um hvað séu góðar bækur
og hvað vondar. Um það má
skrifa langt mál og verður eig-
inlega að gera ef þvi efni á að
gera skikkanleg skil. Það er al-
veg ljóst að þar koma mörg atr-
iði til álita og margar forsendur
sem ganga má útfrá. Það eina
sem er verulega hættulegt er að
smiða sér éitthvert allsherjar-
kerfi sem allar bækur skulu sið-
an mældar á. Mælikvaröinn
verðurað vera opinn þó ákveðin
grundvallaratriði verði að vera
til staðar.
En hvað um það.
Að minu áliti eru hlutfallslega
fleiri góðar bækur i hópi frum-
sömdu islensku bókanna en oft,
áður. Það eru ekki nema tvær til
þrjár verulega lélegar bækur i
þessum hópi. Meginþorrinn eru
bækur sem eru ágætlega góðar
þó ýmislegt megi út á þær setja.
Það er engin ein bók sem sker
sig verulega úr hvað gæði snert-
ir, en nokkrar bækur mynda
toppinn á útgáfunni i fyrra. Bók
Guðrúnar Helgadóttur sker sig
úr hvað myndskreytingu og
vandaða prentvinnu snertir.
Siðan má nefna bækur Páls H.
Jónssonar, Lambadrengur, Ar-
manns Kr. Einarssonar,
Himnariki fauk ekki um koll,
Andrésar Indriðasonar, Polli er
ekkert blávatn,og þar mega
einnig vera með bækur Vésteins
Lúðvikssonar, Sólarbliðan^ og
Magneu frá Kleifum, Kátt er i
Krummavik.
Það má vel skilja vanda dóm-
nefndarsem úthluta á verðlaun-
um og það má vel una við niður-
stöðu hennar, það er jú ekki
hægt að láta sama fólkið fá allt-
af verðlaunin.
Það viröist að breytingar séu
GOÐAR ^UPPSKRIFTIRp
Súkkulaðidrykkir Krem fyrir tertur og kökur
^MEÐ MÓNU
TERTCI
HJÚP
1.
1 líter mjólk
100 gr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað saman, gott að láta aðeins sjóða,
einnig má drýgja mjólkina með vatni, salt
eftir smekk.
2.
1 líter mjólk
150 gr. tertu-hjúpur, dökkur
Hitað á sama hátt og no. I, en þeyttur rjómi
borinn með, eða látinn í hvérn bolla.
Bræðið TERTU HJÚP við vægan hita og
hrærið stöðugt í á rrieðan. (Ekki er nauðsyn-
legt að nota vatnsbað).
SÚKKULÍKI
GR
500
í.
100 gr. smjör
100 gr. tertu-hjúpur brætt og kælt.
4 eggjarauður hrærðar út í, ein í einu og
60 gr. flórsykur, hrært vel, má þeyta.
2.
I00.gr tertu-hjúpur
2 eggjarauður
2 matsk. rjómi
2 matsk. flórsykur
Eggjarauður og flórsykur þeytt saman,
bráðnum tertuhjúpi og rjóma bætt út í.
Súkkulaðibráð.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt varlega, hrært
stöðugt í, síðan er 1 matskeið af smjöri
(mjúku) hrært saman við (má vera meira),
látið volgt á kökuna.
100 gr. tertu-hjúpur. Brætt við vægan hita,
síðan er 1/4 teskeið af vatni hrært vel
saman við. Síðan er þetta látið í sprautu
eða sprautupoka, og er þá tilbúið til skreyt-
inga, látið ekki bíða.
7nóna
SÆLGÆTISGERÐ
STAKKAHRAUNI 1 HAFNARFIRÐI
SÍMI 50300 - 50302
að verða á útgáfu barnabóka.
Breytingar sem eru til batnaðar
frá þeirri þróun sem rikt hefur
undanfarin ár. Það er ekki þar
með sagt að ástandið sé orðið
gott. Það þurfa fleiri forlög að
leggja metnað sinn i að gefa út
vandaðar bækur fyrir þennan
aldurshóp. Þeir sem ráða yfir
fjármagni þurfa að beina meira
af þvi til þessarar útgáfu. Það
þarf að virkja skólana betur t.d.
með þvi að búa þannig að skóla-
bókasöfnum að þau geti keypt
rjómann af islenskum bókum á
söfnin, en nú er langt frá þvi að
svo sé. Það eru á þriðja hundrað
skólar i landinu og ef hver
þeirra keypti nokkur eintök af
bestu bókunum myndi það
treysta verulega rekstrar-
grundvöll þessarar útgáfu.
Það verður einnig að stórefla
starfslaun rithöfunda þannig að
fleiri eigi þess kost að sinna ein-
vörðungu ritstörfum og þarmeð
höfundar sem skrifa barnabæk-
ur. G.Ast.
interRent
carrental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri Reykjavik
TRYGGVABRAUT 14 * SKEIFAN 9
S. 21715 23515 S. 31615 86915
Mesta úrvalið. besta þjónustan.
Við útvegum yður atslátt
á bílaleígubílum erlendis.
Galdrakarlar
leika fyrir dansi
Diskótek