Helgarpósturinn - 08.04.1982, Page 14
Fimmtudagur 8. apríl 1982 ht=>lrjFirpn^tl irínn
Sýningarsalir
Ásmundarsalur:
A miðvikudag opnar Hannes
Flosason tréskurðarmaður, á-
samt nemendum sinum,sýningu á
tréskurði og fleiru.
Kjarvalsstaöir:
Lokað yfir páskana.
Listasafn ÁSÍ:
Lokað yfir páskana.
Norræna húsið:
1 dag, miðvikudag, kl. 18 opnar
Helgi Guðmundsson málverka-
5 sýningu og stendur hún til 20.
april. t anddyri heldur enn áfram
sýning á Grænlandsljósmyndum
Árna Johnsen og Páls Stein-
grimssonar, ásamt þvi sem Arni
sýnir kajakk, sem hann á.
Listasafn íslands:
1 safninu standa yfir tvær
sýningar. Sú fyrri er sýning á
grafik eftir danska listmálarann
Asger Jorn og sú hin siðari er
yfirlitssýning á verkum Brynjólfs
Þórðarsonar og eru það málverk,
vatnslitamyndir og teikningar.
Safnið er opiö á sunnudögum,
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Safnahúsið Selfossi:
i Safnahúsinu stendur nú yfir
samsýning félaga i Myndlistar-
félagi Árnessýslu. Sýningunni
lýkur 12. april.
Galleri Lækjartorg:
Ömar Stefánsson og Óskar Thor-
arensen sýna saman myndverk.
Salurinn er opinn virka daga kl.
10-18 og 10-12 á laugardögum.
Sterk sýning, sem hefur vakið
mikla athygli.
Nýlistasafnið:
A föstudag kl. 16 opnar Valgarður
Gunnarsson sýningu á oliumál-
verkum, sem unnin eru á striga.
Fyrsta einkasýning og liklega
hefðbundinn figúrativismi. Eða
hvað? Varla.
Galleri Langbrók:
Langbrækur sjálfar sýna og selja
eigin framleiðslu, svo sem grafik,
textil og leirmuni. Opið virka
daga kl. 12-18.
Listsýningarsalur
Myndlistarskólans
á Akureyri:
A skirdag kl. 15 opnar Ingvar
Þorvaldsson myndlistarsýningu,
þar sem hann sýnir 40 nýjar
vatnslitamyndir. Þetta er 12.
einkasýning Ingvars, en auk þess
hefur hann tekið þátt i fjölda
samsýninga. Sýningin er opin
daglega kl. 15—22 og lýkur á 2. i
páskum.
Ferðafélag islands:
Fimmtudagur kl. 08: Snæfells-
nesferð og önnur i Þórsmörk.
Fimmtudagur kl. 13: Skiöaganga
á Vifilsfell.
Föstudagur kl. 13: Keilisnes —
Staðarberg. Ganga.
Laugardagur kl. 08: Þórsmerkur-
ferð.
Laugardagur kl. 13: Farið á
Skarösmýrarfjall. Sunnudagur
kl. 13: Ferð um Álftanesfjörur.
Mánudagur kl. 13: Ferð á Skála-
fell við Esju.
Útivist:
Fimmtudagur kl. 09: a) Snæ-
fellsnes, b) Þórsmörk, c)
Fimmvörðuháls, d) Tindfjöll —
Emstrur - Þórsmörk. Þetta eru
fimm daga ferðir.
Fimmtudagur kl. 13: Stórhöfði —
Hvaleyri, rúnasteinninn.
Föstudagur kl. 13: Skerjafjörður
— Fossvogur.
Laugardagur kl. 13: Skálafell á
Hellisheiði.
Mánudagur kl. 13: Kræklinga-
fjara i Hvalfirði.
í allar ferðir er farið frá BSt að
vestanverðu og ókeypis er fyrir
börn i fyigd með fuliorðnum.
Leikhús
Þjóðleikhúsið:
Miðvikudagur: Hús skáldsins
eftir Halldór Laxness. „Vinnu-
brögðin við uppsetninguna eru öll
einstaklega vönduð og umíram
allt fagleg.”
Fimmtudagur: Gosi, kl. 14. ,,Ég
hef ströng fyrirmæli um að skila
þvi til allra krakka og foreldra, að
sýningin sé stórskemmtileg og að
allir eigi að sjá hana.”
Sögur úr Vinarskógi eftir Hor-
vath. „Það verður að segja
hverja sögu eins og hún er: i þess-
ari sýningu leikur hver öðrum
betur.”
Mánudagur: Gosi, kl. 14 / Ama-
deus eftir Peter Shaffer, kl. 20.
„Þegar á heildina er litið er hér á
ferðinni stórgott leikrit, sem að
flestu leyti heppnast vel i sviðs-
setningu.”
Leikfélag Reykjavíkur:
Miðvikudagur: Hassið hennai
mömmu eftir Dario Fo. — Sjá
umsögn i Listapósti.
Fimmtudagur: Salka Valka eftir
Halldór Laxness. „Sýning L.R. á
Sölku Völku er góð i alla staði og
ber vitni um metnaðarfull og fag-
leg vinnubrögð.”
Mánudagur: Jói eftir Kjartan
Ragnarsson. „Andinn i verkinu er
umfram allt notalegur, það er
skrifað af húmanista, sem lætur
sér annt um manneskjur.”
Alþýðuleikhúsið:
Miðvikudagur: Don Kikóti eftir
James Saunders. „Það er
kannski ljótt að segja það, en það
er engu likara en að Arnar og
Borgar séu fæddir i hlutverkin.”
Garðaleikhúsið:
Karlinn I kassanum eftir Arnold
og Bach. Sýning i Tónabæ á ann-
an i páskum kl. 20.30. „Sýningin
er skemmtileg blanda atvinnu- og
amatörleikhúss.”
Nemendaleikhúsið:
Svalirnar eftir Jean Genet. Sýn-
ingar á þriðjudag og fimmtudag
kl. 20.30 i Lindarbæ. Siöustu sýn-
ingar. „Þetta er sýning sem
áhugafólk um leikhús á ekki að
láta framhjá sér fara.”
Litli leikklúbburinn,
Isafirði:
(Jr aldaannál eftir Böðvar Guð-
mundsson. Þetta er alveg nýtt
leikrit, sem hér er fært upp af
stjörnuleikstjóranum Kára
Halldóri, sem sló i gegn á Akur-
eyri um daginn. Frumsýningin
verður i Félagsheimilinu i Hnifs-
dal á annan dag páska kl. 20.30.
Tónlist í leiknum er eftir Jónas
Tómasson tónskáld.
Islenska óperan:
Sigaunabaróninn eftir Johann
Strauss. Sýning á'mánudag,
annan i páskum kl. 20. Sigurgang-
an er óstöðvandi.
^/iðburðir
Dómkirjan:
A skirdagskvöld kl. 20.30 verður
kirkjukvöld á vegum Bræðra-
félags Dómkirkjunnar i umsjá
Sjöunda dags aðventista. A
kvöldinu verður fjölbreytt efnis-
skrá, svo sem organleikur, ávarp
séra Þóris Stephensen, kórsöng-
ur, einsöngur og fleira. Allir vel- /
komnir.
X Ólllist
Félagsstofnun stúdenta:
A annan i páskum kl. 21 veröa
haldnir meiriháttar tónleikar,
þar sem fram koma Vonbrigöi,
Van Heutens Kókó, Þeyr og ef til
vill fleiri. Einstæöur tónlistarvið-
burður i FS og kannski upphafið
að einh ver ju meira.
t^jónusta
Læknavakt:
Bæjarvakt lækna hefst kl. 17,
miðvikudaginn 7. april og henni
lýkur kl. 08 að morgni þriðju-
dagsins 13. april. Simi bæjar-
vaktarinnar er 21230. Göngudeild
Landspitalans er opin á skirdag
og 2. dag páska kl. 14-15. Siminn
er 29000. Upplýsingar um lækna-
vakt er að fá i simsvara, sem op-
inn er allan sólarhringinn, simi
18888.
Lyf jabúðir:
Vikuna 9.-15. april eru þaö Háa
leitisapótek og Vesturbæjarapó-
tek, sem annast gæsluna. Hið
fyrrnefnda hefur með nætur- og
helgidagavörslu að gera.
Tannlæknavakt:
Neyðarþjónusta Tannlækna-
félags tslands um páskana verður
i Heilsuverndarstöðinni við
Barónstig sem hér segir: A skir-
dag, föstudaginn langa, páskadag
og 2. i páskum kl. 14-15, en kl.
17-18 á laugardaginn fyrir páska.
Siminn er 22400.
Bensínafgreiðslur:
Almennar bensinsölur verða
opnar sem hér segir yfir há-
tiðarnar: A skirdag og á 2. i pásk-
um kl. 9.30-11.30 og 13-16. Lokað á
föstudaginn langa og á páskadag,
en opið eins og venjulega laugar-
daginn fyrir páska.
Næturafgreiðslan i Umferðar-
miðstöðinni er opin kl. 20-23.30 á
skírdag og 2. páskadag. Lokað á
föstudaginn langa og páskadag,
en opið kl. 21-23.30 laugardag
fyrir páska.
Ferðir SVR um páskana:
Skirdagur: Akstur eins og á
venjulegum sunnudegi.
Föstudagurinn langi: Akstur
hefst um kl. 13. Ekið samkvæmt
sunnudagstimatöflu.
Pa'skadagur: Akstur hefst um kl.
13. Ekið samkvæmt sunnudags-
timatöflu.
Annar páskadagur: Akstur eins
og á venjulegum sunnudegi.
IBíóin
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ág«t
★ ★ gód
★ þolanleg
O léleg
Regnboginn:
Lokatiiraunin (The Final
Assignement). Kanadísk kvik-
mynd árgerð 1981. Leikendur:
Genevieve Bujold, Michael York.
Leikstjóri: Paul Almond.
Myndin segir frá sjónvarpsfrétta-
konu, sem fylgir forsætisráðherra
á ferðalagi hans til Sovétrikj-
anna. Þar fyrir austan kemst
fréttakonan i kynni við frægan
kvenvisindamann. Konan sú á
barnabarn, sem haldið er mjög
sjaldgæfum sjúkdómi, sem
einungis er hægt að lækna i Los
Angeles og af aðeins einum
manni. Visindakonan fær hins
vegar ekki fararleyfi fyrir sig og
barnabarn sitt. Hún gripur þvi til
þess ráðs að biðja fréttakonuna
um að smygla barninu úr landi.
Þetta er sögð spennandi mynd og
vel gerð.
Síðasta ókindin (The Last Jaw)
ttölsk, árgerö 1980. Leikendur:
James Francescu, Vic Morrow.
Hryllingsspennumynd i ókindar-
stil. Varið ykkur á hákörlunum.
ökuþórinn (The Driver) Banda-
risk kvikmynd. Leikendur: Ryan
O’Neal, Bruce Dern. Leikstjóri:
Walter Hill.
Barátta lögreglumanns við öku-
þór glæpóna. Spennumynd og
endursýnd.
Montenegro. Sænsk, árgerð 1981.
Leikendur: Susan Anspach, Er-
land Josepson. Handrit og stjórn:
Dusan Makavejev.Nýjasta mynd
meistara Makavejev, þar sem
hann segir frá húsmóður, sem
lendir á búllu með innfluttum
verkamönnum og kynnist þeirra
viðhorfum. Góö mynd að sögn.
Laugarásbíó:
Draugagangur í Tivolí (Fun
House). Bandarisk kvikmynd, ár-
gerð 1981. Leikendur: Elizabeth
Bcrridge, Cooper Huckabee,
Sylvia Miles. Leikstjóri: Tobe
Hooper.
Spennuhryllingurinn er á fullu i
þessari mynd, sem gerð er af
Sjónvarp
Miövikudagur
7. april
18.00 Prinsessan Lindagull.
Finnsk teiknimyndasaga
fyrir börnin okkar og er eftir
sögu Topeliusar. Gaman.
Hollt.
18.30 Verkfæri dýranna. Mann-
skepnan heldur að hún sé
eina skepnan, sem notar
verkfæri. Þessi mynd sannar
það gagnstæöa. Rottur með
skóflur og-orma með skrúf-
járn.
18.55 Könnunarferðin. Ferð um
leyndardóma enskrar tungu.
19.15 EM á skautum. Einar
Magnússon dettur.
20.40 A döfinni. Ég trúi ekki
minum eigin augum. Birna
núna. Deginum reddað.
20.55 Ekki seinna vænna. Það
segirðu satt. Mynd um
aldraða.
21.40 Spegill, spegill (Mirror,
Mirror). Bandarisk sjón-
varpsmynd, árgerð Ný. Leik-
endur: Loretta Swit, Robert
Vaughn, Janet Leigh. Leik-
stjóri: Joanna Lee. Þrjár
konur fara i fegrunaraðgerð
hjá lýtalækni og aðgeröin
hefur óskaplegar afleiöingar.
Hi, hotlips. Þær veröa liklega
allar eins.
23.15 tþróttir. Hvað er Bjarni
nú að bralla?
Föstudagur
9. apríl
17.00 Mývatnssveit. Tiu ára
gömul mynd um þennan rosa-
lega stað. Maggi skakki hefur
umsjón.
17.30 Sálin i útlegð er. Ekki
hægt að segja annað. Hér er
endursýnd hin stórgóöa mynd
þeirra Jökuls Jakobssonar og
Siguröar Sverris Pálssonar
um Haligrim Pétursson,
sálmaskáldið góða.
20.20 Ég kveiki á kertum mln-
um. Kór Söngskólans og
Garðar Cortes syngja andleg
lög.
21.05 ismaöurinn kemur (The
Iceman Comeht). Bandarisk
sjónvarpsmynd. Leikendur:
Lee Marvin, Frederic March,
Robert Ryan, Jeff Bridges.
Leikstjóri: John Franken-
heimer. Mynd þessi er gerð
eftir frægu leikriti eftir
Eugene Ó’Neill og segir frá
nokkrum guttum, sem alltaf
hittast á sama barnum. Dag
nokkurn kemur einn þeirra og
vinir hans þekkja hann ekki
fyrir sama manninn. Sérlega
vel heppnuð mynd.
Laugardagur
10. aprfl
16.00 Könnunarferðín. Endur-
sýning.
16.20 iþróttir. Bjarni Fel er
ekki endursýndur. Til þess er
hann ekki nógu og/eöa of
góður.
18.30 Riddarinn sjónumhryggi.
Aidrei læra þeir.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hvað þá heldur þessir.
20.35 Löður. Þessir eru hins
vegar of heimskir til þess.
21.00 Skammhlaup I. Alla vega
ekki í heilabúinu. Grýlurnar
skemmta sér i sjónvarpssal
undir stjórn Gunna Sal.
21.05 Sólsctursbraut (Sunset
Boulevard). Bandarisk bió-
mynd, árgerö 1950.
Leikendur: Gloria Swanson,
William Holden, Eric von
Stroheim, Fred Clark. Leik-
stjóri: Billy Wilder. Einhver
besta mynd alira tima, enda
þarf maður ekki annað en að
horfa á stjörnurnar. Ungur
rithöfundur i fjárkröggum,
sem er ósköp eðlilegt. Hann
kemur sér inn á gamla fiim-
star frá þögla timanum og
ýmislegt gerist.
23.05 Sá einn er sekur. Breskt
sjónvarpsleikrit. Leikendur:
Amanda York, Nicholas Ball.
Leikstjóri: John Gold-
schmidt. Hér segir frá ungri
stúlku, sem hefur verið dæmd
i lifstiöarfangelsi og tilraun-
um til að fá hana lausa. Verk-
ið er byggt á sönnum atburð-
um og stúlkan, sem um ræðir,
er komin úr fangelsi.
Sunnudagur
11. apríl
17.00 Páskamessa í Kópavogi.
Séra Arni Pálsson minnir
menn á grundvallarforsendur
hátiðarinnar og leggur út frá
þeim.
18.00 Stundin okkar. Vonandi
verður Bryndis ekki lika með
guðsóttatal.
20.20 Sesselja. Islensk mynd,
árgerö 1981. Handrit: Páll
Steingrimsson eftir leikriti
Agnars Þórðarsonar.
Leikendur: Helga Bachmann,
Þorsteinn Gunnarsson. Leik-
stjóri: Helgi Skúlason.
Kvikmyndun: Páll Stein-
grimsson. Hljóð: Ernst
Kettler. Framleiðandi: Kvik
s.f. Hér er lifsuppgjör hjóna.
Hann er þekktur listamaður
en hún bara húsmóðir. Þegar
hún hverfur úr sumarbústað
þeirra imyndar maðurinn sér
jafnvel að hún hafi yfirgefið
hann eða fyrirfarið sér og
veldur þetta honum miklu
hugarvili. Systir konunnar og
tvifari kemur og flækir sög-
una enn meir. Spennandi verk
i uppsiglingu.
21.20 Borg cins og Alice. Ég
neita að ganga lengra.
22.10 Sköpunin. Tónverk eftir
snillinginn Joseph Haydn i
flutningi austurriskra lista-
manna. Yndislegur endir á
yndislegu kveldi.
Mánudagur
12.apríl
20.30 Tommi og Jenni. Hiklaust
besta efni sjónvarpsins. Má
ég berja þig?
20.35 Prúðuleikararnir i bió.
En þetta örugglega það
leiðinlegasta.
21.30 Maria Stuart. Leikrit eftir
Björnstjerne Björnsson.
Leikendur: Marie Louise
Tank, Björn Skagestad,
Kaare Kroppan. Leikstjóri:
Per Bronken. Fyrri hluti.
Æskuverk skáldsins mikla og
fjallar um drottningu Skota,
en hún var vist ansi blóðug.
Bloody Marie. Vondur drykk-
ur.
22.40 KK-sextettinn. Frá FIH
tónleikum i Broadway, þar
sem þessi frægasta hljóm-
sveit 6. áratugarins spilar og
syngur öll bestu lögin. Öli
Gaukur kynnir.
■