Helgarpósturinn - 08.04.1982, Page 24
JielgarpósturinrL-
Mikiö er nú skeggrætt innan
Alþingis um nýjasta skipaævin-
týriö „Einar Benediktsson”, tog-
arann meö „framsóknarlaginu”
eins og málsvekjandi þessa ævin-
týris innan þingsins, Pétur
Sigurðsson,kallaði þaö. Reyndar
mun framsóknarlagiö á öllu
þessu máli ganga fram af mörg-
um þingmönnum. Hávær orð-
rómur er t.d. á kreiki i þingsölum
um aö þótt á yfirboröinu sé Bene-
dikt Sveinsson lögmaöur sagöur
umboösmaöur I þessum skipa-
kaupum, þá sé þaö í raun annar
lögfræöingur sem hafi haft milli-
göngu um hingað komu skipsins.
Benedikt sé aðeins „frontur”
fyrir Eiríknokkurn Tómasson og
sá er sonur Tómasar Arnasonar
viöskiptaráöherra, sem gert
hefur litiö úr „hneykslinu” innan
sala Alþingis. Einhverjir þing-
menn munu hafa sýnt áhuga á þvi
að SDvrja viðskiptaráðherra og
Steingjím Hermannsson
sjávarútvegsráöherra, nánar út
úr i þessu máli en eiga erfitt um
vik, þvi að báöir ráðherrarnir eru
sagðir erlendisum þessar mundir
-Steingr muráskiðum en Tómas
i golfi....
Allt bendir nú til þess að
Alþýðuleikhúsiðlendi i' húsnæðis-
hraki á næsta leikári. 1 ráði er aö
Hafnarbió, þar sem leikhúsiö hef
ur haft abstöbu veröi rifið meö
haustinu og að 'J þess staö risi á
lóðinni stórt verslunar eöa skrif-
stofuhúsnæði. Eins og komiö
hefur fram hér i blaðinu mun
Alþýöuleikhúsið ásamt fleirum
hafa verið að gæla við Skúla-
skála, skemmu Eimskips við
Skúlagötu, sem framtiðarhús-
næði sitt en óljóst er hvort af þvi
getur orðið....
Innanbúðarmenn i Fram-
sóknarflokknum munu margir
hverjir hafa borgarstjórnarlista
flokksins i flimtingum og kalla
hann aldrei annað en Klepps-
listann. Er þar verið að visa til
átakanna milli Geröar Steinþórs-
dóttur og Jósteins Kristjáns-
sonar, sem bæði tengjast Kleppi
þótt meö ólikum hætti sé — Jó-
steinn starfaði þar i eina tið sem
gæslumaður en Gerður vegna afa
sins Hriflu-Jónasar og Klepps-
mála hans hér foröum daga...
Fréttir hafa verið um óá-
nægju framsóknarmanna með
Tímann. Við heyrum að þessi
óánægja starfi ekki sist af þvi, að
flokksmenn hafi brugöist ókvæða
við þegar miðstjórnarfundur
flokksins á dögunum fékk upplýs-
ingar um að tapið á Timanum á
siðasta ári hafi numið 1,4
milljónum króna — á sama tima
og fréttadeild blaðsins hefði
fengið algjörlega lausan tauminn
og hegöaði sér eins og flokkurinn
væri ekki til. Mun miðstjórnar-
mönnum hafa þótt sem rit-
stjórnarfrelsið hefði ekki skilað
neinum árangri, þvi aö ekki væri
annað að sjá en áskriftum héldi
áfram að fækka og tapið að
aukast. Það vakti athygli að sá
sem hvað harðast gagnrýndi
stefnu Timans á fundinum var
Eirikur Tómasson, sem sagði þá
sögu m.a. af samskiptum sinum
og blaðsins að þegar deila hans og
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur stóð
sem hæst út af stjörnkerfisnefnd-
Kosningaskrifsto fa
Alþýöuflokksíns
Bankastræti 11, 2. hæð
SÍMAR: 27846 • 27860
__ r
HJÁ OKKUR
FÁIÐ ÞÐ ALLT
BYGGINGAREFNIÐ
TIMBUR
TRÉLISTAR
PANELL
ÞILPLÖTUR
EIN-
ANGRUNAR
STEYPU-
STYRKTAR-
JÁRN
KRAFT-
SPERRUR
ÞAKJÁRN
EINNIG FAANLEGAR YMSAR SMAVORUR
HÚSASMIÐJAN
SÚÐARVOGI 3-5, 104 REYKJAVÍK SÍMAR: 84599
3
X
c
inni, hafi öll önnur dagblöð lands-
ins leitaö til hans eftir sjónar-
miðum hans en hann hafi orði að
hafa sjálfur frumkvæði að þvi að
koma þeim á framfæri við frétta-
deild Timans — og hafi verið neit-
að...
Samkomulag mun nú vera i
burðarliðnum milli Rikisút-
varpsins og 14 sérsambanda
innan 1S1, allra nema Knatt-
spyrnusambandsins, Handknatt-
leikssambandsins og Körfuknatt-
leikssambandsins, en þau sam-
bönd hafa öll eigin samninga við
stofnunina. Staðið hefur lengi i
stappi milli þessara 14 sérsam-
banda og Rikisútvarpsins, og til
að mynda hafa engir samningar
verið i gildi milli aðilanna 1980 og
81. Nú munu samningar á hinn
bóginn hafa tekist um að rikisút-
varpið greiði þessum 14 sérsam-
böndum 180 þúsund krónur á
þessu ári fyrir lýsinga- og
sýningarétt og er það verulega
hærri upphæð en rikisútvarpið
bauð i upphafi, en það mun hafa
verið 65 þúsund krónur fyrir sam-
svarandi rétt á sfðasta ári. Engu
að síður munu forráðamenn sér-
sambandanna vera langt frá þvi
að vera ánægðir með samnings-
fjárhæðina að sinni, og iþrótta-
fréttaritarar rikisútvarpsins, þeir
Bjarni Felixson og Hermann
Gunnarsson ekki vera i alltof
miklum metum hjá iþróttaleið-
togunum, en þeir hafa aðallega
staðið i þessum samningum af
hálfu Rikisútvarpsins ásamt
Herði Vilhjálmssyni fjármála-
stjóra þess....
Nýtt - Reiöhjólaverkstæði
Reiðhjólaverkstæði
Varhlutaþjónusta
Gerum við öll hjól
Sérhæfing og þekking
i fjölgirahjólum
Fullkomin tæki
Opið alla daga
frá 8 — 18
Laugardaga 9 — 1.
Reiðhjóla-
verkstæðið
Hjólatækni sf
Vitastíg 5. Sími 16900