Helgarpósturinn - 28.05.1982, Blaðsíða 5
-Jp^Lj.J~^.jnn Föstudagur 28. maí 1982
5
hann væri kjörinn til forystu. Hann er mjög
næmur á pólitik, hefur pólitiskt nef, eins og
maöur segir, og hefur unniö ágætlega úr
þeim málum sem honum hafa verið falin.
Hans sterkasta hlið eru rökræður sem eru
stór kostur hvers stjórnmálamanns. Þar
hefur hann staðið sig frábærlega vel.”
Alþýðubandalagsmaður tekur undir
þetta: „Hann er fyrst og fremst mælsku-
maður. Ég held að hann sé ekki eins góður
skipuleggjandi”, segir sá. „Það nýttist
honum mjög vel i kosningabaráttunni —
enda er þetta orðið algjört videoland. En
Davið er óneitanlega stórgáfaður og
skemmtilegur og á auövelt meö að hrífa
með sér fólk.”
Annar Alþýðubandalagsmaður úr borg-
arstjórn.Guðrún Helgadóttir, tekur undir
það að Davið sé mælskur og orðheppinn —
„en mér hefur ekki alltaf þótt málflutning-
ur hans i borgarstjórn kraftmikill,frekar
yfirborðslegur. Hann á náttúrlega alveg
eftir aö sýna hvað i honum býr, það er
óskráö blaö hvernig hann verður í sínu nýja
starfi.”
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Friö-
rik Sophusson, er þó ekki i nokkrum vafa:
„Efniviðurinn er góður”, segir hann um
Davið. „Reynslan á eftir að slipa hann til og
gera að vel hæfum stjórnmálamanni. Davlð
hefur kjark og áræði til aö taka ákvarðanir
og sá eiginleiki á eftir að koma honum að
mjöggóðum notum við stjórn Reykjavikur-
borgar.”
Fleiri hrósa Davið fyrir að vera fljótur að
hugsa og taka ákvarðanir — og Vilmundur
Gylfason segist vita til þess að hann geri
sér far um að vera vel að sér i borgarmál-
um. Vilmundur efast ekki um að Davið
verði ágætur borgarstjóri „fyrir sinn hatt
— þótt sá hattur sé of þröngur fyrir minn
smekk”.
Sigur Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik
undir forystu Daviðs Oddssonar gladdi
marga. En það urðu lika margir fyrir von-
brigðum — eins og væntanlega gamla kon-
an sem sagði frá i upphafi. Alfheiður Inga-
dóttir i Alþýðubandalaginu segir til að
mynda að það hafi orðið sér til mestra von-
brigða, „að hann skyldi fá tólfta manninn
inn. Það þýðir að hann þarf ekkert tillit að
taka til Alberts. Ef borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins hefðu orðið ellefu, þá hefði
Albert lent ioddaaðstööu. Já, þaðá eftir að
koma i ljós hvernig þetta æxlast og hvaða
áhrif þessi sigur i Reykjavik hefur á átökin
i flokknum.”
Davið Oddsson borgarstjóri er að þvi best
ervitaðekkikerfiskall. Hann hefur engu að
siður verið opinber starfsmaöur undanfarin
ár — forstjóri Sjúkrasamlags Reykjavikur.
Hann lét af þvi starfi i fyrrakvöld, daginn
áöur en hann var formlega kosinn borgar-
stjóri, og kvaddi sitt starfsfólk þar eftir
vinnutima. Það orð hefur farið af forstjóra
Sjúkrasamlagsins að hann hafi ekki stund-
að vinnuna sérlega vel — en það sama má
væntanlega segja um flesta aðra borgar-
fulltrúa sem jafnan hafa i mörg horn að
lita.
Lára Hansdóttir.formaður starfsmanna-
félags Sjúkrasamlagsins, segir Davið hafa
verið „mjög góðan húsbónda. Það hefur
verið afar gott að vinna meö honum og við
eigum eftir aðsakna hans hér. Ég held ekki
að þú fáir nokkurn mann hér til að segja
nokkuð annað. Það var vafalaust stórt
skref fyrir hann að koma hingað inn i upp-
hafi, þvi hér eru margir sem hafa verið
mjög lengi starfsmenn stofnunarinnar og
þvi óhjákvæmilegt að hann sé stöðugt bor-
inn saman viö aðra. En Davið hefur tekið
öll okkar mál mjög góðum tökum og leyst
úr okkar kröfum á skynsamlegan hátt”,
segir Lára. Hún kveðst ekki kannast við
hroka eða ófyrirleitni i fari sins fyrrverandi
húsbónda en bætir þvi við, aö Davið Odds-
son vilji að sér sé „sýnd full viröing og
maður merkir á honum breytingu sé komið
fram við hann öðru visi en hann telur rétt.”
Ömar Einarsson, framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs Reykjavikur.ber Daviö einn-
ig vel söguna: „Ég hef verið hér með hon-
um i ein átta ár og þar af var hann formaö-
ur ráðsins i fjögur ár”, segir Úmar. „Min
reynsla af honum er sú, að hann sé traustur
og heiðarlegur maður. I minum huga er
hann öðruvisi stjórnmálamaður en flestir
aðrir. Hann hefur sýnt á siðustu vikum að
menn þurfa ekki að vera sniðnir eftir for-
múlum og ég held að hann hafi grætt á þvi.
Mér hefur þótt hann vera mjög skemmti-
legur maður og málefnalegur, alls enginn
trúður”, segir Ómar Einarsson.
Það er vitaskuld engum hnöppum um það
að hneppa, að Davið nýtur vinsælda. Það
gerði hann lika i skóla,að minnsta kosti i
sinum hópi. En hann er lika umdeildur i
sinum hópi núna, þ.e. Sjálfstæðisflokknum.
Þar er hann þó að sjálfsögðu mjög sterkur
sem stendur og ekkert sem i dag bendir til
annars en að hann eigi eftir að verða enn
sterkari. Það hefur a.m.k. ekki spillt fyrir
ungum sjálfstæðismönnum fram að þessu
að gegna starfi borgarstjóra i Reykjavik.
„Sem stendur skyggir Daviö á alla aðra
forystumenn flokksins”, segir einn and-
stæðinga hans i flokknum. Sá sami bætir
við: ,,Ég gæti vel trúað að hann næði miklu
lengra og ég held að hann sé liklegri en t.d.
Birgir ísleifur til að verða afgerandi i borg-
arst jórastólnum. ’ ’
Þórarinn Eldjárn segir það ekki koma
sér á óvart hversu mikill frami Daviðs sé i
flokknum. „Það kom mér að visu nokkuð á
óvart að hann skyldi fara út i pólitik, þvi
þegar við þekktumst best minnist ég þess
ekki að komið hafi til umræðu hvar hann
stóð i þeim efnum. Eftir að út i slaginn var
komið kemur mér frami hans ekki á óvart.
Þetta er mikill hæfileikamaður.”
Ýmsir sjálfstæðismenn binda miklar
vonir við Davið Oddsson og sjá i honum
leiðtogaefni sem nokkuð hefur lalið skorta
áistærstastjórnmálaflokki landsins. 1 hópi
þessara manna eru ekki sist þeir ungu
menn sem mynda harðan kjarna, svokall-
aðan „Eimreiðarhóp”. Það eru 10-15 menn,
flestir á svipuðu reki og nýi borgarstjórinn,
sem eru gamlir kunningjar en ganga undir
þessu samheiti siðan þeir voru óformleg rit-
nefnd timaritsins Eimreiöarinnar á meðan
það kom út á vegum Hilmis (i eigu Jónasar
Kristjánssonar ritstjóra, Sveins R. Eyjólfs-
sonar og fleiri) undir ritstjórn Magnúsar
Gunnarssonar fyrrum framkvæmdastjóra
Arnarflugs. Þessi hópur hittist af og til i
hótelherbergi á Sögu og hefur verið kallað-
ur „unglingadeild Flokkseigendafélagsins”
eða jafnvel hið nýja flokkseigendafélag
eins og harðasti kjarninn i kringum forystu
Sjálfstæöisflokksins hefur verið kallaður.
I þessum hópi eru auk Daviðs og Magnús-
ar menn á borð við Þorstein Pálsson, Kjart-
an Gunnarsson, Geir Haarde, Baldur Guð-
laugsson, Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
Jón Steinar Gunnlaugsson og fleiri.
„Þessir strákar ætla sér talsvert langt”
segir einn af forystumönnum flokksins.
„Það má kannski taka undir það að þarna
séhelsti „power base” Daviðs og ég held að
hans framtið muni markast af þvi, hvort
hann verður áfram i þröngum, flokksfor-
ingjahollum hópi eða hvort hann lærir af
samstarfi við fleiri eftir að út i alvöru borg-
arstjórnarinnar er komið. Og svo má ekki
gleyma þvi aö þessi hópur gæti splundrast
einsog aðrir svona hópar gera stundum og
þá gæti Davið lent i harðri samkeppni til
dæmis við Þorstein Pálsson.”
Andstæðingur Daviös I flokknum er ekki í
nokkrum vafa um Eimreiðarhópinn. „Það
er sú nýja stétt sem er að koma upp i
flokknum. Þeir hafa unnið markvisst að þvi
að ná völdum i ílokknum og eiga félaga um
allt land. Það eru að verða kynslóöaskipti
og þegar þessir strákar hafa tekið yfir —
hvort sem Geir Hallgrimssyni likar það
betur eða verr.þótt þeir séu heldur á hans
bandi, þá verður flokkurinn rekinn af mun
meiri hörku. Það hefur þegar sýnt sig i þvi
hvernig þeir hafa hreinsað út af prófkjörs-
listum i Reykjavik fólk eins og Svein
Björnsson kaupmann, Þóri Lárusson, Sig-
riði Asgeirsdóttur, Anders Hansen, Arna
Berg Eiriksson og fleiri.”
Einn þeirra Eimreiðarmanna sem HP
ræddi við, taldi af og frá að hópurinn væri
stökkbretti Daviðs Oddssonar, hann þyrfti
alls ekki á þvi aðhalda.Og þessi sami kann-
aðist ekki við að þessi hópur væri ungliöa-
deild flokkseigendafélagsins, þetta væri
hópur kunningja sem hittist af og til „til að
ræða allt og ekkert.”
En hvað sem öllum svona vangaveltum
liður, þá er það vist að Davið Oddsson er
orðinn borgarstjóri i Reykjavik og hefur
hlotiö til þess mikinn meirihluta atkvæða
borgarbúa.Hann hefur og gefið ýmis kosn-
ingaloforð og heitið þvi aö standa við þau.
Hann segist sjálfur vona að hann eigi eftir
að verða góður borgarstjóri, ekki bara
Sjálfstæðisflokksins heldur allra borgar-
búa. Þetta sé erfitt starf.
A hann von á að hann breytist við að
veröa borgarstjóri?
„Ég held að það væri blekking aö halda
annað”, segir hann. „.Auðvitað breytist
maöur eitthvað — en þvi minna, þvi betra.
Ég held raunar — eftir samtöl min viö fyrri
borgarstjóra — að mesta breytingin verði
sú að maður verði borgarstjóri 24 tima á
dag. Það er ekkert 9-5 starf að vera borgar-
stjóri í Reykjavik.”
— Kviðirðu þvi?
Hann hugsaði sig ekki um: „Já, dálitið.”
Stuöningsmenn Daviös eru þeirrar skoð-
unaraðhann eigi eftir að verða góður borg-
arstjóri. Andstæðingar hans eru ekki eins
vissir.
Þórarinn Eldjárn segir: „Hann verður
auðvitað góð manneskja áfram. En við er-
um ósammála um pólitik og ég held að ef
hann ætlar aö standa viö allt sem hann lof-
aði, þá verði hann ekki góbur borgarstjóri.”
Annar skólabróðir, Halldór Halldórsson
segir: „Það er margt i Davið spunnið.
Hann gæti orðiö ágætur borgarstjóri.” Svo
bætti Halldór við: „Kannski heföi hann átt
aö halda sig við það aö vera húmoristi og
leikritaskáld...ég veit þaö ekki annars.”
En það er fráfarandi borgarstjóri i
Reykjavik sem hefur siðasta orðið. Við
spurðum hann hvort hann teldi að Davið
Oddsson yrði góður borgarstjóri. Egill
Skúli Ingibergsson svaraði: „Ég vona
sannarlega að honum gangi vel. Það er
mjög þýðingarmikið fyrir okkur öll.”
mynd: Valdís Óskarsdóttir