Helgarpósturinn - 02.07.1982, Qupperneq 9
LJ I ' 3 1-1 \
-pfistúrinn.
* V i i f , ■ * i • | * i(í j .f • ,J
Föstudagur 2. júlí 1982
9
Namm, namm...engisprettur!
Sitt litið af
hverju
• Hlutfall sykurs í móðurmjólk-
inni er mismunandi á meðal
spendýra, og fer það eftir þyngd
heilans i viðkomandi tegund.
Maðurinn hefur hlutfallslega
þyngstan heila allra spendýra, og
þess vegna er sykurhlutfallið
hæst hjá honum. Glúkósi, sem
kemur úr mjólkursykrinum, er
venjulega eina eldsneytið, sem
heilinn notar.
• Visindamenn áætla, að minni
mannskepnunnar geti geymt 100
milljarða af upplýsingaeiningum,
sem þýðir, að minni venjulegs
manns býr yíir upplýsingum, sem
eru 500 sinnum fleiri en öll bindin
i Britannica alfræðibókinni.
• Nokkrir iðkendur tibetskrar i-
hugunar, sem þekkt er undir
nafninu ■ Tum-mo jóga, geta
hækkað yfirborðshita likamans
um meira en 8 gráður á selsius,
að þvi er fram kemur i rannsókn-
um lækna frá Harvard læknaskól-
anum. Hitinn var mældur á fingr-
um, tám og öðrum stöðum á
likamanum. Visindamennirnir
ætla að hitaaukningin stafi af út-
vikkun æðakerfisins, og segja
þeir, að þessi hitamismunur sé
mun meiri en áður hefur mælst.
Það kemur einnig fram, að
ihugararnir gera þetta ekki vilj-
andi.
Vesturlandabúar eru ekki allt
of hrifnir af skordýrum sem eru I
kringum þá, ogsiðastaf öllu dytti
þeim i hug að leggja þau sér til
munns. tbúar þriðja heimsins eru
aftur á mrtti ekki jafn fordóma-
fullir og við, enda skorkvikindi
víða talin herramannsmatur. Lit-
um á nokkur dæini:
1 Kalahari eyðimörkinni i Af-
riku lifa búskmenn, sem borða
kakkalakka mjög reglulega.
Ferðalangar um Bógota, höfuð-
borg Colombiu i S-Ameriku, geta
keypt „franska maura” á hverju
götuhorni. Ibúar Bali borða létt-
steikt fiðrildi og mölflugur, og
þykir óskaplega gott. Þeir, sem
búa á bökkum Viktoriuvatns i
Oganda, veiða sér til matar sér-
staka vatnaflugu. Þegar hún
hefur verið stöppuð litur hún út
og bragðast eins og kaviar, að
þvi sagt er. Malasiubúar eru
mjög hrifnir af djúpsteiktum
engisprettum og ibúar Nýju
Gineu steikja átta fóta könguló,
sem bragðast ekki ósvipað og
hnetusmjör.
Islenskir sælkerar hafa litt
rannskað skordýralif landsins i
þessum göfuga tilgangi, en þeir
ættu aðgera það, þvi þaðer aldrei
að vita af hverju þeir missa.Við
skulum enda þennan pistil með
litilli uppskrift með engisprett-
um, sem þvi miður fást ekki hér:
2 bollar sykur
2/3 bolli rjómi I teskeið vanilla
1/2 bolli þurrsteiktar og niður-
sneiddar engisprettur
1/8 teskeið salt
1 matskeið smjör
60 gr. dökkt súkkulaði.
Setjið sykurinn, rjómann,
súkkulaðið og saltið i pott og hitið
við meðalhita. Hrærið stöðugt i
þangað til súkkulaðið er bráðnað
og sykurinn bræddur. Hitið áfram
og hrærið af og til i, þar til dropi
af blöndunni verður að kúlu ef
hann er settur i iskalt vatn. Takið
af hitanum og bætið smjörinu i
og kælið i 50 gráður. Bætið vanill-
unni út i og hrærið vel i 7—10 min-
útur. Hrærið skordýrunum i og
látið kólna i smurðu formi. Þegar
það er orðið stinnt skal skera i
litla ferninga og borða. Verði
ykkur að góðu.
Spádómsgildi auglýsinga
Myndin, sem fylgir meö þessari
frétt, er hluti af auglýsingu, sem
birtist I dagblaöinu The New
Yorker þann 22. nóvember 1941.
Auglýsing þessi var fyrir teninga-
spil, sem heitir The Deadly
Double.en öllum var ráölagt aö
eignast slikt spil, ef þeir ættu nú
eftir aö dvelja langdvölum I loft-
varnarbyrgjum.
En auglýsing þessi er ekki öll
þar sem hún er séð, eða svo er aö
minnsta kostiálit sumra. Þeir eru
nefnilega til, sem segja, aö hún
spái fyrir um árás Japana á Pearl
j
WARNINC j
Qfctfr !
See Adveriisement Page 70
e
MONARCH PUBIISHING CO.
N.w YorV
Dularfulla auglýsingin, sem
segir til um árásina á Pearl Har-
bour, og það nokkru áður en árás-
in varð.
Harbour, að hún sé i rauninni
skilaboö frá japönsku leyniþjón-
ustunni til sinna manna i
Ameriku.
Talan 12 stendur fyrir mánuð-
inn og 7 stendur fyrir dagsetn-
inguna. Staðurinn, sem ráðast
skal á, er gefinn til kynna með
tölunni 24, sem táknar breiddina.
XX, 5 og 0 standa fyrir lengdina.
Þar sem X er bæði margföldunar-
merki og rómverska táknið fyrir
Hvað er það?
Ætli viö tslendingar yröum ekki
súrir, ef einhver stórþjóö úti I
heimi héldi þvi fram, aö island
væri ekki annaö en borg eða hluti
af öðru landi? Þetta hafa vinir
okkar, Danir, fengið að reyna,
þegar bandariskt hljómplötufyr-
irtæki auglýsti stolt Danmcrkur,
rokkarann Kim Larsen, sem
sænskan söngvara.
Þegar Danir fóru að grennslast
fyrir um ástæðurnar, var þeim
sagt, að i Ameriku kannaðist eng-
inn við Danmörku, menn héldu i
mesta lagi, að hún væri borg i
Sviþjóð. Þess vegna væri Larsen
auglýstur sem Svii...
Ég segi nú bara: aumingja
Danirnir!
10, má túlka XX sem 10 sinnum
10, eða 100. 5 og 0 eru svo gerð að
50. Útkoman 150 gráöur vest-
lægrar lengdar táknar þá Pearl
Harbour, sem er næsta byggða
ból við þá lengdargráðu.
Sannleikurinn um þessa aug-
lýsingu mun þó aldrei koma I ljós,
þar sem maöurinn, sem setti
hana i blaðiö, Roger Paul Craig,
lést 26. maí 1946, aðeins 36 ára að
aldri.
Danmörk?
A lóðarí til
höfuðstaðarins
Calle Morten er sjö ára. Hann
er gfraffi og býr I dýragaröinum I
óöinsvéum I Danmörku. Calle
Morten fór i nokkuö óvenjulegt
feröalag I vikunni, þegar tekiö er
tillit til þess, aö hann er ekki af
tegundinni Homo sapiens.
Hann var nefnilega sendur á
kvennafar til Kaupmannahafnar.
Ástæðan fyrir þvi er sú, að Calle
Morten er óvenjulega stór, 4.5
metrar á hæð, og kynbróðir hans i
Kaupmannahöfn er of litill fyrir
sinar kvinnur.
En allt er þetta svolitið kúnst-
ugt, þvi fyrir nokkrum árum var
Calle Morten seldur frá Kaup-
mannahöfn, þar sem höfuðborg-
armennirnir töldu hann ekki nógu
karlmannlegan og flottan til að
vera að barna giröffur i höfuð-
staðnum.
Við skulum þó ekki halda, að
ferðalag Calle Morten hafi verið
neitt skemmtiferðalag (sic), þvi
hann þarf að sinna 3-4 kvinnum i
Kaupinhafn og auk þess fór hann
frá ólettri vinkonu i sinu plássi.
Ferðin var lika nokkur höfuð-
verkur fyrir yfirvöld, þvi velja
þurfti leiðina með tiliiti til raf-
magnslina, brúa og annarra
hluta.semofteruyfir vegum, þó i
nokkurri hæð sé. Hjá þvi varð þó
ekki komist, að Calle Morten
þurfti að lúta höfði einum fimm
eða sex sinnum á leiðinni.
Ekki vitum við hér hve niu
mánuðirnir hjá giröffum eru
margir, en við biðum spennt.
Ilér sjúuiii vift i biikhliitaiui ú
kvciinagiillinii ('alle Morten, seni
nvlega frtr ú kvennalar i Kaup-
iiiannaliöfn.
SPYRNA OG SPARNEYTNI
í SAMA BÍL.
$ VÉLADEILD
Ármúla3 S.38900
Yerið velkomin
i nýju veiðivörudeildinQ okkar
Athugið: Veiðileyfi fást hjá okkur,
Gislholtsvatn.Kleifarvatn, Djúpavatn.
Darwa
MITCHELL
cS&véeqaeaAe
Si
Verslið hjá fagmanni
GRENSÁSVEGI50 108 REYKJAVÍK SÍMI: 31290
Opið á laugardögum kl. 9—12.