Helgarpósturinn - 02.07.1982, Blaðsíða 18
* ' t ♦ M ' I i * I \
18
Föstudagur 2. júlí 1982
Helgar
DÚS]
posturinn.
Rudolf Stolzenwald:
pEngir ferðamenn
á mínum vegum’
„Ég byggði þennan kofa við
Laufafell i fullkomnu leyfi við-
komandi yfirvalda fyrir mig og
fjölskylduna og nota hann mest á
veturna. Á sumrin hef ég leyft
Dick Phillips að vera þar með
hópa sex eða sjö helgar, en það
bregður svo við, að kofinn er full-
ur af útlendingum allt sumarið,
svo ég hef ekki einu sinni komist
þar inn til að annast nauðsynlegt
viðhald”.
Þetta eru viðbrögð Rudolf Stol-
zenwald við tilvitnun i skýrsiu frá
nefnd á vegum Ferðamálaráös
Islands um könnun á ferðaútgerð
erlendra manna hér á landi i at-
vinnuskyni.
Hann hefur verið búsettur lengi
hér á landi og talar islensku eins
og Islendingur og þvertekur fyrir
að hafa nokkra erlenda ferða-
menn á sínum vegum, þótt fyrr-
nefnd tilvitnun gefi til kynna að
hann reki jafnvel einshvers konar
ferðaskrifstofu.
„Sannleikurinn er sá, að ég er
sammála að öðru leyti þvi sem
stendur i greininni. Mér likar illa
þessi átroðningur sem ég verð
fyrir og vildi ekkert frekar en sjá
á bak þessum erlendu ferðahóp-
um, að minnstakosti að þeir yrðu
undir eftirliti Islendinga. Sjálfur
nota ég kofann aðeins á veturna,
á skiðaferðum og ferðum á vél-
sleðum, og helst vildi ég læsa hon-
um á sumrin. Ég veit lika, að
bændur eru i miklum vandræðum
með átroöning útlendinga i leitar-
kofum”, segir Rudolf Stolzen-
wald.
Það skal tekið fram, að nefnd
tilvitnun er tekin beint upp úr
skýrslunnisem verið var að fjalla
um. Hinsvegar er ljóst, að höf-
undar hennar hafa ekki haft sam-
band við Rudolf og eru þessar
upplýsingar þvi ófullnægjandi frá
hendi nefndarinnar, og að vissu
leyti villandi.
ÞC
Jói um Norðuriand
Leikfélag Reykjavikur leggur
upp i leikför með leikrit Kjartans
Ragnarssonar, Jóa, og verða
fyrstu sýningarnar á Akureyri
þriðjudag og miðvikudag 6. og 7.
júli. Þaðan verður haldið til
Ólafsfjaröar og Siglufjarðar en
siðan vestur á bóginn til Sauðár-
króks. Fyrirhugað er að sýna
leikritið á flestum stöðum á
Norðurlandi vestra og ef til vill á
nokkrum stöðum vestanlands.
Leikförin mun standa út júli...
Jói var frumsýndur hjá Leik-
félaginu i september i fyrra og
hefur verið leikinn fyrir tullu húsi
i Iðnó i vetur og eru sýningarnar
orönar 70. Leikurinn er þvi þegar
kominn i hóp vinsælustu verka,
Leikfélagsins. Hann hefur hlotið
mjög góðar viðtökur hjá áhorf-
endum, enda hlaut hann mikið lof
hjá gagnrýnendum, sem töldu
hann eitt besta islenska leikritið
sem komið hefur fram á seinni
árum. Höfundur er sjálfur leik-
stjóri sýningarinnar, leikmynd
gerir Steinþór Sigurðsson, en
leikendur eru Hanna Maria
Karlsdóttir, Sigurður Karlsson,
Jóhann Sigurðarson, Guðmundur
Pálsson, Þorsteinn Gunnarssop,
Klfa Gisladóttir og Jón Hjartar-
son
■A^°n
___4°-1982-
VEL
AÐMERKJA..
UÖSMYNDIN VERÐUR
ALDREI BETRIEN
FILMUGÆÐIN LEYFA
ÞAÐ SEGIR SIG SJÁLFT!
HfíNS PETERSEN HF
TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KODAK
Umsóknar- Greiðslur
frestur geta hafist
Sumarlán 15. april 15. júni
Haustlán 15. júli 15. sept.
15. ágúst 15. okt.
15. sept. 15. nóv.
Vetrarlán 15. okt. 15. des.
15. nóv. 15. jan.
15. des. 15. febr.
Vorlán 15. jan. 15. mars
15. febr. 15. april
LÍN
Námslán og styrkir
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur — Aðstoðartímabil og afgreiðslutími
Aðstoöarár sjóðsins er frá 1. júni til 31. mai. Sæki námsmaður um eftir 15. nóv. 1982 miðast aðstoð við
framfærslukostnað hans og fjölskyldu hans frá áramótum 1982—83. Aðstoðin nær til loka aöstoðarársins
nema annaö komi fram, t.d. að námsmaður hætti eða ljúki námi fyrr. Meðferð umsókna er hagað eins
og eftirfarandi tafla lýsir sbr. að öðru leyti gr. 45 um útborgun lána.
Ef nám
hefst
1. sept.
1. október
1. nóvember
Afgreiðsla lána getur þvi aðeins farið fram að námsmaður eða umboðsmaður hans hafi skilað full-
nægjandi gögnum vegna afgreiöslu lánsins. Afgreiðsla lánsins tefst frá þvi sem hér segir ef fylgiskjöl
berast ekki fyrir tilsettan tima.
Hverjir eiga rétt á aðstoð?
Nám á háskólastigi
Sjóðurinn veitir fjárhagsaðstoð islenskum námsmönnum sem hafa þá námsgráðu eða hafa að baki
jafnlangt nám, sem á hverjum tima er krafist til háskólanáms á Islandi. Nám á tæknifræðistigi og
meinatækninám viö Tækniskóla Islands, svo og nám i framhaldsdeild Bændaskólans á Hvanneyri telst
aðstoðarhæft.
Nám á framhaldsskólastigi
Menntamálaráðherra hefur ákveðið með reglugerð að sjóðurinn skuli veita fjárhagsaðstoð islenskum
námsmönnum, sem stunda nám við eftirtaldar námsstofnanir:
Fiskvinnsluskólinn, 3. og 4. ár.
Fósturskóli íslands.
Hjúkrunarskóli Islands, 2. og 3. ár.
Hússtjórnarskóli Islands, 2. og 3. ár.
Iðnskólar, framhaldsdeildir, 2. og 3. ár.
Iþróttakennaraskóli Islands.
Leiklistarskóli Islands.
Myndlista-og handiöaskóli Islands, 2.,3. og 4. ár.
Nýi hjúkrunarskólinn.
Stýrimannaskólar.
Tónlistarskólar — kennaradeild, Tónlistarskólans i Reykjavik, svo og tónlistarnemar á 7. og 8. náms-
stigi skv. námsstigakerfi Tónlistarskólans i Rvik.
Tækniskóli Islands, raungreinadeild og tækninám.
Vélskólar.
Þroskaþjálfaskóli tslands.
20 ára regla
Sjóðnum er heimilt að veita námsaðstoö öðrum námsmönnum en þeim sem getið er i ofannefndri upp-
talningu enda hafi námsmenn þessir náð a.m.k. 20 ára aldri á því almanaksári þegar lán eru veitt,
stundi sérnám og geti ekki að mati sjóðsstjórnar haldið áfram námi án aðstoðar sjóðsins.
Meöal annars eru veitt lán á grundvelli 20 ára reglu til eftirfarandi náms:
Fiskvinnsluskóli 1. og 2. ár.
Iðnskólar 1. ár (Verknámsdeild).
Meistaraskóli Iðnaðarins.
Myndlista- og handiðaskóli Islands 1. ár.
Tónlistaskólar 6. stig. skv. námsstigakerfi Tónlistarskólans i Reykjavik.
Tækniskóli Islands — frumgreinadeild I.
Hótel og veitingaskóli Islands.
Bændaskólinn á Hvanneyri.
Garðyrkjuskóli tslands
Ljósmæðraskóli Islands.
Lánasjóður isl. námsmanna
Laugavegi 77, simi 25011.
Afgreiðslan er opin 9.15—16.00.
VÖRUAFCREIÐSLAINNANLANDSFLUGS
27933
Við bendum viðskiptavinum okkar á að kynna sér nýju númerin á bls. 78 í símaskránni.
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi