Helgarpósturinn - 06.08.1982, Qupperneq 4
4
t-/r /
Föstudagur 6. ágúst 1982 JQi^turÍnn
Helgarpósturinn kannar stöðuna á stjórnarheimilinu:
• Hugmyndir
um erlendar
lántökur eða
5-10%
kjaraskerð-
ingu
pakUa«»n,'!
Korystumenn Alþýðubandalagsins virðast vera farnir að búa
sigundir kosningar fyrren áætlaö er. i fréttabréfi franikvæmda-
stjórnar llokksinssem nýlega varsent félögum og Helgarpóstur-
inn hefur undir hönduin segir mcðal annars, að Ijóst sé, ,,að þær
geta brostið á meö sköinmum fyrirvara”.
Svavar Gcstsson formaöur Alþýðubandalagsins segir þó við
llelgarpóstinn, að þctta sé aðeins „almenn aðvörun til flokks-
manna um að hefja undirbúuing undir kosningar tlmanlega”.
En hann segir jafnframt, að mikil óvissa riki um fyrirhugaðar
efnahagsaðgeröir þar sem ekki liggi fyrir, að rfkisstjórnin hafi
traustan meirihluta. „Það getur allt gerst”, segir Svavar Gests-
son.
„Mín alstaða til kosninga er óbreytt. Þær verða á næsta ári.
Um bréf sem ég hef ckki séð vil ég ekkert segja”, eru viðbrögð
Alþýðubanda
lagið ýjar að
stjórnarslit
um i Frétta-
bréfi fram-
kvæmda-
stjórnar
# Samstaða um
almenna 2,9%
skerðingu
visitölubóta
mynd: Jim Smart
eftir
Þorgrim Gestsson
Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra eftir að honum hafði
verið kynnt innihald bréfsins.
Ilvað sem viöbrögðuin stjórnmálamannanna liður er ljóst að
innan cfnahagsnefndarinnar sem nú situr á rökstólum um efna-
hagsaðgerðir eru mjög skiptar skoðanir á þvi hvað gera skuli.
Samkvæmt fjölmörgum hcim ildarmönnum sem Helgar-
pósturinn hefur rætt við eru eftirfarandi hugniyndir til lausnar
efnahagsvandanum einkum til uniræðu:
• Erlendar lántökur upp á 5-6 þúsund milljónir króna til að mæta
halla þjóðarbúsins i ár.
• Skeröing á almennum kjörum um 5-10%, sem hefði sömu áhrif.
• Gengisfelling sem yröi bætt ineö auknum verðbótum.
• l.aun allra launþega sem ekki hefur verið gengið frá kjarasamn-
ingum við skert um 2,9% 1. september.
En hverjar sem aðgerðirnar kunna að verða ber flestuin
saman um, að of langt sé liöið á áriö til þess að hægt sé að draga
úr verðbólgunni. Þvi er búist viö þvi, að hún verði 60% i lok árs-
ins eins og Þjóðhagsstofnun spáir.
„Yfirleitt er taiað um aö ná árangri á næsta ári,” segir einn
hcimildarmanna llclgarpóstsins.
I>á er eftirfarandi einkum til umræðu:
• Stöðvun kaupa á togurum og nýsmiði.
• Niðurskuröur á landbúnaöi.
• Nýir skattar.og styrkjum veitt til þeirra atvinnuvega sem verst
eru settir.
• Endurskoðun á sjálfvirku sjóðakerfi atvinnuveganna.
• Itáðstafanir gerðar til að draga verulega úr innflutningi.
0 Samdráttur í framkvæmdum.
Aðgerðir strax
Erlend lán
Fimm til sex milljaröar króna
er sú upphæð sem á vantar til
þess að brúa bilið milli fram-
leiðslu þjóðarinnar og eyöslu árið
1982. 1 efnahagsnefndinni hafa
komiö fram hugmyndir um að
taka þetta fé einfaldlega að láni.
Mörgum þykir þó sem skulda-
hali muni lengjast óhóflega mikið
við það og sé þó talsvert langur
fyrir. Þessi lán eru til þaö langs
tima, að með þessu yrði aðal
vandinn færöur til þeirrar kyn-
slóðar sem er aö vaxa upp, og
þykir mörgum það ekki fýsilegur
kostur.
Launaskerðing
Skerðing á almennum launa-
töxtum um 5-10% gerði sama
gagn. Slikar aðgeröir kæmu þó
misjafnlega hart niöur á fólki —
verst yrði það íyrir hina lægst
launuöu. Hinsvegar kæmi til
greina að skerða veröbæturnar
misjafnlega mikiö þannig að
hæstulaunin yröuskert mest. Slik
aðferð var notuð á árunum 1967-
’69, þegar sildin hvarf.
Gengisfelling
Mikið hefur verið rætt um
gengisfellingu manna á meðal.
Margir telja hana nauðsynlega
aðgerð, en að þvi er viröist tekur
efnahagsnelndin á þvi máli með
varúð. „Aðal vandinn er afla-
brestur og slæm afkoma heima-
iðnaðar” segir Svavar Gestsson
meöal annars um það og bendir
auk þess á að gengiö hafi sigið
talsvert að undanförnu.
„Til að rninnka þjóðarútgjöld
og draga úr innílutningi er breyt-
ing á raungengi sú aöíerö sem
hefur skjótust áhrif, ef litið er
framhjá þvi sem það hefur i för
með sér —þ.e. aukna verðbólgu”,
segir einn heimildarmanna
Helgarpóstsins.
Almenii 2,9% skerðing
Alþýðusamband islands er
einu stóru samtök launþega sem
hafa gengið lrá kjarasamningi i
ár. Sem kunriugt er var þar samið
um 2,9% skerðingu á verðbótum
sem koma 1. september. Það er
nokkuð öruggt, aö hvað sem liður
öllum kröfum annarra launþega-
samtaka, sem ekki hafa gengiö
frá kjarasamningum, að svipuð
skerðing kemur á laun þeirra.
Einn möguleiki er sá, að reynt
verði að semja um lægri grunn-
kaupshækkun sem nemur skerð-
ingunni. Liklegt er þó, að sett
verði bráðabirgöalög sem kveða
á um 2,9% skerðingu á verðbótum
1. september.
Langtímaadgerðir
Skrúfað fyrir
togarastrauminn
Stjórnvöld hafa oröið fyrir mik-
illi gagnrýni að undanförnu lyrir
að leyfa áframhaldandi togara-
kaup þótt sýnt sé að togaraflotinn
sé þegar orðinn of stór. Einna
alvarlegast i þvi er, að togararnir
standa alls ekki undir rekstrar-
kostnaði, jafnvel þótt vel veiðist.
Þær hugmyndir eru á lofti að
skrúfa fyrir öll togarakaup og ný-
smiði á togurum. Það þýðir, að
fæstir þeirra 20 togara, sem leyfi
ALÞYÐU
BANDALAGIÐ
Fréttabréf
Fi anriKvæmdastjórna'
AB BALDUR ÓSKARSSON
2. BRÉF 1982
Aðalfundi þarf að halda
fljótt
Þótt enginn geti á þessari stundu fullyrt um hvenær
boðað verður til alþingiskosninga, er Ijóst, að þær
geta brostið á með skömmum fyrirvara. Það er því
nauðsynlegt að flokksfélög og kjördæmisráð haldi
aðalfundi sína í fyrra fallinu. Enn er ekki búið að
dagsetja flokksráðsfund. Sá fundur er yfirleitt hald-
inn ( nóvember, en að þessu sinni kynni hann að
verða haldinn fyrr.
Framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins sendi félögum sinum fyrir
skömmu i fréttabréfi orðsendingu um að nauðsyniegt sé að flokksfé-
lög og kjördæmisráð haldi aðalfundi sina fyrr en venja er til. Ástæð-
an: Kosningar geta brostið á með skömmum fyrirvara.