Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 06.08.1982, Qupperneq 11

Helgarpósturinn - 06.08.1982, Qupperneq 11
irinn Föstudagur 6. ágúst 1982 n að blása í sópraninn. Lengi hljóm- aði aðeins einn tónn. Hann andaði í hring tilað rjúfa hann ekki, svo bættust yfirtónar í hópinn og hann beygði sig fram og reis í sífellu. Manni var hugsað til Evan Parkers í Norræna húsinu. Hringöndun, yfir- tónaroguppsveifla. Stundum getur verið alltað því óþægilegt að hlusta á hina löngu tóna og hlaup þegar hringöndun er beitt. Ætli maðurinn þurfi ekki að anda? En þetta er so- sum ekki ný tækni og trúlega ættuð frá jógum. Harry heitinn Carney beitti henni mjög í Ellingtonband- inu. Hann þurfti nefnilega í upphafi að blása tenorskrif á barrýtóninn og þá var eins gott að ráða yfir nógu lofti. A seinni árum lék hann þessa fimleika í sólókaflanum sínum í Sophisticated Lady. Næsta verk var skrifað fyrir altó og hefði nýtónskáldum líkað það vel. Undirritaður varðþó fyrst hrif- inn þegar Roscoe greip sópraninn að nýju og hóf að blása undurfal- legt stef sem hann lærði ein- hversstaðar í Afríku. Þá spann hann einsog sá djassmaður sem valdið hefur, löng líðandi hlaup skreytt trillum, kraftmikil og fögur. Hann beygði sig og rétti og stund- um varð tónninn njúorlínskur í sterkum titrandanum. Það var ekkert slegið af eftir hlé. Altóinn var villtur og frjáls og heyra mátti bæði dimiuendo og cresendo þótt ekki væri það in blue einsog hjá félaga Ellington. í lokin var riffið aftur á sínum stað og sópraninn þaninn til hins ýtrasta í knöppu forminu. Aukalagið var ljúf ballaða með stakkatóbrú og þessi tvö lokaverk sýndu það gleði- lega að hinir bestu í hópi spuna- mannanna frjálsu kunnu líka hina klassísku list sjötíuogáttasnúninga- forinsins sem svíngmeistararnir fullkomnuðu. Það voru dálítið fleiri mættir á einleikstónleika saxáfónleikarans Roscoe Mitchells en á tónleika trompetleikarans Leo Smith og víbrafónleikarans Bobby Naughtons. Báðir voru tónleikar þessir haldnir í Félagsstofnun stú- denta undir yfirskriftinni Nú-jazz og hitti sú nafngift í mark á tón- leikum Roscoes, en miður á tón- leikum Leos, sem svifu ein- hversstaðar í rúmi akademismans. Nafngiftin Nú-jazz hitti í mark á tónleikum Roscoe Mitchells í Félagsstofnun, þótt ekki hafi hún gert það hjáLeo Smith á sama stað, segir Vernharður m.a. í umsögn sinni. Það verður ekki sagt að Félagsstofnun stúdenta sé heppilegur staður fyrir tónlist af þessu tagi þarsem hinn minnsti skarkali veldur truflun. Háværar fyllibyttur voru að vísu fáar á tón- leikum Roscoes og engvir Þjóð- verjar spilandi á glös og öskubakka en barinn var opinn og inní salnum. Þaðan barst sífelldur hávaði og magnaði salurinn hann upp. Það var mikill munur á Félagsstofnunarsalnum þegar Nefsklúbburinn var þar starfandi og barinn í anddyrinu. Roscoe var ekki með tylft hljóð- færa í farangrinum eins og þegar hann lék hér með Art Ensemble of Chicago í apríl sl. Nú blés hann að- eins f altsaxafón og sópran. Það var ekki til skaða, þvf þetta eru þeir saxafónar sem hann blæs best í; tónninn mikill og voldugur, breiður og fagur og titrið ljúft Mér hefur alltaf fundist hann lakari á tenórinn svo ég tali ekki um bassa og barrýtóninn. Ég er því sannfærður um að þeim sem þótti ekki mikið til sólós Roscoes koma á tónleikum AEOC í Broadway, hefðu endur- skoðað afstöðu sína til hans sem einleikara eftir þessa tónleika Roscoe hóf tónleikana með því Oaðgengilegt en gott The Fall — Hex Enduction Hour Hljómsveitin The Fall varð til í Manchester árið 1976 og voru stofnendur hennar söngvarinn Mark E. Smith, gítarleikarinn Martin Bramah og bassaleikarinn Tony Friel, sem þó fljótlega yfirgaf þá félaga og hélt til liðs við Howard Devoto í Magazin, en dvölin þar var einnig stutt og hvað síðar varð af honum er mér ókunnugt um. Annars er ógerlegt að ætla að fara að telja upp allt það fólk sem kom við sögu hljómsveitarinnar fyrstu árin, þvi það voru æði margir. Það höfðu t.d. sautján manns verið við- eftir Gunnlaug Sigfússon riðnir hljómsveitina árið 1980. f dag er þetta þó nokkuð fastur kjarni. Mark E. Smith er auðvitað enn á sínum stað en einnig hefur Mike Riley verið nokkuð lengi í sveitinni. Hann byrjaði þar sem bassaleikari og lék á það hljóðfæri á fyrstu stóru Fall plötunni, Live At The Witch Doctor, en hafði skipt yfir á gítar á þeirri næstu, Dragnet, og haldið sig að mestu við það hljóðfæri síðan en spilar þó einnig á hljómborð. Auk þeirra hafa þeir Craig Scanlan, gítarleikari, Steve Hanley, bassaleikari, og Paul Hanley, trommuleikari, verið í hljómsveitinni um nokkurt skeið. Nýjasti meðlimur The Fall er svo annar trommuleikari Karl Burns að nafni. Að vísu er vafasamt að tala um hann sem nýjan Fall meðlim, því hann lék með hljómsveitinni áður og var t.d. á fyrstu plötunni. The Fall náði fljótlega töluverð- um vinsældum í heimalandi sínu og má t.d. nefna að flestar plötur þeirra hafa farið i fyrsta sæti vin- sældalista sjálfstæðu fyrirtækjanna og þeir voru yfirleitt ofarlega á lista yfir vinsælustu hljómsveitir síðasta árs í kosningum flestra breskumús- íkblaðanna. Kannski var sá árang- ur ekki síst því að þakka að á síð- asta ári komu frá þeim tvær af að- gengilegustu plötum hljómsveitar- innar, Grotesque og Slates. Því verður nefnilega ekki neitað að tónlist The Fall er ekki sú allra aðgengilegasta sem hægt er að hugsa sér. Því kynntust íslenskir áheyrendur einmitt hér á síðast- liðnu hausti, þegar hljómsveitin sótti okkur heim og kom hér fram á nokkrum hljómleikum. Skiptist álit fólks hér þá mj ög í tvö horn, þ. e. þá sem þóttu þeir góðir og þá sem fannst þeir hræðilegir og því miður er ég hræddur um að síðarnefndi hópurinn hafi verið öllu stærri. Ég er þó á því að sá hópur hafi verið stærri en hann hefði þurft að vera, þ.e. að margir þeir er dæmdu hljómsveitina lélega, hafi gert það vegna þess að þeir hafi verið óvanir að hlusta á hana. Það var búist við því af Fall að þeir myndu reyna að létta tónlist sína til að ná til fleiri. Litlu plöturn- ar Lie Dream Of a Casino og Look, know, sem komu út fyrr á þessu ári þóttu líka benda til þess að svo yrði og að með næstu stóru plötu myndu þeir ná til enn stærri hóps kaupenda. Nú er platan, sem ber heitið Hex Enduction Hour, komin út og ekki er hægt að segja að Mark E. Smith og félagar hafi farið akkúrat þær leiðir sem búist var við af þeim. Meirihluti plötunnar er þræl þung- ur andskoti, sem þarfnast tölu- verðrar yfirlegu en þó eru á henni að minnsta kosti þrjú lög af léttari gerðinni, þ.e. The Classical, Jaw- bone and the Air-rifle og Just Step Sideways. í nokkrum laganna er Smith í aðalhlutverki, sem textahöfundur, ljóðskáld eða hvað menn vilja nú kalla hann. Það eru einmitt þessi lög sem hvað erfiðast er að ná, þar sem framburður hans er ekki alveg sá skýrasti fyrir okk- ur, og ekki bara okkur því Bretar kvarta líka margir hverjir yfir að ekki skuli fylgja textablað með plötum þeirra. Ékki bætir úr skák að á þessari nýju plötu er rödd Smiths blönduð frekar aftarlega og gerir það plötuna enn verri við- ureignar. Þetta er mikið armæðuhjal og ekki ólíklegt að einhver kynni að halda að ekki væri hlustandi á plötu þessa en því er þó alls ekki þannig farið, þvert á móti þá er hún mjög góð þegar hún hefur fengið sinn tíma. Þrjú framangreind lög eru t.d. mjög góð og það sama er að segja um Winter, sem er síðasta lagið á hlið 1 og fyrsta lagið á hlið 2, And This Day, Hip Priest og Ice- land, eða Island eins og segir á plötumiðanum. Tvö síðastnefndu lögin voru tek- in upp í Hljóðrita þegar hljómsveit- in var hér á ferð. Hip Priest hafði þá um nokkurt skeið verið á efnisskrá hljómsveitarinnar en Iceland samdi Mark E. Smith hér á landi og fjallar það um ýmis þau áhrif sem hann varð fyrir meðan á dvöl hans hér stóð. Er byrjun textans eitthvað á þessa leið: To be humbled in Iceland/ Sing of legend, sing of destruction/ Witness the last of the Godmen/ Hear about Megas Jónsson/ To be humbled in Iceland/ Sit in the Gold Room/ Fall down flat in the Café Iol/ without a glance from the clientele/ The cofee black as well/ and be humbled in lce- land. Lagið hefst á vindgnauði, sem Smith tók upp á kassettutæki sitt út um hótelglugga hér í bæ og það varð til í stúdíóinu, þ.e. Smith sagði hljómsveitinni að impróvisera eitthvað og hann söng inn um leið. Tekin var ein taka og hún látin standa. Hex Enduction Hour er kannski ekki allra aðgengilegasta plata The Fall en hún er engu að síður mjög góð og sýnir að hljómsveitin er síð- ur en svo hætt að þróast en í hvaða áttir þróunin gengur næst veit lík- lega enginn. Eitt er þó næsta víst að The Fall á eftir að standa utan við flestar stefnur eins og hún hefur - gert hingað til. HEXENDUCTION HOUR BY THE FALL '■fk fr!~L íW&»'<kv- fíg&A fhk. Kct.p SlKiv., •r: ö ■ ' Xafk- HftVFA BLEfWhj CUESS w f. ,'O-SJÆÍ- lc.JLí; t&F* -ífvt iíÆ i \ | ..., cusHrg.6.c.6Wto*St«re Ort C!ö$. SMoktf) y $ CWL N.x- «»JT Ibwm e»ifpM.iViic

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.