Helgarpósturinn - 06.08.1982, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 06.08.1982, Blaðsíða 18
18 Föstudagur 6. ágúst 1982 ~£j(jjsturinn V)'Vl? T^tv hljómsveita sem eru i ballbrans- anum.” — Eruði allir frá Akranesi? „Allir nema Finni og Kobbi.” Skagamenn erfiöir!! — Spiliði mikið þar? „Nei, það er erfitt að spila fyrir Skagamenn. Þeir eru þungir og kritiskir, það er sama hvort þeir eru að fara á iþróttaleik, leiksýn- ingu eða konsert. Við höfum spil- að mikið á Snæfellsnesi á Lísuhói i vetur. Siðan fórum við i mennta- skólana og félagsmiðstöðvarnar sem heppnaðist vel hjá okkur. Nú við héldum lika einn konsert á Borginni, sem var fámennur en góðmennur, sumsé finn.” — Eruði i fullu djobbi fyrir ut- an tónlistina? „Já,svo að segja. Finnur er free-lancari og Valgeir er kennari með þriggja mánaða sumarfri, hinir eru á fullu allan timann.” segir hljóm- sveitin Tibrá frá Akranesi Hljómsveitin Tibrá hefur ný- verið sent frá sér sina fyrstu plötu, sem nefnist t svart-hvitu. Hljómsveitina skipa þeir Eðvarð Lárusson gitar- og raddleikari, Eirikur Guðmundsson slagverks- leikari, Finnur Jóhannesson söngvari og slagverksleikari, Flosi Einarsson sem leikur á pólyfóniskan synthesizer, mini— moog og rödd vocoder, Jakob R. Garðarsson leikur á bassa og er með sérstaka effekta og Valgeir Skagfjörð pianó-, rhoder-, strengja- og söngleikari. Ánægöir meö plötuna Þeir Valgeir og Finnur litu inn hjá Stuðaranum um daginn og var að sjálfsögðu vel tekið. Og fyrsta spurningin sem dembt var á þá var hvort þeir væru ekki ánægðir með plötuna. „Jú, við erum mjög ánægðir með hana. Platan var tekin upp á 40timum i Hljóðrita og við vorum heppnir með sándið á henni. Svo var skurðurinn þrumugóður.” Leitandi að stíl — Hvernig tónlist eruði með? „Æ, elskan min ekki biðja okk- ur um að skilgreina hana. Við er- um leitandi að okkar stil, það má segja að tónlistin sé mjög blönd- uð.” — Þið eruð ekki með pönk og ekki með bárujárnsrokk? „Það er rétt. Við höfum þó gaman af að spila allt mögulegt, allt frá pönki niðri létta dinner- tónlist. Og höfum ýmislegt á efn- isskránni. En fólk verður sjálft að dæma tónlistina á plötunni. Það eina sem hún á sameiginlegt að hún er eftir Valgeir. En næsta plata verður þyngri. Tvö lög plöt- unnar eru i nýja stilnum okkar,- Joe, og Put on your Make-up.” Fordómar „Annars einskorðast popp- bransinn svo við höfuðborgar- svæðið að það er erfitt að koma sér á framfæri. Fólk er frekar neikvætt þangað til það er búið að hlusta á okkur”, segja félagarnir hressir. „Það eru einhverjir fordómar sem fólk virðist hafa i garð Fjör á sveitaböllum — Hvernig kunniði við ykkur i dansbransanum? „Það er fint þar, eins og filing- urinn i gamla daga. Félagarnir i konsertböndunum dauðöfunda okkur margir hverjir. — Það er botnlaust fjör á sveitaböllunum”, segja þeir Finnur og Valgeir að lokum hressir að vanda, og Stuð- arinn þakkar fyrir innlitið en minnir i leiðinni á að Tibrá spilar i Miðgarði 13.-14. ágúst næstkom- andi og á Lisuhól þann 28. ágúst. Allt í lagi aö Þegar Stuðarinn var að koma af fundi með Sonus Futurae, rakst hann á tvær stelpur sem voru léttar á fæti. Sökum þess hve fætur þeirra voru léttir, vék hann sér að þeim og spurði: — Hvað er verið að gera? „Við erum bara að labba um, leik ÍBl og Breiðabliks var nefni- lega frestað og eitthvaö verðum við að gera á meðan.” — En hvað heitið þið? Sú síðhærða kvaðst heita Ing- unn Sigurðardóttir og vera 16ára, en hin Bára Eliasdóttir, 17 ára. Bára er Isfirðingur en Ingunn fyrrverandi Isfirðingur. Ferðalög og tónlist — Eruði miklir iþróttaunnend- ur? „Nei, við höfum engan sérstak- an áhuga á iþróttum. Við ætluð- um einungis að hvetja okkar lið, sem er að sjálfsögðu ÍBt. Nei, við leggjum eingöngu stund á skóla- leikfimi, sem við neyðumst til að fara i.” — En hver eru þá áhugamál ykkar? Bára: „Ja, ég hef gaman af ferðalögum og að syngja og spila á gitar.” — En þú Ingunn? - en tilgangs laust aðw-t; og Ingunn' „Jú, þessu sama nema að spila á gitar.” — Og hvað er það sem þið syng- ið? „Allt sem við kunnum.” Stuð- arinn sér á þeim að það er ekki fátt. — Þið eruð kannski að spá I að stofna hljómsveit? „Tja, ekki enn sem komið er, það getur komið að þvi seinna.” Báðar trúaðar Og þar sem viðtalið er tekið rétt fyrir verslunarmannahelgina, spyr Stuðarinn: Hvað á að gera um helgina? Bára: „Ég fer til Noregs, verð þar reyndar i tvær vikur, á nor- rænt kristilegt mót i Tönsberg. Mót þetta kallast SUM.” Ingunn: „Eg fer vestur i Isa- fjarðardjúp og verö þar i sumar- bústað.” — Eruði trúaðar? Bára: „Já, ég er i Æskulýðsfé- lagi tsafjarðarkirkju.” Ingunn: „Já, ég er i K.S.S. Tilgangslaust að drekka — Þiö eruð þá væntanlega ekki i djamminu og djúsinu? „Nei, við sjáum engan tilgang i aðdrekka a.m.k. Það er allt ilagi að djamma. Það er leiðinlegt að horfa upp á þessa vesalinga sem þurfa alltaf að fá sér eitthvað að drekka til að vera hressir. Það er eitthvað svo tilgangslaust,” segja Ingunn og Bára að lokum. Og Stuðarinn þakkar þeim fyrir þetta stutta spjall og vonar að þeim hafi liðið vel um verslunar- mannahelgina.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.