Helgarpósturinn - 17.09.1982, Side 10

Helgarpósturinn - 17.09.1982, Side 10
10 Föstudagur 17. september 1982 JpSsturinn. Purrkurirm kveðurf?) Purrkur Pillnikk — No Time To Think Rétt áður en Purrkur Pillnikk hélt í hljómleikaferð um Bret- land í vor sem leið, lýsti Einar Örn, raddmaður hljómsveitar- innar, því yfir í blaðaviðtali að hljómsveitin hefði aðeins gert eitt lag með enskum texta og fleiri yrðu þau ekki. Aldrei. Þeg- ar til Bretlands var komið brá hljómsveitin sér í stúdíó og hljóðritaði fjögur lög sem nú hafa verið gefin út á lítilli plötu, sem ber heitið No Time To Think. Já, það er enskt nafn og það sem er nú enn furðulegra, sé hljóti að vera vinsælar. Það er ekki svo. Það er verið að reyna að gera þær vinsælar og oftast nær tekst það og þá sakir þess hversu gagnrýnilaust fólk er á þá vöru sem verið er að troða upp á það í gegn um sjónvarp. Það er þó fleira sem kemur til þegar litið er á vinsældir B.A. Robertson hér á landi og þá kem- ur fyrst upp í hugann hið ágæta pláss sem hann hefur fengið í Skonrokki. Að vísu verður að viðurkennast að það er þó skömminni til skárra að hlusta á hann af nokkuð vel gerðum videofilmum en á plötu. Eg hef nú svo sem verið bless- unarlega laus við að þurfa að hlusta mikið á B.A. Robertsori fram að þessu þ.e.a.s. ég hef sloppið með eitt og eitt lag í út- varpi. En nú er ekki undankomu auðið lengur því hann hefur sent frá sér nýja stóra plötu R&BA og er til þess ætlast að ég gefi henni umsögn. Það er nú líka hægt að gera það með einni stuttri setn- ingu: Hún er hrútleiðinleg. En ég slepp víst ekki með það. Af hverju er platan leiðinleg? Jú á miðað við fyrgreinda yfirlýsingu, að textarnir eru allir á ensku. Annars er mér alveg sama á hvaða máli Einar ,,syngur“, því tónlistarlega er þetta langbesta plata Purrksins. Hún er kraft- mikil og vel unnin í alla staði. Bestu lögin finnast mér vera Excuse Me og GooGooPlex. Hljómsveitin er í þrumustuði og mixið er sérlega gott og skilar sér vel sá kraftur sem fylgt hefur hljómsveitinni á hljómleikum. Nú þegar Purrkurinn þykist hættur skulum við vona að þeir standi svona álíka vel við orð sín og þeir gerðu varðandi ensku yfirlýsinguna, því þó gróska sé í íslenska rokkheiminum, þá meg- um við illa við að missa hljóm- sveitir úr þeim gæðaflokki sem Purrkurinn tilheyrði, þ.e. þeim efsta. Go Go’s — Vacation Kvennahljómsveitin Go Go’s sló rækilega í gegn fyrr á þessu ári með laginu We Got The Beat svo og með sinni fyrstu stóru plötu, Beauty And The Beat, sem fór í fyrsta sæti bandaríska vinsælda- listans. Mikið var skrifað um hljómsveitina og þótti mörgum sem hér væri komið nýtt og ferskt afl fram á sjónarsviðið í banda- rískum poppheimi. í rauninni er tónlist Go Go’s ekkert ný af nál- inni og nægir í því sambandi að benda á skyldleika hennar við fyrstu tvær Blondie-plöturnar. Það var maður að nafni Rich- ard Gottehrer, sem stjómaði upptökum á fyrstu tveimur, og margir segja bestu, plötum Blondie en þau slógu ekki í gegn fyrr en með sinni þriðju plötu. Hljómur þeirra platna sem Gottehrer hefur stjómað er nokkuð sérstakur og dálítið gam- aldags. Þessi sami maður stjórn- ar einnig upptökum á plötum Go Go’s og er þar komin að nokkm leyti skýring á hversu hkar hljómsveitirnar hafa verið. Við það bætist að söngkonur hljóm- sveitanna hafa nokkuð hkar raddir. Go Go’s hafa nú sent ffá sér sína aðra stóru plötu, Vacation og virðist gengi hennar ætla að verða svipað og hinnar fyrri, þar sem hún hefur nú þegar komið sér fyrir meðal tíu vinsælustu platna í Bandaríkjunum og lagið Vacation nýtur einnig mikilla vinsælda. Tónlistin á Vacation er mjög svipuð því sem Go Go’s vom að gera á fyrri plötunni en ef eitt- hvað er er hún ekki alveg jafn hrá og tel ég það nokkurn galla. Einhverjir hafa sagt um Go Go’s að væri um karlahljómsveit að ræða hefði hún aldrei náð neinum vinsældum, vegna þess hún þætti ekki nema svona miðl- ungi góð. Það er nú kannski eitt- hvað til í þessu en þó er nú hægt að hafa gaman af Go Go’s. B.A. Robertson — R&B.A. ,,B.A. Robertson okkar maður“. Eitthvað þessu hkt stendur á auglýsingaplakati sem Steinar h.f. hafa látið gera í til- efni af útkomu nýjustu plötu kappans. Þessi setnmg er sko ekkert út í loftið þegar litið er á að hvergi í heiminum er maður- inn líklega jafn vinsæll og á ís- landi. Hann átti nokkur lög á vin- sældahstanum breska á ámnum 1979 og 80, og var Bang Bang þeirra vinsælast, en síðan hefur heldur hallað undan fæti og þar í landi gægist nafn hans ekki einu sinni lengur inn á vinsældalista. í Bandaríkjunum hefur hann aldrei náð neinum vinsældum en hvað um önnur lönd er hægt að segja veit ég að vísu ekki náið, en þó hefur nafn hans svo sem ekk- ert verið að flækjast fyrir augun- um á mér þegar ég hef verið að kíkja á Evrópu, Kanada og Ástralíulistana. Eru vinsældir B.A. Robertson hér á landi ekki bara gott dæmi um hvað er hægt að gera ef vilji er fyrir hendi til að auglýsa eitthvert nafn rækilega upp? Það er nefni- lega, því miður, æði stór hópur fólks sem trúir því að allt sem auglýst er í sjónvarpi sé gott og smekkur þess miðast við það sem þar er bent á. Það er líka út- breiddur misskilningur að allar þær plötur sem þar em auglýstar henni er ekki einn einasta frnrnl- egan tón að finna. Tónlistin er útjöskuð og á plötunni er ekkert sem ekki hefur verið gert þúsund sinnum áður og oft betur. Tón- Ustin kom mér að vísu ekki á óvart en ég átti von á að textamir væru betri og hef ég á tilfinning- unni að svo hafi hka verið á fyrri plötum hans. Eg á nú von á því að mesta B.A. Robertson æðið hafi geng- ið hér yfir þó sjálfsagt rjúki ein- hverjir í næstu plötubúð þegar þeir frétta af útkomu plötunnar. Ég held þó að það sé nokkuð öruggt að ekki bætir hann mörg- um nýjum aðdáendum í safnið. 8JOKVAKI* Föstudagur 17. september 20.40 PrúSuleikararnir. Einu sinni var skratti góð hljómsveit sem hét Blondie. Þar var Debbie Harry aöalkrafturinn. Svo tór bandið til Am- eríku, komst í náiö samband við dollarana og hefur vart borið sitt barr ennþá. Debbie Harry er gestur þáttarins og hefði einhver orðið hissa á því f. 3 árum. 21.05 Á döfinni. Eitt besta efni sjónvarpsins. Hnitmiðuð dramatísk uþþbygging, humor, gott komment á samtímann. Birna er þó sætust af öllu. 21.10 Haförninn. Hreint blabla miðað víð þáttinn á undan, en samt frábært, hafi menn smekk fyrir náttúrunni. Einstök myndataka af örnum. 21.40 Píanó handa Ester. Bette Davis leikur aðalhlutverkið í þessari nýlegu bandarisku sjónvarpsmynd um aldraða ekkju sem flestir halda að sé elliær. En það er hún ekki. Leikstýrt af George Schaefer. Bette Davis á sér marga aðdáendur, en liklega er rétt að hata vasaklúta við hendina þegar horft er á þessa mynd. 23.20 Dagskrárlok. Laugardagur 18. september 17.00 íþróttir. Hér er valinn maður i hverju rúmi. Eigum við ekki að koma okkur fyrir á Hi- inda Stole, heimavelli okkar, og fylgjast með viðureign Bjarna Fel og Ellerts? 20.40 Löður. Bandariskur gamanmyndaflokkur (321). JR kom f síðasta þæfti í fiasið á Lindu þar sem hún sagði „I love you, Bobby". Pam var brjáluð, hringdi i bróður sinn og hann ætlaði að beita áhrifum til að stöðva oliukaup Ewinganna. Eða er ég að rugla? 21.05 Blágrashátið. Það er ekki oft sem færi gefst á að sjá grúppuna „The Seldom Scene". En hverjum er svosem ekki sama? 21.35 Adam átti syni fjóra. Mynd frá 1941 eftir Gregory Ratoff og með Ingrid Bergman, Warner Bexter og Susan Hayward í aðal- hlutverkunum. Alveg bærileg mynd um unga konu sem fóstrar fjóra stálpaða stráka. 22.50 Dansar frá Suður-Ameriku. Eitthvað fyrir Heiðar og önnur dansfrík. Ég verð hinsveg- ar á dansgólfinu i Sóðali. Ég fæ fiðring. Ég meina það. 23.55 Dagskrárlok. Sunnudagur 19. september 18.00 Sunnudagshugvekja. Örn Báður Jónsson rabbar. 18.10 Súsanna og drekinn. Nútímaævintýri fyrir börn og fulla. Um fimm ára stelpu sem er ein heima á kvöldin. Bö, bö og blaka. 18.45 Fyrirsátur við Masai Mara. Ljón f þjóð- garði í Afríku. Áreíðanlega í hundraðasta sinn. But. Góð visa er aldrei of oft ort um kort. 20.40 Sjónvarp næstu viku. Spurningin er þessi: Hvod er Guðmundur slæmur í augunum, eða beina þeir kastaranum beint í augun á honum af fantaskap? Samt gott efni. 21.00 Jóhann Kristófer. Endalaus barningur á þessum manni. Ekki sjónvarpsúrvinnsla sem hæfir bókinni, er manni sagt. 21.55 Hljómleikar norrænu unglingahljóm- sveitarinnar. Sinfónía eftir Dvorák, leikin af krökkum. Þau eru nú orðin hálffullorðin, sum hver, þvi þetta er meira en ársgamalt. 22.35 Dagskrárlok. ÍITVARI’ Föstudagur 17. september 7.15Tónleikar. Jón Örn leikur einleik á hörþu við undirleik. Þulur velur og kynnir. Amen. 9.05 Morgunstund barnanna. „Bangsimon". Hulda bfó Valtýsdóttir þýddi og Hjalti ieikó Rögnvaldsson lesó. Tíundi lestur? 10.30 Morguntónleikar. Johan Svendsen heitir skandinaviskt tónskáld sem samið helur verkið Rómönsu. örnulf Boye Hansen heitirstjórnandi sem stjórnað hefur Filunni f Osló. Þeim iendir saman hér. Ofl. 11.00„Það er svo margt að minnast á“. OK, Torii. Láttu það koma. Jónsson. Hálftíma þáttur. 11.30 Létt tónlist. Þetta er einhver léttasta tónlist sem leikin hefur verið. Samkvæmt heims- metabók Guinnes er þó meðalþyngd henn- ar yfir lágmarki samkvæmt aiþjóðlegum staðli Tónlistarráðsins i Vín. Semsagt gott. 13.00 Á frívaktinni. Sigrún Sigurðardóttir. Hlust- aðu nú ef þú ert á dekki. Þú færð innilegar kveðjur frá... tja öllum? I alvöru þá er þetta svolítiö skrítinn þáttur. Sérstaklega núna þegar allir sjómenn eru að koma í land. 15.10 „Kæri herra Guð, þetta er Anna". Fram- haldssaga eftir Fynn, og les Sverrir Páll Erlendsson eigin þýðingu. Hef bara ekki heyrt þetta frekar en aðrir vinnandi menn. Sorri. 16.20 Litli barnatíminn. Fjallað um göngur og réttir fyrir norðan. Bíum bíum bamba, lömb- in litlu þamba, fylla alla vamba, af landa (færeyska). 16.40 Hefurðu heyrt þetta? Fáránlegt nafn á þætti fyrir börn og unglinga. Ég meina það. 17.00 Síðdegistónleikar. Fantasíur, Ijóð og rapsódíur. Radisur og rófur. 19.40 Á vettvangi. Sigmar og Arnþrúður. Gott kvöld. 20.00 Lög unga fólksins. Nokkuð simpatískur þáttur. Að minnsta kosti er nóg af kveðjun- um. Öfugt við sjúklinga og sjómenn, sem ekki nenna að senda. 20.40 Sumarvaka. Seinni partinn í september? Mannskaðaveður og frásöguþættir. 23.00 Svefnpokinn. Páll Þorsteinsson. Laugardagur 18. september 9.30Óskalög sjúklinga. Frísklegur þáttur á ferskri stund. Morgunstund gefur gull i skó. Kristín Björk Þorsteinsdóttir kynnir og velur. 11.20 Sumarsnældan. Helgarpakki fyrir krakka. Mjúkur pakki þetta og aðeins fyrir vont veð- ur. Annírs eru allir krakkar úti að leika. 13.35 íþróttir. Jæja Hemmi. Hvað gera bændur nú? Allur fótbolti búinn og rollur komnar i hús. Taka fram handboltann? Hvað varstu annars að gera á Laugaveginum á mið- vikudaginn? 13.50 Á kantinum. Hvað gera bændur þegar bensínið stendur á sér og er yfirleitt alltaf í botni, og bíllinn rýkur áfram án þess að nokkuð verði við raðið? Taka þeir frammúr, kaldir og rólegir? Ha, Birna og Gunnar Kári? 14.00 Laugardagssyrpa. Asgeir, Þorgeir, Sig- urgeir, gorgeir. Guðgeir, Margeir, Friðgeir, gorgeir. (Þetta er Ijóð). Ryksugumúsik og snakk. Gott. 16.201 sjónmáli. Ég sé frammá friðsælt kvöld í faðmi öldurhúsanna. En þú Sigurður Ein- arsson? 17.00 Síðdegistónleikar. Tónlistarhátiðin i Schwetzingen sl. vor var skemmtileg að sögn. Þetta er gott útvarpsefni. Þægilegur fróðleikur á góðri stund. Haraldur, ó Har- aldur Ólafsson kann á þessu tókin. 20.00 Hljómskálamúsik. Ekki veit ég hvað það er akkúrat, þó lengi hali þetta verið á dagskránni. Klassik, veit ég, en nánari skil- greiningu vantar. Guðmundur Gilsson kynnir. 20.30 Þingmenn Austurlands segjafrá. Þriggja kortera viðtal við Tómas Árnason. Það vili svo til að Löður er að byrja, þannig að hlustendahóþurinn verður vart fjölmennur. Grey Tómas. Svo var Óli Jó að gera bömmer i stólnum hans. 21.15 Kórsöngur. Kammerkórinn undir stjórn Rutar. 21.40Heimur háskólanema. Ég sé fyrir mér kjallaraíbúð í Vesturbænum, sem leigð er á 4000 á mán., ungt par í mussum sem drekkur te og borðar rusínur úr leirskál. Er þetta heimur háskólanema? Komumst að því. 22.35 Frásögn frá Bretlandl. Stefán Jón Haf- stein les þýðingu. 23.00 Danslög. Og dagskrárlok klukkan eitt. Stefán hefur greinilega ekki nennt að vaka út rokkþingið frekar en aörir. Það fór nú svo. Sunnudagur 19. september 8.35 Létt morgunlög. Miriam Makeba, Los Indi- os Papajaras, Mes Svapidos, Dos maka- lausas ofl. leika og syngja. 10.25 Út og suður. Það hlaut að koma að þvi: Ámi Johnsen segir frá Eldeyjarleiðangri sínum. Fyrir þá sem ekki hafa séð greinar hans í Mogganum. H.OOMessa. Síra Hjálmar Jónsson á Sauðár- króki prédikar, og leggur útaf guðspjalli dagsins. Hvaða guðspjall það er veit ég ekki, enda fer það eftir því hve upptakan er gömul, ekki satt? 13.15 Nýir söngleikir á Broadway. Er Óli Laufdal að truflast? Nei. Það er alvöru Broadway, sem við er átt. Auðvitað. Árni Blandon stjórnar. 14.00 Norræn samvinna-staðreynd eða þjóð- saga? Það er von þú spyrjir Hjörtur Páls- son. Hvernig væri að stofna samnorrænt ráð til að tékka á málinu? Eða skella á fundi samnorrænu menningarnefndanna? Eða hringja i Norræna félagið, sem er 60 ára og ætti að vita það. Gunnar Thor flytur ávarp og Hjálmar Ólafsson lika, ef ég man rétt. 15.30 í kaffitimanum. The Duke, B. Gees bræð- ur og Diana Ross fá sér kaffi og rettu, og spjalla um norrænt samstarf. 16.20 Það var og. Þráinn Bertelsson ræðir um heima og geima. Það er ekki öllum lagið að gera það vel. Það getur þó Þráinn. Skemmtilegt snakk. 19.25 Hugleiðingar um nöfn. Dr. Gunnlaugur Þórðarson les orðrétt úr símaskránni. Þrit- ugasti lestur: Karl tii Kristján. 20.00 Harmonikkuþáttur. 20.30 Menningardeilur milli stríða. Bók- menntaþáttur Arnar Ólafssonar. Fantagott efni fyrir menningarpakkið. 21.00 islensk tónlist. I a, b, c, og d lið. Nenni ekki að skrifa það uþþ. 21.35 Lagamál. Tryggvi Agnarsson, Heimdell- ingur m.m. talar um lögfræðileg efni. Hvað er sekt?, t.d. Hvað er sakleysi? Má maður keyra yfir á bleiku? 22.35 Selsvarartröllið. Jónas Árnason, Múla- tröll, les frásögu. 23.00 Á veröndinni. Halldór Halldórsson tekur saman þátt um islenska andastofninn. Og leíkur blúgrass með.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.