Helgarpósturinn - 29.10.1982, Page 11
-ffe/l irinn Föstudagur
29. október 1982
11
staklingsbundnar og kunna að
vera fólgnar í tæknilegum höml-
um sem kennarar og leikstjórar
hafa ekki upprætt - eða jafnvel
yfirburðum sem leikarinn veit af
og dáist mjög að sjálfur! Fullt
eins líklegt er þó að þarna sé að
verki listrænt kunnáttuleysi: van-
geta til að skynja hina ímynduðu
persónu sem einstakling af holdi
og blóði og vekja með sjálfum sér
- og áhorfandanum - mannlegar
tilfinningar gagnvart henni. Við
þessu er aðeins til eitt ráð: að
leikarinn virki allan æfingatím-
ann innsæi sitt, þekkingu og í-
myndunarafl til að kynnast pers-
ónunni mjög náið, endurskapa í
huga sér lífsmunstur hennar, uns
þar er komið að hann er fullkom-
lega öruggur í návist hennar.
Á þingi gagnrýnenda og lista-
manna, sem fyrr var vitnað til í
þessari grein, minntist leikkona
af eldri kynslóð á tal manna um
þörfina á „nýjum andlitum” í
íeikhúsinu. í máli hennar gætti
nokkurrar biturðar og var auð-
fundið að henni fannst sem í þess-
ari ósk lægi dulin illkvittni gagn-
vart hinum eldri. Það'væri ákaf-
lega slæmt ef viðkvæmni af þessu
tagi næði að spilla sambúð yngri
leikara og eldri. Ég hef hér lýst
þeirri skoðun að íslensk leiklist
þurfi að verða raunsærri, en það
væri mikill misskilningur að
halda að raunsæisleiklist sé algert
nýjabrum hér á landi. Ein af
fremstu leikkonum þjóðarinnar
sagði mér eitt sinn að kunnáttu-
maður, að mig minnir útlendur.
Charlie Haden’s Liberation Music Orchestra í Háskólabíói — hástigslýsingarorðin ekki ofnotuð,
segir Vernharður m.a. í umsögn sinni.
Stórtónleikar fre/sis tóns veitarinnar
Oft eru stóru orðin misnotuð
þegar tónieikar eru auglýstir, en
ég held að ekki hafi verið tekið of
djúpt í árinni þegar
hástigslýsingarorð voru notuð
um Charlie Haden’s Liberation
Music Orchestra. Að vísu væri
réttara að kenna sveitina við pí-
anistann og útsetjarann Cörlu
Bley, því hún útsetti alla tónlist-
ina og stjórnaði og æfði bandið.
Hljómsveitarstjórinn stóð með
bassann sinn á miðju sviði og
undraði víst margan að hann
skyldi kosinn bassaleikari ársins í
down beat. Tónninn er voldugur
en tæknin ekki, hiti og kraftur
Mingusar er hvergi þegar kveikja
þarf hinn spánska eld en honum
tekst flestum betur að vekja hið
ljóðræna líf. Það má hafa verið
dauður maður sem ekki hreifst af
fegurð bassaleiksins í verki hans
Silence fyrir hlé. Carla lék þar
einsog Gismonti og svo bættist
trommarinn Paul Motian í hóp-
inn. Það er langt síðan trommu-
leikari hefur hrifið mig eins með
leik sínum. Hann var hinn
alltumlykjandi rýþmi sem stráði
glitrandi perlum yfir tónlist
bandsins.
Blásararnir blésu allir sólóa
utan valdhornleikarinn Sharon
Freeman og túbuleikarinn Jeff
Jeffers. Saxarnir Dewey Re-
dman, Jim Pepper og Steve
Slagle, trompetleikarinn Michael
Mantler og trombónleikarinn
Gary Valente blésu af stakri
prýði en eftirminnilegastir eru þó
einleikskaflar Don Cherry, sem
blés í vasatrompet, sérí lagi þegar
blásið var í hinum ljóðræna stfl,
skalahlaupunum hefur maður
fengið nóg af.
Þá er aðeins ónefndur einn af
liðsmönnum sveitarinnar, Mick
Goodrick, sem töfraði viðstadda
með spænskum gítarnum.
Á fyrri hluta tónleikanna voru
leikin ný verk, sem væntanlega
má síðar heyra á hljómplötu
þeirri sem sveitin ætlar að hljóð-
rita fyrir ECM í lok þessa ferða-
lags. Þögn Hadens, ópusarCörlu
og suðuramerísk þjóðlagatónlist.
Margir sperrtu eyrun þegar síð-
asta verkið fyrir hlé hófst. Var því
líkast að Carla færi þar frjálslega
með rímnalagið íslenska: Hani,
krummi, hundur svín - ég spurði
Cörlu um lagið. „Þetta er af
spænsku ættinni", sagði hún.
„Ég held frá E1 Salvador." Og
svo bætti hún við eftir að hafa
heyrt það íslenska raulað. „Þjóð-
lög eru allstaðar Iík.“
Eftir hlé var leikið af efnisskrá
bandsins frá 1969. Upphafs-
söngur Cörlu og Samfylkingar-
söngur Brechts og Eislers og voru
þá ýmsir gamlir byltingarmenn
orðnir vígmóðir og rauluðu með
sjálfum sér: Fylg oss félagi,/
fylkjum liði í dag/undir merki
hins arðrænda manns /í vaxandi
einingu verkalýðs/ þar til valdið
að lokum er hans.
Svo voru leikin lög úr spænsku
borgarastyrjöldinni. Viva La Qu-
ince Brigada! og ekkert vantaði á
sviðið nema gömlu spánarfarana
veifandi rauðum fánum.
Enn einusinni sýndi og sannaði
Carla Bley að enginn skrifar bet-
ur fyrir lúðrasveit um þessar
mundir!
Það var ekki nema rúmlega
hálft hús á þessum tónleikum og
er það miður. Það er löngu upp-
selt á tónleika sveitarinnar
annarsstaðar í Evrópu, jafnt í
París sem Osló. Það sem af er
árinu hafa djasstónleikar verið
heldur illa sóttir en vonandi fjöl-
menna allir unnendur rýþmískar
tónlistar á tónleika Mississippie
Delta blús bandsins í byrjun des-
ember. Það hefur verið endur-
skipulagt síðan það var hér síðast
og mætir tvíeflt til leiks og ætlar
að rétta við fjárhag Jazz-
vakningar, sem er sannast sagna
bágborinn eftir þessa tónleika.
hefði sagt við sig að hún léki í
rauninni alveg eftir kerfi Stani-
slavskýs. Sjálf kvaðst þessi mikil-
hæfa leikkona aldrei hafa lesið
Stanislavský neitt að ráði!
Ég held að þessi litla saga sé
svolítið dæmigerð fyrir stöðu
eldri leikara okkar, því að margir
í þeim hópi - ég nefni aðeins Ró-
bert Arnfinnsson, Rúrik Har-
aldsson, Guðbjörgu Þorbjarnar-
dóttur, Bríeti Héðinsdóttur,
Helga Skúlason - hafa orðið stór-
ir í krafti háraunsæislegra vinnu-
l.KIKFPl AC,
RFYKIAVlKUR
SKILNAÐUR
laugardag uppselt.
miövikudag kl. 20.30.
JÓI
föstudag uppselt.
ÍRLANDSKORTIÐ
5. sýn. sunnudag kl. 20.30.
Gul kort gilda.
6. sýn. þriöjudag kl. 20.30.
Græn kort gilda.
Miðasala í Iðnó kl. 14—20.30.
HASSIÐ
HENNAR
MÖM
MIÐNÆTURSYNING
í
AUSTURBÆJARBÍÓI
LAUGARDAG KL. 23.30
MIÐASALA i AUSTURBÆJ-
ARBIÓI KL. 16—21.
SÍMI 11384.
bragða. Vissulega hefur mátt
merkja nokkra þreytu hjá
sumum af þessari kynslóð á
seinni árum, en hitt hefur líka
borið við að einstöku maður -
Gunnar Eyjólfsson er skýrt dæmi
- hafi skyndilega sótt í sig veðrið
og blómstrað á ný. Ég held það
gæti orðið íslenskri leiklist til
mikilla heilla ef yngstu leikarar
okkar næðu betra sambandi við
hina eldri, því að hjá þeim býr sú
þekking sem reynslan ein veitir
mönnum. jvj
f-ÞIÓÐLEIKHÚSIfl
Hjálparkokkarnir
eftir George Furth
í þýðingu Óskars Ingimarssonar
Ljós: Kristinn Daníelsson
Leiktjöld: Baltasar
Búningar: Helga Björnsson
Leikstjóri: Helgi Skúlason
Frumsýning í kvöld kl. 20 Uppselt
2. sýning sunnudag kl. 20
3. sýning miðvikudag kl. 20
Garðveisla
laugardag kl. 20
Gosi
sunnudag kl. 14
Tvær sýningar eftir
Litla sviðið
Tvíleikur
þriðjudag kl. 20.30
Miðasala 13.15-20.
Sími 1-1200.
riHii
ISLENSKA OPERAN
____iiiii
Töfraflautan
eftir W.A. Mozart í íslenskri
þýðingu Þrándar Thorodd-
sen, Böðvars Guðmunds-
sonar og Þorsteins Gylfa-
sonar.
Hljómsveitarstjóri: Gilbert
Levine. Leikstjóri: Þórhild-
ur Þorleifsdóttir. Leikmynd
og búningar: Jón Þórisson.
Útfærsla búninga: Dóra
Einarsdóttir. Ljósameistari:
Árni Baldvinsson.
2. sýning
föstudag 29. október kl. 20.
3. sýning sunnudag 31. októ-
ber ki. 20.
Litli sótarinn
9. og 10. sýning laugardag
kl. 14 og 17.
11. sýning sunnudag kl. 16.
Miðasala er opin daglega frá
15 til 20.
IITVAItl*
Föstudagur
29. okt.
7.20 Gull í mund. Full ástæða aö þakka tyrir
þetta. Þaö er vel gert. Takk. Þakka inni-
lega.
10.30 Það er svo margt að minnast á. Torfi
Jóns og dóttir hans Hlín leika viö hvern sinn
fingur og lesa og lesa.
13.00 Á frívaktinni. Sigrún hjalar við sjómenn
og leikur lög nr. 345 Irá 1962 um oryggi á
hafi úti. Gangi öllum vel.
14.30 Móðir mín í kví kví. Áttundi lestur
þessa snilldarverks, sem vinnandi menn
geta ekki hlustaö á.
16.20 ,,Á reki með hafísnum". Nína Björk
Arnadóttir les trásögn Jóns Björnssonar, af
ástum tennisleikarans Björns Borgar.
20.00 Lög unga fólksins. Fyrir unga í anda
líka. Óli píka.
20.40 Art Ensemble of Chicago. Gott mál
þetta. Upptökur úr Broadway, síðan hljóm-
sveítin var hér fyrir nokkru.
23.00 Þingmenn austurlands segja frá.
Nú ræðir þrístökkvarinn við Björgvin Jóns-
son. Er hann á þingi núna? Er ég orðinn
ruglaður? I hvaöa flokki er þessi fyrsta
flokks maður?
Laugardagur
9.30 Óskalög kjúklinga. Kristín peppar upp
sjúka sem heilbrigöa meö söng og tag-
urgala.
11.20 Hrímgrund - Útvarp barnanna.
Blandaður þáttur. Einn af þeim. Þeir eru í
tísku eöa hvaó. Tal, músík, tal, músík.
Endalaust.
13.20 Helgarvaktin. Keppir viö topp 40 í kan-
anum og hetur jafnan vinninginn.
15.10 í dægurlandi. Núáaöseajafrá upphafi
islenskrar dægurtónlistar. I upphafi var
oröið, mundi ég segja. En þú, Schwabbí?
16.20 Þá, nú og á næstunni. Hildur Her-
móðsdóttir fjallar um sitthvaö. Sem er á
boóstólum. Fyrir börn.
19.35 Á tali. Gallinn ersá að akkúrat á þessum
tíma er enska knattspyrnan aö þvælast
fyrlr manni. Samt gott.
21.30 Gamlar plötur og góðir tónar. Gamlir
menn og gott neftóbak. Væntanlega mót-
vægi við næsta dagskrárlið. Hér hjá okkur.
Sjá.
23.00 Laugardagssyrpa. Páll Þorsteinsson
og Þorgeir Ástvaldsson draga fram íslensk
einsöngslög og sænska skottísa. Ég er far-
inn á ball.
Sunnudagur
8.00 Morgunandakt. Allir haldi niöri i sér
andanum i 5 mínútur og sjá, yður mun illt
verða.
10.25 Út og suður. Valborg Bentsdóttir ferða-
langur ségir Irá grænlandsgrundum sem
hún hefur traðkaö á.
13.20 Berlínarfílharmónían 100 ára.
(Fyrsti þáttur). Drottinn minn. Ég segi nú
ekki annað. Hvað veröa þeir margir. Af þvi
hef ég áhyggjur, Guðmundur Gilsson.
14.00 Leikrit: Morðið i rannsóknarsto-
funni. Rúrik Haraldsson stýrir verki eftir
Escabeau.
15.30 í leikhúsinu. Sigmar B. stjórnar þættin-
um leikhúsin í vetur og verkefni þeirra.
Djúsí, djúsí.
18.05 Það var og... Þráinn heldur áfram og
hetur fundiö þætti sínum tínt torm. Gott.
SJÓNYARI'
Föstudagur
20.35 Á döfinni. Fer nú heldur aö lengjast og
þyngjast róöurinn. Átram Birna.
20.45 Prúðuleikararnir. Gestur þessa þátta
er stundum svolítiö þreyttur er Melissa
Manchester, sem getur sjált veriö þreytt á
stundum.
21.10 Kastljós. Sigrúnog Ögmundurgeta lika
veriö þreytt, en eru þaö vonandi ekki í
kvöld.
22.10 Fundið fé. Sovésk. Árgerö 1981. Leik-
stjóri Evgení Matveét. Aldamótastykki,
upphatlega leikrit, sem segir írá spilltum
mæögum sem tara á hausinn og hyggjast
þá gifta þá yngri ríkum gæa. Slæmt (ólk, en
ekki þreytt. Myndin á aö vera i léttum dúr og
er þaö vonandi.
23.35 Dagskráriok.
Laugardagur
16.30 íþróttir. Umsjónarmaöur að þessu sinni
Ingvi Hrafn Jónsson. Bein útsending frá
alþingi. Keppt er i þvöglumælsku. Þrír
bestu komast á ólympíuleikana.
18.30 Riddarinn sjónumhryggi. Hann er
meö hýrri há, Jón Baldvin er kominn á þing.
18.55 Enska knattspyrnan. Seltoss City og
Bradford Dillman leika og syngja.
20.35 Löður. No comment.
21.00 Cat Ballou. Bandariskur vestri frá 1965.
Þessi mynd helur verið sýnd hér lengi, nú
síðast i sumar, við miklar vinsældir, enda
er þetta góð mynd, með góðum leikurum,
þeim Jane Fonda og Lee Marvin, í aðal-
hlutverkunum, og er þetta þvi tilvalið tæki-
færi til að hitta gamlan kunnirtgja. Þ.e.
myndina, bjáni.
22.35 Þjóðarátak gegn krabbameini -
Tatning. Talning sofnunarfjár og góðir
s_kemmtikraflar.
23.30 Óhreinir englar. (Angels with Dirty Fac-
es). Ein at þessum klassisku. Frá 1938.
Meö Humphrey Bogart og James Cagney i
aöaljúnóvatt. Endursýnd.
Dagskrárlok ekki alveg á hreinu.
Sunnudagur
18.00 Sunnudagshugvekja. Kiddi Friöfinns
vekur.
18.10 Stundin okkar. Þórður og Bryndís gera
aö gamni sinu og sýna sittt at hverju. Góðir
þættir. Já. Prýðilegir.
20.35 Sjónvarp i næstu viku. Innlend dag-
skrárgerð í toppklassa.
20.55 Glugginn. Þáttur um listir, menningarmál
og tleira. Til dæmis hvaö? Hvað er þarna
annað en listir og menningarmál. Ekkert!
Rangnelni.
21.40 Schulz í herþjónustu. Aldrei séö þetta.
Er sagt þaö sé sæmilegt.
22.30 Helgiförin mikla. Mynd sem Sigrún
Stefánsdóttir geröi ásamt tæknimönnum
um pílagrímsflutninga Flugleiða til Mekka.
Góö hugmynd. En spurningin er: Verður
ekki líka að gera mynd um flutninga Arnar-
flugs?
Humphrey Bogart leikur eitt af aðalhlutverkunum í mynd sjón-
varpsins á laugardagskvöldið.