Helgarpósturinn - 29.10.1982, Blaðsíða 16
EYMD
í BREIÐHOLTI
Eyind er hljómsveit í Breiðholt-
inu. í henni eru finini strákar á aldr-
inum 16-18 ára. Þeir heita Pétur,
Haraldur (Halli), Addi, Siggi, og
Stebbi. Stuöarinn náði tali af strák-
unum fyrir stuttu og fyrsta spurn-
ingin varauðvitaö: Af hverju cruði
í hljómsveit?
„Bara, þetta er mjög skemmti-
legt.“
-Dýrt?
„Já, en það hefur alltaf sloppið ein-
hvern veginn. -Svo vinna sumir af
okkur."
farðað sofa
- Hvernig tónlist spiliði helst?
„Rokk - og auðvitað er allt frum-
samið
-Diskó?
„Nei, farðað sofa...“
-Hvað með aefmgaaðstöðu?
„Við æfum í Fellaskóla, við feng-
um leyfi til þess þegar við vorum í
skólanum og æfum nú tvö til þrjú
kvöld í viku."
spila opinberlega
-Hafiði spilað opinberlega?
„Við spiluðum um síðustu helgi í
Fellahelli, svo stendur nú ýmislegt
til sem við viljum ekki segja frá
strax."
-Hverjar eru uppáhalds hljóm-
sveitirnar?
„Deep Purple, Þeyr, Þursarnir.
Stuðmenn..." þylja strákarnir upp
ásamt fleiri hljómsveitum sem við
ekki gripum. Og nú snerum við
okkur að öðru.
skólinn
-Hvaða álit hafiði á skólum?
Sumum fannst reikningur bull - _
öðrum danskan en....
Halli: „Skólinn er ágætur ef kenn- .
ararnir eru skemmtilegir.“
Pétur: „Já og ef krakkarnir eru
fínir.“
Addi: „Við sofum nú samt mikið í
skólanum."
góð menntun....
Halli: „Já, en maður verður að hafa
góða menntun."
Pétur og Addi: „Við tökum 9. bekk |
upp til að geta farið í eitthvað |
seinna.“
Stcbbi: Ég ætla aftur í skóla seinna, |
ég er bara ekki búinn að ákveða
'nvað það verður...“
Siggi: „Ég vil helst ekki koma ná- y
lægt skólum..."
hitt og þetta, hér og þar
-Við stuðkonur vorum að vanda
mjög forvitnar um kynfræðsluna í 1
þeirra skólum???
Allir: „Við þurfum enga kyn-
fræðslu, þetta kemur svona smátt i
og smátt. Maður heyrir hitt og I
þetta svona hér og þar.“
-Lesiði eitthvað um þessi mál?
„Já, bæklinga sem við fengum í
Fellahelli, Iíka Vikuna, og Stuð-
arann.
Það eru þær
Sokkabandið bregður
undir sig betri fætinum
Mikil gróska rfkir nú í fsfírsku tón-
listarlffí. Kvennahljómsveitin Sokka-
bandið er cin þeirra sem hafa
skotið upp kollinum að undan-
förnu. Hana skipa: IngunnBjörg-
vinsdóttir ■ (söngur), Asthiídur
Þórðardóttir (bassi), Oddný Sig-
urvinsdóttir (gítar), Eygló Jóns-
dóttir (gítar), Rannveig As-
geirsdóttir (hljómborð) og Bryndís
Friðgeirsdóttir (trommur).
Undirritaðar hafa því miður ekki
verið nema á einum tónleikum með
Sokkabandinu og erfitt er að
mynda sér skoðun um tónlist þeirra
að svo stöddu, en sjálfar segjast
þær spila létt rokk, og ögn af raggae
í bland, og virðist okkur það ekki
fjarri lagi. Við höfum heyrt á skot-
spónum að höfuðborgarbúar fái
brátt tækifæri til að heyra í þessari
umtöluðu hljómsveit, en ekki vitum
við hvunær eða hvar það verður.
SV.HH.
„Mér er sagt hvernig ég á að vera, að gera, í kerfinu er ég Iftill punkt-
hvernig ég á að haga mér, hvað ég á ur sem skiptir engu máli.“
Misheppnað skáld?
Þvert á móti
Vá, ferlega var ég hreykin þegar ég
las söguna mína í blaðinu, þaðer að
segja: Þegar ég las hana fyrst. Nú er
ég komin á þá skoðun að ég sé al-
gjörlega misheppnaður rithöfund-
ur. En það eru líka ekki allir full-
komnir. Og þó ég sé misheppnaður
rithöfundur, er ekki þar með sagt
að ég geti ekki klambrað saman
nokkrum ferskcytlum:
Heyrt hef ég kennara segja:
„Þú ert barn mjög baldið.“ .
Hann getur sagt fólki að þegja,
því hann hefur valdið.
Ef hann segir þér að töflu að stíga
þá er þér það skylt.
Þú mátt ekki einu sinni míga
þegar þú vilt.
- O-
Og mikil örlög og áföll
hlýtur punktakerfið að bera.
Punktur í kladdann, og þrátt fyrir
áköll
ertu búin að vera.
f viku hverfur þú kannski,
(reyndar ekki ár og síð).
Samt er ei óvíst að mútta rannsaki
þína óhrjálegu fortíð.
Ef nokkrir punktar bætast við,
þá birtist félagsráðgjafinn.
Örfáir enn, þá er ei bið,
þér siglir í mót vinnumarkaðurinn.
S.B.Gunnarson.
Hin misheppnaða (manneskja).
Póstur og sími
Jafnrétti og stundvísi.
Kæri stuðari,
Ég vil að þú komir þessari
kvörtun á framfæri. Skólastjór-
inn okkar í Austurbæjarskóla
tekur hvorki mark á stundvísi né
jafnrétti. T.d. er tekið strangt á
því þegar krakkar mæta seint í
tíma en jafnframt sagt að við sé-
um I frjálsu námi. Og skólastjór-
inn mætir til kennslu þegar hon-
um sýnist. -Við eruin nú í frjálsu
námi og eigum að fá fullnægjandi
kennslu! Varðandi jafnréttið, þá
er það illa séð hjá skólastjóran-
um. Þannig var að það kom
lögga í skólann til að tala við
krakkana um skellinöðrur þar
sem margir eiga hjól. Skólastjór-
inn sagði.: „Þeir sem eiga hjól eða
ætla að fá hjól komi.“ Allir komu I
en þá rak stjóri stelpurnar í burt. |
Ég veit að stelpur geta alveg eins
fengið próf og strákar, því skil ég i
þetta óréttlæti ekki.
Nafnlaus í 9. bekk i
Kvörtuninni er hér með komið I
áframfæri. Auðvitaðgetastelpur j
fengið próf á skellinöðrur og j
hljóta að hafa áhuga á þeim eins
og strákar. Okkur er því jafn j
óskiljanlegt og þér þetta órétt- i
Iæti...En það er þetta með óstund- i
vísina. Ertu í frjálsu námi?
Við sem héldum að 9. bekkur i
væri skylda.
Upp og ofan
Þetta er hluti af laginu „Kerfið“,
sem Allsherjarfrík flytja, en Alls-
herjarfrík er ísfirsk hljómsveit sem
samanstendur af Bjarna Brink
(söngur), Kristni Níelsar (gítar),
Gumma Hjalta (bassi) og Krumma
(trommur).
Þessi „bráðefnilega“ ísfirska
hljómsveit mun koma fram á tón-
leikum sem „Upp og ofan“ halda í
kvöld, föstudaginn 29. október,
ásamt Vébandinu, Q4U og Tappa
Tíkarrassi.
Drífum okkur
strax af stað!
Tónlist þeirra gæti flokkast undir
pönk, rokk eða nýbylgju, eða bara
eftir því hvar fólk vill hafa það. Og
vilji fólk mynda sér skoðun um
málið, þá er bara að drífa sig á stað-
inn, því sjón (og heyrn) er sögu
ríkari.
-SV,HH.