Helgarpósturinn - 17.12.1982, Blaðsíða 19
r________
irinn Föstudagur 17. desember 1982
19
Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur
Bókin „Eyjar gegnum aldirnar"
sem er í stóru broti og mikið
myndskreytt skiptist í marga aðal-
kafla og má nefna kafla um myndun
Vestmannaeyja, um upphaf
byggðar í Eyjum og um íbúa Vest-
mannaeyja. Þá eru í bókinni
viðamiklir kaflar er nefnast: „Úr
gömlum annálum og nýjum“ og
„Slysfarir og hrakningar Vest-
mannaeyjabáta." Þá eru kaflar
m.a. um sögu vatnsveitunnar, um
björgunarmál Eyjamanna, sam-
göngumál og þróun þeirra og um
eldgosið í Heimaey 1973. Þá er
fjallað um alla alþingismenn Vest-
mannaeyja frá upphafi, um sjúkra-
hús og lækna í Vestmannaeyjum,
presta og sýslumenn og bæjarfó-
geta.
Sem fyrr greinir er bókin mikið
myndskreytt. Eru myndirnar nær
hálft þriðja hundrað talsins og
margar þeirra gamlar og fágætar.
Einnig eru fjölmargar myndir úr
bátamyndasafni Jóns Björnssonar.
„Eyjar gegnum aldirnar“ er sett,
umbrotin, filmuunnin, prentuð og
bundin í Prentsmiðjunni Hólum
hf. Bókarhönnun annaðist Steinar
J. Lúðvíksson en kápuhönnun Sig-
urþór Jakobsson. Á kápu er gömul
mynd frá Vestmannaeyjum eftir
C.W. Ludwig.
og hann lést 10. júlí 1924. Hann nam
bókband í Reykjavík og Kaupmanna-
höfn og veitti um skeið forstöðu bók-
bandsstofu ísafoldar. 1895-1902 stund-
aði hann málaranám við listaháskólann
í Kaupmannahöfn. Hann varð kenn-
ari við Iðnskólann í Reykjavík og skóla-
stjóri þar 1916-1923.
Um aldamótin hélt Þórarinn fyrstur
íslenskra málara sýningu hérlendis og
hann mun einnig fyrstur mann hafa
verslað hér með listmálaravörur. Eftir
hann liggja fjölmargar landslagsmynd-
ir, sem hans mun lengst verða minnst
fyrir.
Torfi Jónsson sá um tilhögun bókar-
innar, setning Prentstofan Blik hf., lit-
greining, umbrot og prentun Prent-
smiðjan Grafík hf., bókband Bókfell
hf.
Bókin er 80 síður.
Mál og menning
Hjá MÁLI OG MENNINGU er
komin út bókin Seld norðurljós eftir
Björn Th. Björnsson, listfræðing. í
bókinni eru viðtöl Björns Th. Björns-
sonar við fjórtán fornvini Einars Bene-
diktssonar, skálds, sem tekin voru
haustið 1964, en 31. október það ár var
hundrað ára afmæli skáldsins. Úr þess-
um viðtölum voru teknar stuttar glefsur
sem Björn Th. Björnsson skeytti inn í
afmælisdagskrá þá sem honum hafði
verið falið að gera, en segulbandsspólur
af upphaflegu samtölunum voru inn-
siglaðar og varðveittar af Ríkisútvarp-
inu að beiðni Björns. Sextán árum síðar
var hluti af þessum samtölum fluttur í
útvarpinu og vöktu þau mikla eftirtekt.
Um efni bókarinnar segir m.a. á
kápu: „Því fer fjarri að ævi Einars Ben-
ediktssonar hafi verið gerð tæmandi
skil í ritum um skáldið. Hvað um um-
svifatímana miklu í Lundúnum? Hvað
um búsetuna í Kaupmannahöfn? Hvað
um Títan? Hvað um glæsitírnann á
Héðinshöfða og Þrúðvangi eða um
auðnuleysi hans árin næst fyrir 1930?
Hvað um suðurferðina til Túnis, eða þá
unt ævikvöldið í dimmum hraunum
Herdísarvíkur?
Björn Th. Björnsson hefur leitast við
að fylla í þessar eyður með því að leita
uppi og ræða við fornvini Einars, fólk
sem var nærri honum á hverju þessu
æviskeiði. Um leið hefur hann bjargað
dýrmætum fróðleik frá glötun. Nú, átj-
án árurn eftir að viðtölin eru tekin, eru
allir viðmælendur hans látnir, að einum
undanskildum."
Heiti bókarinnar, Seld norðurljós,
telur til hinnar snjöllu og alkunnu þjóð-
sögu um Einar Benediktsson. skáld,
sem værislíkur töframaður að hanngæti
jafnvel höndlað með gneistaflug him-
insins. Seld norðurljós er 248 bls. að
stærð, prentuð og bundin í Prent-
smiðjunni Odda. I bókinni er fjöldi
mynda sem tengjast Einari og hafa
margar hverjar aldrei áður birst á bók.
Steingrímur Jónsson cand. mag. safn-
aði myndunum í bókina og samdi skýr-
ingar með hverri mynd.
SOPHIA
klassísk feguröjiýtt ilmvatn frá
DALFELL HEILDVESIJJN IJUKÍAVEGI116 SÍMI 23099
Bjallan
Nýlega er komin út hjá bóka-
útgáfunni BJÖLLUNNI mjög
athyglisverð barnabók, TÓTA
OG TÁIN Á PABBA eftir Guð-
berg Bergsson rithöfund. Þetta er
fyrsta barnabókin sem Guðbergur
skrifar og hann myndskreytir jafn-
framt bókina.
Hið sígilda ævintýri er jafnan á
mörkum þess að vera raunveru-
leiki og draumar. Bestu ævintýrin
eru bæði fyrir börn og fullorðna.
TÓTA OG TÁIN Á PABBA er
ósvikið ævintýri. Það er dularfullt,
táknrænt og kitlandi, en í senn ein-
falt og glettið eins og lækur ómeng-
aðs skáldskapar.
Forsíðan er af málverki eftir
René Magritte. PrentstofaG. Ben-
ediktssonar sá um setningu og
prentun. Bókfell annaðist bók-
band.
Nýlega er komin út hjá bókaút-
gáfunni Bjöllunni 6. bókin í landa-
bókaflokk Bjöllunnar BANDA-
RÍKI Norður Ameríku, eftir John
Bear í þýðingu Helgu Guðmunds-
dóttur. Áður eru út komnar
STÓRA BRETLAND, SPÁNN,
FRAKKLAND og HOLLAND.
Bækur þessar eru auðveldar í
notkun fyrir börn og fullorðna.
Lesefni er skipt niður í stutta kafla
og ítarleg efnisorðaskrá auðveldar
lesendum leit að einstökum atr-
iðum. Fjöldi ljósmynda, korta,
teikninga og línurita eru í bókinni.
Prentstofa G. Benediktssonarsá
um setningu, umbrot og filmu-
vinnu. Bókin er prentuð í Bret-
landi.
Helgafell
Bókaútgáfan Helgafell hefur gefið út
bók um Þórarin B. Þorláksson listmál-
ara. Bókin er með svipuðu sniði og fyrri
listaverkabækur forlagsins.
I bókinni um Þórarin eru birtar
myndir af málverkum hans og teikning-
um. Dóttir hans, Guðrún Þórarinsdótt-
ir ritar persónulega og fræðandi grein
um föður sinn og Valtýr Pétursson lista-
maður og gagnrýnandi skrifar um lista-
manninn Þórarin og verk hans.
Þórarinn B. Þorláksson fæddist á
Undirfelli í Vatnsdal 14. febrúar 1986
Metsölubókin, sem náð hefur miklum
vinsældum í mörgum löndum
Skjaldboigar
Gissur Ó. Erlingsson islenskaði, en
Brynleifur H. Steingrímsson, lækn-
ir á Selfossi, las yfir handrit og ritar
formála.
Int i
KsQNU
eftir
LUCIENNE
LANSON
M.D., F.A.C.O.G.
BÓKAÚTGÁFAN
SKJALDBORG
Hafnarstræti 67, Akureyri
Sími 24024
REYKJAVÍK
Ármúla 38, 2. hæð
Sími31599
Meðal hinna fjölmörgu atriða sem svaraðer í þessari bók
má nefna:
• Er nokkuð hægt að gera við fyrirtíðastreitu?
• Er brottnám legs alltaf nauðsynlegt I sambandi við að-
gerð við leghálskrabba á byrjunarstigi?
• Er hugsanlegt að kona verði þunguð ef hún hefur
barn á brjósti og hefur ekki haft á klæðum?
• Geta getnaðarvarnapillur valdið blóösega og hjarta-
áföllum?
• Er nokkurt samband á milli getnaðarvarnalyfja og
krabbameins?
• Hvaða þættir ráða lífslíkum við brjóstakrabba?
• Hversu öruggar eru getnaðarvarnir þinar? (Pillur?
Lykkja? Hetta? Ófrjósemistímabil? o.s.frv.)
Þessi bók nýtur sivaxandi vinsælda i mörgum löndum
siðan hún kom fyrst út i Bandarikjunum árið 1975. -
Bókin sviptir hinum uggvænlega dularhjúp af öllu þvi
sem kvenlækningar varðar. - Margar skýringarmyndir
eru í bókinni.