Helgarpósturinn - 21.01.1983, Qupperneq 10
10
Er málverkið fætt
af formi eða lit?
Málarinn Murillo sem var
síðasti snillingur spænskra mál-
ara á hinni svo nefndu gullöld lést
í Sevilla árið 1682 og í ár er
minnst dauða hans með yfirlits-
sýningu á verkum hans í Prado-
safninu í Madrid. í sumar var þar
haldin stór sýning á verkum E1
Greco. í tilefni sýninganna voru
gefnar út afar veglegar sýningar-
skrár sem varpa ekki aðeins Ijósi
yfir verk málaranna heldur einnig
yfir tímann sem þeir lifðu á. Allir
eru börn síns tíma og fortíðarinn-
ar, einnig listamennirnir og mál-
ararnir, sem franskur listfræðing-
ur telur að séu í engu frábrugðnir
hellaristumönnum frá bernskuár-
um mannkynsins, enda sé vinnu-
stofa málarans ævinlega hellir og
bráð, bæði því andlega og efna-
hagslega. Flestir lávarðar áttu
„ósvikinn MurilIo“ en snobbin
meyjar af skóla Murillos. Hin
Flekklausa hafði gífurleg áhrif á
hegðun aðalsins og á bókmenntir
Viktoríutímans, því þar voru
konurnar gersamlega flekklausar
og gæddar þeirri mildi og munn-
fríðleik sem ýmsir vilja endur-
reisa í listinni, og ekki þá aðeins
þeir sem eru af eða nátengdir
„mestu prestaættum hverrar
þjóðar". Svo eru sumir sem vilja
láta hina Flekklausu vera dálítið
limlesta, píslarvott með af-
skornar hendur til að mynda. Hin
Flekklausa er þá dýrlingur sem
ótal blóðbunur standa úr. Einnig
er vinsæl sú tegund af Flekklausri
vandamálin sem blasa við list-
málaranum þau sömu og í Alta-
mirashellunum: liturinn og form-
in.
Hins vegar hef ég það eftir Go-
ethe að málverkið sé aus der Far-
be heraus eða: uppspretta mál-
verksins er liturinn. En líklega
eru allir tímar annað hvort tímar
formrænnar hugsunar eða lit-
rænnar og undantekning ef þeir
eru sambland af hvorutveggja.
Það væri þá helst við upphaf ein-
hvers skeiðs eða þegar tíminn
hefur lokagöngu sína. Slíkir
tímar eru eða hafa yfir sér ein-
kenni frjálsræðisins.
Murillo hefur verið afar mis-
skílinn málari. Það eru einkum
hinar flekklausu meyjar sem hafa
ausið sandi í augu áhorfandans,
annað hvort sandi eða sykursætri
tilfinningavellu, hrifningu sem
nálgast það að vera glórulaus.
Hin Flekklausa (María mey) vek-
ur ekki aðeins hrifningu í brjósti
kaþólskra heldur líka lúterskra,
þótt meyjardýrkunin sé ekki eins
áberandi þar og hjá kaþólsku
kirkjunni, heldur móðurdýrkun-
in eða öllu heldur móðurhlut-
vérkið. Einkum dýrkuðu bretar
hina Flekklausu, og þegar veldi
aðalsins leið undir lok á Bretlandi
streymdi á málverkamarkaðinn
sægur af málverkum af hinni
Flekklausu úr enskum höllum
sem höfðu orðið gjaldþrotinu að
sem eignast barn en barnið á eng-
an pabba. Slík útgáfa af Flekk-
lausri er vinsæl hjá mennta-
mönnum. Hin Flekklausa á þá
barn en heldur áfram að vera eins
konar mey engu að síður. Hin
Flekklausa svífur yfir hinum
kristna heimi í ýmsum myndum
og oft furðulegum. En það gildir
það sama um hinar lifandi Flekk-
lausu og hina Flekklausu hjá
Murillo: þótt augunum sé beint
upp á við til himna en undir fót-
unum sé ský sem englar bera á
herðum sér, algerlega kynlausir,
þá leikur enginn vafi á því að lík-
ami hinnar Flekklausu engist eins
og ormur undir kjólnum; og það
er þetta sambland af siðavendni
og losta sem hefur í raun og veru
vakið hrifningu hinna trúuðu og
kannski löngunin til að Ieika sér
við hugarfarssyndina og hina
huglægu ást. í brjósti heilagrar
Teresu frá Avila brann slík ást-
arþrá að allir karlmenn hefðu
ekki getað svalað henni, og þess
vegna varð hún að eignast unn-
usta á himnum. Hann einn var
fær um að svala hinum ásthrjáða
huga.
Listaverk spænskra dulhyggju-
listamanna eru afar margbrotin. i
þeim er ekki aðeins kristin dul-
hyggja heldur líka dulhyggja af
arabískum toga spunnin, líkt og
verk Dantes er gegnsýrt af slíkum
áhrifum, einkum hyggju súfist-
anna.
Þess vegna eru það ekkí aðeins
formin í list Murillos sem vekja
surreöl áhrif eða djúphyggju hjá
áhorfandanum, heldur öðru
fremur liturinn eða það jafnvægi
sem er á milli dulhyggju forin-
anna og dulrænu litarins. Slíkt
veruleikaskyn tveggja heima
mannsins er afar fágætt í lista-
verkum. Maðurinn erekki aðeins
þáttur í hinu ytra raunsæi eða
raunheimi heldur Iíka „vatn“
(svo ég noti hugtak heilagrar Ter-
esu) í fljóti hins innra raunveru-
leika. Því hvort er meiri raunver-
uleiki, hin Flekklausa, hin upp-
hafna, eða hin óhreinu börn sem
leita sér lúsa eða spila með ten-
ingi, hin jarðbundnu? Með trú-
armálaranum Murillo kemur
jarðneskt barnið inn í málverk
vesturlanda, og börnin eru yfir-
leitt snauð.
En bæði hin Flekklausa og hin
flekkuðu börn eru böðuð í Ijósi
sem berst ekki frá neinum á-
kveðnum stað, öðrum en hinni
andlegu hrifningu eða uppljóm-
un sem verður í listamanninum
og ríkir meðan hann skapar verk
sitt. Þegar minnst varir rísa á flet-
inum „gullroðin ský“ upplýst af
ljósi æðra heims, því andlega í
listinni, eins og Kandinsky hefði
nefnt það. Skýin sprottin úr
undirmeðvitundinni eru gjarnan
dálítið leikhúsleg að spænskum
hætti, líkt og hjá Ribera og Ri-
balta. En leikurinn fer fram í
leikhúsi guðs.
Slík beiting Ijóssins í málverk-
um er orðin heldur fágæt, en Ti-
epolo beitti henni og Kandinsky.
Við þekkjum hana aðeins í mál-
verkum Vilhjálms Bergssonar.
Föstudagur 21.
En þetta „andlega í listinni“ dvel-
ur sem endurómur í lit fjölmargra
málara.
Murillo var uppi meðan ofur-
vald kirkjunnar ríkti á Spáni.
Hann málaði nær einvörðungu
fyrir kirkjuna og fylgdi vandlega
settum reglum hvað form áhrærði
og byggingu verkanna, en í litn-
um var hann frjáls. Eitt af ein-
kennum yfirstjórnar á andlegum
sviðum er krafan um að fylgt sé
röð og skapaðar raðir. Biðraðir í
ríkjum kommúnismans eru ó-
meðvitað angi af slíku andlegu á-
standi. Murillo varð að mála
myndaraðir fyrir kirkjuna, til að
mynda myndaröðina um Glataða
soninn, líkt og íslenskir málarar
og listamenn yfir höfuð verða að
starfa að „röð bóka, ljóða eða
janúar 1983 irinn
mynda“ ef þeir eiga að finna náð
fyrir augum „úthlutunarnefnd-
anna“ sem skammta atvinnu-
styrki. Þessi íkonahugsun er afar
rík í hinum kristna heimi, jafn rík
og andleg áhrifin frá hinni Flekk-
lausu sem er píslarvottur og dýr-
lingur meðal karlmanna.
Draumurinn um að leika á Jósef,
eins og María mey er afar ríkur.
Hún var ein af þeim fáu Flekk-
lausu sem varð barnshafa án
milligöngu karlmanns. Heimur-
inn hefur ekki borið sitt barr eftir
það heldur eilífar syndir og jag og
nagg.
Þau urðu endalok Murillos að
hann féll ofan af vinnupalli þegar
hann var að mála eina Flekklausa
á kirkjuloft. Hann vildi ekki leyfa
lækni að líta á sig, Murillo gat
ekki hugsað sér að nokkur karl-
maður sæi sig beran og fengi að
þreifa á sér, ekki einu sinni lækn-
ir. Heldur vildi hann deyja.
Og Murillo dó af fremur
auðlæknuðum sárum sínum í Se-
villa árið 1682, heilbrigður í hugs-
un og „sökum síns heiðarleika"
eins og Palomino segir. Enginn
hafði nokkru sinni séð hann ber-
an. Slík siðferðiskennd ríkir líka í
málverkunum. Fáir sjá þau nak-
in. Með gerð þeirra virðist hann
segja að sérhvert listaverk spretti
af þeirri siðferðiskennd sem
vaknar í huga listamannsins sem
fæðir það: „Ég mála svona af því
að siðferðiskennd mín segir mér
að ég eigi ekki að mála með öðr-
um hætti.“ Það er því hugarfars-
synd hjá listamanninum þegar
hann segist hefði getað unnið
verkið sitt öðruvísi en raun ber
vitni. Slíkt er einnig flaður.
Brögð og breiiur fyrir grúskara
Arthur Good:
100 brögð og brellur.
Þýðandi Hrólfur Kjartansson
127 bls.
Bjallan 1982.
Manstu eftir grúskaldrinum?
Það var þegar ekkert var
skemmtilegra en að blanda
saman einhverju sulli og sjá hvað
kæmi út, kannski yrði sprenging.
Eða að notað var vatn, kerti,
flöskur, glös, diskar, tappar
o.s.frv. til þess að búa til allskyns
þrautir og töfrabrögð.
Og nú er komin út bók fyrir
grúskara af þessu tagi. Því miður
er það einum of seint fyrir mig og
kanr.ski þig líka, en kannski get-
um við fengið útrás fyrir laumu-
grúskarann í okkur með því að
látast vera að hjálpa börnunum
okkar við þessar brellur. Það er
aldrei að vita, þó að við virðulegir
borgarar látum slíkt ekki uppi.
I formála fyrir bókinni segir
þýðandinn: „I þessari bók eru
ýmis grundvallarlögmál eðlis- og
efnafræði kynnt með leikjum,
þrautum og einföldum til-
raunum. Bókin er jafnt við hæfi
barna, unglinga og fullorðinna og
ætluð til notkunar í heimahúsum.
Verkefnin þarfnast ekki sér-
stakra tækja eða efna umfram
venjuleg áhöld sem til eru á
hverju heimili“.
í bókinni er að finna verulega
mörg viðfangsefni sem eru allt frá
einföldum leikjum upp í „viða-
meiri“ tilraunir. Bókin skiptist
í átta kafla sem eru t.d. um
þyngdarlögmálið, lofttegundir,
vökva, varma, rafmagn, ljós og
hljóð o.fl.
Bókin er í stóru broti og er sér-
staklega skemmtilega mynd-
skreytt af einhverjum Poyet sem
ég veit ekkert um, en myndirnar
eru í „gamaldags stíl“ og bera
svip af bókaskreytingum frá öld-
inni sem leið. Þær eru einnig
mjög skýrar þannig að vel sést allt
sem þarf að sjást til skýringar á
þessum myndum.
Þetta er alveg rakin bók fyrir
grúskara á öllum aldri og ég er
ekki frá þvf að skólar geti nýtt sér
hana líka, því ekki veitir af að
lífga svolítið uppá kennsluna í
raungreinum.
G.Asi.
rMóA'rrienn/Íi
eftir Gunnlaug Astgeirsson
IITVAKP
Föstudagur
21. janúar
7.10 Gull i mund. Stefán, Sigriöur
og Hildur bjóöa ykkur góöan
daginn og bjóöa ykkur aö leggja
vandamálin á þjóöarboröið.
Rosa gaman aö tala vitleysu í
útvarpið. Ó, þjóö mín.
10.30 Það er svo margt aö minnast
á. Torfi Jónsson fyrrum korna-
barn og núverandi fulltiöa maöur
segir okkur varöeldasögur viö
arininn.
14.30 Tunglskin ítrjánum. Og fiskur
i ánum. Tiplar á tánum hann Sig-
valdi á Indlandi.
15.00 Miðdegistónleikar. Ýmislegt
á könnunni alþýðukonunnar.
Ekki vill hún þetta, ekki vill hún
hitt. Hún vill bara þaö, sem hún
fær aldrei á meðan land byggist:
Betri lifskjör.
16.20 Aladdín og töfralampinn.
Sérhvert barn ætti aö leggja við
hlustirnar og heyra fallegt mál á
skemmtilegri sögu. Hvernig
væri að fuliorðnir legðu líka viö
hiö sama.
17.00 Meðánótunum.Tónlistarþátt-
ur þeirra, sem vilja fylgjast meö
og vera með í umræöunni. í um-
feröínni.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra vin-
kona okkar segir okkur frá hug-
arástandi unga fólksins. Það er
ekki gott. Ekkert nema svartsýni.
Sprengjan og allt það.
01.10 Á næturvaktinni. Sigmar er
humar og B. er fé. Ekki er þao
efnilegt.
Laugardagur
22. janúar
9.30 Óskalög sjúklinga. Ég er ung-
ur. óg er frískur. Lóa Guðjóns-
dóttir stjórnar þessu af alkunnri
röggsemi.
11.20 Hrímgrund. Barnaútvarp full-
orðna fólksins. Venni vinur er
þar á meöal.
15.10 í dægurlandi. Viö erum fyrir of-
an hann og aldrei heyrist í hon-
um. Mikið prúömenni og góö-
menni og skemmtimenni. Sem-
sagt: prýöisnáungi. Svavar
Gests.
16.20 Þá, nú og á næstunni. Fortíö,
nútiö og framtiö. Allt i einni sjón-
hendingu. Ég hendi sko ekki
sjóninni fyrir þaö,
16.40 Islensktmál. Jón Hilmar Jóns-
son skemmtir okkur með
skemmtisögum. Meö hverju
ööru sosum?
17.00 Síðdegistónleikar. íslending-
ar leikar erlenda tónlist frá því
fyrir langa löngu. Ekki beisiö.
18.00 Um stundarsakir. Ungi maö-
urinn meö upplýstu augun les úr
óprenthæfum Ijóöum. Svona
hálft i hvoru. A.A.S.
19.35 Á tali. Ég er hættur aö svekkja
mig á þessum kvensum. Tek
bara undir þaö, sem maðurinn
sagöi: Eruö þiö mæður? Guö
hjálpi ykkur!
23.00 Laugardagssyrpa. Skemmti-
legir strákar. Leiöinlegir strákar.
Ykkar aö velja og hafna hlust-
gndur góöir. Eg hafna. Hef betra viö
tima minn aö gera. T.d. aö horfa
Sunnudagur
23. janúar
8.35 Morguntónleikar. Margir
andans jöfrar eiga þarna verk,
en ég verð því miður sofandi.
Æm sorrí.
10.25 Út og suður. Friörik Páll Jóns-
son meö þátt um uppheima og
aöra góöa geima.
11.00 Messa. Mælskupresturinn og
skemmtilegheitafýrinn og Hafn-
firöingapresturinn séra Gunnþór
Ingason lætur nokkra góöa
fjúka.
13.10 Frá liðinni viku. Páll Heiöar
leiöir saman gáfnahesta og
leikin er klassísk harðlífistónlist í
milli spakviturra setningabrota
og ræskinga.
14.00 Eldgosið i Heimaey tyrir 10
árum. Eyjapistilsbræður setja
saman þátt meö viötölum, kann-
ski bæði gömlum og nýjum.
Visnaskáldið aöstoöar.
16.20 Gamanið i guðspjöllunum.
Ósköp eölilegt. Jesú hefur varla
veriö sá durtur aö hafa ekki smá
húmor fyrir sjálfum sér. Annars
veit Dr. Jakob Jónsson manna
mest um þetta, Enda doktor í
guösfyndni.
19.25 Veistu svarið? Hahahahaha-
hahahahaha!!!
21.30 Kynni mín af Kína. Þvi fína.
Hahahaha? Raggi segir frá.
20.45 Nútímatónlist. Nú ætlar Þor-
kell Sigurbjörnsson aö æra
pakkið, eins og þaö leggur sig.
Góöur maöur Keli.
sjoroitp
Föstudagur
21. janúar
20.40 Ádöfinni. Samagamlasagan,
syngur Sigga Skagan, einn og
tveir og þrir og einn og tveir og
þrír...
20.50 Prúðuleikararnir. Hallur undir
linditréö segir froskpöddum og
öörum svinhöfðum lifsreynslu-
sögur úr annarri tilvist. Betra
getur þaö vart veriö. Nægur tími
til aö sofa og slappa af.
21.15 Kastljós. Þeir eru komnir meö
ofbirtu í augun þessir veslings
fréttamenn. Skyldu þeir ekki fá
ókeypis gleraugu? Alla vega er
Ömmi orðinn slappur. Gaui
stendur sig eins og hetja.
22.15 Eitt er ríkið (United Kingdom)
Ný bresk sjónvarpsmynd.
Leikendur: Colin Welland, Val
McLane, Bill Paterson, Rose-
mary Martin. Leikstjóri: Ronald
Joffé. Borgarstjórinn gerir upp-
reisn gegn ríkisvaldinu. Borgar-
stjórn gerir uppreisn gegr. lög-
reglunni. Ég geri uppreisn gegn
lágkúrunni í kringum mig. En
enginn má viö margnum. Hvar
er Davíö? Hvar keypti hann öliö?
Laugardagur
22. janúar
16.00 íþróttir. Bjarni Felixson er
óvenju snemma á feröinni núna,
enda ekki ráö nema í tíma sé
tekið.
18.00 Hildur. Islensk ungfrú heldur til
Danmerkur og af ævintýrum
hennar skulum viö nema
danska tungu. Gott svo langt
sem þaö nær. Fyrir danafíla.
18.25 Steini og Olli. Vinir okkar
lenda í miklum grafarræningja-
háska. Hvort eru þeir glæpa-
menn eöa góðir menn? Góö
spurning. Glæpsamlega góö.
18.50 Enska knattspyrnan. Spenn-
andi efni. Spennandi efnisþætt-
ir.
20.30 Löður. Sáþustykkin fljúga um.
Allir neita aö fara i baö. Meira aö
segja ég. og er þá mikið sagt.
Enda er þetta heilabað af verstu
tegund.
20.55 Tigur í veiðihug (The Tiger
makes out) Bandarisk bíó-
mynd, árgerð 1967. Leikendur:
Eli Wallach, Ann Jackson. Leik-
stjóri: Arthur Hiller. Ben Harris er
heldur óhress meö tilveruna og
þess vegna ákveður hann aö
ræna sér kvenmanni. Skemmti-
leg mynd, þar sem Dustin Hoff-
man sést bregöa fyrir í litlu hlut-
verki.
22.30 Tvöfaldar bætur (Double
Inderrmity) Bandarísk bíómynd,
árgerö 1944. Leikendur: Fred
McMurrey, Barbara Stanwyck,
Edward G. Robinson. Leikstjóri:
Billy Wilder. Stórvel gerö og
spennandi mynd um vel skipu-
lagt morö. Hvar er siðgæðiseftir-
litið?
Sunnudagur
23. janúar
16.00 Sunnudagshugvekja. Þáttur
þjóökirkjunnar i landsmálunum.
Skemmtiefni fyrir alla fjöl-
skylduna.
16.10 Hundurinn og heiðinginn.
Bandarisk mynd um sama
manninn, sem er i rauninni tveir
menn. Innan filmu og utan, eöa
öfugt? Alla vega bráðskemmti-
leg stúdía á tvöfeldni mannssál-
arinnar.
16.55 Listbyltingin mikla. Valdatafl i
listaheiminum. Hvor er betri ég
eða þú? Auðvitað ég. Ég skrifa
þetta. Breskur listaflokkur. Enda
kosningar í nánd.
18.00 Stundin okkar. Tvímenning-
arnir og þríbrúöurnar stjórna
heilum barna okkar.
20.35 Sjónvarp næstu viku. Alltaf
ertu eins, gamli minn. Alltaf jafn
skemmtilegur.
20.50 Glugginn. Listirog menningar-
mál. Svei mér þá og ussususs.
S.I.B.
21.30 Ár elds og ösku (A Year of
Fire and Ashes) íslensk sjón-
varpsheimildarmynd um eldgos-
ið í Vestmannaeyjum. Nú eru
liðintiu ár. Aö hugsasér. Myndin
hefur veriö sýnd víöa um heim
en aldrei hér. Fallega hrikaleg
mynd.
22.05 Kvöldstund með Agötu
Kristí. Blái vasinn heitir dans-
inn i þetta sinn og honum stjórn-
ar Ceryl Coke. Reyndar er þaö
vasavals um golfleikara. Hvar er
Evans?