Helgarpósturinn - 11.03.1983, Blaðsíða 4
Stóðust ráðherrarnir prófið ?
4
Föstudagur 11. mars 1983
Jpifísturinft
Ríkisstjórn sú sem væntanlega fer frá völdum eftir kosningarnar
í næsta mánuði hefur setið á fjórða ár, eða um það bil þann tíma sem
nemendur eyða jafnan í menntaskólum, fjölbrautaskólum og iðn-
skólum landsins. Allir nemendur yfirgefa skóla sína með einkunn á
bakinu, einhverja tölu sem er mælistika á hæfni þeirra í starfi
undanfarinna ára. Nemendurnir þurfa að gangast undir margskon-
ar próf á námstímanum og sinna verkefnum sem stöðugt eru metin
af yfirvaldi — sumir fara útí lífið með ágætiseinkunn, aðrir með fall-
einkunn, eins og gengur.
Ráðherrar þurfa að gangast undir próf í sínu starfi eins og aðrir og
vinna að verkefnum. Og kjósendur meta störf þeirra. Helgar-
póstinum fannst ekki úr vegi, nú á þessum tímamótum,að láta kunn-
uga einstaklinga; fréttamenn, stjórnmálamenn, embættismenn og
forystumenn hagsmunasamtaka meta störf einstakra ráðherra og
gefa þeim einkunn á mælikvarðanum einum og uppí tíu, eins og í
skólanum í gamla daga. Tíu einstaklingar voru beðnir um að gefa
hverjum ráðherra einkunn, og meðaltal þeirra einkunna er talan sem
á síðunni fylgir nafni hvers og eins.
Rétt er að taka fram að þetta er að sjálfsögðu ekki ýtarleg eða alvar-
leg úttekt á störfum ráðherra, miklu fremur er greinin hugsuð sem
skemmtiefni með örlitlum alvöruþræði.
Helgarpósturinn setur störf ráðherra fráfarandi ríkisstjórnar undir mæliker
Svavar
Gestsson
„Maðurinn er með ó-
líkindum duglegur og hæf-
ur”, sagði maður sem vel
þekkir til starfa Svavars
Gestssonar og gaf honum
níu. „Slappur fagráðherra,
en það að honum hefur tek-
ist að innleiða einskonar ráð-
herrasósíalisma í Alþýðu-
bandalaginu sýnir styrk
hans. Hann fær fjóra”, sagði
yfirlýstur stjórnarand-
stæðingur. „Svavar starfar í
pólitík af þó nokkrum heil-
indum, en er samt óvenju
sveigjanlegur og vel þokkað-
ur bæði af pólitískum and-
stæðingum og samherjum.
Hann er afburða verkmaður
og þjarkur til vinnuý sagði
fylgismaður ríkisstjórnar-
innar. Starfsmaður annars
ráðuneytis Svavars sagðist
mundu gefa honum'ágætis-
einkunn fyrir störf hans að
heilbrigðismálum, því þar
hefði hann unnið vel, en
hann fengi ekki eins hátt
fyrir félagsmálin, einkum
vegna húsnæðismálanna.
„Það hefur aldrei verið jafn
erfitt og nú að koma þaki
yfir höfuðið”, sagði hann,
„og það verður að skrifast á
reikning ráðherra-
að einhverju leyti!’
Ragnar
Arnalds
„Ragnar er mjög góður
fjármálaráðherra, svo ein-
falt er það”, sagði hagfræð-
ingur í opinberri þjónustu og
gaf einkunnina níu. „Hefur
klárað sitt ráðuneyti skamm-
laust og greinilegt að hann
leggur sig fram við sitt fag —
fjármálin”, sagði annar
kunnáttumaður. Annar
benti hinsvegar á að Ragnar
væri offari í skattheimtu, og
að hann hefði fært skulda-
söfnun ríkissjóðs til ríkis-
stofnana oe rikisfyrirtækja.
„Kemur þó heilskinnaður úr
skipbroti stjómarskútunnar
með einkunnina 7.5. ” Mað-
ur vel kunnugur Ragnari
sagði hann íhaldsaman og
skelfing ábyrgan. „Hann er í
rauninni dæmigerðasti fjár-
málaráðherrann síðan Ey-
steinn Jónsson gegndi því
starfi. Sjálfur er Ragnar
hálfgerður framsóknarmað-
ur og klókur eins og gamall
sjálfstæðismaður. Ég gef
honum 8.5”. Allar einkunnir
Ragnars voru fyrir ofan sex
nema ein — 0,0. „Hann ætti
kannski að fá tíu fyrir að
safna skuldum en sýna samt
hallalausan ríkisrekstur. En
ég gef honum núll fyrir slík
vinnubrögð”.
Ólafur
Jóhannesson
„Það ber sjaldan mikið á
starfi utanríkisráðherra en
Ólafi hefur tekist að verða
nánast ósýnilegur í því.
Hann hefur ekki gert nein
mistök í starfinu og fær 8.0”,
sagði maður þaulkunnur
samskiptum landsins við út-
lönd. „I rauninni er gamli
maðurinn alveg búinn í
þessu. Hann virðist vera al-
gjört hross í samskiptum
bæði við andstæðinga og
samherja. í rauninni ekki
annað en goðsögn. Hann
fær 4.0”, sagði einn þing-
fréttamanna. „Ólafur klárar
það sem hann beitir sér fyrir,
það hefur hann alltaf gert og
gerir enn. Hann er kannski
orðinn svolítið latari en áð-
urj’ sagði einn viðmælenda
okkar, og annar sagði:
„Hann er ágætur land-
varnamaður þó hann hafi
verið of linur í flugstöðvar-
málinu. Ég gef honum átta’’
Pálmi
Jónsson
„Pálmi fær betri einkunn
en Halldór E. en lakari en
Ingólfur á Hellu. Ég gef
honum þvi 7.0,” sagði einn úr
landbúnaðargeiranum, sem
lengi hefur fylgst með land-
búnaðarráðherrum. „Ég
held að bændur séu sæmi-
lega ánægðir með Pálma —
hann hefur dugað sauðfjár-
bændum vel, hvað sem segja
má um aðrar búgreinar,”
bætti hann við.
Annar forystumaður taldi
Pálma með betri ráðherrum
sem hann hefði kynnst enda
hefði hann alltaf verið með á
nótunum. Hann fengi því 9.0
hjá sér. Sá þriðji gaf ráðherr-
anum 6.0 og taldi „vel gefið”.
Sá taldi Pálma hafa um of
látið „fljóta” í landbúnaðar-
málum og að á vissum svið-
um hefði ráðherrann sýnt af
sér hreint ábyrgðarleysi og
óskhyggju, t.d. í sambandi
við útflutning á kindakjöti.
„Annars held ég að helsti
galli Pálma hafi verið að
hann hefur ekki hlustað á
góð ráð — nema þá já-
bræðra sinna. Og sumt af
því, sem hann hefur sagt og
gert, hefur lyktað af
kosningaáróðri!’ sagði hann.
Gunnar
Thoroddsen
„Ég vil gefa Gunnari tvær
einkunnir. Tíu fyrir refshátt
en núll fyrir raunverulegan
árangur”. Þetta sagði stjórn-
málamaður við Helgarpóst-
eftir Guðjón Arngríms-
son og Ómar Valdi-
marsson
inn og mjög margir tóku í
sama streng. „Ekki mikill
verkmaður og ósvífinn í
meira lagi. En hann er stór-
pólitíkus og refur og fær
7.5”,sagði annar. „Það hefur
verið að koma æ betur í Ijós
að Gunnar er slakur for-
sætisráðherra. Hann fær því
ekki nema fimm,” sagði
stjórnarandstæðingur, en
stjórnmálafræðingur sagði
Gunnar einfaldlega slyng-
asta stjórnmálamann lands-
ins og þótt víðar væri leitað.
„Enginn þáttur í þjóðarbú-
skapnum er betur kominn
nú en hann var þegar ríkis-
stjórnin tók við — flestir
mun verr. Forsætisráðherra
tókst hinsvegar að breyta
meðráðherrastólum í
nokkurskonar sjálfheldu
sem ekki varð komist úr þótt
menn vildu. Ennfremur að
láta þá suma kokkyngja
stefnumiðum og slagorðum.
Það var kúnst útaf fyrir sig.
Einkunnin er því 6.0”, sagði
maður sem náið hefur fylgst
með stjórnmálum árum
saman.
Tómas
Árnason
„Ég vildi helst gefa Tóm-
asi tværeinkunnir, vetrarein-
kunn og prófseinkunn.
Hann fær góða vetrarein-
kunn því það er gott að leita
til hans, maðurinn er já-
kvæður og skilningsríkur, en
það liggur ekki mikið eftir
hann|’ sagði þekktur maður
úr viðskipalífinu og gaf
Tómasi Árnasyni 5,5.
„Hann fær fimm fyrir að
synda brosandi í gegnum
embættið’sagði annar.Frétta-
maður gaf honum fimm með
þeim orðum að hann væri
fremur hægrisinnaður skrif-
stofumaður en ráðherra.
Hagfræðingur gaf Tómasi
sex aðallega fyrir að kunna'
að halda sig á mottunni og
vera ekki að vasast í öðrum
málum en þeim sem koma
embætti hans við. „Tómas
hefur ekki unnið stórkostleg
afrek, en hann hefur heldur
ekki gert nein veruleg axar-
sköft”.
Hjörleifur
Guttormsson
„Það sem fer auðvitað
með feril Hjörleifs er niður-
staðan í álmálinu, ef niður-
stöðu skyldi kalla. Einhverra
hluta vegna hefur honum
tekist — með dyggri aðstoð
Morgunblaðsins — að sigla
því máli i strand. Ætli þeir
skemmti sér ekki, Sviss-
lendingarnir?” sagði einn
viðmælenda okkar. „Engu
að síður hefur Hjörleifur
verið mjög vandvirkur og
nákvæmur og líklega fyrsti
ráðherrann í iðnaðarráðu-
neytinu, sem vill hugsa áður
en hlaupið er í Kröflurnar.
Hann fær því sjö hjá mér!’
„Mikið talað, mikið rann-
sakað, lítið sem ekkert gert!’
sagði einn sem gaf ráðherr-
anum einkunnina 2.0. Annar
sagði: „Hjörleifur er mikill
verkmaður en vinna hans á
eftir að nýtast betur framtíð-
inni en vanþakklátri samtíð.
Hjörleifur er greinilega
vönduð tilfinningavera þótt
kaldur málmur hafi náð yfir-
höndinni. Stirður og ósam-
vinnuþýður. Hann fær því
ekki nema 7.0!’
Og forystumaður í raf-
eindaiðnaði sagðist gjarnan
vilja gefa iðnaðarráðherra
10 fyrir vönduð vinnubrögð
en minna fyrir athafnir.
„Það verður einfalt fyrir
ráðherra að taka við álmál-
inu, svo vel hefur það verið