Helgarpósturinn - 11.03.1983, Síða 19
19
Jplfisturirin. Föstudagur 11. mars 1983
Sænska stálið
Sú var tíðin að ekki var völ á
betra stáli en því sem unnið var
með sænskum viðarkolum. Þá
þurfti að fara allt suður til Toledo
eða austur til Damaskus til þess
að fá sverð er jöfnuðust á við hin
sænsku. Þá var Svíþjóð stórveldi
og sendi riddara sína lan.gt suður
og austur um Evrópu.
Nú er öldin önnur, Svíar eru
friðsöm þjóð sem hefur tekist að
halda sér utan við tvær heims-
styrjaldir. í stað riddaranna senda
þeir afreksmenn í íþróttum út um
heiminn, menn eins og Ingmar
Stenmark og Björn Borg. Allir
eldri skákmenn kannast við þrí-
stirnið Stoltz-Stáhlberg-Lundin,
frægustu skákkappa Norður-
landa á sinni tíð. Nú er Lundin
Skák
vígi, en það gerir ekkert til því að
honum finnst gaman að tefla
endatafl. En það finnst andstæð-
ingnum ekki eins skemmtilegt, að
minnsta kosti ekki ef hann stend-
ur Iakar. Nánast án þess að gera
sér grein fyrir því styttir hann sér
aldur í 70-80asta leik — en
kannski endist hann þó 100 leiki.
Þessi fallega og rökrétta fram-
vinda bregst þó stöku sinnum,
annaðhvort vegna þess að and-
stæðingurinn fellur fyrr, eða Ulfi
sést yfir eitthvað í því æðisgengna
timahraki sem hann kemst oft í.
Við skulum líta á eina Ulfsskák
af styttra taginu, hann á þar í
höggi við annan stórmeistara frá
Norðurlöndum, Westerinen.
einn á lífi þeirra þriggja og hefur
ritað minningar sínar.
Nú en Svíar eiga þó aftur þann
taflmeistara sem stigahæstur er á
Norðurlöndum: smávaxinn ljós-
hærðan mann sem verður 32 ára á
þessu ári. Það var árið 1972 að
hann náði síðari áfanga að stór-
meistaratitli hér í Reykjavík. Mér
er hann minnisstæður frá þessu
skákmóti: ákaflega Ijós og ótrú-
lega smáveixinn, hann hreiðraði
um sig eins og kettlingur í stólnum
þegar hann var að tefla. Ulf And-
ersson er ávöxtur af fræðslustarfi
Svía í skákmálum. Hann fæddist
í Arboga, sveitarfélagi í útjaðri
Stokkhólms, þar sem mikið er
gert fyrir skákina, hún er kennd
ungum börnum í grunnskóla. Ulf
lærði því mjög ungur að tefla og
varð skákmeistari Svíþjóðar 18
ára gamall. Síðan hefur hann
unnið margan ágætan sigur á
skákmótum og verður það ekki
rakið nánar hér. Þessir sigrar hafa
ýtt honum upp í allra fremstu röð
taflmeistara nú. Ulf var tvö ár rík-
isþjálfari Kúbu í skák og þar fann
hann sér konu. Árið 1975 voru
honum veitt listamannalaun í Sví-
þjóð og er hann fyrsti skákmaður
Svia er þau hlýtur.
Ulf Andersson er laus við allt
yfirlæti og enginn auglýsinga-
maður fyrir eigin hönd. Hann
gerir lítið að því að tefla fjölskákir
og skrifar aldrei í blöð. Skákstíll
Ulfs er jafn yfirlætislaus og mað-
urinn sjálfur. í skákum hans eru
fjörugar sveiflur sjaldgæfar,
hann virðist ekki áleitinn að fyrra
bragði, en undiraldan er þung.
Bent Larsen sem er sjaldan myrk-
ur í máli hefur lýst skákstíl Ulfs á
þessa leið í sænska tímaritinu
Schacknytt:
Venjuleg Ulfsskák er löng. Hún
hefst á rólegu forspili, því að Ulf-
ur er ekki áreitinn og gildir þá
einu hvort hann hefur hvítt eða
svart. Eftir mikla og langa liðs-
flutninga er andstæðingurinn
kominn með peðaveilu eða
kannski lélegan biskup. Þá eru
drottningakaup næst á dagskrá
og síðan fer skákin í bið. Ulfur
stendur ekki nema örlítið betur að
Andersson Westerinen
Genf 1977
ENSKUR LEIKUR
1. c4-Rf6
3. g3-Bg7
0-0-d6
d3-e5
a3-Bd7
axb4-Dc8 12,
5.
7.
9.
11.
2. Rf3-g6
4. Bg2-0-0
6. Rc3-Rc6
8. Hbl-a5
10. b4-axb4
Bg5-Bh3
Með þessum leik lætur svartur
hvít eftir of mikil völd á miðborð-
inu.
Re7 var betra.
13 Bxf6!-Bxf6 14. Rd5-Bd8
Biskupinn verður að valda e7, því
að ella kemur 15 b5.
15 Bxh3-Dxh3 16. Hal!-Hxal
Líklega var skárra að leika Dc8,
en það er aðeins farið að halla
undan fæti fyrir svarti.
17. Dxal-Dc8
Hann varð að koma í veg fyrir
Da8.
18. b5-Rb8
Var ekki Re7 betra? Þá er hægt að
svara 19 d4 með f6 eða jafnvel
Rxd5 20 cxd5 e4.
19. Da8-He8
Svartur er kominn í klípu, 19 - c6
20 bxc6 bxc6 21 Hbl gengur sýni-
lega ekki.
20. Hal-e4
Þegar góða leiki skortir sækja
fingurbrjótarnir á.
21. dxe4-Hxe4 22. Ha7-Hxc4
23. Kg2!
Ekki má vera of veiðibráður:
23. Hxb7? Dh3!
En nú er taflið tapað, t.d. 23-c6
24. Hxb7 cxd5 25 Hxb8 og vinnur
biskupinn.
Hér gafst Westerinen upp.
Spilaþraut helgarinnar
Spilaþraut.
Báðir í hættu. Vestur gefur.
S Á-K-7-4-3 S 9-6-5
H K-G-6 H Á-D-9-5-2
T Á-K-6-2 T 8-5-3
L 8 L 9-4
Sagnir:
Vestur Austur
1 spaði 2 spaðar
4 spaðar pass
Gegn fjórum spöðum vesturs
lætur norður laufa kóng og held-
ur áfram með lauf. Hvað gerir
vestur?
Það er Ijóst að liggi spaðarnir
þrír-tveir, þá fær vestur ellefu
slagi. En ef þeir eru fjórir-tveir?
Þannig voru öll spilin:
S 2
H 10-8-7,
T D-10-9-4
L K-D-10-5-3
S Á-K-7-4-3 S 9-6-3
H K-G-6 H Á-D-9-5-2
T Á-K-6-2 T 8-5-3
L 8 L 9-4
S D-G-10-8
H 4-3
T G-7
L Á-G-7-6-2
Auðséð er, að láti spilarinn út
hátromp, þá er spilið tapað.
Reyndu sjálfur!
Vinningsleiðin er sú, að vestur
lætur lítinn spaða í þriðja útspil.
Suður lætur svo
rautt spil sem 15
É.
FRÁ KRYDDVILLU
Ég biðst velvirðingar á því að andi minn skuli
ekki hafa svifið yfir blaðasúpunni sl. tvær vikur.
Fjarvera mín stafaði þó hvorki af leti né útmánaða-
sleni, heldur líkamsrækt sem snerist,upp í and-
hverfu sína, m.ö.o. jazzballett sem endaði í sjúkra-
leikfimi. Minn skakki hryggur þoldi ekki sumar af
þeim fettum og brettum sem jazzballett útheimtir.
og að endingu hélst ég varla við ógrátandi nema
annað hvort gangandi eða syndandi, allra síst sitj-
andi við ritvé!. Ég ráðlegg öllum þeim sem ntí eru
í líkamsræktarhugleiðingum með hækkandi sól að
ráðfæra sig við sjúkraþjálfara eða samviskusaman
heimilislækni áður en þeir hefjast handa, annars
getur illt af hlotist. Nóg um það.
Blaðstjórnin fór þess á leit við migað ég fjallaði
um krydd í nokkrum pistlum, þar sem sumir/
stjórnarmeðlimir væru kryddvilltir eins og svo
margir aðrir. Mér er ljúft að verða við þessari
beiðni, þó ekki væri nema í þakklætisskyni fyrir að
matkrákupistlarnir hafa aldrei verið ritskoðaðir
(þrátt fyrir að í þeim hafi stundum mátt finna bæði
guðlast og klám, að sumra dómi...). Sést af þessu
hversu frjálslynt blað Helgarpósturinn er. líkast til
það eina frjálsa og óháða hér um slóðir...
Af þessum sökum verður þessi pistill og þeir
næstu helgaðir kryddi og notkun þess. Um efnið
hafa náttúrlega verið ritaðar margar lærðar bækur,
en plássins vegna'verður ■ umfjöllunin á þessum
vettvangi að vera í harðsoðnara lagi.
En frá kennslufræðilegu sjónarmiði held ég að
heillavænlegra sé að birta í hverjum pistli vel krydd-
aða uppskrift og gera í framhjáhlaupi grein fyrir
þeim kryddum sem í henni eru, fremur en að ég fari
með kryddstafrófið í belg og biðu. Vonandi verður
þessi viðleitni til að leiða einhverja af kryddvillu
síns vegar.
Aiatkraksin
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
Krydd og kryddjurtir
Venja er að greina á milli krydda og kryddjurta.
Krydd eru ilmandi og bragðsterkir hlutar ýmissa
jurta sem einkum vaxa í hitabeltislöndunum þar
sem þær verða bragðsterkastar. Hinn eftirsótti
hluti viðkomandi plöntu er þurrkaður, hvort sem
það er börkurinn, berin, ávöxturinn eða ræturnar.
Þá eru og fræ ýmissa plantna notuð sem krydd.
Ýmist eru kryddin notuð 1 heilu lagi eða steytt. Sem
dæmi má nefna að af kúmenplöntunni eru fræin
notuð en börkurinn af kanelplöntunni.
Af svokölluðum kryddjurtum eru það aðeins
blöðin sem notuð eru. Þær má og margar hverjar
rækta á norðlægari slóðum en hinar fyrrnefndu.
Agnarögn um sögulegt
hlutverk kryddsins
Kryddnotkun i einhverri mynd er sjálfsagt jafn-
gömul mannkyninu, t.d. hafa þau mikið verið not-
uð til lækninga. — En þegar ég las mannkynssögu
hér í gamla dagá átti ég bágt með að skilja hvers
vegna stjórþjóðir háðu blóðugar styrjaldir um
krydd, þ.e. nýlendustríð Portúgala, Frakka, Hol-
lendinga og Breta á 16.,17. og 18. öld snerust ekki
sist um yfirráð yfir verslun með austurlensk
krydd. Menn þá á tímum notuðu krydd eins og við
gerum enn fdag: til að auka bragð matarins eða
gera það fjölbreytilegra, en þeir voru reiðubúnir að
berjast um það af annarri ástæðu; krydd deyfir
nefnilega bragð, eða öllu heldur hylur bragð leg-
innar fæðu sem enn heldur næringargildi en væri án
krydds óhæf til manneldis. Auk þess erú sumar
kryddtegundir rotvarnarcfni sem gera mönnum
kleift að halda kjöti óskemmdu í ár eða lengur án
kælingar. Negull hefur t.dví sér efnið eugenol sem
hindrar gerlagróður. (Negull er enn notaður til að
verja ákveðnar matartegundir skemmdum, t.d. við
vissa verkun á svinakjöti).
Fyrir daga tæknivæðingarinnar komu krydd því
i staðinn fyrir ísskápa og frystikistur. Þar sem
krydd var ófáanlegt svarf sulturinn stundum að
mönnum, því að þeir gátu ekki lagt upp nægilegan
vetrarforöa. Enda var kryddverð á síðmiðöldum
óheyrilegt: pund af engifer kostaði sauðarverð;
múskatpundíð var virt á þrjár kindur eða hálfa kú.
Pipar var öllu öðru kryddi verðmætari, hann var
talinn í piparkornum og piparsekkurinn sagður
mannlifs ígildi. Því voru nýlendustríðin sem fylgdu
í kjölfar landafund^r Vasco da Gama ekki háð af
nautnasýki einni saman, eins og ætla mætti i fljotu
bragði af lestri harðsoðinna kénnslubóka, heldur,
brýnni lífsnauðsyn.
Indverskur lambakjötsréttur
Hér kemur uppskrift að einföldum karrýrétti,
ekki þó mjög sterkum, handa fjórum. Hann stend-
ur alveg fyrir sínu með hrisgrjó'num og kókósmjöli
einum saman, en ef þið viljið hafa meira við getfð
þið aukið fjölbreytni meðlætisins: berið fram í litl-
um skálum bananasneiðar, bleyttar rúsínur, gúrku-
sneiðar, þeyttan rjóma, saxaða papriku og salt-
hnetur. ^ .
800 g lambakjöt
1 stórir laukar, saxaðir
2 hvítlauksrif, marin eða smátt söxuð
3 msk smjör eða smjörliki
3 dl vatn
1 súputeningur
1 kanelstöng
Vi tsk karrýduft
Vt tsk cayennepipar
2 meðalstórar kartöflur
200 g kókósmjöl
-4 skammtar af hrísgrjónum
salt eftir smekk
j. Hitið smjörið í potti og steikið laplc og hválauk
upp úr því örstutta stund. Bsétið út í kanel, karrý-
dufti, cayennepipar og vatni.
2. Skerið kjötið í u.þ.b. 3 cm þykka bita og.setjið
í pottinn ásamt súputeningnum. Látið sjóða við
vægan hita í u.þ.b. 35 mín.
3. Á meðan afhýðið þið kartöflurnar og skerið í
litla teninga. — Leggið kókósmjölið í skál og hellið
yfir það sjóðandi vatni, nægilega miklu til að þekja
kókósmjölið. Látið standa þar til rétturinn er til-
búinn.
4. Hafið nú til annað meðlæti. Vænlegast er að
bleyta rúsínurnar, þ.e. setja þær í pott ásamt vatni,
láta suðuna koma upp og sía vatnið strax frá. —
Sjóðið hrisgrjónin samkvæmt leiðbeiningum utan
á umbúðum.
5. Þegar rétturinn hefur mallað i u.þ.b. 35 mín. eru
kartöflubitarnir settir út i og allt látið sjóða í 15
min. til viðbótar. Smakkið þá á sósunni; e.t.v. kjós-
ið þið að salta hana meira eða styrkja kryddbragð-
ið með ögn meiri cayennepipar.
6. Síið vatnið frá kókósmjölinu og hellið vatninu í
pottinn og berið frám ásamt rjúkandi réttinum og
öðru meðlæti.
í þennan rétt eru notuð þrenns konar krydd fyrir
utan hvítlauk, þ.e. kanejl, karrý og cayennepipar og
nú skulu sögð deili á þeim.
Kanell (cinnamon)
Kanell er börkur af sígrænum runna sem vex
t.a.m. á Indlandi. Þegar börkurinn hefur verið
flettur af greinunum er hann sólþurrkaður og við
það vefst hann upp, verður að hinum svokölluðu
. kanelstöngum. Kanelstangir eru t.d. notaðar til að
krydda vín, svart kaffi og pottrétti. Steyttur kanell
(kanelduft) er notaður i kökur, búðinga og kex.
Hann er einnig notaður í ýmsar kryddblöndur, s.s.
karrý.
Cayennepipar eða chilipipar
Cayennepipar og chilipipar eru krydd alls óskyld
hinum eiginlega pipar. Þau eru fengin úr fræ-
hylkjum runna sem er upprunninn í Mið- eða Suð-
ur-Ameríku. Sömu ættar er paprikan líka sú sem er
ræktuð hér á landi. Tegundirnar eru missterkar eft-
ir stærð ávaxtanna, cayennepipar er hvað smá-
vaxnastur og jafnframt hvað sterkastur, paprikan
mildust.
Spánverjar kynntust chilipipar af Aztekunum í
Mexíkó og fluttu með sér til Evrópu. Þetta sterka
krydd hefur löngum verið mikið notað af fátæku
fólki, því agnarögn af kryddi þessu getur gert margt
óætið ætt.
Fræhylki plantnanna eru þurrkuð og síðan möl-
uð í fíngert duft.Cayennepipar er yfirleitt blanda af
-nokkrum chilipipartegundum. 1 Ameríku er chili-
pipar notaður í ólíklegustu rétti, s.s. baunarétti,
sbr. chilli con carne, hrísgrjónarétti, kjöt-, fisk- og
grænmetisrétti.
Karrýduft (curry powder)
Af því sem fram hefur komið er ljóst að karrý-
runninn vex hvergi. Karrýduft er vestræn útgáfa af
hinu indverska garam masala og er kryddblanda úr
allt að þremur tugum kryddtegunda. Þær al-
gengustu eru svartur pipar, chilipipar, negull, kan-
ell, kardímommur, kóríander, kúmen, engifer,
múskat, sinnepsfræ og'turmerik, þarhf chilipipar-
inn sterkastur. Karrý er notað jafnt í grænmetis-
rétti sem i fisk- og kjötrétti, svo og í sérstakar sósur.
Og lýkur hér frá kryddi að segja í bili.